Morgunblaðið - 23.08.1962, Qupperneq 10
10
Fimmludagur 23. ágúst 1962.
uttfelðMfc
Ctgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ötbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6. •
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
NÝIR TILBURÐIR
SAKLEYSINGJA
MORCVNBLAÐIÐ
Nokkur glöð andlit við brunna Salómons. Annar frá hægri er ambassador Bandaríkjanna.
Bundinn endir á vatns-
skort Jerúsalembúa
Aldagamalt vandamál loks leyst
F’élftgsskapur sá, sem al-
mennt gengur undir nafn-
inu Brúsastaðahreyfing, er nú
á ný tekin til við að þjóna
hlutverki sínu. Er því ástæða
til að rifja upp hvert það er
Á allra vitorði er að þess-
ar hreyfingar, hvort sem þær
hafa verið nefndar „gegn-
her-í-landi“, „samtök her-
námsandstæðinga“, eða eitt-
hvað annað, hafa verið skipu-
lagðar af kommúnistaflokkn-
um og kostaðar af erlendum
aðilum. Þetta atriði er ómót-
mælanlegt og ætti það eitt
út af fyrir sig að gefa nokkra
vísbendingu um hvert hlut-
verk slíkra samtaka sé.
En margt fleira er til vitnis
um það að þessum hreyfing-
um er ætlað að vinna að
framgangi heimskommúnism
ans og gegn vestrænu lýð-
ræði. Þannig hendir það
aldrei að neitt sé gert á veg-
um ' slíkra hreyfinga sem
styggt geti erindreka heims-
kommúnismans, en hvert
tækifæri er hins vegar 'notað
til að gera tortryggilegt heil-
brigt og eðlilegt samstarf
okkar með öðrum lýðræðis-
þjóðum.
Menn minnast þess líka að
nú fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar gengu allir starfs-
menn samtaka hernámsand-
stæðinga til opinberra starfa
í þágu kommúnismans, sem
frambjóðendur hans hér á
landi.
Lengi tókst kommúnistum
að fá nytsama sakleysingja
til liðs við sig í hvert skipti
er þeir hófu nýja „gegn-her-
í-landi“-sókn, en upp á síð-
kastið hefur ekki frétzt af
neinum nýjum liðsmönnum,
og er það ánægjulegur vott-
ur um áð íslendingar gera
sér nú betri grein en áður
fyrir eðli þessarar starf-
semi.
HLUTVERK NATO
Darátta flokksins og þar
með auðvitað þeirrar
deildar flokksins, sem nefnd
er „samtök hernámsandstæð-
inga“ beinist fyrst og fremst
gegn öllu sámstarfi við vest-
rænar lýðræðisþjóðir. Er það
meginskylda kommúnista um
víða veröld að veikja lýð-
ræðisskipulag og heilbrigða
samvinnu lýðræðfsþjóða til
að greiða götu hinnar rúss-
nesku heimsvaldastefnu.
Þegar Atlantshafsbanda-
lagið var stofnað 1949 báru
íslendingar gæfu til að vera
þátttakendur í þeim mikil-
vægu samtökum frá upphafi.
Hinn rússneski imperíalismi
hafði þá teygt sig yfir hvert
þjóðlandið af öðru. Milljónir
höfðu misst frelsi sitt og
kúgun kommúnismans ógn-
aði fleiri þjóðum.
Stofnun Atlantshafsbanda-
lagsins olli því að í Evrópu
unnu kommúnistar ekki
þumlung lands eftir að lýð-
ræðisþjóðirnar höfðu bund-
izt traustum böndum. Þannig
er það öruggt að Atlants-
hafsbandalagið forðaði því að
kommúnisminn flæddi yfir
Evrópu, sem þá var í sárum
eftir heimsstyrjöldina.
Kommúnistar eiga þá ósk
heitasta að allar þjóðir heims
verði hlekkjaðar hinum al-
þjóðlega kommúnisma. Þess
vegna fjandskapast þeir við
Atlantshafsbandalagið meir
en nokkra stofnun aðra.
Hér á landi er nú tekið að
halla undan fæti fyrir komm-
únistum. Þeir gera sér sjálfir
grein fyrir þvi að fylgistap
það, sem hafið er muni halda
áfram og flokkur þeirra senn
verða settur á sama bekk og
slíkar klíkur eru í nágranna-
löndunum, þ.e.a.s. verða ein-
angraður og einskis virtur.
Þeir gera nú örvæntingar-
fullar tilraunir til að bjarga
flokki sínum. Ein hugmynd-
in er sú að breyta enn um
nafn og forystu, en megin-
kapp leggja þeir eins og áður
á það að fá til liðs við sig nyt-
sama sakleysingja, nota nafn
þeirra og æru meðan það
endis/, en varpa þeim síðan
fyrir róða.
FALSANIR
TÍMANS
TVTaumast kemur svo út blað
af Tímanum að þar úi
ekki og grúi af hvers kyns’
fölsunum og ósannindum.
Morgunblaðið nennir að
sjálfsögðu ekki að eltast við
allan þann ósanninda- og
blekkingavaðal, en hefur þó
að undanförnu bent á nokk-
ur dæmi, sem sanna að gjör-
samlega er tilgangslaust að
ætla að afla sér réttra heim-
ilda í blaði Framsóknar-
flokksins.
