Morgunblaðið - 19.09.1962, Page 2
2
MORGVNRLAÐIÐ
Miðvikudagur 19. sept. 196z
Mnirn
i
■M
Krafa reykv'iskra verkamanna er:
Allir verkamenn
fái full réftindi
Kommunistar tryggja völd sin
i „Dagsbrún" með þvi oð halda
fjölda verkamanna réttindalausum
EIN helzta ástæSa þess, að
kommúnistum hefur tekizt að
halda völdum í „Dagsbrún" á
undanförnum árum, er sú, að
mtkill fjöldi starfandi verka-
manna í Reykjavíkur hefur
ekki öðlazt full réttindi í fé-
laginu.
Kommúnistar hafa Xagt
mikla áherziu á það, að
„smala“ inn í félagið öllum
flokksbræðum sínum, sem
með nokkru móti hefur verið
hægt að halda fram að við-
riðnir væru verkamanna-
vinnu. Hafa þeir ekki kallað
allt ömmu sína í þeim efnum
— og eru „litlir" verkamenn
ýmsir þeir, sem þannig hafa
flotið inn í félagið á flokks-
stimpliniim. Hitt hafa þeir
svo ekki lagt minni rækt við,
og það er að halda réttinda-
lausum sem alira flestum úr
hópi þeírra, sem ekki hafa
verið líklegir til að sætta sig
við það, að félagið væri mis-
notað í pólitískum tilgangi.
Þannig hefur t. d. síðustu ár-
in hundruðum verkamanna
verið haldið á aukameðlima-
skrá, enda þótt þeir ættu kröfu
á fullum rétindum í félaginu.
Með þessum hætti hefur
kommúnistum tekizt að koma
í veg fyrir að menn þessir
gætu greitt atkvæði við kosn-
ingar í félaginu. Er það vissu
lega mjög alvarlegt mál, að
þannig skuli vera loku fyrir
það skotið að hinn sanni vilji
starfandi verkamanna í
Reykjavík fái komið í ljós. Og
það er ekki síður alvarlegt,
að um leið eru umræddir
verkamcnn sviptir margvisleg
um hlunnindum, sem verka-
menn eiga að geta notið góðs
af, svo sem styrkjum úr sjúkra
sjóði, atvinnuleysistryggingu,
þegar á slikt reynir, o. s. frv.
í mörgum tilfellum greiða
þessir menn þó full gjöld til
félagsins.
Allir þeir verkamenn, sem
svona er ástatt um, ættu vissu
lega að nota tímann fram að
hinni fyrirhuguðu allsherjar-
atkvæðagreiðslu í félaginu, til
þess að ganga fast eftir þvi,
að fá full réttindi í félagi sínu.
Ef þeir fylgja þeirri kröfu
sinni eftir af einurð og festu,
geta kommúnistar ekki enda-
laust staðið í vegi fyrir því,
að slíkt réttlætismáli nái
fram að ganga. Þeir munu
verða að láta undan, þótt þeim
þyki það súrt í broti.
•*r>
UM hádegi í gær var alldjúp
lægð yfir Grænlandshafi og
olli S-strebkingi og rigningu
hér vestan lands, en austan
lands var hægviðri og létt-
skýjað. Lægðin þokast NA-
eftir og lítur því út fyrir SV-
átt hér á landi og skúraveður
uim vestan vert landið.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-land til Vestfjarða og |
miðin: SV kaldi, skúrir, léttir L
tii síðdegis í dag með vestan- J
átt. I
Norðurland og miðin: SV i
kaldi, skúrir vestan til. U
NA-land, Austfirðir og mið- J
in: SV kaldi, rigning öðru 1
hverju. 1
Austurdjúp: Sunnan stinn- U
ingskaldi, rigning. £
Bolfana vantaði
í Maríu Júlíu
og skipshöfnin fór út á varÖskipinu Gaut
Kynningarkvöld
Norræna félagsins
NORRÆNA félagið efnir til
kynningarkvölds í Þjóðleikhús-
kjallaranum n. k. fimmtudags-
kvöld, 20. sept., og er þangað
boðið þeim, sem nú eru á för-
um utan til náms við lýðháskóla
á Norðurlöndum fyrir milli-
göngu félagsins og einnig þeim,
sem áður hafa stundað nám á
slíkum skólum á vegum þess.
Margir fyrri nemendur vilja án
efa nota tækifærið til að biðja
fyrir kveðju til skóla sinna, en
þeir sem nú fara utan — flestir
í fyrsta sinn á ævinni — gætu
um leið fræðst um margt af
þeim, sem áður hafa verið á
þeim skólum, sem þeir fara nú
til. Þessi fræðslu- og skemmti-
fundur hefst kl. 20.30, aðgangur
er ókeypis og nemendum heim-
ilt að taka með sér gesti. Þeir
Sveinn Ásgeirsson, ritari Nor-
ræna félagsins, og Magnús Gísla
son, framkvæmdastjóri þess,
munu ræða við nemendur, en
dansað verður til kl. 23.30.
