Morgunblaðið - 19.09.1962, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.09.1962, Qupperneq 22
MO RCVNBL71Ð1B Miðvikudagtír 19. sept. 196? 22 Gísli Hallddrs- son forseti ÍSl VEBKEFNI ÍSf fyrir æskulýð- inn í lanidinu munu stóraukast á næsta áratug. Reiknað er með að unglingum á aldrinum 14—19 ára fjölgi um 50% á þessum árum. íþróttahreyfingin vill því að hraðað verði uppbyggingu íþrótta skólans, stórauka útbreiðslustarf- semi, koma á uiriglinganámskeið- um, endurvekja íþróttablaðið og koma á keppni um íþróttamerki til að örva allan almenning til íþróttaiðkana“. Þannig fórust Gísla Halldórs- syni arkitekt orð m.a. er hann hafði verið kjörinn forseti ÍSÍ á íþróttaþinginu á laugardags- kvöldið. kjörni forseti þakkaði þann heið- ur sem þingið sýndi honum kvaðst hann vona að sami ein- hugur og á þessu þingi hefði Framh. á bls 23 Baldur Möliei form. ÍIÍB afhendir siguriauuin. „bezla knatts félag Reykjavfkur Gísli Halldórsson Hann fór mörgum orðum um starf Ben. G. Waage fyrir ÍSÍ, en Benedikt hefur setið 47 ár í stjórn og verið forseti í 36 ár. Mælti Gísli fyrir tillögu um að kjósa Ben. G Waage heiðurs- forseta ÍSÍ og var það gert í einu hljóði og Benedikt ákaft hylltur. ★ Ben. G. Waage hyllíur. í kvöldverðarhófi sem Reykja- víkurbær bauð þingfulltrúum til voru margar ræður fluttar Ben. til heiðurs. Úlfar Þórðarson sem stjórnaði hófinu mælti hlý- lega til hins aldna forystumanna og aðrir sem hylltu hann voru sr. Eiríkur J. Eirikisson formaður UMFÍ, Atli Steinarsson, Jón Hjartar, Skúli Þorsteinsson, Sig- urður Greipsson og Kristján Ingólfsson. Þingstörf ÍSÍ gengu mjög vel. Var fjöldi tillagna samþykktur og verður þeirra getið síðar. — Miðuðu flestar þeirra að auknu unglingastarfi. Stjórnarkjör. Nokkur hiti varð í kosning- um til stjórnar. Gisli Halldórsson hlaut nær einróma kjör sem for- seti. Úr hópi fráfarandi stjórnar voru kjörnir Guðjón Einarsson ©g Gunnlaugur J. Briem, en at- kvæðagreiðslu um 2 til viðbótar í stjórn þurfti að tvítaka því svo mjög skiptust atkvæði í fyrra sinnið að enginn fékk nægilegt atkvæðamagn. Voru kjörnir í stjórn Sveinn Björnsson og Axel Jónsson. í varastjórn voru kjörnir Þor- varður Árnason, Hannes Þ. Sig- úrðsson, Gunnar Vagnsson, Gunn ar Hjaltason og Böðvar Péturs- son. Alls fengu 24 menn atkvæði í kosningu til varastjórnar. í sambandsráð voru tilnefndir frá landsfjórðungunum Óðinn Geir- dal fyrir Vestfirðingafjörðung og Ármann Dalmannsson fyrir Norðlendinga, Þórarinn Sveins- son fyrir Austfirðinga, Þórir Þorgeirsson fyrir Sunnlendinga og Jens Guðbjörnsson fyrir Reykjavík. Bæður forsetanna. Er Gísli Halldórsson hinn ný- i Endurheimti titilinn eftir sigur yfir Fram KB-ingar unnu titilinn „Bezta knattspyrnufélag í Beykjavík“ og Beykjavíkurbikarinn í síðasta sinn sem um hann er keppt, er þeir á sunnudaginn sigruðu Fram með 2 mörkum gegn 1. Þetta var 21. sigur KR í þessu móti sem fram hefur farið 44 sinnum. KR-ingar voru vel að sigri komnir, voru alltaf hættulegri við mark mótherjanna og áttu auk markanna 2 stangarskot og ýms upphlaup sem Geir mark- vörður og aftasta vörn stöðvaði á síðustu stundu. Leikurinn var annars nokkuð jafn, barátta mikil í honum en dálítill haustsvipur á leiknum, eins