Morgunblaðið - 19.09.1962, Síða 24
FRÉTTASÍMAR M B L.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
LANDIÐ OKKAR
Sjá bls. 10.
207. tbl. — Miðvikudagur 19. september 1962
Veiki hrjáir hreindýrin
Sýnishorn tekin ur veikum dýrum
eystra og athuguð
ALLMIKIÐ hefur borið á veiki
í hreindýrahjöröunum fyrir aust-
an, og hefur rannsóknastöðinni á
Keldum borizt sýnishorn af líf
færum sýktra hreindýra, bæði
vetur og í sumar. Á sýnishorn-
unum í vetur bar talsvrt á garna
ormum, en rannsóknir á sýnis
hornum frá í sumar eru enn á
byrjunarstigi þannig að ekkert
er enn hægt að segja um hvaða
veiki er hér á ferðinni.
Almennt mun svo hafa verið
litið á fyrir austan að hér hefi
verið um ormaveiki að ræða, en
samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá rannsóknastöðinni
að Keldum í gær, er ekki hægt
að ákvarða veikina að svo stöddu,
þar eð rannsóknir eru enn á byrj-
unarstigi. Kjötið af hinum sýktu
dýrum er hinsvegar talið neyzlu
hæft og segir rannsóknastofan að
engin óhollusta stafi af því enda
þótt um garnaorma kunni að
vera að ræða. Talið er að veikin
sé heldur að breiðast út meðal
dýranna.
Fyrir skömmu fór Halldór Vig-
fússon, starfsmaður rannsókna-
stöðvarinnar, austur á land og á
hreindýraslóðir ásamt Agli Gunn
arssyni, eftirlitsmanni. Var er-
indið að safna sýnishornum úr líf
færum dýranna. Halldór tjáði
Mbl. í gær að talsvert hefði borið
á iélegum dýrum, horuðum og
þróttlitlum. Ekki rákust þeir
Egill á hræ, en eina kú sáu þeir
að dauða komna. Halldór tók
Rauk úr
Ijósasfaur
í GÆR var slökkviliðið kvatt
að ljósastaur við Njálsgötu 112.
Höfðu vírar slegist saman úr
staurnum og rauk úr honum.
Menn frá rafveitunni komu á
staðinn og gerðu við bilunina. —
Þá var slökkviliðið kvatt í gær-
morgun að Háteigsvegi 23. Hafði
þar kviknað í gluggatjöldum, en
búið var að slökkva er liðið kom
á staðinn.
sýnishorn úr 13 dýrum, flestum
veikindalegum, en sum voru
nokkurn veginn heilbrigð að sjá.
Halldór á eftir að gefa skýrslu
til Menntamálaráðuneytisins um
för sína, en hreindýrin heyra
undir það ráðuneyti, og rannsókn
ir á sýnishornunum eru á byrj-
unarstigi þannig að ekki verður
enn sagt með fullri vissu um
hvaða sjúkdóm hér er að ræða.
Nokkru áður höfðu þeir próf-
essor Snorri Hallgrímsson, próf-
essor Kristinn Stefánsson, dr.
Sigurður Þórarinsson og Egill
Gunnarsson farið um aðrar hrein
dýraslóðir og tekið sýnishorn úr
líffærum sýktra dýra þar. Liggja
því fyrir sýnishorn úr dýrum af
ýmsum svæðum, þannig að ljóst
ætti að verða að rannsókn lok-
inni hvort hér er um að ræða
sýkingu á ákveðnum stöðum eða
hvort hún tekur til stofnsins alls.
Bílslys á Hríng-
braut í gærkvöldi
U M klukkan hálf tíu I gær-
kvöldi varð harður árekstur á
milli tveggja Volkswagen bíla
á gatnamótum Hringbrautar og
Sóleyjargötu. Slasaðist kona,
sem var farþegi í öðrum bíln-
um svo, að flytja varð hana í
sjúkrahús, og tvennt sem í hin-
um bílnum var meiddist lítil-
lega. —
Nánari atvik voru þau að
Volkswagenbílnum R 9284 var
ekið austan Hringbraut. Nam
hann staðar milli akreina við
Sóleyjargötu og ætlaði síðan að
aka yfir nyrðri akbraut Hring-
brautar inn á Sóleyjargötuna.
