Morgunblaðið - 09.08.1962, Síða 2

Morgunblaðið - 09.08.1962, Síða 2
2 MORGUN RLAÐIÐ Fimmtudagur 9. ágúst 1962. ^ Sovézk vísindi enn ■ kreddufjötrum E I N S og kunnugt er af blaðafregnum var nýlega haldin í Moskvu ráðstefna krabbameinsfræðinga frá ýmsum löndum. Einn þátt- ur í hinni pólitísku hlið ráðstefnu þessarar var á dögunum gerður að um- talsefni í ritstjórnargrein stórblaðsins „New York Times“. Þar segir svo: „Tilkynning miðstjórnar sovézka kommúnistaflokksins um að ekki væri á hennar valdi að vega og meta kosti umdeildra aðferða á sviði kraibbameinslækninga kann að marka straumhvörf í sögu vís indastarfsemi í Sovétríkjun- um. Bandaríkj amenn munu að sjálfsögðu furða sig á því, hvernig nokkrum hafi nokk- urntíma dottið í hug, að slíkt væri á færi miðstjórnarinnar. En í tíð Stalins þótti ekkert annað koma til greina en að sá, sem völdin hefði í stjórn- málum Rússlands, væri um leið öllum fremri á sviði hag- vísinda, heimspeki, efnafræði o.s. frv. Stalin hopaði hvergi, fyrr það var orðið á hans valdi að skera úr um, hvaða kenning á sviði erfðafræði væri rétt. Því má vel vera, að hann hefði ímyndað sér, að ekki skorti á hæfni sína til að skera úr deilum manna í Sov- étríkjunum um hina svo- nefndu Kacihugin-lækninga- aðferð við kraibbameini. En enn er drjúgur spölur ófarinn, áður en fjötrum stjórnmála og hugsjónakredda hefur verið svipt af sovézkum vísindum. Trofim Lysenko er enn i miklu uppáhaldi hjá Krúsjeff, þó hann neiti að við urkenna þann augljósa og mik ilsverða árangur, sem síðasta áratuginn hefur náðst að því er kjarnasýrur sner.tir og að nokkru leyti hefur orðið til þess að svipta hulunni fró leyndardómum erfðanna. — Peter Kapitsa, hinn frábæri, sovézki lífeðlisfræðingur, var ávítaður síðastliðið vor fyrir að hafa hugrekki til að benda á það tjón, sem marxískir hugmyndafræðingar hefðu valdið sovézkum vísindum. — Og vísindalegar bollaleggingar ólærðra manna á borð við Engels og Lenin eru enn með- al sovézkra kreddukenninga, sem í hávegum eru hafðar, þannig að vísindamenn í Sovétríkjunum verða að fara mjög varlega í sakirnar við að gagnrýna úreltar hugmyndir í skrifum manna þessara". 50.000 fóstureyðing- Útför Bryndísar Sigurjónsdóttur Fjölmenni í Árbæ um helgina UM 1.800 rnanns komu til Ár- bæjar um verzlunarmannahelg- ina. Engin sérstök skemmtiatriði fóru þar fram til þess að laða fólk að, en engu að síður streymdu Reykvíkingar á stað- | inn og skemmtu sér þar með prýði. Fór allt fram á hinn prúð- mannlegasta hátt. Veitingar þágu menn í gamla Dillonshúsi, og einnig voru dúkuð borð fyrir utan húsið. Margir gamlir verzlunarmenn hittust við Árbæ, en þar var fyrsta verzlunarmannahátíðin haldin árið 1920. Alls hafa nú komið um 10 þús- und manns til Árbæjar síðan 19. júní. Flutningaskip týndist Fannst með bilaða vél en óskaði ar á 3 mánuðum Vínarborg, 9. ágúst. — NTB — Reuter. VERKAI.ÝÐSBLABH) Nepszava í Búdapest í Ungverjalandi skýrir frá því í síðasta hefti, að skráðar hafi verið 50.000 fóstureyðingar í Ungverjalandi fyrstu þrjá mán- uði þessa árs. Á sama tíma fæddust 33.000 börn í landinu. Blaðið gefur þær upplýsingar, að allar konur geti fengið fóstri eytt, ef þær óski þess og þurfi SÉÐDEGIS á þriðjudag lézt í Reykjavík ísleifur Árnason, borg ardómari. Hann var fæddur 20. apríl aldamótaárið á Geitaskarði í Langadal, sonur Árna Ásgríms bónda þar og hreppstjéra Þorkelssonar. Hann lauk stú- dentsprófi í Reykjavík 1923, varð cand. juris frá Háskóla íslands 1927. ísleifur gerð- ist fulltrúi hjá borgarfógetanum 1928. 