Morgunblaðið - 11.11.1962, Page 15
Sunnudagur 11. nóvember 1962
MORGVNBLAÐIÐ
15
Það er engri reglusemi að þakka
að skrokkurinn hefur enzt vel
Kvöldstund h]á Sigcja
Jóns í Prestshúsinu
NORÐFIRÐINGAR kalla
hann Sigga Jóns. Hann á
heima í gamla prestshús-
inu, er orðinn 74 ára gam-
all, og búinn að eiga heima
á Norðfirði í 58 ár.
Það grúfði þoka yfir Nes-
kaupstað þegar ég rölti út í
gamla prestshúsið og eyddi
þar kvöldstund á síðsumri
með Sigga gamila Jóns. Hann
stóð úti á tröppunum og hugði
til veðurs. Austfjarðaþokan
lá yfir firðinum, læddist upp
í ermarnar og smaug niður
um hálsmálið.
— Það verður aldrei svo
mikil þoka í nótt að ekki
verði róið, var það fyrsta sem
þessi aldurhnigni sægarpur
sagði við mig, eftir að við
höfðum heilsast.
Síðan gengurn við inn í litla
snoturlega búna stofu, sett-
umst og tókum rabb saman.
— Ég er fæddur í Viðifella
gerði í Fljótsdal. Fluttist korn
ungur að Karlsstöðum í Vöðla
vík og ólst þar upp. Á Karls-
stöðum var útræði haust og
vor og altaf farið með færi.
Ég byrjaði 11 ára að róa eða
1899. Hingað til Norðfjarðar
kom ég 1904, þá til vanda-
lausra og byrjaði strax að róa
á mótorbátum. Þá voru komn-
ir hingað 4 eða 5 bátar. Mótor
bátaútgerðin gekk skrykkjótt
fyrst í stað. Menn kunnu lítið.
Þetta voru þá opnir bátar, en
síðar voru þeir dekkaðir.
Þeir voru þetta 5—10 tonn að
stærð. Einn þessara gömlu
báta er til hér enn. Um alda
mótin og fyrst á eftir var
hér mikið róið á árabátum.
Hér voru þá margir Færeying
ar og útgerðin stóð i blóma.
Fólk sótti hingað atvinnu t.d.
komu margir Sunnlendingar
hingað á vorin.
Fyrsti báturinn, sem ég reri
á hét Göngu-Hrólfur og var
7 tonn að stærð. Á bátnum
voru þá fjórir menn og línan
var þetta 8—10 bjóð og 360
krókar á bjóði. Fyrst í stað
var faðmur milli öngla og sex
60 faðmia strengir í bjóðinu.
Síðar var farið að stytta milli
önglanna, og tveim árum eftir
að ég kom hingað voru 420 til
440 önglar í bjóðinu. Fyrstu
tvö árin, sem ég fékkst við
sjóróðra beittum við sjómenn-
irnir línuna sjálfir, annars
unnum við lítið í landi
breiddum kannski fisk og
þvoðum, annars tókum
við það rólega, þegar
ekki var róið. Jafnaðarlega
voru tveir karlmenn og þrjár
stúlkur í landi við hvern bát
og svo eitthvað af krökkum.
ERFITT AÐ TOSA UPP
LiÍNUNNI.
— Jú víst var þetta erfitt
á þeim árum. Þá var allt lagt
á höndura og dregið á hönd-
um. Línuspil komu ekki í báta
hér fyrr en 1912 og það var
geysilegur munur. Ég man að
fyrsti báturinn, sem fékk spil,
var með 14—15 bjóð, en við
vorum með 10. Þótt hann væri
með þetta lengri línu en við,
var hann kominn að, búinn að
landa og farinn ú't aftur, þeg-
ax við loksins höfðum okkur
í land, eftir að vera búnir að
tosa línunni okkar upp.