Segist bílstjórinn hafa séð til
ferða Stationbíls, sem ekið var
austur Hringbrautina og beðið
eftir honum. Á eftir Stationbíln
um kom Volkswagenbíllinn R
2464 og ók í sömu átt. Bílstjóri
R 9284 segist ekki hafa séð til
ferða þessa bíls og því ekið inn
á götuna. Skullu bílarnir sam-
an af miklu afli og kastaðist
R 2464 upp á grasbalann austan
Sóleyjargötu en hinn bíllinn
nam staðar á umferðaeyjunni,
sem skilur gatnamótin.
Kona, sem sat við hlið öku-
manns R 9284 kastaðist til
vinstri í bilnum og skall á fram
rúðunni um leið. Skarst hún
mikið í andliti og var flutt á
slysavarðstofuna og síðan á
sjúkrahús Hvítabandsins. Bíl-
J stjóri þess bíls kenndi sér ekki
meins.
R-2464 ólk stúlka, otg meiddist
hún lítillega, svo telpa, sem við
hlið hennar sat.
Báðir bílarnir eru stórsikemnad
Framh. á bls. 2
Heybruni á
Pafreksfiröi
Patreksfirði 18. sept.
UM hádegið í dag kviknaði í hey
hlöðu að Holti á Barðaströnd.
Brunnu þar eða skemmdust um
40 hestar af heyi. Sunnan storm
ur var og rigning og má telja
það lán í þessu óláni vindur stóð
af hlöðugatinu svc eldurinn æst
ist ekki að ráði. Hefði annars
verr farið, því hlaðan er áföst
við önnur skemmuhús, sem þá
hefði ekki tekist að bjarga.
Strax og vitað var um eldinn
tóku menn af flestum bæjum
Ihreppsins að koma til hjálpar.
Samtímis var beðið um slökkvi
bifreið en hún komst ekki á vett
vang vegna bilunar. Þrátt fyrir
erfiðar aðstæður tókst að slökxva
eldinn, og urðu ekki aðrar
skemmdii en áður var gel.ð.
Bóndi í Holti er Þórður Mar-
teinsson.
Heyskapur á Barðaströnd hef
ur verið í meðallagi og hey góð.
Heyskapur hófst þó ekki fyrr
en þremur vikum siðar en venju
legt er vegna slæmrar sprettu.
— Trausti
Mbl. átti nýlega leið um Þingvelli og tók þá þessa mynd.
Er hún af gröf Jónasar Hallgrímssonar í þjóðargrafreitnum.
Ber legstein hans I kirkjuna og hamravegg Almannagjár. —
Eins og kunnugt er voru jarðneskar leifar Jónasar Hallgríms-
sonar fluttar til Þingvalla frá Kaupmanahöfn. En síðar var
Einari Benediktssyni valinn legstaður að Þingvöllum.
Fengu frost og
byl á Vatna jökli
Le/ðin inn i Tungnaárhotna merkt
UM HELGINA fór leiðangur úr
Jöklarannsóknarfélaginu upp á
Vatnajökul, til að ganga frá mæli
stöngun fyrir veturinn, en við
mælistengurnar hafði cnjórinn
lækkað um 2 m. Einnig merkti
Guðmundur Jónasson, fjallabíl-
stjóri, sem fór tt.jS leiðangurinn,
leiðina frá Tungnaá og inn í
Tung.iaárbotna, með tilliti til
hugsanlegra vetraferða.
