Morgunblaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 10
ío MORCl'NBLÁÐIÐ Laugardagur 1. sept. 1962 Þórður Einarsson skrifar. A erlendum bókamarkaðí ÞRÍR LÁTNIR HÖFUNDAR. BANDARÍSKI rithöfundurinn William Faulkner — snillingur- inn frá Missisippi — lézt fyrri hluta júlímánaðar s.l. 64 ára að aldri. Við andlát hans var þessa stórmerka höfundar og verka hans að nokkru getið í íslenzk- um blöðum, þó ástæða væri samf til þess að fara nánar út í þá sálma, svo hugleikið sem við fangsefnið er, en til þess er hvorki tími né rúm í þetta skipt- ið. Rúmum mánuði fyrir andlát Faulkners kom út ný skáldsaga eftir hann, sem nefnist The Rei- vers. (Orðið mun dregið af slkozkri sögn, sem er nærri horf- xn úr málinu, „to reive“ eða „reave", og mun merkja að taka traustataki eða ránshendi). Hef- ur bók þessi fengið einstaklega góðar viðtakur vestan hafs. f>eir sem eittihvað þekkja til verka William Faulkners hafa þráfaldlega orðið varir við ó- venju skarpa kímnigáfu þessa höfundar. Þótt sérfræðingar þeir, sem hafa ritað um Faulkner og verk hans hafi viljað beina at- hygli manna öllu meira að hinni skuggalegu hlið þeirra og rætt um hann sem höfund sagna er lýsa hinum sigruðu suðurríkjum og fordæmdum fjölskyldum þeirra, þá bregður þó alltaf öðru hverju fyrir óvenju skemmtileg- um lýsingum og kímilegum frá- sögnum. í þessari nýju bók sinni mun Faulkner hins vegar bregða sér meir á leik en nokkru sinni fyrr. Hafa sumir gagnrýnendur jafn- að henni við beztu og skemmti- legustu verk hins frsega landa hans, Mark Twains. Sagan ger- ist í Yoknapatawpha-héraði árið 1905, þótt Faulkner skeyti ek-ki um stranga tímaröð viðburð- anna fremur en endra nær. Aðal persónur sögunnar eru þrjar: Boon Hogganbeck, risi að vexti en á andlega sviðinu hreint nátt- úrubarn; Ned, glúrinn og heim- spekilegur svertingi, og loks Luc ius litli Priest, 11 ára gamall strákur, sem segir barnabörnum sínum söguna mörgum árum síð- ar. Þessi ósamstæðu þremenn- ingar miynda með sér eitt hið skemmtilegasta ævintýra og þjófatríó, sem hugsast getur. Þeir Boon Hogganbeck og Lucius litli taka upp á því að stela bifreið, hinni fyrstu sem til Jefferson kemur, og er eign afa Luciusar. Leggja þeir nú af stað í ferða- lag, en ekki líður langur thni unz þeir uppgötva laumufar- þega. Það er negrinn Ned, sem hefur falið sig undir segldúik aftur í bifreiðinni. Ferðinni er heitið til Memphis, því Boon þarf að heimssekja þar „ástarljósið sitt,“ Corrie, sem býr í hóruhúsinu hjá ungfrú Reba. Þangað komast þeir eftir hin mestu ævintýr og skemmtir Faulkner sér mikið við að lýsa herkúlesarafrekum þremenning anna í baráttu þeirra við veg- leysur, mýrarfen og aðrar tor- færur. Lesendur kannast við urxgfrú Reba og stofnun hennar úr bók- inni Sanctuary, en lýsingarnar á því, sem þar skeður, eru með því hrikalegasta hjá Faulkner. En nú er allt annað upp á ten- ingnum. Ungfrúin og starfs- stúlkur hennar keppast um að sýna sínar beztu hliðar, ekkert má segja eða gera til þess að spilla hugsunarhætti hins 11 ára gamla drenghnokka, er verða mætti til þess að leiða hann af- vega. Þessar ungfrúr gleðinnar sýna það og sanna að þær eiga hjörtu úr gulli og búa yfir hegð- an og framkomu, sem hæfa hverri hertogaynju, og komedía Faulkners er slík að þetta verð- i ur engu síður vinur og sálufé- ur allt -sennilegt. Þá fyrst kárnar gamanið þegar í ljós kemur, að bíllinn er horf- inn. Uppgötvast þá brátt að Ned