og í veðrinu sem var kalt og hvasst. Fyrri hálfleikur leið án marka, en KR-ingar voru mun meir í sókn, Gunnar Fel. átti skot í þverslá og Sigurþór misnotaði herfilega gott færi er hann stóð einn fyrir marki Fram. í upphafi síðari hálfleiks skor- aði Gunnar Felixsson tvö mörk á sömu mínútunni. Hið fyrra skoraði Gunnar úr þröngu færi frá hlið. Hafði hann betur í viður eign við varnarleikmenn og kom skoti framhjá Geir markverði sem hljóp ranglega út. Varla var leikur fyrr hafinn er Gunnar kemst aftur í færi og fékk rennt knettinum framhjá Geir innan á makstöng og þaðan í netið. Stuttu síðar átti Jón Sigurðs- son hörkuskot í stöng Fram- marksins . Um miðbik hálfleiksins koraði Ásgeir Sigurðsson eina mark Fram efir laglegan einleik gegn um KR-vörnina og gott skot. Megingalli Framliðsins nú sem fyrst var skotmannaskortur og hræðslan við að skjóta. Þeir spila allt upp í mark og tapa fyrir þá viðleitni mörgum færum og upp hlaup stöðvast. Ásgeir og Bald- vin miðherji voru beztu menn framlínunnar en vörnin var nokk uð opin einkum vinstra megin. Garðar var bezti maður KR- liðsins og driffjöður. Ellert vann og mjög vel og hraði Gunnars og ágegni við markið tryggði sig- urinn. Aftasta vörnin átti frem- ur léttan dag, en komst þó nokkr um sinnum í allmikinn vanda, þó flestu tækist að bægja frá. Þessi úrslitaleikur dróst í 10 mínútur vegna þess að dómari mætti ekki. Er slíkt fáheyrt í úrslitum móts. Baldur Möller form. ÍBR sleit mótinu og afhenti KR verðlauna- gripinn og meistarapeninga. Sótt ða marki Fram — Geir bjargar. Norðuriandabúar unnu giæsi- lega í stangarstökki cg 200 m Frá lokadögum EM i Belgrad EVRÓPUMEISTARAMÓT- INU í Belgrad lauk á sunnu- daginn. Tveir norrænir sigr- ar síðustu dagana voru glæsi legir og vel verðskuldaðir. Nikula, Finnlandi, vann stangarstökkskeppninni ör- ugglega og jafn glæsilega vann Svíinn Ove Jonsson 200 m hlaupið. Hann átti alltaf bezta tímann í öllum þrem- ur umferðum hlaupsins. — Urslitin síðustu tvo dagana fara hér á eftir, en athygli skal vakin á að myndir frá mótinu eru á bls. 15. Á sunnudag lauk Evrópumeistara- mótinu í írjalsum iþróttum í Bel- grad. Sovétríkin hlutu langflest gull- verðlaun á leikunum eða 13 talsins en næst komu Bretar itieð 5 og í>ýzka land með 4. Sovétríkin unnu einnig stigakeppnina, hlutu 133 stig í karla- greinum og 63 í kvennagreinum eða alls 196. Þýzkaland varð næst í stiga- keppninni, fékk 89 stig í karlagrein- um og 66 í kvennagreinum eða 155 stig alls. Á laugardag var keppt til úrslita í sjö greinum á Evrópumeistaramót- inu í frjálsum íþróttum í Belgrad. STANGABSTÖKK: Nikula, Finníandi 4.80. Tomasék, Tékkóslóvakíu 4.60. Nyström, Finn- landi 4.55. Houvion, Frakklandi 4.55. Lesek, Júgóslavíu, 4.55. LANGSTÖKK KVENNA: Evrópumeistari varð Tatjana Tsjelk anova, Sovétríkjunum. Tsjelkanova, Sovét. 6.36. Krezeinska Póllandi 6.22. Rand, Bretlandi 6.22. Bijleveld, Hollandi 6.21. Hoffman, Þýzkalandi 6.19. Claus, Þýzkalandi 6.12. 800 metra HLAUP: Evrópumeislari varð Manfred Mazus chewski, Þýzkalandi 1.50.5. Byluséff, Sovét. 1.51.2. Schmidt, Þýzkalandi 1.51.2. Salonen, Frakkland 1.51.2. Mac- leane, F.ire, 1.51.3. Krivoskeff, Sovét. 