1935 — 1936 dvaldist hann við framhaldsnám í lögfræði er- lendis og var skipaður prófessor við Háskóla íslands 1936 og gegndi því starfi til 1948. Var hann síðan fulltrúi hjá borgar- dómaranum í Reykjavík og síð- ast borgardómari. 1943 — 1944 var ísleifur settur dómari í Hæstarétti. Auk þessa gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörf- um fyrr og síðar. litlar ástæður að vera fyrir hendi. Er sem dæmi tekið, að nægilegt sé fyrir konu að hafa ráðgert ferðalag, áður en hún varð barns hafandi til þess að hún sé losuð við fóstrið. Ennfremur er sú ástæða fullnægjandi að hjón hafi ekki efni á að eignast barn, því þau séu að spara sér fyrir íbúð eða bifreið. Blaðið segir, að sérstök nefnd annist milligöngu um fóstureyð- ingar. Nsfndin hafi þá reglu að telja konur á að halda fóstrinu, en sitji þær fastar við sinn keip samþykkir nefndin fóstureyðing- una. Þá upplýsir blaðið að skráðar fóstureyðingar séu fleiri en skráðar barnsfæðingar á sama tíma, en þær eru eru 33.000 og loks að algengt sé að ýmiss bonar sjúkleika kvenna megi rekja til fóstureyðingar — og margar konur verði ófrjóar eftir. Skemmti- lerð Hvatar Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt fer í þriggja daga skemmtiferð austur að Kirkjuibæjarklaustri mánudaginn 13. ágúst kl. 8 f. h. Farið verður frá Sjálfstæðishús- inu, og komið aftur þangað á miðvikudagskvöld. Verða skoð- aðar allar hinar fögru sveitir, sem farið er um og ekið fyrsta daginn að Kirkjubæjarklaustri og gist þar. Næsta dag verður farið að Núpsstað, bæn/húsið skoðað og flfcir staðir og gist næstu nótt í Vík í Mýrdal. Þann 14. verður haldið til Reykjavík- ur með viðkomu í Dyrhólaey og Skógaskóia. í öllum ferðum fé- lagsins hefur verið mikil þátt- taka, og vonast íerðanefndin eftir að svo verði nú. Allar upplýsingar og farmið- ar fást til laugardagskvölds hjá Ástu Guðjónsdóttur, Tómasar- haga 24, sími 14252, Kristínu Magnúsdóttur, Hellusundi 7, sími 15768, Gkiðrúnu Ólafsdótt- ur, Veghúsastíg 1A, sími 15092 og Maríu Maack, Þingholts- stræti 25. ekki aðstoðar ÚTFÖR frú Bryndísar Sigurjóns dóttur var gerð frá Dómkirkj- unni í Reykjavík í gær. Séra Jón Auðuns jarðsöng, Páll ísólfsson lék á orgel og Guðmundur Jóns- son söng einsöng í kirkjunni. Stjórn og félagar úr Tónskálda- félagi fslands báru kistuna úr kirkju. Fjölmennt var í kirkj- unni og athöfnin öll hin virðu- legasta. Þórður á Mófells- stöðum látinn Sl. mánudag lézt Þórður Jóns- son, Mófellsstöðum í Skorradal, 88 ára að aldri. Hann var blind- ur alla ævi, en þrátt fyrir sjón- leysið vann hann að smíðum og var landskunnur hagleiksmaður. Urðu ýmsar smiðar hans frægar hér Og hlutu verðlaun á iðnsýn- ingum. Þórður á Mófellsstöðum var maður greindur og vinsæll af öllum, sem hann þekktu. f GÆR var lýst eftir hollenzka flutningaskipinu Medusa, sem fór frá Akranesi hlaðið sementi á hádegi á mánudag og var væntaniegt tU fsafjarðar á þriðjudag. Kom skipið ekki til fsafjarðar á tilsettum tíma, og