Morgunblaðið - 11.08.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.08.1962, Blaðsíða 3
Laugardagur 11. ágöst 1962 MORGVNBLAÐIÐ EINS og kunnugt er, hefur nú tekizt aS komast fyrir upptök || taugaveikibróðurins, svokall- | aða, sem hér hefur geisað að undanfömu. Ilvemig sýkill inn, salmonella typhy muri- um, hefur komizt í búið. er þó ^ ekki gott að segja, en það er _____ ekki ómögulegt, að hann hafi borizt með rottum, sem halda Brennsluofniun að Keidum í Mosfellssveit Endurnar brenndar sig við ræsi. Eins er talinn möguleiki á því, að sýkillinn berist með mávum, en um það er þó ekki unnt að full- \ Ofan í þetta eldgap hvarf andastofninn hans Þorvalds Guð- mundssonar. Hann hefur orðið fyrir gífurlegu tjóni af völdum taugaveikibróðurins, því ekkert var við andastofninn hægt að gera nema slátra honum og brenna. (Ljósm. L. Karlsson). Bjargaði neyðarsím- inn togaranum? HAFNARFIRÐI _ Það voru vissulega orð að sönnu, að litlu hefði mátt muna að af yrði mill- jónatjó'n þegar eldiur kom upp í togaranum Surprise fyrir nokkr um dögum. Hann hefir legið í eumar ásamt fleiri togurum við Syðri-hafnarigarðinn og var nú verið að búa hann á veiðar. Eld urinn kom upp í vélarrúmi, varð etrax allmagnaður og því stór hætta á sprengingum í olíutönk- um skipsins, en þá hefði líka getað farið verr. Að svo vel fór, 6em raun varð á, er vafalítið hæigt að þakika hversu lítill tími teið þar til slötkikiviliðið kom á vettvang og snarræði þess við að elökikva eldinn. Að vísu urðu all- tniklar skemmdir í vélarrúmi, til dæmis eyðilagðist ljósavél þar sem eldurinn kom upp. Fná þessu er nú skýrt öðru einni í stórum dráttum, sökum þess að öryggistæki — neyðar- íími — sem sett var upp á Hafnargarðinum fyrir nokkrum »rum kom hér að ómetanlegum notum. Áttu slysavarnadeildirn- ar Hraunprýði og Fiskaklettur frumkvæði að því, að simi var settur upp á stað þessum, þar sem fjöldi skipa liggur alla jafna en sími var áður ekki fyrir hendi og mjög langt í hann. Telja kunn ugir að mjog dýrmætar mínútur hefðu sparast þegar kalla þurfti á slökkviliðið tíl að slökfcva í Surprise, og þær hefðu orðið til þess að bjarga togaranum þótt meira sé ekki sagt. Sem dæmi um hversu baga- legt það var að hafa ekki síma á þessum afskekta stað, þar sem fjöldi skipa liggur í misjöfnum veðrum eða vegna eldishættu, má geta þess að skömmiu eftir að símdnn var settur upp árið 1959 kom (um nótt) upp eldur í vél- bátnum Fjarðarkletti er lá við hafnargarðinn. Hefði tjón þá orð ið allmiklu minna en raun varð á ef síminn hefði verið svo að segja við bátshliðina. Eins og sjá má af ofangreindu er hér um hið mesta þarfaþing að ræða sem vert er að vekja at- hygli á. Er undirrituðum ekki yrða, nema látnar séu fara fram mjög viðtækar rannsókn ir, sem erfitt yrði að fram- kvæma hér, m.a. vegna manin- eklu. Einnig er ástæða til að gruna erlent fóður, sem flutt er til landsins, svo sem alfa- alfa. Við framleiðslu þess er notaður smári og borið á hann mikið af húsdýraáburði. Smár inn er síðan þurrkaður við hægan hita og sé málum þann ig háttað, að sýklar hafi verið í áburðinium, margfald-faldast þeir á skömmum tíma við þær aðstæður, sem smárinn er þurrkaður við. . Salmonella-sýkillinn fannst í nýklöktum andarungum frá andaibúinu á Minni-Vatns- leysu. Segir í tilkynningu frá borgarlækni, að með nokkurn veginn öruggri vissu megi full yrða, að fengizt hafi skýring á uppruna veikinnar, að því er varðar flest sjúkdómstilfell in, en smitunarleiðir séu þó ekki fullkannaðar enn. Rann- sóknirnar fóru fram á vegum Rannsóknarstofu Háskólans og Tilraunastöðvarinnar á Keld- um. Voru sýnishorn tekin úr fjölmörgum alifuglabúum og við rannsóknirnar tókst að rækta frá nýklöktum andar- ungum úr búinu á Minni- Vatnsleysu á Vatnsleysu- strönd, sams konar sýkil og þann, er faraldrinum olli. Á Vatnsleysubúinu voru um 390 endur og var ákveðið að éyða þeim öllum. Voru þær drepnar í fyrradag og óskaði Þorvaldur Guðmundsson, eig- andi búsins, eftir því, að þær yrðu brenndar í brennsluofni Tilraunastöðvarinnar að Keld um, undir stjórn starfsmanna tilraunastöðvarinnar og var iþað gert í gærmorgun. Ákvörð un hefur einnig verið tekin um að leggja búið niður og er sennilegt, að ekki verði aft ur komið upp andabúi á Minni Vatnsleysu. Þorvaldur Guðmundsson hef ur orðið fyrir gífurlegu tjóni af þessum völdum, en sjálfur segir hann, að það skipti ekki mestu máli, því aðalatriðið sé, að nú hefur til fulls tekizt að