Sviþjóð. Á sl. 8 árum hafa um
500 íslendingar notið fyrir-
greiðslu félagsins í þessu efni,
og er þessi liður starfsemi þess
því mjög umfangsmikill. Allir
hljóta nemendurnir styrki til
námsdvalarinnar í þeim löndum,
sem þeir dvelja í, og verður því
skólavistin þeim tiltölulega mjög
ódýr. Hér er um heimavistar-
skóla að ræða, þar *em áherzla
er lögð á almenna menntun og
félagslegan þroska. Þá er það
auk sjálfs námsins mikils vert
fyrir hina íslenzku nemendur,
að þeim gefst sérstakt tækifæri
til að tileinka sér vel eitt Norð-
urlandamálanna, sem þeir búa
að æ síðan, og tengjast frænd-
þjóðum vorum traustum vináttu
böndum. Er reynslan af dvöl ís-
lenzkra nemenda á lýðháskól-
um á Norðurlöndum hin ágæt-
asta.
Norræna félagið.
Læknafundur í kvöld um
hjartasjúkdóma
í TfLEFNI af komu þriggja
danskra hjartasérfræðinga frá
Ríkisspítalanum í Kaupmanna-
'höfn verður haldinn aukafundur
í Læknafélagi Reykjavíkur í
kvöld, miðvikudagskvöld, klukk
an 20,30 í hinni nýju kennslu-
sfcofu Landsspítalans, Hver lækn
ir flytur erindi í sinni sérgrein
í hjartasjúkdómum.
Allir læknar og læknastúdent
ar eru velkomnir á fundinn.
1 GÆRMORGUN var fyrirhug-
að að hefja að steypa nýja
Keflavíkurveginn, en því varð
að fresta vegna mikillar úr-
komu. Ráðgert var að hefja
framkvæmdirnar í morgun ef
veður leyfði.
Ákveðið hefur verið að steypa
5 km. kafla af nýja veginum í
haust, en hann verður 7,5 m.
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
skipshöfnin á varðskipinu Maríu
Júlíu veitt því eftirtekt að óeðli-
lega mikið marraði í skipinu þeg
ar það valt, og virtist marrið
einkum koma undan yflrbygg-
ingu skipsins, og lét stundum
mjög hátt.
Ekki þarf að því að spyrja
að skipsliöfnin og starfs-
menn Landhelgisgæzlunnar hafa
gert saumnálaraleit að orsökun-
um til þessa marrs í skipinu. En
ástæðan kom ekki í ljós fyrr en
í fyrri viku.
Vegna þess að þá virtist svo
sem nokkur bitasamskeyti hefðu
breiður. fslenzkir aðalverktak-
ar hafa tekið verkið að sér og
hafa þeir á að skipa fullkomnum
vélum, sem steypa 150—200 m.
á dag. Byrjað verður að steypa
veginn fyrir ofan Hafnarfjörð
og er það Snæbjörn Jónasson,
verkfræðingur, sem hefur eftir-
lit með verkinu fyrir hönd vega
málastjóra.
opnast, bað Landhelgisgæzlan sér
fróða menn í tréskipasmíði frá
Landssmiðjunni og Skipaskoðun
ríkisins að athuga málið. Kom þá
í ljós að í skipið vantaði stóra
bolta, sem halda dekkinu sam-
an sitt hvoru megin við keisinn.
Eiga þeir aS vera í íslenzkum
skipum, en María Júlía var smíð
uð í Danmörku fyrir 12 árum,
og átti að uppfylla allar kröfur,
sem gerðar eru til tréskipa hér-
lendis. En siglt hefur hún 12 ár-
in án boltanna, sem halda eiga
skipinu saman.
Er þetta kom á daginn varð
uppi fótur og fit, og bannaði
skipaskoðun ríkisins að skipið
færi á sjó fyrr en búið væri að
laga þetta. Átti María Júlía að
fara út til gæzlu á Faxaflóa sl.
laugardag en þegar skipaskoðun
in bannaði brottför skipsins, var
úr vöndu að ráða. Varð það úr
að skipstjóri og skipshöfn voru
sett um borð í varðskipið Gaut,
en það gerðist með slíkum hraða
að ekki náðist í kokkinn. Fór
Gautur kokkslaus út með þær
ráðleggingar að ef menn svengdi
skyldu þeir bara fara inn til
Keflavíkur og fá sér að borða!
Unnið er að því að koma bolt-
unum fyrir í Maríu Júlíu.
Rign!ngin tafði steypu-
vinnu á Keflavíkurveginn
Ágætt héraðsmot Sjálf-
stæðismanna á Austfj.
