Morgunblaðið - 16.08.1962, Blaðsíða 10
10
MORGVTSBLÁÐÍB
Fimmtudagur 16. ágúst 1962
(Jtsölustaðir:
Verzlunin BRYNJA
Laugavegi 29, sími 24320.
Geimfararnir I
sex mínútn
TILKYNNT var í Moskvu
snemma í gærmorgun, að
rússnesku geimfararnir tveir,
Andrian Nikolajev og Pavel
Popovitsj, hefðu lent heilu og
höldnu í auðninni suður af
Karaganda í Kasakstan. Þeir
höfðu komið til jarðar með
sex mínútna millibili, en ekki
hefur verið sagt, hvernig
lendingin fór fram, hvort
>eir lentu sjálfum geimför-
unum eins og flugvélum, eða
hvort þeir svifu til jarðar
í fallhlíf. Þegar eftir lend-
ingu voru þeir fluttir í þyrlu
til stöðvarinnar, þaðan sem
þeim var skotið á loft, en þar
munu þeir gangast undir ýt-
arlega rannsókn nsestu daga.
Karaganga er 2.560 km. fyr
ir sunnan Moskvu og 560 km
norðaustur af Baikonour, en
þar telja fréttaritarar í
j Moskvu, að geimrannsóknar-
stöðin sé. Ekki hefur það þó
verið staðfest af hálfu stjórn-
ar eða vísindamanna.
Samkvæmt frásögn Tass
fréttastofunnar eru geimfar-
arnir við hina beztu heilsu.
Þeir hafa þolað vel hina
löngu ferð og afturkomuna til
jarðar og geimförin sjálf
reynzt afar vel.
AP-frétt frá Kaupmanna-
höfn hefur eftir málgagni
danska kommúnistaflokksins,
Land og Folk, að geimskipin
sjálf hafi verið hálf níunda
lest að þyngd, hvort um sig,
eða nær helmingi þyngri en
geimför Gagarins og Titovs.
Segir blaðið geimförin hafa
verið svo vel útbúin, að menn
•irnir um borð hafi getað tek-
ið af sér hanzka og höfuð-
hjálma, alveg eins og á jörðu
niðri. Engar aðrar fregnir
Þessi mynd var tekin fyrir skömmu, er þeir
í sumarleyfi við Svartahafið.
Andrian Nikolajev og Pavel
Popov itsj voi u
Hér getur að líta sovézku geimfarana, frá vinstri: Andrian Nikolajev, majór, Pavel
Popovitsj, liðsforingi, Juri Gagarin, majór og Gherman Titov, majór. Myndin var tekin
fyrir nokkru er þeir voru að hefja fallhlifarstökksæfingu, sem var liður í þjálfun
þeirra, sem geimfara.
SéC/L
ra!magnshancSverkíœri
eða
hafa borizt um stærð
gerð geimfaranna.
(k)
í frásögnum af lendingu
geimfaranna segir, að Moskvu
útvarpið hafi stöðvað venju-
legar fréttasendingar kl. 9.37
í morgun og boðað mikils-
verða tilkynningu. Eftir
nokkra þögn hafi svo verið
tilkynnt, að geimfararnir
væru komnir til jarðar og
vegnaði vel. Tass hermir, að
þeir hafi sofið í 6Yz klst. í
nótt, og hvorugur hafi fundið
til þeirra óþæginda, er Titov
fann fyrir á leiðinni til jarð-
ar. —
Nikolajev var nærri fjóra
sólarhringa í ferð sinni og fór
64 hringi umhverfis jörðu, en
Popovitsj 48 hringi.
Moskvu og er þegar hafinn
undirbúningur að miklum há
tíðahöldum á Rauða torginu,
en þar verður þeim fagnað,
sem þjóðhetjum, eins og fyrri
geimförum Sovétríkjanna,
þeim Juri Gagarin og Gher-
man Titov.
Tass-fréttastofan segir enn
fremur, að samkvæmt um-
sögn sovézkra vísindamanna
sé geimferð þeirra Nikolaj-
evs og Popovitsj mikilverður
áfangi í áætluninni um að
senda menn til annarra
stjarna í sólkerfinu. í fregn-
um frá London segir jafn-
framt eftir Sir Bernard Lov-
ell, forstöðumanni athugunar
stöðvarinnar á Jodrell Bank,
að honum mundi ekki koma
á óvart, þótt Rússar sendi
mannað geimfar til tunglsins
eftir nokkra mánuði.
f fregn frá Canaveralhöfða
á Florida segir, að bandarísku
geimfararnir og visindamenn
hafi fylgzt af miklum áhuga
með geimferð Rússanna og
dáist mjög að þessu vísinda-
afreki. Heillaóskaskeyti hafa
í dag streymt hvaðanæva að
úr heiminum til Rússlands til
Krúsjeffs og geimfaranna
sjálfra. Meðal annarra, sem
sent hafa heillaóskaskeyti,
eru Macmillan forsætisráð-
herra Bretlands, Tage Erland
er, forsætisráðherra Svía og
Jens Otto Krag, utanríkisráð-
herra Dana.
Áður höfðu Kennedy Banda
Eftir nokkra daga eru geim ríkjaforseti og bandarísku
fararnir væntanlegir til geimfararnir sent heillaóskir.
Yfirmenn sovézka sjónvarpsins, S. Zakharov (jakkalaus) og
A. Petrachenko fylgjast með sjónvarpsmyndunum úr geim-
förunum Vostok III og Vostok IV.
b yggingavörur h.f.
J.B. PÉTURSSON
BLIKKSMIÐJA • STÁLTUNNUGfRÐ
JÁRNVÖRUVfRZLUN
Laugavegi 178, sími 35697.
Ægisgötu 4, sími 15300.
}
i
I