komast fyrir veikina. Er veik in kom fyrst upp, benti Þor- valdur borgarlækni á það, að andalbú hans á Minni-Vatns- leysu þyrfti að rannsaka, eins og öll önnur alifuglaibú og var það að sjálfsögðu gert. Verð- ur það að teljast hrein tilvilj- un. að sýkillinn skyldi kom- ast í Vatnsleysubúið, því að- stæður eru þar hinar sömu til andaræktar Og á öðrum búum, en eins Og fyrr getur, er mjög erfitt að komast fyrir raun- veruleg upptök sýkinnar. Mjög víðtækar rannsóknir hafa og verið gerðar á hænsna búum og hænueggjum, en þær hfa ekki leitt í ljós, að sýkingarhætta stafi af þeim. Er rannsóknirnar hófust, varð það ljóst, að sýkin hlyti að stafa af völdum eggja og ali- fugla og olli það því, að sala á hænueggjum nam aðeins um 20% af því, sem eðlilegt er. Hafa því eigendur alifugla- búa orðið fyrir afar miklu tjóni. kunnugt um að slíkir neyðarsím- ar séu í notkun á öðrum stað en hinum 400 metra langa hafnar- garði í Hafnarfirði, en þeirra er vafalaust nauðsyn víða. Hafa slysavarnadeildirnar Hraunprýði og Fiskaklettur jafnan staðið vel á varðbergi um það, sem til öryggis miá verða og er það þakkarvert. Myndin hér að ofan, sem tek- in er af Ljósmyndastofu Guð- bjarts Ásgeirssonar, er af for- manni Fiskakletts séra Garðari Þorsteinssyni og Sigurði Gísla- syni varaslökkviliðsstjóra, þar sem þeir standa við neyðarsim- ann á Syðri-hafnargarðinum í Hafnarfirði. — G.E. STAKSTEIIVAR „Engillinn Eysteinn". * Alþýðublaffið birtir í gær sr* hljóffandi ritstjiírnargrein, scm þaff nefnir „Einu sinni var . .“ „Undanfamar sumarvikur hef ur Tíminn birt athyglisvert framhaldsævintýri, sem á fáa sina líka i íslenzkum bókmennt- unt. Þaff fjallar um litla og fagra þjóð, sem býr í stóm og góðu landi. Þjóðin á sér tvo ágæta vernd- arengla, þá Eystein og Drottinn almáttugan. í sameiningu sjá þeir fyrir þjóðinni, þannig aff Drottinn býr til góðæri en Ey- steinn úthlutar því. Mundi þvi allt vera í stakasta lagi, ef þjóð- in væri ekki í þingum við einn heljarmikinn Viffreisnarriddara. Riddari þessi, sem hefur tvo heila, er hinn hofmannlegasti í framkomu og færir þjóðinni góðar gjafir. En Eysteinn vernd- arengiil sér í gegnum hann og segir að hann sé útsendur af Kölska til að eyðileggja góðærið fyrir þjóffinni, svelta hana og pina. Ævintýrinu er ekki lokiff. Börnin sem lesa Tímaim og trúa sögunni bíða þess með óþreyju, hvort englinum Eysteini tekst að hindra, að hinn undirförli eyðileggi góðærið og kreisti að lokum líftóruna úr blessaffri þjóðinni. Framhald í næsta Tíma“. Úr einu horni í annað. Það er einkennandi fyrir nrál- flutning Timans, að hlaupa úr einu horninu í annað. Þegar búið er að hrekja einn þátt áróð urs blaðsins er einfaldlega stokk ið frá honum og tekiff til við einhvern allt annan. Af þessum sökum má segja að nánast sé útilokað að rökræða við þetta blað og er það einsdæmi um islenzk blöð, jrfnvel að hinu löggilta málgagti kommúnism- ans meðtöldu. Þegar Tíminn t. d. talar um samdrátt spyr Morgunblaffiff, hvar atvinnuleysi sé. Efckert svar fæst. Þegar talaff var um óheil- brigffa tekjuskiptingu var spurt, hverjir bæru of mikið úr býtum* en þá var dauðaþögn. Þegar tal- að var um að framkvæmdir væru hindraffar með „frystingu sparifjár“, spurði Morgunblaðiff hvar ætti að taka vinnuafl til aff framkvæma meira, og enn þagði Tíminn um þetta efni og tók til við annað. Síðustu dagana er upáhaldsorðatiltækið þaff, aff stefut sé að því „að hér geti risið upp stórfyrirtæki og stór- kapitalistar“. Skal nú gerð til- raun til að ræða einmitt þetta mál við málgagn Framsóknar- flokksins. Stórfyrirtækið S.Í.S. Hér á landi er í rauninni að- eins um eitt stórfyrirtæki að ræða, þ.e.a.s. SÍS og dótturfélög þess. Ekki hefur á því boriff, að Framsóknarmenn vildu m.innka þetta fyrirtæki, heldur þvert á móti vinna þeir að því leynt og ijóst, að það grípi yfir sem flest svið atvinnulífsins og reyna raunar að skapa bví einokunar- aðstöðu sem víðast. Út af fyrir sig er það rétt, að á sumum sviðum framleiðslu eru stórfyrir tæki nauðsynleg. En Mbl. leggur megináherzlu á, að eignarum- ráð yfir slíkum fyrirtækjum sé á höndum fjölmargra manna en ekki fárra auðkýfinga, ríkisvalds eða pólitísks samvinnubákns. En meginatriðið er að stórfyrirtæki séu á ákveðnu sviði en þenj sig ekki yfir öli svið, eins og SÍS gerir, og skapi þannig óheil brigða hringastarfsemi, sem yfir leitt er bönnuð í nágrannalönd- unum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.