hefur selt hann fyrir veðhlaupa- hest og hugsað sem svo, að með því að láta hestinn taka þátt í kappreiðunum . geti þeir grætt nóg til þess að kaupa bílinn aft- ur, og fengið alla skemmtunina í ókeypis ofanálag. Glettni og gaman Faulkners kvað þá fyrst ná hámarki sínu, er hann fer að lýsa veðreiðunum og öllu því, sem þeim fylgir. Þegar hæst stendur leikurinn birtist afi gamli á sjónarsviðinu. Verður hann nú að leysa bílinn út og greiða ýmislegán annan kostn- að fyrir pörupiltana, og flytur þá síðan aftur heim með sér reynslunni einni ríkari. Boon kvænist Corrie sinni og nefnir fyrsta barnið Lucius Priest Hogg anbeck; Ned hefur haft í frammi gróðabragð, með þvi að veðja á hinn hestinn í veðhlaupinu, en Nikos Kazantzakis Lucius hefur öðlast fyrstu reynslu sína af hinum stóra og skringilega heimi mannanna. Árið 1956 kom út í Bandaríkj- unum skáldsaga, er skömmu eftir útkomu hlaut Pulitzerverð- launin sem bezta skáldsaga árs- ins í Bandaríkjunum. Saga þessi nefnist A Death in the Family og var eftir höfund, sem látizt hafði úr hjartaslagi hinn 16. maí árið áður, þá aðeins 45 ára að aldri, James Agee að nafni. Ebki minnist ég þess að hafa séð þessa höfundar eða verka hans neins staðar getið hér, enda hafði höfundurinn ekki vakið neina verulega athygli í heima- landi sínu, fyrr en þessi skáld- saga kom út og hlaut bókmennta verðlaun, neroa þá kannski inn- an fremur fámenns hóps skálda og bókmenntamanna. Ég minn- ist þess varla að hafa noikikru sinni lesið bók ritaða á enska tungu, sem hefur snortið mig jafn djúpt, einkum að því er varðar óvenju fagran og persónu legan stíl höfundarins og mynd- auðgi lýsinganna. Á stundum er sem lesandinn sjái efnið fyrir sér eins og lifandi mynd í gegn um sterkt sjóngler, þar sem dramatískt samspil ljóss og skugga verður ótrúlega skýrt og áhrifamikið. Þessi bók er óvenju gott dæmi um listræn og þjálf- uð vinnubrögð, sem lotið hafa ströngum aga. En það var ekki einungis vegna þessa verks, að ég geri James Agee nú að umræðuefni. Um síðast liðin miánaðamót kom út vestan hafs bók með safni af bréfum James Agee til séra Flye (Letters of James Agee to Fat- her Flye), sem er kaþólskur prestur, er var ekki aðeins sálu- sorgari Agees árum saman, held- lagi. I þessum bréfum birtist óvenju lega viðkvæmt og listrænt eðli Agees. Enginn vafi var á því, og sjálfur hefur hann eflaust verið sér þess meðvitandi, að englarnir höfðu fært honum snilligáfu í vöggugj öf, en „vand- inn var sá að flytja þessa vand- með förnu gáfu af himnurn ofan niður á jörðina,“ eins og einn gagnrýnandinn kemst að orði. í inngangi sínum að bókinni kvað Robert Phelps, kunnur bók- menntagagnrýnandi vestan hafs, komast þannig að orði, að Agee „sé fæddur höfðingi hinnar ensku tungu,“ en að bréfin sanni hins vegar að tungan hafi ávallt ver- ið drottnari hans og yfirboðari. Þau muni á hinn bóginn einnig sýna og sanna að einungis með hinni ströngustu sjálfsögun og og gagnrýni á eigin vinnubrögð, geti rithöfundurinn náð þeim ár- angri, sem hann og aðrir sætta sig við, hversu mifcla náðargáfu og snilli sem hann hefur hlotið í vöggugjöf. Þessi bók hlýtur að vera eink- ar girnileg til fróðleiks og skemmtunar, ekki sízt fyrir þá, sem eitthvað fást við að skrifa. Griski skáldjöfurinn Nikos Kazantz’akis dó fyrir 5 árum Fáir eða engir síðari tíma höfundar hafa fremur unnið til bókmenntaverðlauna Nobels, en hann lézt án þess að verða þeirr- ar umbunar aðnjótandi. Kaz- antzakis var Krítverji, og á eyj- unni Krít var hann lagður til hinstu hvílu. Ekki er Nikos Kazantzakis með öllu ókunnur íslenzkum lesendum og útvarpshlustendum, því skáldsaga hans Zorba var lesin sem útvarpssaga fyrir nokkr um árum, og árið 1957 gaf Al- menna bókafélagið út skáldsögu hans Frelsið eða dauðann í þýð- ingu Skúla Bjarkans. Báðar eru þessar bækur hvor annari betri .og skemmfilegri. 