Morgunblaðið - 11.08.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.08.1962, Blaðsíða 20
Fréttasímar Mbl — eftir lokun — Erlendar tréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 MORGUNBLAÐIÐ. { Kvöldsala á blaðinu hefst úr afgreiðslunni við Aðalstræti J á hverju laugardagskvöldi kl. 9. 181. tbl. — Laugardagur 11. ágúst 1962 Gdð síldveiði - saltað alls- staðar nema á Raufarhöfn Smásíldin horfin FRÁ ]>vi kl. 8 í fyrradag tii kl. 8 í gær fengu 55 skip samtals 34.350 mál og tunnur. Mest fékkst 24 mílur austur af Glettinganesi og Gerpi, en einnig undan Héraðs flóa og 25 mílur SA frá Kol- beinsey. f gær héizt veiði á sömu slóðum og gott útlit var um veiði í nótt. Mikil ánægja rikir nú með það fyrir austan, að smásíldin virð- ist alveg horfin. Siglufjörður, 10 ágúst. Hingað komu sex skip í morg- un með um 2.100 tunnur, sem | Hannes HnU- I Idórsson lútinn | ísafirði fimmtudag. HANNES Halldórsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri hér á ísa firði, andaðist í morgun, tæplega sjötugur að aldri. Hann var 1 u.þ.b. 35 ára framkvæmdastjóri Vélbátaábyrgðarfélags ísfirðinga, en lét af því starfi í ársbyrjun 1960 sakir heilsubrests. Hann tók mikinn og virkan þátt í félags- starfi Sjálfstæðismanna á ísafirði í marga áratugi og gegndi m.a. störfum í niðurjöfnunarnefnd, um fjöldamörg ár, og var endur- skoðandi bæjarreikninga til dauðadags. Hannes var kvæntur Guðrúnu J. Kristjánsdóttur, og áttu þau einn son, Hafstein aðalbókara í Landsbanka íslands á ísafirði. Hannes Haldórsson var einn af þekktustu borgurum ísafjarðar- kaupstaðar. Fréttaritari. MÁLFUNDAFÉLAGIB Óðinn hyggst fara í skemmtiferð laug- ardaginn 18. og sunnudaginn 19. ágúst. Farið verður um Borgar- fjörð, tjaldað í Húsafelisskógi og athugaðir möguleikar á að skoða Surtshelli á sunniudag. Ekið verð- ur hehn um Kaldadal og Þing- velli. Sanúgerðingar! LOKASALA í happdrætti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi stendur yfir. Dregið verður 1. september. Miðar eru til sölu hjá aðalumboði happdrættisins í Sandgerði; hjá Páli Ó. Páissyni. allt fór í söltun. Síldin veiddist 26 milur ASA af Kolbeinsey, og er þetta ágæt síld. Síld er enn flutt að austan. Hér er gott veð- ur, norðankæla. — Guðjón. Raufarhöfn, 10. ágúst. Hér lönduðu í dag 12 skip 5.652 málum í bræðslu. Afla- hæst var Hringsjá með 1.418 miál, en þá Sætþór með 910. Smásíld og kolmunni er saman við síld- ina, sem nú er ekki söltunarhæf. — Hagbarður frá Húsavíik missti því nær alla hringnót sína, er smásíld ánetjaði sig, svo að öll nótin sökik og aðeins pokinn náð ist. — Veðrið er gott og alltaf von á næturveiði. — Einar. Norðfjörður, lð. ágúst. Margir bátar hafa komið hing- að í dag, og hafa flestir verið mieð ágæta söltunarsíld. Stanz- laus söltun hefur verið hér á öllum plönum síðan snemma í mongun. Þrátt fyrir það að engin síld barst hingað í þrjá daga vegna brælu, er þegar orðin lönd unarbið aftur í verksmiðjunni, u.þ.b. 10 þús. mála þróarrýimi losnar á morgun. Mest af þeirri síld, sem barst hingað í dag, veiddist um 30 mílur SA af Norð fjarðarhorni, út af Gerpi og Skrúð. Aflahæstir hér í dag eru Steflán Ben með 1000 tn., Manni 900, Glófaxi T00 og Stígandi VE 800 mál. — Svavar. Reyðarfjövður, 10. ágúst. Hingað hafa komið sex bátar sían á hádegi með stóra og feita síld, sem öll fór í salt. Er nú saltað á öllum þremur plönun- um. Smásíldin er horfin. — Síld- in veiddist 20—25 mílur SA af Skrúð og undan Gerpi. — Hér er ágætt veður. — A.Þ. Kuml frá heiðni fismst við Crímsstaði á Fjöllum NÚ í vikunni fór Þorkell Gríms- son fornminjafræðingur norður að Grímsstöðum á Fjöllum, til þess að rannsaka þar kuml, sem er nálægt gamla bæjarstæðinu, en það er 6 km sunnar en hið nýja. Hafði fundizt þar lítill spjótsoddur í sumar. Þorkell skýrði M)bl. svo frá í gær, að kumlið væri rétt norðan við bæjartóftirnar. Kumlið, sem örugglega er frá heiðni, liggur í norður og suður með steinaum- búnaði að norðan og niður eftir miðjum hlíðum. Beinin voru taisvert hreyfð, svo að þarna mun hafa verið rótað einhvern tima, nema beinin hafi verið ÞorkeU móni með fuUfermi BV. INGÓLFUR Arnarson kom til Reykjavíkur af heimamiðum á