Morgunblaðið - 11.08.1962, Qupperneq 17
. Laugatdagur 11. ágúst 1962
MOnCTIlVTiT. 4 ÐIÐ
17
Bridge
SPILIÐ, sem hér fer á eftir,
var spilað á heimsmeistara-
keppninni í tvímenningskeppni,
sem fram fór í Canneá í maí sl.
Spilararnir voru allir frá Frakk-
landi og í Suður sat hinn kunni
spilari Malabat.
Sagnir gengu þannig:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass pass 1 grand
pass 2 grönd pass 3 grönd
pass paSs pass
A D 7 4 V A D 7 ♦ K 9 7 * 10 7 4 3
A 9 8
V K 6 5 2
♦ D 5 2
* D G 5 2
♦ Á K 5 3
V 10 8 4
♦ Á 6 4
♦ K 9 8
Suður var þannig sagnhafi í
3 gröndum og Vestur lét út
spaðagosa, sem drepinn var í
borði með drottningunni. Ekki
er hægt að segja að útlitið sé
gott fyrir Suður og kemur í ljós
að nauðsynlegt er að fá að
minnsta kosti tvo slagi á lauf
ef spilið á að vinnast. Sagnhafi
lét því út laufa 3 úr borði, Aust-
ur lét tvistinn og Suður drap
með áttunni og Vestur gaf. Nú
lét Suður út laufa 9, sem Vest-
ur drap með ásnum. — Vestur
lét því næst út tigul 3, sem Suð-
ur drap með ásnum. Nú tók
Suður laufakóng, spaðaás, spaða
kóng og tigulkóng og var þá
inni í borðinu. Laufa 10 var síð-
an látin út og austur varð að
drepa með drottningunni. Aust-
ur varð nú að láta út hjarta ás
og drottningu í borði og vann
því spilið á glæsilegan hátt.
Félagsbréf AB,
26. hefti komið út
ÚT ER komið 26. hefti af Fé-
lagsbréfum Almenna bókafé-
lagsins og flytur m.a. þetta efni:
I upphafi var orðið, erindi
eftir Sigurð Nordal, flutt á há-
skólahátíðinni sl. haust.
Þau sem landið erfa, grein eft-
ir Guðmund Gíslason Hagalín.
/Evintýrið varð á vegi hans hvert
sem hann fór, erindi um Krist-
mann Guðmundsson eftir Sigurð
Einarsson.
Rætt við Einar Baldvinsson
listmálara, eftir Jóhann Hjálm-
arsson, kvæði eftir Victor Hugo,
bæði á frummálinu og í ís-
lenzkri þýðingu eftir Alexander
Jóhannesson. Þá eru kynntar
mánaðarbækur félagsins, Sumar
auki eftir Stefán Júlíusson og
Brauðið og ástin eftir Gísla J.
Ástþórsson og birtir kaflar úr
bókunum, og loks er þáttur, sem
íiefnist Blaðað í bókum. Auk
þess eru þarna ritstjórnargrein-
ar o. fl.
BONN 31. júlí (NTB) — Gall
up-könnun, sem nýlega fór
fram í V.-Þýzkalandi leiddi
í ljós, að aðeins þrjú prósent
þjóðarinnar myndi kjósa
mann á borð við Hitler sem
þjóðarleiðtoga. Rúm 80 prós-
ent myndu greiða atkvæði
gegn slíkum manni, en 16
prósent voru í vafa.
Þegar sams konar Gallup-
könnun var gerð í V.-Þýzka-
landi 1957 voru 15 prósent
sem sögðust myndu kjósa
*Hitlcr“, sem þjóðarleiðtoga.
ð G 10 8 6
V G 9 3
♦ G 10 8 3
ð Á 6
SKEMMTIKVOLD
AÐ JADRI
í kvöld kl. 9
OIYf og Agnes Ingólfsdéttir
skemmta
Sætaferðir frá Góðtemplarahúsinu kl. 8,30 og til
baka að skemmtun lokinni.
Islenzkir ungtemplarar.
Linoleum Gerfidúkur
„Delifiex“ gólfflísar — Margir litir.
Þakpappi, múrhúðnnarnet og margt margt fleira.
r
A. Einarsson & Funk hf.
Hötðatún 2. — Sími 13982.
Óska eftir vinnu
við prófarkalestur, skrifstofustörf eða önnur störf,
þar sem kunnátta í ensku, þýzku og Norður-
landamálum væri æskileg. — Ekki vön vélritun.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „2—3 mánuðir
— 1814“.
Tjaldsamkomur
— Við Holtaveg, gegnt Langholtsskóla. —
Samkomur á hverju kvöldi dagana 10. til 19. ágúst,
kl. 8,30. Ræður, mikill söngur og hljóðfærasláttur.
Allir velkomnir. Sérstök barna- og unglingasam-
koma laugardaginn 11. ágúst kl. 5 e.h.
Samband isl. kristniboðsfélaga.
Færeyjar
Flugfélag íslands efnir til skemmtiferðar til Fær-
eyja dagana 17.—21. ágúst, ef næg þátttaka fæst.
Flogið verður frá Reykjavík föstudaginn 17. ágúst
kl. 10:00 og lent á Sörvágsflugvelli. Farþegum verð-
ur séð fyrir bátsferð til Tórshavn og gistingu á góðu
hóteli þar. Heim verður haldið þriðjudaginn 21.
ágúst kl. 16:00.
Nánari upplýsingar veitir söluskrifstofa okkar,
Lækjargötu 4, eða ferðaskrifstofurnar.
a*
Palmolive gefur yður fyrirheit um...
with Palmolive
veröur jafnvel þurr og við-
kvæm húð unglegri og feg-
urri, en það er vegna þess
að hið ríkulega löður Palmo-
live er mýkjandi.
Palmolive er framleidd með
olívuoiiu
Aðeins sápa, sem er jafn mild
og mjúk eins og- Palmolive
getur hreinsað jafn fullkom-
lega og þó svo mjúklega. Hætt
ið því handahófskenndri and-
litshreinsun: byrjið á Palmo-
live hörundsfegrun í dag. —
Læknar hafa sannað hvaða ár-
angri er hægt að ná með
Palmolive.
Þvoið . • •
nuddið
i eina
mínútu . • .
Skolið. • • .
og þér
megið búast
við að sjá
árangurinn
strax
Mýkri,
unglegri,
aðdáanlegri
húð
Palmolive með
olívuolíu er ...
mildari og mýkri
aukinn yndisþokka