1 Þórður Einarsson hefur ritað margt um bókmenntir í Fé- Iagsbréf Almenna bókafélags-' ins. Hann fylgist vel með nýjum erlendum bókum og mun rita greinar í Morgun- blaðið um þær og höfunda þeirra til fróðleiks og ábend- ingar þeim sem áhuga hafa á því sem einna markverð- ast þykir á crlendum bóka- markaði. Er það von blaðs- ins, að bókamenn hafi gagn og ánægju af þessari kynn- ingu. Kazantzakis var heittrúaður rithöfundur, og á síðari árum ævi hans snerist hugur hans og ritverk æ meir að trúmálum og þó einkurn lífi Jesús, passíunni og krossfestingunni. Árið 1948 kom út bók hans Gríska Passían, en hún birtist ekki í enskri þýðingu fyrr en 6 árum síðar. Sú bók var nýskeð gefin út á ný í ódýrri útgáfu á veguim brezka útgáfufyrirtæikis- ins Faber & Faber, og nefnist Christ Recrucified, eða Endur- krossfesting Krists. í þessu verki lýsir höfundurinn því á óvenju snilldarlegan hátt hvernig nofckr- ir íbúar í litlu, grísku fjallaþorpi, sem hafa fengið hlutverk í harm- leik páskanna, neyðast til þess að leika þessi sömu hlutverk í sínu eigin lífi. Á þennan hátt vill Kazantzakis skýra frá þeirri trú sinni, að ef Kristur birtist aftur meðal vor mannanna, þá hlyti hann sömu örlög og fyrr og yrði krossfestur á nýjan leik. Árið 1960 kom út ensk þýðirxg á annarri bók Kazantzakis, sem fjallaði um mjög svipað efni, og nefndist The Last Temptation of Christ eða Síðasta freisting Krists. Þetta er í rauninni ævi- saga Jesú Krists í s'cáldsögu- formi, sem lýsir þc.. i skoðun höfundarins að maðurinn og guð séu eitt og hið sama, eða með öðrum orðum að guðsímyndun hvers og eins fari eftir því hvað hann geri við sjálfan sig. í aug- um Kazantzakis er Kristur hvorki sá Jesú, er mennirnir dýrka sem son guðs, eða hinn blíðlyndi kennimaður, sem er laus við allan guðdóm, hfildur er hann maður, sem finnur til heilagrar köllunar og tekst að uppfylla hana einungis með því að yfirvinna sinn eigin veikleika og ótta. En fyrst og fremst lýs- ir þetta merkilega verk innra sálarstríði höfundarins sjálfs. Báðar þessar bækur voru for- dæmdar af grísk-kaþólsku kirkj- unni í heimalandi höfundarins, og hina síðar nefndu akráðu yfirvöld rómversk-kaþólsku kirkjnnar meðal þeirra bóka, sem rétttrúuðum var bannað að lesa. En slíkt var engin nýlunda fyrir Kazantzakis, því þegar á árinu 1939 lýstu yfirvöld rétttrún aðarkirkjunnar því opinberlega yfir að þau litu á Kazantzakis sem guðleysingja. Loks nú fyrir tæpum 3 mán- uðum kom út ensk þýðing á einni af síðustu bókum Kaz- antzakis, skáldsaga um ævi heil ags Franz frá Assissi. Starf og líf heilags Franz hefur verið mörgum höfundum freistandi viðfangsefni og sumir hafa gert þennan hugnæma dýrling að hálfgérðum sætabrauðsdreng. í það minnsta má álykta að Kaz- antzakis hafi litið svo á. í aug- um hans var Franz allt of mild- ur og blíðlyndur til þess að geta verið heilagur dýrlin.gur. í endursögn sinni á ævi guðs- mannsins leitast Kazantzakis við að gæða hann mannlegum breyzk leika og veita honum sjálfum og verkum