1.51.3. SPJÓTKAST: Evrópumeistari varð Jan Loussis, Sovétríkjunum 82.04. Sybulenko, Sovét 77.92. Niciciuk, Póllandi 77.66. Macho- wina, Póllandi 77.15. Kulksar, Ungv. 76.89 Lievore, Ítalíu 76.25. 5000 metra HLAUP: Evrópumeistari varð Bruoe Tulloh, Englandi. Zimny, Póllandi 14.01.8. Bol otnikoff, Sovét. 14.02.6. Boguszewicz, Póllandi 14.03.4 Bemard, Frakklandi 14.03.8. Anderson, Englandi 14.04.2. KRINGLUKAST KVENNA: Evrópumeistari varð Tamara Press, Sovétríkjunum 56,91. Muller, Þýzkal. 53,60. Kontsek, Ungverjal. 52,82. Zolo- tukhina, Sovét. 51,78. Nemcova, Tékkó slóvakíu 51,58. Ponomareva, Sovétr. 51,03. 200 metra HLAUP KVENNA: Evrópumeistari varð Jutta Heine, Þýzkalandi 23,5. Hyman, Bretiandi, 23,7. Sobota, Póllandi 23,9. 23.7. Sobota, Póllandi 23,9. Arden, Bretlandi 24,2. Maslovskaja, Sovétr. 24,2. Packer, Bretlandi 24,4. 110 metra GRINDAHLAUP: Evrópumeistari varð Mikhailoff, Sovétríkjunum 13,8. Cornacchia í. 14.0. Beresuetski, Sovétr. 14.2. Cardel, Frakklandi 14.2. Mazza, ítaliu 14.3. Tsjistjakoff, Sovétr. 14.4. 800 metra HLAUP KVENNA: Sigurvegari varð Hollenzka stúlkan G. Kraan, 2.02.8. W. Kaufmann, Þýzka landi 2.05.0. O. Kazi, Ungverjal. 2.05.0. J. Jordan, Bretlandi, 2.05.0. K. Nowa- kowa, Póllandi 2.05.8. M. Makhanova, Sovétr. 1.07.2. 80 metra GRINDAHLAUP KVENNA: Evrópumeistari varð Teresa Ciepa, Póllandi 10.6. K. Bawzer, Þýzkal. 10.6. E. Fisch, Þýzkalandi 10.6. Piatkowfka Póllandi 10.6. R. Kotsjeleva, Sovétr. 10.8. G. Bystrova, Sovétr. 10.8. 200 metra HLAUP KARLA: Evrópumeistari varð Ove Jonsson, Svíþjóð 20.7. M. Foik, PóUandi, 20.8. S. Ottolina, ítaHu, 20.8. J. Delecour, Frakklandi, 21.0. D. Jones, Bretl. 21.0. H. Schumann, Þýzkal. 21.2. 3000 metra HINDRUNARHLAUP: Sigurvegari varð H. G. Roelants frá Belgíu, 8.32.6. Z. Vamos, Rúmeníu 8.37.6. N. Sokoloff. Sovétr. 8.40.6 H. Buhl, Þýzkalandi 8.47.2. A. Simon, Ungverjalandi 8.49.4. V. Jedokomoff. Sovétr. 8.50.8. SLEGGJUKAST: Evrópumeistari varð Gyula Zsivoz- zku Ungverjalandi 69.64 A.Baltuski, Sovétr. 66.93. J. Bakarinoff, Sovétr. 66.57. H. Thun, Austurr. 65.53. L Cieply, Póllandi, 64.34. V. Rudenko Sovétríkjunum 63.94. HÁSTÖKK KARLA: Evrópumeistari varð Valeri Brumel, Sovétríkjunum 2.21. Stig Pattersson, Sovétr. 2.09. Viktor Bolsioff, Sovétr, 2.06. E. Czernia, Póllandi, 2.06. CJ Diihrkopf, Þýzkalandi 2.06. 1500 metra HLAUP: Evrópumeistari varð Frakkinn Mlc-* hel Jazy á 3.40.9. W. Baran, Póllandi 3.42.1. T. Salinger, Tékkó., 3.42.2. H. Bothling, Þýzkal. 3.42.7. V. Savinkoff, Sovétr. 3.44.2. MARAÞONHLAUP: Evrópumeistari varð Brian Kirkby, Bretiandi. 2.23.18.8. Aurele, Belgíu 2.24.02.1. Viktor Bajkoff Sovétríkj* unum 2.24.14.8. A. Wood, Bretlandi 2.25.57.. P. Kantorek, Tékkó. 2.26.54.4, S. Popoff, Sovétríkjunum 2.27.46., 4x100 metra BOÐHLAUP KVENNAj Pólska sveitin sem sigraði jafnaði Evrópumetið. Pólland 44.5. Þýzkaland 44.6. Bret« land 44.9. Júgóslavia 46.4. Sveitir Sovétríkjanna og Ítalíu gerðu hlaupið ógilt. 4x100 metra BOÐHLAUP KARLAj Þýzkaland 39.5. Pólland, 39.5. BreU land 39.8. Frakkland 40.0. Ítalía 40.3. Ungverjaland 405. 4x400 metra BOÐHLAUP KARLAf Þýzkaland 3.05.8. Bretland 3.05.9, Svíss, 3.07.0. Svíþjóð 3.07.7. Ítalía 3.07X. Frakkland 3.18.9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.