Leiðangurinn lagði af stað á
föstudag og kom í gær. Voru
þetta 9 manns, sem fóru á tveim
ur snjóbílum að mælistöngunum
Rakupp
Haf arfirði — í gærmorgun slitn
aði vélbáturinn Anna frá Nýju-
bryggjunni og rak upp í fjöruna
á móts við Nýju-bílastöðina, sem
er rétt við bryggjuna. Ekiki urðu
neinar skemmdir á bátunum . '
var hann dreginn upp að bryggj
unni aftur. Anna er 40-50 smá-
lestir.
NV af Pálsfjalli, . m 17 km. inni
á jökli. Sagði Guðmundur að
skriðjökullinn hafi verið all greið
fær, e;* Pálsfjall verið óvenju
mikið sprungið.
Mjög kalt var inn frá um helg
ina. Á sunnudag mældist 12 stiga
frost, en þá var 'arið að hlýna
aftur. Fékk leiðangurinn hart
veður, seinni hluta laugardags
og sunnudag og skafbyl bar sem
gist var ofarlega á skriðjöklin
um. En veður og útsýni var sér
lega fagurt á sunnudagskvöld.
Fyrirlestur próf.
Hurwitz í dag
EINN kunnasti lögfræðingur
Norðurlanda, prófessor dr. jur.
Stephan Hurvitz, flytur í dag
kl. 5,30 e. h. fyrirlestur í hátíða-
sal Háskóla íslands. Nefnist fyr-
irlesturinn „Om den nordiske
ombudsmandsinstitution“ — en
H það efni gjör-
þekkir próf.
Hurwitz, sem
sjálfur gegnir
embætti umboðs
manns danska
þjóðþingsins. —
Mun hann m.a.
fjalla um þá
reynslu, sem
fengizt hefur
af embættinu, en það er í því
fólgið að rannsaka kvartanir og
kærur borgara og annarra aðila
um misfellur í starfi opinberra
starfsmanna. Fyrirlestur þenn-
an flytur próf. Hurwitz í boði
Háskólans og er ekki að efa, að
hann muni verða hinn fróðleg-
asti. öllum er heimill aðgangur.
Islendingar unnu
Hýpurbúu með 4:0
ÍSLENDINGAR unnu Kýpurbúa
á Olympíumótinu í skák í
Carna í Búlgaríu á öllum borð-
unum fjórum. Friðrik vann
Kleopas, Arinbjörn Guðmunds-
son vann Lantsias, Jón Pálsson
vann Leanides og Björn Þor-
steinsson vann Fieros.
önnur úrslit í riðli íslendinga
urðu þau að Júgóslavia vann
Frakkland með 3 vinningiun
gegn i, Tékkar unnu Pólverja
með 2% gegn 1%, Uruguay
vann Luxemborg með 3% gegn
% og Finnar unnu Hollendinga
með 2Vi vinningi gegn 1%.
150 þús. kr. hásetahlutur
Patreksfirði 18. sept.
Patrexsijaroarbaiar eru nú
komnir heim af sumarsildveiö-
um. Sigurfari kom 6 september
og var afli hans 7.980 mái og
tunnur. Hásetahlutur varð um
42.000 kr. og veiöiúmi 9 vikur.
Skipstjóri á Sigurfara er Héðinn
Jonsson.
Dofri kom í nótt, en hann afl-
aði á 11 vikum 20.200 mál og
tunnur og er hásetahlutur 105
til 110 þúsund krónur. Skipstjóri
er Jón Magnússon.
Einnig koan hingað í gær Helgi
Helgason frá Vestmannaeyjum
en hann hefur verið gerður út fná
Patreksfirði í ár. Skipið varð hið
fjórða hæsta á síldveiðunum í
sumar og fékik 29.740 mál og
tunnur á 89 dögium. 7,000 tunnur
af aflanum fóru í salt. Háseta-
hlutur á Belga Helgasyni er
150.000 krónur. Skipstjóri er
Finnbogi Magnússon, bróðir JÓM
á Dofra. — TraustL