hans þannig ólíkt stærra og almennara gildi en áður hefir verið gert. Allar eru þessar bækur Kaz- antzakis hinar merkilegustu og því full ástæða til þess að draga athygli lesenda að þeim. Þæ» eru öllum merkileg og lærdóms- rík lesning. Þórður Haíldórsson: Suöurnesjavegur NÚTÍMAÞJÓÐFÉLAG gerir há- kröfur til þegna sinna um verðmætasköpun, menntun og tækni. Á sama hátt gera þegn- arnir kröfur til þjóðfélagsins um hagræna nýtingu vinnuaflsins, aðstöðu til menntunar og fram- fara til uppbyggingar og vel- megunar þjóðfélagsins í heild. , Einn af hyrningarsteinum nú- tíma þjóðfélags eru greiðar og góðar samgöngur. Ættu þær eðli legá að vera greiðastar og bezt- ar, þar sem þéttbýlið er mest og fraimileiðnin öruSt og afikasta- mest. Þessi þróun hefur þó stefnt í nokkuð torráðna átt hvað sam- göngur snertir við Suðurnes, sem eru einn af þýðingarmestu stöðum landsins, hvað snertir verðmætasköpun. Allt frá styrjaldarlokum hefir Suðurnesjavegur verið eitt af vanræktum vandræðabörnum íslenzkra vegamála, enda þótt hann, sakir mikuvægis síns fyr- ir þjóðfélagið, ætti að vera ein glæstasta samgönguæð landsins. Byrjað er nú á byggingu nýs Suðurnesjavegar, kem ég að því sérstaklega síðar. Viðhald Viðhald Suðurnesjavegar hef- ur verið allt hið lélegasta frá styrjaldarlokum, en þó hefur það á þessu sumri slegið öll met. Ég hef í sumar ekið til Norður- og Vesturlands og full- yrði að hvergi er á þeim leiðum finnanlegur jafn ömurlegur veg- arspotti sem leiðin frá Reykja- vík til Keflavíkur. Vera má að einhvers staðar fyndust öræfa- slóðir, sem væru álíka lélegar. Einstaka sinnum hafa vegheflar verið sendir á þessa leið, sýni- lega meira til að friða vegfar- endurna en það gæti orðið að nokkru gagni, því víðast hvar er vegurinn berar klappir, hol- ur og harðir hnúskar. Sá litli ofaníburður, sem einhver tíma hefur verið í veginum, situr nú á vegköntunum eða utan hans, það af honum, sem ekki er þeg- ar fokinn út í veður og vind eða þveginn burt af regni. Það væri fróðlegt rannsóknar- efni hversu viðhald bifreiða, vegna ástands þessa vegar, nem ur mikilli fjárupphæð. Það er ekki of djúpt tekið í árinni að segja að það eru milljónir á ári hverju. Þetta nútíma „Skúlaskeið" ís- lenzkra þjóðvega er til lítils sóma, þar sem útlendingar fá þar oft sín fyrstu og einu kynni af vegamálum fslendinga. Sörli sprakk ekki fyrr en í hlaðinu á Húsafelli, en hræ þaíiasta þjóns nútímans varða Suður- nesjaveg oft dögum saman. Nýbygging Suðurnesjavegar Síðla árs 1960 var hafizt handa um nýbyggingu Suður- nesjavegar. — Suðurnesjabúar stóðu á öndinni af hrifningu. Nú ættum við þó loksins að fá veg og hann ekki af lakara taginu. — Fyrsta framkvæmd um varan legan veg á íslandi. — Allir töldu að myndarlega yrði af stað farið, vegurinn lagð ur beint og verkið hespað af á nokkrum mánuðum, svo brýa sem þörfin er. Framkvæmdin hefur staðið stanzlaust (nema vegna verkfallsins í fyrrasum- ar) í tvö ár. Langt er komið að undirbyggja um átta kíló- metra spotta. Hverju er tapað og hvað er grætt? í stað þess að taka í einu er- lent lán til vegarins, bjóða verk- ið út og hraða því með stór- virkum vinnuvélum, sem innu allan sólarhringinn, sem hefði ekki aðeins sparað fjármagn og tíma við framkvæmdina, heldur milljónavirði í niðurbrotnum farartækjum, er Vegagerð ríkis- ins látin vinna verkið með lé- legum smátækjum. Vegfarand-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.