Morgunblaðið - 16.08.1962, Qupperneq 24
Fréttasímar Mbl
— eftir loknn —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
185. tbl. — Fimmtudagur 16. ágúst 1962
Landheigisgæzlan fær
neðansjávarsjónvarp
Mbl. hefur fregnað að Land-
helgisgæzlan eigi von á neðan-
sjávarsjónvarpsiæki af Marconi
gerð, sem hægt sé að senda nið-
ur á 100 m. dýpi og hafi tvo ljós-
kastara. Blaðið leitaði staðfest-
ingar á fregninni hjá Pétri Sig-
urðssyni, forstjóra, sem sagði það
rétot vera að Landhelgisgæzlan
væri að fá neðansjávarsjónvarps
tæki, sem yrði sett upp á næst-
unni í eitthvert varðskipið til
reynslu, og mundi blaðamönn-
um þá gefast kostur á að sjá það.
En meira vildi hann ekki segja.
Þetta mun vera annað neðan-
sjávarsjónvarpstækið, sem kem-
ur til landsins. Það fyrra fékk
Björgvin Bjarnason, sem rekur
rækj uverksmiðju á Suðureyri, að
láni hjá Marconi. Gerði hann til-
raun í vor með að nota það til
Akranes-
fréttir
Fjörir bátar komu inn í dag
og lönduðu humar, Ásbjörn tæp
um 3,5 lestum, Fram 2,5 lestum
Svanur 1,4 lestum og Sæfaxi %
lest. Tveir þeir síðasttöldu urðu
að hætta að toga sökum SA-
storms á miðunum suður af Eld-
ey.
Pétur Ottesen, fyrrv. al’þingis-
maður, er á leið til Póllands á
ms. Laxá. Pétri var boðið til
Póllands og Svíþjóðar.
að leita að rækju, en timinn var
naumur og ýmsir byrjunarörðug
leikar, svo það kom ekki að full-
um notum.
Slík neðansjávarsjónvarpstæki
eru erlendis notuð til leitar á
sjávarbotni, t.d. að skipsflötkum,
oig við rannsóknarstörf. *
Hin nýja flugvél Landhelgisgæzlunnar
Landhelgisgæzlan fékk
Skymasterflugvél í gær
Stórbætfir möguleikar til
gæzlu og aukid öryggi
SIF, hin nýja skymasterflug- flugvéla í þágu íslenzkrar
vél íslenzku landhelgisgæzl
unnar, kom hingað til Reykja
víkur í gær. Meðal þeirra,
sem tóku á móti henni á
Reykjavíkurflugvelli voru
þeir Bjami Benediktsson,
dómsmálaráðherra og Pétur
Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar.
Koma þessarar nýju og full
komnu flugvélar markar
þáttaskil um hagnýtingu
HÉRAÐSMOT
Sjálfstæðismanna
í Reykjanesi 19. ágúst
HÉRAÐMÓT Sjálfstæðismanna við innanvert ísafjarð-
ardjúp verður haldið í Reykjanesi sunnudaginn 19. ágúst
kL 3 e. h.
Ingólfur Jónsson, landbún-
aðarráðherra, og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, flytja ræður.
Þá verður sýndur gaman-
leikurinn „Heimilisfriður“
eftir Georges Courteline, í
þýðingu Árna Guðnasonar,
magisters. Meö hlutverk fara
leikararnir Rúrik Haraldsson
og Guðrún Ásmundsdóttir.
Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tví-
söngur. Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur
Jónsson og frú Sigurveig Hjaltested, og undirleik annast
Fritz Weisshappel, píanóleikari.
Dansleikur verður um kvöldið.
(Tilkynningin var röng í blaðinu í gær).
landhelgis- og réttargæzlu.
Það var fyrir forgöngu
Bjarna Benediktssonar, þá-
verandi dómsmálaráðherra,
sem landhelgisgæzlan fékk
Catalinaflugvélina Rán til
gæzlustarfa árið 195ð. Hefur
stórkostlegt gagn orðið að
henni á þeim þýðingarmikla
tíma, sem hún hefur verið í
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra og Pétur Sigurðsson
ásamt áhöfn vélarinnar.
notkun. Nú hefur núverandx
ríkisstjóm fyrir forgöngu
Bjama Benediktssonar feng-
ið fjögurra hreyfla Skymast-
erflugvél til gæzlunnar. Mun
það bæta aðstöðu hennar
mjög og verða til aukins ör-
yggis.