Enn skal eitt dæmi nefnt
um þetta. í gær segir í Tím-
anum:
„Mbl. heldur því hins veg-
ar frain að viðskiptin (aust-
urviðskiptin) séu svo óhag-
UM LANGT skeið hafa íbúar
Jerúsalem og Bethlehem sótt
vatn sitt í brunna Salómons (þeir
hafa verið kenndir við hann), er
liggja um 12 km fyrir sunnan
Jerúsalem. Hins vegar hefur það
viljað brenna við, er líða tekur
á sumar, að brunnarnir hafa nær
tæmzt. Snemma á þessu ári var
allt útlit fyyrir, að svo myndi
fara og nær alger vatnsskortur
ríkja í báðum borgunum.
Er slíkt hefur borið við, hefur
afleiðingiu oft orðið uppþot og
óeirðir, þannig að yfirvöldin hafa
orðið að skerast í leikinn.
Nú hefur verið ráðin bót á
þessu ástandi, og í ár munu allir
hafa nóg vatn.
Undarifarna mánuði hefur einn
af sérfræðingum Bandarísku
stæð að þeim beri að hætta
þegar í stað“.
Að undanförnu hefur Mbl.
bent á að austurviðskiptin
væru á mörgum sviðum ó-
hagkvæm og hefðu sérstak-
lega verið það á meðan
kommúnistaríkjunum var
ljóst að við íslendingar vor-
um tilneyddir að skipta við
þau í ríkum mæli. Hins veg-
ar hefur blaðið lagt áherzlu
á að við ættum að skipta við
þessi lönd eins og önnur, að
svo miklu leyti sem þau við-
skipti væru okkur hagkvæm.
Mbl. hefur líka undirstrik-
að, að það teldi að þessi við-
skipti gætu orðið hagkvæm,
einmitt vegna þess að við er-
um ekki lengur tilneyddir að
kaupa af kommúnistaríkjun-
um og þau eru nú sem óðast
að gera sér það ljóst að þau
verða að selja okkur jafn
góðar vörur og öðrum og á
heimsmarkaðsverði.
En Tíminn segir lesendum
sínum það blákalt að Mbl.
haldi því fram að viðskipt-
um eigi „að þætta þegar í
stað“, þó að ekkert í þá átt
hafi nokkurntíman staðið í
Mbl. — Slíkar fullyrðingar
hæfa fréttafölsunarblaðinu
prýðilega.
framfarastofnunarinnar (AJD)
dvalizt í Jórdaníu. Maðurinn, Oli
ver Folsom, er kunnáttumaður
um áveitur Er hann heyrði um
vatnsskort þann, sem í vændum
var, sneri hann sér til ambassa-
dors Bandaríkjanna í Jórdan,
William B. Macomber, með uppá
stungu um úrlausn.
Fyrir nokkru fundust nýir
brunnar við Hebron, er liggur
um 27 km fyrir sunnan brunna
Salómons. Óhægt er þó um vik,
því að á milli liggja fjöll.
Folsom kom með þá tillögu, að
í skyndi yrði lögð vatnsleiðsla
frá Hebron til Salómonsbrunna.
Maoomber, ambassador féllst
strax á tillöguna. Hann sendi ut-
anríkisráðuneyti Bandaríkjanna
skeyti og bsð um fjárhagaðstoð
til að hrinda verkinu í fram-
kvæmd.
Svar 'oarst innan tíðar. Þannig
stóð á, að allt frá árinu 1945 hafa
þúsundir af vatnsrörum legið ó-
notuð í vörugeymsluhúsi í Norm
andí. Leyfi fékkst nú til að fá
þessi rör flutt til Jórdaníu.
Flutnirigadeild bandaríska hers
ins kom rörunum um borð í skip,
er var á leið írá Evrópu til hafn
arborgarinnar Aqaba í Jórdaníu.
Einum og hálfum sólarhring eft
ir að skipið kom í höfn var búið
að flytja rörin inn í land og búið
að dreifa þeim meðífram því
svæði, er leggja skyldi þau um.
Síðan hófust sérfræðingar Jórd
aníuhers handa, og á níu dögum
höfðu þeir tengt öll rörin. Auk
þess var komið fyrir vatnsdæl
um, þar eð yfir hálendi var að
fara.
Fyrir rúmri viku söfnuðust
helztu ráðamenn saman við
brunna Salómons til að vera
vitni að því, er fyrsta vatnið úr
brunnunum í Hebron rann í Sal
ómonsbruima.
Hussein konungur, er verið
hafði erlendis, meðan á fram-
kvæmdinni stóð, var furðu lost-
inn, að verkinu skyldi vera lokið,
er hann kom til baka.
Yatn er nú í hverjum krana I
Jerúsalem, og borgarstjórinn,
Rawhi Khafib, sagði: „Þetta er
kraftaverk".
Aldagamalt vandamál var loks
leyst. Macomber, ambassador
sagði: „Stundum hefur aðstoð
okkar við önnur lönd verið gagn
rýnd, en í þetta skipti hittum við
þó naglann á höfuðið“.
íbúar Jerúsalem og Bethlehem
eru honum víst hjartanlega sam-
mála.
Kortið sýnir afstöðu brunnanna til borganna. Syðst, við Hebr-
on eru nýju brunnarnir og þaðan eru um 27 km til Salómons-
brunna. Þeir eru aftur 12 km frá Jerúsalem.