Morgunblaðið - 19.09.1962, Síða 3
Miðvikudagur 19. sept. 1962
MOKGU1SBLAÐ1Ð
3
STAKSTEINAR
Hlutverk Dagsbrúnar
í Hafravatnsrétt komu að
þessu sinni um 8000 fjár að
því er fróðustu menn töldu
og var það raunar venju frem-
ur margt. Þó hafði féð leitað
niður undanfarna daga sökum
kuldanna sem gengið hafa.
Mjög virtust dilkar misjafnir
að væníeika og gat raunar að
líta marga „kettlinga", eins
og bændur nefna hina rírari.
Fé á þessu svæði er yfir höfuð
vel fóðrað og fer því vænt
á fjall, en kemur þaðan frem
ur rírt, sökum þess hve sum-
arhagar eru yfirleitt lélegir á
þessum slóðum. Mikil bót er
talin að því að áburði var
dreift á alistórt svæði af heið-
unum í sumar og leitaði féð
þangað inikið. Hinsvegar er
það almeunt talið að ekki hafi
enn verið nóg að gert þar sem
Framhald á bls. 23.
Alþýðublaðið birtir í gær for-
ustugrein um pólitíska misnotk-
un kommúnista á verkamannafé-
laginu Dagsbrún. Er þar m. a.
komizt að orði á þessa leið:
„Það er athyglisvert fyrir Dags
brúnarmenn, hvaða hlutverk
kommúnistar hafa ætlað félagi
þeirra. Þeir eru alltaf látnir ríða
á vaðið, þegar taka þarf upp
baráttu fyrir hækkunum. Oft
verða þeir að leggja hart að sér
í löngum verkföllum, en svo
koma launaliærri stéttirnar á
eftir og fá án fórnar sömu hækk-
anir — og oftast meiri.
Þetta kerfi þjónar sannarlega
ekki hagsmunum verkamanna, en
það virðist þjóna pólitískum hags
munum kommúnista. Með stjórn
sinni á Dagsbrún nota þeir að-
stöðu sína, þegar þeim þóknast
og eins og þeim þóknast. Væri
æskilegt að einhverjir aðrir en
Dagsbrúnarmenn beri í framtíð-
inni þungann af baráttu, sem
allir njóta góðs af síðar“.
Þetta er vissulega réttilega
| mælt. Það eru ekki hagsmunir
verkamanna í Dagsbrún, sem
kommúnisar bera fyrst og fremst
fyrir brjósti.
„Illindastefnan“
á undanhaldi
Illindasteína framsóknar »g
kommúnista er á undanhaldi.
Fulltrúar bænda og neytenda
náðu samkomulagi um afurða-
verðið, bændur fengu leiðrétt-
ingu á skekkjum undanfarinna
ára í skjóli skilnings og sann-
girni neytenda.
1 svipaðan mund náðist sam-
komulag við fulltrúa opinberra
starfsmanna um lagfæringu á
kaupi þeirra.
Þjóðfylkingarflokkamir hafa
gert allt sem í þeirra valdi
stendur undanfarna mánuði til
þess að hindra allt samkomulag
um kaup og kjör og halda uppi
stöðugum verkföllum og illind-
um í þjóðfélaginu. Samkomulag
neytenda og bænda, opinberra
starfsmanna og ríkisvaldsins eru
því mikið áfall fyrir þá þjóðfylk-
ingarmenn. Þeir höfðu gert sér
von um að með haustinu mundi
allt fara í uppnám og sölustöðvun
jafnvel hafin á landbúnaðaraf-
urðum.
En fólkið sjálft hefur tekið
hér ráðin af postulum illinda-
stefnunnar. Það er orðið þreytt
á verkföllum og skemmdarstarf-
semi kommúnista og framsókn-
ar og tekur raunhæfar kjarabæt-
ur og eðlilega þróun fram yfir
ævintýramennsku stjórnarand-
stöðunnar.
1,,Hernámsandstæð-
ingar“ í upplausn
Alger upplausn er nú í ffðl
hinna svokölluðu hernámsand-
stæðinga. Þar er hver höndin upp
á móti annari. Því fólki fækkar
stöðugt, sem lætur kommúnista
ginna sig til barátu gegn vest-
rænni samvinnu.
