Morgunblaðið - 19.09.1962, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 19. sept. 1962
MORGVNBLÁÐIÐ
5
Sýning á blöðum og tímarifum
hjá Eymundsson
ÞESSA viku stendur yfir hjá
Bókaverzl. Sig-fúsar Eymunds
sonar í Austurstræti sýning á
yfir 500 erlendum blöðum og
tímaritum.
Fréttamaður blaðsins leit
inn á sýnánguna í gærmorgun
og ræddi þar nokkra stund við
Gunnar Ragnars, en hann pant
aði blöðin á sýninguna og
skipulagði hana. Sagði Gunn-
ar, að sýningin væri fyrst og
fremst tilraun til þess að
skapa mönnum betri þjónustu
í blaðakaupum. Erfitt hefði
verið fyrir menn, sem áhuga
hefðu á blöðum og tímaritum
að sjá lítið nema lista yfir
nöfn þeirra, en nú væri ætl-
unin að reyna að ráða bót á
því og ef áhugi á þessari sýn-
ing reyndist mikill, sem all-
ar líkur virtust benda til, yrði
haldið áfram á sömu braut.
Fullyrða mætti, að þetta væri
fyrsta sýning sinnar tegundar,
er haldin væri hér í Reykja-
vík.
Blöðin á sýningunni eru
flest frá Þýzkalandi, eða nærri
200, síðan frá Ameríku o.g
Englandi en einniig er tölu-
vert frá Danmörku, Noregi og
Svíþjóð. Sagði Gunnar, að
Iðnaðarmálastofnun fslanids,
Upplýsingaþjónusta Bandaríkj
anna og sendiráð viðkomandi
lanida hefðu reynzt mjög hjálp
leg við úivegun blaðanna. Til
þess að menn séu fljótari að
finna það, sem þeir hafa.
áhuga á, hefur sýningunni ver
ið skipt í 61 flokk. Má þar
fnna flestar þær tegundir, sem
menn óska eftir í vali blaða
og tmarita svo sem tæknifr.
iðnað, læknisfræði, verzlun,
stjóm- og hagfræði, efnafræði
húsagerðarlist, búvísindi, ljós-
myndun, tízkublöð, íþróttir,
bókmenntir, listir og lögfræði.
Eru rit þessi allt frá ársrit-
um og niður í vikublöð.
Þá geta menn gerst áskrif-
endur að öllum blöðunum og
tímaritunum á sýningunni og
má greiða andvirði þeirra í
íslenizkum peningum.
Frár um malir, fjörur dal,
flýgur alinn Valur,
bezta talinn blakkaval,
brátt ei skal hann falur.
(Hestavísa eftir sr. Helga Sigurðsson)
í>AÐ er áreiðanlegt, að
margir Reykvíkingar af yngri
kynslóðinni hafa undanfarna
daga lagt leið sína að verzlun
arglugga Thorvaldsensfélags
ins í Austurstræti og horft
vonaraugum á brúður þessar,
sem nu eru þar til sýnis.
Brúðurnar eru meðal vinn-
inga í leikfangahappdrætti
félagsins, sem dregið verður
í um miánaðamótin næstu.
f>ær eru ítalskar 70-100 om
á stærð og sérlega skemmti-
legar eins og myndin sýnir.
Alls eru vinningar í happ-
drætti Thorvaldsensfélagsins
50 talsins og verður auk brúð
anna dregið um þríhjól, skip,
flugvélar, stóra bíla o. fl.
Síðar í vikunni verða leikföng
in sýnd 1 anddyri Háskólabí-
ós, þar sem miðar verða einn-
ig seldir.
Flugfélag íslands: Millilandaflug:
Millilandaflugvélin Hrímfaxi fer til
Óslo og Kaupmannahafnar kl. 08:30
í dag. Væntanleg aftur til Reykja-
víkur kl. 22:15 í dag. Millilandaflug-
vélin Skýfaxi fer til Glasgow og Kaup
jnannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Eg-
Slsstaða, Hellu, Hornaf jarðar, ísa-
fjarðar og Vestmannaeyja (2 ferðir)
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (3 ferðir), Egilsstaða, ísa-
fjarðar, Kópaskers, Vestmannaeyja
(2 ferðir) og Þórshafnar.
Loftleiðir: Miðvikudag 19. septem-
ber er Þorfinnur karlsefni væntan-
legur frá New York kl. 05.00. Fer
til Oslo og Helsingfors kl. 06.30. Kem-
ur til baka frá Oslo og Helsingfors
kl. 24.00 Fer til New York kl. 01.30
Snorri Þorfinnsson er væntanlegur
frá New York kl. 06.00. Fer til Gauta-
borgar, Kaupmannahafnar og Staf-
angurs kl. 7.30. Leifur Eiríksson er
mannahöfn og Gautaborg kl. 23.00
Fer til New York kl. 00.30.
Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla
lestar á Austfjarðairhöfnum, Askja er j
í Keflavík.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er 1
Hamborg, Esja er í Reykjavík,, Herj-
ólfur fer frá Reykjavík kl. 21 í
kvöld til Vestmannaeyja, Pyrill er ,
á Norðurlandshöfnum, Skjaldbreið er |
í Reykjavík, Herðubreið er í Reykja-
vík.
Hafskip: Laxá kom til Akraness
1 þ.m., Rangá fór frá Riga 16. þ.m.
til íslands.
Eimskipafélag íslands: Brúarfoss er
í Reykjavik, Dettifoss er á leið ti'l New
York, Fjallfoss er á leið til Kotka,
Goðafoss er á leið til New York, Gull-
foss er á leið til Reykjavíkur, Lag-
arfoss er á leið til Reykjavíkur,
Reykjafoss fór til Hólmavíkur og
Skagastrandar, Selfoss er í Reykja-
vík, Tröllafoss er í Reykjavík, Tungu
foss er á leið til Hafnarfjarðar. gj
Afgreiðslustúlka
Stúlka óskast til afgreiðslu-
og skrifstofustarfa.
Plastpremt sf.
Skipholti 3ö.
Stúlka óskast
til vinnu á
ljósprentstofu. Vinnutími
frá 9—6. Umsóknir sendist
Mbl., merkt: „Ljósprent —
7909“.
Hollenzk þvottavél
og stór strauvél. Hjólsög til
sölu. — Sími 34079.
Loftpressa
Vantar loftpressu 460—1000
ltr/mín. með eða án raf-
mótors.
Plastprent sf.
Sími 14160.
Kjörsonur
Bandarísk hjón óska eftir
kjörsyni, 2ja ára eða yngri.
Tilboð sendist Morgunlað-
inu, merkt: ,,7906“.
Kjörblómið
Kaupum notaðar blóma-
körfur.
Kjörblómið, Kjörgarði.
F orstofuherbergi
til leigu í Kópavogi. Uppl.
að Auðbrekku 1.
Herbergi óskast
með baði og síma. Tilboð
send í pósthólf 908, Rvík.
Stúlka
með barn á 1. ári óskar
eftir ráðskonustöðu. Uppl.
í síma 36365.
Kennsla
á Veritas saumavélar. —
Tíma pantanir í síma 20755.
Roskinn maður
óskar eftir herfeergi. —
Má vera í kjallara. Uppl.
í síma 22160.
Kona, sem vinnur úti,
óskar eftir 1—2 herb. íbúð,
helzt innan Hringbrautar.
Upplýsingar í síma 20150.
Óska eftir
2ja herb. ibúð. Fullorðið.
Ársfyrirframgreiðsla. Uppl.
í síma 18809, 5—7 í kvöld.
Haf n arf j örður
Barnlaus hjón óska eftir
2ja herb. íibúð í Hafnar-
firði. Uppl. í síma 23100.
Ræstingakona óskast
til ræstingar á einu stiga-
húsi við Eskihlíð. Uppl. i
síma 10287.
Framr eiðslustúlka
óskast strax. Prósentur.
Veitingastofan
Óðinstorg, Þórsgötu 1.
Sími 20490.
Herbergi óskast
Einhleyp stúlka óskar eftir
góðu herbergi og eldhúsi
eða eldhúsaðgangi. Uppl. í
síma 12023.
Ný „Honher“ harmonika
til sölu. Upplýsingar í síma
51029.
Vil kaupa
notaða ritvél. Upplýsingar
í síma 18861.
De Soto 1947
til sölu milliliðalaust. —
Upplýsingar í síma 51020.
Keflvíkingar
Fordson sendiferðabíll, ár-
gerð ’46 til sölu Faxaforaut
33C kl. 18.30—22.
Kona
sem vinnur úti frá 9—6
óskar eftir 2ja herb. íbúð
til leigu 1. október.
Helga Jónsdóttir
Sími 1518 og 24393 eftir 8.
Tvö herbergi óskast
til leigu. Tvennt fullorðið,
mæðgin, róleg og reglu-
söm. Uppl. í síma 35349
í dag til kl. 7.
Píanó til sölu
Gott píanó (Hornung og
M011er) til sölu. Upplýsing-
ar í síma 23930.
Unglingsstúlka
eða fullorðin kona óskast
til að gæta 2ja barna í
Austurbæ Kópavogs. Uppl.
í síma 19000, eftir kl. 18.
Stúlka óskast
í Vogaþvottahúsið, helzt
vön pressuvinnu. Uppl. í
síma 3-34-60 millí kl. 8 og
10 á kvöldin.
Sendisveinar
óskast hálfan eða allan daginn í vetur.
Meiga hafa skellinöðru.
Upplýsingar ekki í síma.