hóf slysavarnafélagið þá að beiðni Sementsverksmiðjunnar fyrirspumir um skipið í fyrri- nótt og héit þeirn uppi um nótt- ina um Loftskeytastöðina í Rvík án árangurs. Fyrirspurnirnar báru ekki árangur um nóttina en nokkru eftir að útvarp hófst í gærmorg- un, og lýst hafði verið eftir skipinu þar, bárust þær frétt- ir frá Kollsvík við Látrabjarg að flutningaskip hefði sézt á reki til hafs á Patreksfjarðarflóa í fyrrad. Var talið að það mundi skipið hafa verið á ferð. Um klukíkan 11 í gærmorgun hafði Medusa samband við Loftskeyta stöðina á ísafirði og tilkynnti að skipið lægi út af Dýrafirði með bilaða vél. Óskaði skipið ekki aðstoðar og taldi að vélin mundi komast í lag fljótlega. Ágætt veð ur var á þessum slóðum í giær. — Medusa er 700 lestir að stærð og flytur 250 tonn af sementi. — Marilyn Framhald af bls. 1. ^ hefði alltaf verið að leggja áætl- anir fyrir framtíðina, og ferill hennar, sem leikkonu hefði að- eins verið á byrjunarstigi. Marg- ar konur væru eins fagrar og Marilyn hefði verið, en fáar hefðu þær til að bera þann skín- andi persónuleika, er einkenndi hana. Hann lauk máli sínu með þvt að segja, að Marilyn hefði án efa verið með hæfileikamestu leikkonum vorra tíma. \'/lHAI5hnúior ¥: SnjóÁomo 7 Sfrúrír >< KuUatkH | SVSÖhnutor t úiism K Prumur /y/t,mU ^ HitttHf H Hmt | LÆGÐIN austan við norður odda Grænlands hreyfist A eftir og mun verða við suður strönd landsins i dag og valda þá austlægri átt og sennilega rigningu á Suðurlandi. Norðan-áttin var heldur far- gola, síðan stinningskaldi, sennilega dálítil rigning. Faxaflói til Vestfjarða og miðin: A eða NA gola, skýjað með köflum. Norðurland til Austfjarða og miðin: NA gola, skýjað, in að ganga niður í gær. Þó var ennþá víða rigning norð- austan lands klukkan 15 og aðeins 3ja stiga hiti í Möðru- dal. Veðrið kl. 10 í gærkvöldi: Sv-land og miðin: Austan sumstaðar dálitil rigning. SA-land og miðin Austan gola, síðan kaldi, dálítil rign- ing. Horfur á föstudag: Senni- lega norðlæg átt, dálítil rign- ing norðanlands en þurrt að mestu á Suður- og Vestur- landi. 0 Reiði í Hollywood Dagblaðið New York Post seg- ir frá því í dag, að meðal leikara í Hollywood sé ríkjandi mikil reiði, sökum þess, að mörgum heimskunnum leikurum var meinað að vera við útför Mari- lyn. Þeirra á meðal var Dean Martin, Gene Kelly, Peter Law- ford og einkaritari Marilyn May Reis. Segir blaflið,' að Milfcon Rudin lögfræðingur Marilyn hafi mótmælt þessu við Joe Di Maggio baseball-leikarans, sem var annar eiginmaður Marilyn —. og harmað að nánustu vinir hennar skyldu ekki fá að taka þátt í útförinni. Blaðið segir Di Maggio hafa svarað því tii, að væri það ekki vegna margra þessara vina henn ar, væri Marilyn ekki þar sem hún nú er. Blaðið segir ennfremur frá því, að Peter Lawford, sem er mágur Kennedys, forseta, hafi hringt tii Marilyn á laugardags- kvöld. Hafi hann skýrt lögregl- unni svo frá, að hann hafi hringt snemma um kvöldið og boðið henni til kvöldverðar. Hún hafi hafnað boðinu, sagzt vera þreytt og vilja sofna snemma. Ekki er víst, að símatal Lawfords sé sú símhringingin. er lögreglan leitar eftir — en vænzt er að þar sé að finna einhverja skýringu á láti Marilyu, , C

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.