I íslendingar gera sér almennt
ljóst að þeir eiga fyrst og fremst
samleið með hinum vestrænu
1 lýðræðisþjóðum. Þeir vilja ekki
I Iáta draga sig austur fyir járn-
| tjald, þar sem járnkrumla hins
Ialþjóðlega kommúnisma hefur
kyrkt andlegt og efnalegt frelsi
fólksins.
Það er vissulega raunalegt
Íað sjá ennþá einstaka „nytsama
sakleysingja“ brjótast um á fleka
umboðsmanna hins alþjóðlega
kommúaisma hér á íslandi. Þetta
vesalings fólk er orðið að alger-
um viðundrum, sem verðskuldar
meðaumkvun frekar en fyrirlitn
ingu. En einnig það getur séð að
sér áður en það lokast algerlega
inni í hömrum kommúnismans og
hins dómgreindarlausa ofstækis.
Nærfellt jafn margt fólk
sem fé í Hafravatnsrétt
í GÆR brugðu fréttamenn
Mbl. sér í fyrstu réttimar
á þessu hausti og var
haldið upp í Hafravatns-
rétt. Að vísu var veðrið
leiðinlegt, suddarigning og
því lítt ánægjulegt um að
litast. í Hafravatnsrétt
eiga Reykvíkingar allt sitt
fé, svo og Mosfellssveitar-
menn og ennfremur fjár-
eigendur suður með sjó.
í Hafravatnsrétt er smalað
fé norður á miðja Mosfells-
heiði þar sem skilur landa-
mæri við Þingvallasveit og
heitir þar í göngunum að fara
á Norðurheiði. Suðurheiðar-
menn fara hins vegar allt
suður á Hólmsheiði og Elliða-
vatnsheiði. Syðst er skipaður
deildarstjóri af hálfu Reyk-
Kristinn á Mosfelli (með Iúð-
urinn) var skörulegur réttar-
stjóri. Hér kallar hariu á rétt-
armenn til þess að reka féð í
almenninginn.
Ljósm. Ól. K. M.
víkinga er þar leita. Er Bragi
Ágústsson þar leitarstjóri.
Á Suðurheiði er Ólafur Pét-
ursson á Ökrum fjallkóngur
eða leitarstjóri, en á Norður-
heiði Ingimundur Ámundason
á Hrísbrú.
Áður en fé er rekið til Hafra
vatnsréttar hafa heiðarnar
verið smalaðar og réttað í svo-
nefndri Húsmúlarétt, sem er
skammt norðan Kolviðarhóls.
Er vestanféð þar dregið frá
safni Ölfusinga. Húsmúlarétt
var í fyrradag og var komið
með féð þaðan á mánudags-
kvöld skömmu eftir að safnið
rann niður að Hafravatni.
í gær sótti mikill fjöldi.fólks
réttina þótt slæmt væri veður.
Mátti segja að í réttaralmenn-
ingnum væri lengst af fleira
fólk en fé.
Kristinn bóndi á Mosfelli
stýrði þar réttum af miklum
skörungsskap og hafði mikinn
kalllúður til þess verks. Ekki
stóð á liðsmönnum við að rétta
féð og gekk dráttur greiðlega,
enda hrollur í mönnum í rign-
ingunni og höfðu því skila-
menn fullan hug að ljúka
verki sínu sem fyrst.
Hvort hér hefir verið rætt
um kirkjubyggingu eða væn-
leik fjárins vitum við ekki,
en sr. Bjarni Sigurðsson (ber-
höfðaður t.v.) er hér að rabba
við nokkra réttarmenn.
Ljósm. Ól. K. M.
Við hittum Ingimund á Hrís
brú að máli sem snöggvast
og lá vel á honum. Lét hann
yfir að göngurnar hefðu geng-
ið hið bezta, enda veður all
gott á mánudaginn.
Þessi aldurhnigni réttarmað-
ur rekur féð úr nátthaga í
almenning, sveiflar stafnum
sínum og hóar af krafti.
Ljósm. Ól. K. M.