* FARÞEGAFLUGVÉL.
Flugvél þessi, sem ber ein-
kennisstafina TF-SIF var byggð
árið 1044 og var upphaflega eign
United Airlines í Bandaríkjun-
um. Hingað til landsins var vél-
in keypt frá Portúgal. Var hún
þar í eigu flugfélags, er rekið
var af portúgölsku ríkisstjórn-
inni, en var lagt niður niú fyrir
skömmu. Er hiún venjuleg far-
þegavél, sem ætlunin er að úit-
búa síðar þeim tækjum, sem tal-
in eru æskileg við fyririhuiguð
störf hennar svo sem góðum rad-
ar, ljóskastara, merkjagjöfum o.
fl. Verða þá nokikur sætanna
í flugvélinni tekin burt, en hún
rúmar nú 55 manns í sæti. Á
Framih. á bls 23
Þorvaldur
Ingólfur
Smyglvarningur t Heklu
KL. 9 í gærmorgun kom strand-
ferðaskipið Hekla til Reykjavík
ur úr Norðurlandaferðr Tollverð
ir voru í allan gærdag að leita í
skipinu og höfðu fundið eitthvað
af fatnaði, vini o.fl. sem ekki var
hægt að fá nánari upplýsingar
um í gævkvöldi, en þá voru þeir
enn að leita i vélinni.
Leitað var iijá farþegum úti á
ytri höfninni, en ekki í tollskýl
inu, eins og venja er, en ekkert
óvenjulegt fannst þar. Kom skip
ið upp að um 12 leytið og fóru
farþegar í land eftir hádegið.
Var leitinni þá haldið áfram,
skrúfaðar þiljur úr klefum og
leitað í öllu skipinu og eftir kvöld
mat hófst leitin í vélinni.
Blaðið spurðist fyrir um þetta
Senn búið að salta
upp í samninga
1GÆR og fyrradag var víða sölt-
uð síld, og er langt komið að
salta upp í fyrirframgerða sölu
samninga af cut-síld. í gær var
eftir að salta 9—10 þús. tunnur
af cut-síld upp í samninga, og
auk þess sérverkanir, kryddsíld,
Og sykursíld að því er Erlendur
Þorsteinsson, form. Síldarútvegs
nefndar tjáði blaðinu í gær.
Erlendur sagði að engin ákvörð
un hefði verið tekin um stöðvun
á söltun, þegar þetta væri komið.
Hann var staddur á Siglufirði, og
hafa verið fur.dir þar sem ræddir
hafa verið móguleikar
Erlendur sagði að möguleikar á
meiri sölu væri ekki miklir, eins
og er, en úr kynni að rætast.
Rússarnir hefðu ekki viljað
kaupa nema 80 þús. tunnur fyrir
skömmu, en búið væri að síma
þeim og bjóð þeim meira.
hjá Unnsteini Beck, sagði hann
að það sem fundist hefði og þótt
grunsamlegt, hefði allt verið inn
siglað. Það hefði verið í geymslu
rúmum, og með farþegaflutningi
og yrði ekki gengið úr skugga um
fyrr en í dag hvað af því kynni að
vera löglegui flutningur og hvað
ekki, og því ekki hægt að veita
neinar upplýsingar um það enn.
Skipið var að koma frá Kaup-
mannahöfn, Gautaborg, Kristian
sand og Þórshöfn, og var fullt af
farþegum, útlendingúm og íslend
ingum.
HERAÐSMÓT
Sjálfstæðismanna
• •
ao Olver surtmidag 19. águst
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna á Akranesi og í Borg-
arfjarðarsýslu verður haldið í Ölver sunnudaginn 19. ágúst
kl. 4 e. h. —
Bjarni Benediktsson, dóms-
malaráðherra, og Sigurður
Ágústsson, alþingismaður, l,!«
W- ...úPífc, flytja ræður. #■ ‘m
Þá verður sýndur gaman- | ^ S
leikurinn „Mótlætið göfgar“ %
eftir Leonard White, í þýð- 'L
ingu Vals Gíslasonar leikara. * 1 4
— Með hlutverk fara leik-
ararnir Valur Gíslason og
Bjarni Helga Valtýsdóttir.
Siguróur
Énnfremur verður til skemmtunar einsöngur og tvísöng-
ur. — Flytjendur eru Kristinn Hallsson, óperusöngvari,
Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, og Skúli Halldórsson, oíanú-
leikari. — Dansleikur verður um kvöldið. •"