Morgunblaðið - 11.08.1962, Blaðsíða 1
ZU sfOur
49 árgangur
181. tbl. — Laugardagur 11. ágúst 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsíns
Sannleikurinn um austurviðskiptin:
íslendingar einir halda þeim viö
með viðskiptahömlum
Samt eru vörur að austan oft dýrar og léleg-
ar og afgreiöslur sviknar
Önýtar perur og hreinlætistæki,
sumarskór á haustin og skóhlifar
yá vorin — Byggingarefni 30—40%
dýrara — T/ónið lendir á neytendum
í TILEFNI af því að blöð stjórnarandstöðunnar hafa sam-
einazt í árásum á ríkisstjórnina vegna austurviðskiptanna
og tekið upp hanzkann fyrir kommúnistaríkin, hefur Morg-
i-rtblaðið aflað sér ítarlegra upplýsinga um þessi viðskipti
og kemur þá margt í ljós, sem vekja mun mikla athygli.
I*annig er ísland nú eina ríkið í Vestur-Evrópu, sem við-
heldur innflutningshömlum á hluta innflutnings til að
tryggja viðskipti við kommúnistaríkin, að Finnum undan-
skildum, sem ganga þó miklu skemur en við.
Við höfum keypt miklu meira af Rússum en þeir af
okkur, enda selja þeir standard-vörur á sæmilegu verði.
Rússar hafa endurselt Tékkum og Pólverjum síld héðan.
'ff Önnur kommúnistaríki hafa ýmist ekki getað eða vilj-
að selja hingað, þannig að við eigum hjá þeim miklar
upphæðir. —
Vörur frá Austur-Þýzkalandi, Póllandi og Tékkó-
síóvakíu hafa oft verið lélegar og dýrar, en auk þess hafa
r.fgreiðslur verið sviknar svo að t. d. sumarskófatnaður
hefur komið á haustin og skóhlífar á vorin.
íslenzkir neytendur hafa beðið mikið tjón af þessum
viðskiptum, en þó hefur nokkuð úr rætzt, þegar sýnt var
að við gátum keypt vörurnar annars staðar.
Við höldum einir
viðskiptahöftum
Þegar hliðsjón er höfð af því,
að íslendingar eru eina þjóðin
í Vestur-Evrópu, sem viðheldur
viðskiptahöftum til að tryggja
viðskipti við Austur-Evrópu,
sést hve óréttmætar eru ásak-
anirnar um það, að við séum
viljandi að reyna að eyðileggja
austurviðskiptin.
Rússar og önnur
Austur-Evrópuríki
Þegar athuga á austurviðskipt
in ofan í kjölinn, er nauðsynlegt
að greina á milli viðskiptanna
við Rússa og viðskipta við önn-
ur kommúnistaríki. Af Rússum
kaupum við yfirleitt standard-
vörur, svo sem járn og olíu. Er
verðið á þessum vörum yfirleitt
nálægt heimsmarkaðsverði. Þess
vegna hefur viðskiptafrelsið haft
iítil áhrif á þessi viðskdpti, og
við höfum keypt miklu meira af
Rússum en þeir af okkur.
Við skuldum Rússum nú um
85 milljónir kr. að viðbættum
ébyrgðarskuldum, en skuld okk-
ar hefur komizt allt upp undir
200 millj. kr. Sýnir það, að erf-
iðleikarnir eru í sambandi við
útflutningshlið viðskiptanna, þ.e.
a. s. að Rússar eru tregir til að
kaupa á sama verði og hægt er
að fá annars staðar, því að auð-
vitað eru íslenzkir útflytjendur
fúsir til að selja hverjum þeim,
sem nægilega hátt verð býður,
enda segir það sig sjálft, að ís-
lenzk yfirvöld hindra ekkd þessi
viðskipti, þegar við yrðum ella
að greiða skuld okkar í hörðum
gjaldeyri.
Oft eru Rússar líka erfiðir í
viðskiptum, sérstaklega eru þeir
mjög strangir í kröfum um gæði
saltsíldar, og höfum við átt í erf
iðleikum þegar þeir hafa yfir-
tekið síldina.
Aðrar ástæður liggja til erfið-
leikanna við að skipta við hin
kommúnistaríkin, eins og síðar
verður vikið að.
Rússland:
Fóstur-
eyóing á
mínútu!
Moskva, 10. ágúst — AP.
SOVÉZKA stjórnin til-
kynnti í dag, að hafin sé
fjöldaframleiðsla á sérstak-
lega handhægu tæki til fóst-
ureyðinga.