fimmtudag með um 150 tonn. Þorkell máni fór héðan laug- ardaginn 28. júlí á mið við Vest- ur-Grænland. Hann er væntan- legur hingað á mánudagsmorgun méð fullfermi, ca 340 tonn. Þormóður goði fór héðan 28. júlí og hóf veiðar við Vestur- Grænland 1. ágúst — 8. ágúst hafði hann fengið 135 tonn. — Hann er væntanlegur hingað á fimmtudag. Brezkur skáti fótbrotnar Akranesi, 10. ág. ÞAÐ óhapp varð í gærmorgun, er brezku skátarnir voru að leika að knetti uppi á íþróttavelli, að einn þeirra, Edwin að nafni, fót- brotnaði. í gærkvöldi kveiktu skátar varðeld á barnaskólablettinum nýja, sungu, dönsuðu og skemmtu sér þar frá kl. hálfníu til kl. að verða hálfellefu. Ræður voru fluttar. Brezkar ungmeyjar sýndu þjóðdansa, og einnig brezku pilt- arnir. íri einn söng lög úr ,,English Songs and Ballads". — Úm 500 manns var þarna. Varð- eldastjóri var Lúðvík Jónsson. — Oddur. 200 jbús. kr. á heilmiöa FÖSTUDAGINN 10. ágúst var dregið í 8. flokki Happdrættis Háskóla fslandis. Dregnir voru 1.150 vinningar að fjárhæð 2.060,000 krónur. Hæsti vinningurinn, 200.000 krónur, kom á heilmiða númer 37.919, sem seldur var í um- boði Jóns St. Arnórssonar, Banka strseti 11. 100.000 krónur kornu á hálf- miða númer 48,739 sem voru seldir í umboði Arndisar Þor- valdsdóttur, Vesturgötu 10. 10.000 krónur komu á eftirtal- in númer: 1728 7225 8386 9084 10187 10737 16929 17173 17929 19057 23238 24285 25723 27014 29823 30821 32860 35566 36003 37918 37920 42059 51117 51694 55317 56392 56925. einkennilega lögð í upphaíi. Þarna fann Þorkell bein af ein- um dreng og liklega hefur ann- ar einstaklingur legið þarna einnig, en beinin eru enn ókönn- uð. Enginn hlutur hefur fundizt þarna nema spjótsoddurinn, og 'bendir stærð hans til þess, að drengjaspjót hafi verið lagt í gröfina. — Á melum talsvert langt fyrir norðan kumlið fann Þorkell brot úr höfuðkúpu, en ekkert annað beina. 4 Reykvíkingar höfðu gaman i af að virða fyrir sér þessa fallegu skútu í gær. Hún kom kvöldið áður eftir 12 sólarhiinga siglingu frá Kiel, og um horð voru tólf stúdentar, allir félagar í sigl ingaklúbbi stúdenta þar í borg. Skútan heitir „Peter von Danzig“ og er smíðuð árið 1936 fyrir stúdenta í Danzig. Þegar Rauði her- inn nálgaðist borgina í stríðslok. sigldu stúdentar henni ti* Kielar, og þar hefur heimahöfn verið síð- an. Hcnni hefur tvívegis verið siglt vestur til Ame- ríku. Stúdentarnir, sem sigldu henni hingað, ætla að ferðast talsvert um land- ið, en sigla síðan heim með viðkomu í Hjaltlandi. (Ljósm. M.Ö.A.). Athafnasamur lög- brjótur á Akureyri Akureyri, 10. ág. SL. NÓTT var erilsamt hjá lög- reglunni. Fyrst var stolið bíl í Brekkugötu og honum ekið um bæinn, en skilinn eftir óskemmd- ur. Siðan var annar bíll tekinn ófrjálsri hendi við Bjarmastíg, en er þjófurinn reyndi að ræsa bílinn sást til hans. Var lög- reglunni þegar tilkynnt, og fór hún á staðinn og handsamaði manninn. — Þá var brotizt inn í gullsmíðaverkstæði og skartgripa verzlun Sigtryggs og Péturs við Brekkugötu. Þar voru tekniir munir, sem eru að virði um 7—8 þús. krónur. Þegar lögreglan fór að rannsaka málið, kom í ljós, að sami maðurinn hafði framið öU þessi brot. Er hann nú í gæzlu hjá lögreglunni. I gærdag var brotizt inn f flóabátinn Drang og þar stolið 7—800 kr. í peningum. Sá, sem valdur var að því, hefur einnig náðst, og er málið í rannsókn. — St. E. Sig. Enovid ekki hættulegt! Chicago, 10. ágúst - AP. BANDARÍSKA læknafélagið tilkynnti í dag, að engar vís- indalegar sannanir hefðu feng izt fyrir því, að ófrjósemis- lyfið enovid væri lífshættu- legt. Tilkynningin fylgir í kjölfar upplýsinga frá bandarísku heilbrigðisyfirvöldunum um, að 6 konur kynnu að hafa lát- izt af völdum lyfsins. Höfðu þær allar neytt þess og fengið blóðtappa. Áður hafði brezkt lækna- tímarit varað við neyzlu lyfs- ins, og taldi, að a.m.k. ein kona hefði látizt af völdum þess í Bretlandi. I tilkynningu heilbrigðisyfir valdanna bandarísku, er var- aði við lyfinu, var þó tekið fram, að aðeins væri um sterk ar lí’kur að ræða, en ekki sannanir, er fyrir lægju, um skaðsemi enovid. Sala lyfsins var bönnuð í Noregi á mánudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.