Um 500 nemendur á 8 árum
Um 60 íslenzkir unglingar
munu stunda nám á vetri kom-
anda fyrir milligöngu Norræna
félagsins á lýðháskólum í Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og
Komin heim
f rá Konsó
FRÚ Margrét Hróbjartsdóttir og
Benedikt Jasonarson, kristniboð
ar, eru nýkomin heim í hvildar-
leyíi frá starfi sínu á íslenzku
kristniboðsstöðinni í Konsó. Hafa
þau þá lokið fvrsta starfstíma-
bili lcristniboða, sem er um 4%
ár þar í landi. Munu bau dvelja
hér heima sér til hressingar í
rúmt ár.
Samband ísl. Kristniboðsfélaga
Bem reist hefir kristniboðsstöðina
i Konsó og staðið straum af
Starfrækslu hennar, efnir til al-
mennrar samkomu í húsi
K. F. U. M. og K. í kvöld kl. 8,30
þar sem hjónunum verður fagn
að við heimkomuna og þau flytja
kveðjur til vin« og velunnara
starfsins.
SÍÐASTL. laugardag efndu
Sjálfstæðismenn á Austfjörðum
til héraðsmóts í hinu veglega fé-
lagsheimili í Neskaupstað. Fór
mótið hið bezta fram og var vel
sótt, þrátt fyrir slæmt veður.
Dagskráin hófst með því að
Kristinn Hallsson, óperusöngv-
ari, söng einsöng; undirleik ann-
aðist Skúli Halldórsson, píanó-
leikari.
Þá flutti Jónas Pétursson, al-
þingismaður, ræðu. Síðan söng
Þórunn ólafsdóttir, söngkona,
einsöng.
Þessu næst flutti Ingólfur
Jónsson, landbúnaðarráðherra,
ræðu.
Fluttur var gamanleikurinn
„Mótlætið göfgar“ eftir Leonard
White og fóru með hlutverk
leikararnir Valur Gíslason og
Helga Valtýsdóttir.
Að leiksýningu lokinni sungu
þau Kristinn Hallsson og Þór-
unn ólafsdóttir tvísöng við und-
irleik Skúla Halldórssonar.
Vai’ ræðumönnum og listafólk
inu mjög vel fagnað.
Samkomunni lauk síðan með
því, að stiginn var dans fram
fólkinu mjög vel fagnað. Lauk
Rétfir í Ár-
nessýslu
EINS og kunnugt er standa nú
réttir yfir.. í gær voru Hafravatns
réttir og mun nú lokið við að
rétta víðast hvar fyrir sunnan
fjall, en í Árnessýslu verður rétt
að í dag, fimmtudag og föstu-
dag.
Selvogsréttir eru í dag, og
Grimsnes eða Klausturghóla-
réttir eru á morgun fimmtudag.
Ölfusréttir, Hrunamannaréttir og
Gnúpverjaréttir eru á morgun,
en stærstu réttir í Amessýslu,
Skeiðaréttir eru á föstud. Laugar
dalsréttir voru í gær fc.* í dag eru
Tungnarétiir.
Námsstyrkur
KVENSTÚDENTAFÉLAG fs-
lands hefur ákveðið að veita nú
í haust styrk, að upphæð kr.
20.000.00, til framhaldsnáims er-
lendis. Styrkurinn veitist konu,
sem tekið hefur lokapróf í ein-
hverri grein við Háskóla fslands.
Umsóknir um styrkinn sendist
Kvenstúdentafélagi íslands, Rvík
á þar til gerðum eyðublöðum.
Eyðublöðin fást í skrifstofu Há-
skóla íslands.
Slökkviliðið
gabbað
Hafnarfirði — í gær varl
slökkviliðið gabbað út og það
beðið að koma að Hverfis-
götu 69, en hús með bví núm 1
eri er -kki til. Var hringt á
„lökkvistöðina og fóru allir
bílarnir út eða brír talsins.,
Við sliku gabbi eru háar sekt
ir en að sjálfsögðu er það
líka vítavert afchæfi, sem get-
ur orðið stórhættulegt ef um
raunverulegan eld er að ræða
um sama eyti. *
- • . . llX, ,
Eigandi Land
Roverbílsins
FYRIR nokkru var dregið í Happ
drætti Krabbameinsfélags ís-
lands. Vinningar voru þrír, tvö
hjólhýsi og Land Roverbíll. Hjól
hýsanna var beggja vitjað strax,
en nú hefur eigandi Land Rover
bílsins vitjað hans. Kom bíllinn
á miða nr. 13524, og reyndist eig
andi hans frú Guðrún Thorsten-
sen, Túngötu 3, Reykjavík.
— Bilslys
Framhald af bls. 24.
ir eftir áreksturinn.
Þess má geta, að rannsókn-
arlögreglumaður, sem kvaddur
var á staðinn. lagði biil sínuin
undir ljósastur með biðljós á. For
vitinn bílstjóri, sem ók framhjá
og varð starsýnna á slysstaðinn
en veginn, ók aftan á bíl lögreglu
mannsins. Skemmdist bíil lög-
reglumannsins lítillega en hinn
bíllinn töluvert. — Geta má þess
að veður var hið versta til akst-
urs í gær, rigning og slagveður.