Blaðið „Mediziniski Ra-
botnik“ segir tækfð vera sér
lega heppilegt til að eyða
fóstri, er skammt sé liöið á
meðgöngutímann.
„Öll athöfnin“, segir
blaðið, „tekur um eina mín-
útu og er nær sársaukalaus".
Fóstureyðingar eru leyfð-
ar í Sovétríkjunum og auð-
velt að fá þær framkvæmd-
ar.
Um Finna er það að segja, að
þeir viðhalda viðskiptahömlum á
tveim vörutegundum, olíum og
benzíni, í þeim tilgangi að þær
vörur séu keyptar af Rússum,
en við höfum enn fjölmargar
vörutegundir bundnar við Aust-
ur-Evrópu.
Fullt innflutningsfrelsi er nú
á 65% af öllum innflutningi, og
nær ekkert af þeim er keypt
fyrir austan tjald, þó að auðvit-
að sé heimilt að kaupa þær Vör-
ur þar.
Innflutningshöft eru á 35% af
heildarinnflutningnum og er
Framh. á bls. 11
El Al frestar áætl-
un til New York
Talið að ísraelska stjórnin ætli
oð hindra fangelsun hans
Londön, 10. ágúst — AP.
EL AL, ísraelska flugfélagið,
tilkynnti seint í kvöld, að
ekki yrði af flugi því, sem
áætlað hafði verið til New
York í kvöld, með viðkomu
í London. Ætlunin var, að
bandaríski njósnarinn. Dr.
Soblen yrði settur um borð
í þá flugvél, er síðan flytti
hann til Bandaríkjanna, þar
sem hans bíður ævilangt
fangelsi.
Vitað er, að stjórn ísraels
hefur mikinn áhuga á því, að
forða Dr. Soblen frá því að
verða fluttur í fangelsi.
í kvöld kl. 12 rennur út
dvalarfrestur sá, sem Dr.
Herinn
reisn í
gerir upp-
Argentínu
Soblen hafði verið gefinn í
Bretlandi.
Er síðast fréttist, var ekki vit-
að, hver yrðu viðbrögð brezku
stjórnarinnar, né hvað verður
um Dr. Soblen, er flugferðin
fellur niður.
Tilkynnt var í ísrael, að flug-
vélin, sem fara átti til New
York, þota af gerðinni Boeing
707 ,hafi ekki getað farið frá
ísrael vegna bilunar.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
I nótt var tilkynnt, að brezki
innanríkisráðherranm hefði enn
framlengt dvalarleyfi Dr. Soblen
um stund, en í fyrramtálið (laug-
ardagsmorgunn) verður mál
hans tekið fyrir af ráðuneytinu
að nýju.
Margar flugvélar héldu til
New York frá London í gær-
kvöld en Dr. Soblen dvelur enn
í Brixton fangelsi.
Landherinn neitar oð viðurkenna
hermálaráðherrann nýja
Buenos Aires, 10. ágúst. (NTB)
LANDHERINN í Argentínu
gerði í dag uppreisn til að
neita útnefningu Eduardo
Senorans sem hermálaráð-
herra. Herliðar, undir stjórn
Fernades Funos, hershöfð-
ingja, tóku í dag í sínar hend
ur húsakynni landvarnaráðu
neytisins í Buenos Aires, en
auk þess réðust hermenn, á-
samt ríkislögreglu og riddara
liði inn á aðaltorg borgar-
innar, og tóku það herskildi.
Áður höfðu 21 hershöfðingi
neitað að viðurkenna hermála-
ráðherrann nýja, og óska þeir
eftir því, að í hans stað verði
skipaður Ossorio Arana.
Gert hafði verið ráð fyrir, eft-
ir þvi, sem fréttir herma, að
lofther og sjóher myndi styðja
aðgerðirnar, en ráðamenn þess-
ara deilda hersins munu hafa
snúið baki við Funos, er til kast-
anna kom.
ÞriSja til-
raun Rússa
Stokkhólmi, 10. ágúst
— NTB.
LJÓST er, að árdegis í dag
gerðu Rússar þriðju tilraun
sína með atómvopn, síðan
þeir tóku til á nýjan leik.
Þessi tiiraun mun hafa
verið gerð í íshafinu fyrir
norðan Rússland. Aðeins
var um litla sprengju að
ræða að þessu sinni, eða um
2—3 megatonn.
Sænskir vísindamenn telja
ekki, að geislunarhætta
muni vaxa neitt að ráði
vegna þessara þriggja til-
rauna, og segja, að ekki
þurfi að óttast þess vegna.
<r