Morgunblaðið - 09.08.1962, Page 12

Morgunblaðið - 09.08.1962, Page 12
12 MORnrnVRL4Ð1Ð Fimmtudagur 9. ágúst 1962. Cið hjónin stöndum í ómetanlegri þakkarskuld við vini okkar hvaðanæfa fyrir hlýhug og vináttu okkur auð- sýnda á sjötugsafmæli mínu og fjörutíu og fimm ára hjúskaparatmæii okkar hjóna. — Það var okkur sérstakt gleðiefni er við clvöldumst erlendis að okkur skyldi ber- ast gjafir og blóm er báru svo órækan vott um vináttu sendenda. — Ekki sízt þökkum við börnum, barnabörn- um og starfsfólki til sjós og lands fyrir gjafir, kveðjur og blóm, sem svo ómetanlega vottuðu um tryggð og vin- áttu. — Kveðjur okkar til ykkar allra. Guðrún og Guðmundur Jónsson, Rafnkellstöðum. 17/ leigu 2ja herbergia kjallaraíbúð í Hlíðunum. Hitaveita. Aðeins regiusamt og ábyggilegt fólk kemur til greina. TiJboð er greini aldur, fjölskyldustærð og atvinnu sendist MhJ. merkt: „X Y — 7482“ fyrir hádegi laugardag. Símasfúlka óskast. Ensku — dönsku og nokkur vélritunar- kunnátta nauðsynleg. — Umsækjendur komi til við- tals í Tjarnargötu 4, 4. hæð í dag kl. 5—7 e.h. Dagblaðið JVIYND. Eiginmaður minn ÍSLEIFUR ÁRNASON borgardómari, andaðist i Borgarspítalanum 7. þessa mánaðar. Soffía Árnason. SVAVA SKAFTADÓTTIR, kennari lézt 1. ágúst sl. Jarðarförin hefir farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Systkinin. Eiginmaður minn og faðir okkar PÁL.L PÁLSSON sem andaðist á Vífilsstöðum 1. ágúst, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 10:30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Eiginkona og börnin. Móðir okkar RAGNHILDUR TEITSDÓTTIR sem andaðist 30. júh verður jarðsett frá Dómkirkj- unni í dag fimmtudaginn 9. þ.m. kl. 1,30 e.h. — Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Slysavarnarfélag Islands. Þórey Bóðvarsdóttir, Ágúst Böðvarsson. Þökkum hjartanlega einstaklingum og félögum auðsýnda samúð og vinarhug, vegna fráfalls eiginkonu minnar, móður og tengiamóður SOFFÍU JVI. ÓLAFSDÓTTUR Sérstakar þakkir færum við Maríu Maack, forstöðukonu fyrir hennar miklu hjálp og fórnarlund, ennfremur þakkir til allra annarra á sjúkrahúsinu, sem veittu henni hjálp. Kristinn Sveinsson, Egill O. Kristinsson, Guðrún Kristinsdóttir, Hrafnkell Kjartansson. Innilegar þakkir vottum við öllum vinum og vanda- mönnum, er sýnt hafa okkur vinsemd og hluttekningu við fráfall GUNNLAUGS BLÖNDAL, listmálara. María og Björn Blöndal, Sigríður og Björn Blöndal. Sveinn Þorláksson stöðvarstjóri í Vík í DAG á heiðursmaðurinn, Sveinn ÞorJáksson, fyrrv. sím- stöðvarstjóri í Vík í Mýrdal 90 ára afmæli. Hann er fæddur að Þykkvabæ í Landbroti 9. ágúst 1872. Foreldr ar han voru, Þorlákur Sveinsson, bóndi þar og kona hans, Stein- unn Þorsteinsdóttir frá Núpum í Fljótshverfi. 17 ára gamall fór hann að heiman í lausamennsku, og stundaði margskonar vinnu við sjó og í sveit. En árið 1896 réðst Sveiiui til skósmíðanáms á Eyrarbakka hjá Jóni Vilhjálms- syni frá Hofi, en hann varð síðar kunnur skósmiður í Reykjavík um langt skeið. Sveinn lauk prófi í iðninni, og kvæntist árið 1899, Eyrúnu G-uð ATLAS Crystal King °g Crysrtai CJueen ÞEIR ERU KONUNGLEGIR! ir glæsilegir utan og innan ii' hagkvæmasta innrétting sem sézt hefur stórt hraðfrystihólf með sérstakri „þriggja þrepa“ froststillingu sjálfvirk þíðing i( færanleg nurð fyrir hægri eða vinstri opnun ÍC nýtízku segullæsing it innbyggingarmöguleikar it ATLAS gæði og fimm ára ábyrgð it þrátt fyrir augljósa yfir- burði eru þeir lang ódýr- astir Góðir greiðsluskilmálar. Sendum um allt land. i QIN I X O. KORNERUP HANSEN Sími 12606 - Suðurgötu 10. mundsdóttur frá Ytri-Dalbæ í Landbroti. Var hún annáluð dugn aðarkona og manni sínum sam- hent, en er nú farin að heilsu. Þau hjónin hófu búskap alda- mótaárið, og settust að í Vík í Mýrdal. Voru þau meðal fyrstu landnemanna í Víkurkauptúni, og hafa lifað þar saman í meira en 6 áratugi, og notið, að verð- leikum, virðingar samborgara sinna. í Vík stundaði Sveinn iðn sína, en greip jafnframt alla þá vinnu aðro, sem til féllst og hann gat koniizt yfir, því að þarfirnar urðu miklar og munnarnir márg ir, sem þurfti að seðja. Þau hjón eignuðust 15 börn, og eru 11 þeirra á lífi. öll eru þau systkin myndar- og dugnaðarfólk eins og foreldrarnir, og gegna ýmsum störfum í þjóðfélaginu, Eru af- komendur þeirra Sveins og Ey- rúnar nú orðnir margir, því að barnabörn eiga þau mörg og nokkur barnabarnabörn. Það segir sig sjálft, að oft hafa þau hjónin þurft að halda spart á, því að ekki voru fjölskyldu- bæturnar til þess að létta undir með barnmörgum heimilium á fyrstu áratugum aldarinnar, og mikið starf ei að koma stórum barnahópi vel til manns. En það tókst þeim giftusamlega eins og annað. Þegar landssíminn var lagður til Víkur árið 1914, gerðist Sveinn Þorláksson stöðvarstjóri. Var þetta fyrst aðeins aukastarf, sem hann sinnti jafnframt skósmíð- inni, því að þá notuðu menn ekki símann nema í brýnni þörf. En þetta breyttist, og má telja að að allífsstarf Sveins hafi verið í þágu landssímans. Fyrir það er hann líka kunnastur. Því starfi gegndi hann fram yfir áttræðis Túnþökur úr Lágafellstúnl. Gróðrastöðin við Miklatorg. Sími 22-8-22 og 19776. grANit aldur við óvenjulegar vinsældir, og af slíkri lipurð og samvizku- semi að með eindæmum má telja. Nú ei Helga dóttir Sveins tekin við símstjórastarfinu, og er það vel, því að hún hefir erft lipurð föður síns. Gamli maður- inn hefir þó ekki lagt árar í bát- Hann starfar ennþá mikið. Þessi níræði öldurjgur skrifar enn alla símareikninganna, en heyrnin er tekin að bila allmikið, og er hann því af þeim sökum að miklu hætt ur að afgreiða samtöl. En þurfi að sækja fólk : símann, er Sveinn tilbúinn að skreppa út um allt þorp. Hleyptir hann þá við fót og mælir glaðlega við vegfarendur. Hann er síglaður á að hitta, oft með spaugsyrði á vörum, og fylg ist með því'. sem skeður innan- héraðs og utan eins og ungur maður. Svo mikil er samvizkusemi Sveins, að honum finnst helzt aldrei hægt að hafa símann lok aðan, þótt hinn lögboðni sima- tími sé liðinn og starfsdeginum lokið. Hver veit, hvenær fólk þarf á lækni að halda. Bílarnir, sem eru í förum, geta verið bilaðir fyrir austan eða sunnan, og bíl- stjórarnir þurft að koma boðum heim. Konurnar, sem eiga menn sína í ferðum, þurfa líka að vita af þeim þegar þeim seinkar vegna snjóa á vetrum eða vatnavaxta á Mýrdalssandi á sumrum. Það get ur strandað skip á Meðallands- fjörum. Ekki má síminn þá vera lokaður. Það gæti riðið á mörgum mannslífum. Öldungurinn situr í námunda við skiptiborðið þar til hann fer að hátta á kvöldin, og hann er kominn þangað aftur er aðrir rísa úr rekkju á morgn anna. Sveinn veit allt um færð og veður, og þurfi einhver að fá upplýsingar, gefur hann þær ætíð með sama glaða geðinu og hóg- værðinni. Öll hin miklu aukastörf vinn- ur Sveinn í þágu samborgara sinna, án þess að ætlast til greiðslu. Verður það aldrei þakk að eins og vert er. En gleðin, sem hann hefur fundið í starfi sínu, er honum áreiðanlega mikils virði og kannski miklu verðmæt ari en auður fjár. Óskipt vin- átta og þakklæti sýslunganna, er Sveini efalaust líka mikilsverð. Þegar ég minnist þessa níræða merkismanns dettur mér í hug, að meðal annarra nefnda, sem við fslendingar eigum, er ein, sem heitir orðunefnd. Árlega krossar hún fjölda manna, sem unnið hafa föðurlandinu og sam borgurum sínum vel. Sumir eru orðnir riddarar um þrítugsaldur, svo að varla er þeim fisjað sam- an. Mikið á ættjörðin þeim að þakka þegar þeir eru orðnir ní- ræðir eins og Sveinn Þorlákss., et Guð gefur þeim að lifa svo Jengi. En aldrei hefur orðunefndin átt riddarakross afgangs handa sím stöðvarstjóranum í Vík, enda mun hann aldrei hafa keipað eft ir slíku, og enginn fyrir hans hönd. Mundi Sveinn að líkindum leggja lítið upp úr því að vera sleginn til riddara. En sé Fálka orðan til þess að sæma þá menn henni, sem unnið hafa opinber störf svo vel að sómi sé að, þá á Sveinn Þcrláksson skilið að fá hana. Eg fullyrði að samvizku- samari ernbættismenn en hann, á ríkið ekki marga. Kannski eru þetta stór orð, en ég legg þau hik laust undir dóm allra, sem mál- um eru kunnugir, og ég veit fyrir fram að sá dómur verður á einn veg. Það er mikils virði að menn leysi vel sf hendi þau störf, sem þeim er trúað fyrir, og af þeim krafizt. Slíkt ber að þakka. En hitt er þó meira um vert, að vinna langt fram yfir fyllstu kröfur. Þannig hafa störf Sveins Þorlákssonar verið unnin um fjölda ára, öllum, sem njóta áttu til ómetanlegs gagns. Skaftfellingar eldri og yngri þakka Sveini og hinni góðu konu hans mikilsverð og vel unnin störf á langrí ævi. Hinir mörgu vinir þeirra fjær og nær senda þeim hlýjar kveðjur á merkum tímamótum, og óska þeim báðum góðs ævikvölds. Ragnar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.