— J'ú úbgerðarmennirnir
Siggi Jóns.
létu okkur hafa spil, þegar
þeir sáu hve miklu þetta mun
aði, en ekki sögðu þeir að
þetta væri krókasparnaður. í
vorhlaupi var linan oft lögð á
100 tiil 110 föðmum. Þá var
erfitt að tosa henni upp. Þurfti
oft tvo menn við dráttinn. Nú
er þetta breytt, blessaður
vertu. Nú er allt upp á línu-
lengdina.
— En gerðist þú ekki sjálf
ur útgerðarmaður, Sigurður?
— Svo átti það að heita.
Ég keypti bát 1914 og átti
hann til 1918. Annars var ég
alla tíð formaður hjá öðrum,
nema í þessi fjögur ár, sem
ég átti Skúla fógeta. Ég byrj-
aði formennsku 19 ára gamall.
— Þú ert nú raunar orðinn
útgerðarmaður aftur núna,
Sigurður?
— Það má kannske nefna
það svo, segir Sigurður og
h'lær við. — Síðan ég keypti
trylluhornið atarna. Ég kalla
hana Farsæl.
— Og þú rærð einn á Far-
sæl?
— Já, alltaf einn með færi.
Er ekkert að standa í því að
beita þessa línu.
— Hefurðu trú á smábáta-
útgerð hér frá Austurlandi?
— Já, ég held að hér batni
fyrir smábátana, þegar frið-
að hefur verið út að 12 míl-
um um nokkurt árabil.
— Fékkst þú ekki einnig
við togveiðar?
Jú, ég var á togbátum. nok-k-
urn tíma. Einnig á toganum
Gerpi í nokkyr ár. Ég var
lengst af formaður á mótorbát
um, allt fram í seinna stríðið.
Þá sigldi ég í tvö, ár. Auk þess
að róa héðan, stundaði
maður svo vertíð frá Horna-
firði og suðpr í Sandigerði og
Keflavík. Þegar Gerpir var
keyptur hingað fyrir 8 árum,
fór ég á hann og var þar
bræðslumaður allt þangað til
hann var seldur fyrir tveimur
árum. Þá keypti ég trylluna
Farsæl, sem er tvö tonn að
stærð.
— Það er þá ekki stór mun
ur á byrjuninni hjá þér og
endinum?
— Nei. Tryllan er heldur
stærri en árabátarnir sem ég
byrjaði að róa á. Það er ekki
mi-kill munur á henni og fyr-
sta vél'bátnum sem ég var á,
svo segja má að endirinn sé
svipaður og upphafið.
GÖÐUR SKROKKUR
—Þú hlýtur að vera feikna
(hraustur, Sigurður, að stunda
’sjóinn einn á báti, 74 ára
gamall og búinn að róa sam-
fleytt í 58 ár?
— Já, það má segja það, að
ég hafi verið sæmilega frísk-
ur um ævina. Annars var ég
slæmur í hausnum um 1935,
en þá var h-ausinn tekinn í
. gegn. Það gróf í honum. Ég
hafði þá um alllangt skeið
fengið sprautur og étið deyfi-
lyf. En ég hef verið nokkuð
g-óðuv síðan aðgerðin var gerð
á mér.
— En hvað um handlegg-
ina og bakið? Töluvert hefur
nú reynt á bað hvort tveggj-a,
þegar dregið var á höndum?
Já, handleggirnir eru farn-
ir að gefa sig — og bakið
ögn Itk-a, en það er þó furðu
gott. Nú þetta var ekki svo
erfitt fyrii; skrokkinn, þegar
ég var bræðslumaður á tog-
ara. En það voru mi'klar vök-
ur, en mér hefur alltaf reynzt
létt að vaka.
— Hverju þakkar þú það að
þú hefur verið svo hraustur
til þessa Reglusemi, kannski?
— Nei, það er ekki neinni
reglusemi að þakka, þótt
skrokkurinn hafi enzt vel.
Það hefur bara verið gott
efni í honum frá upphafi. Ég
fæ mér mitt brennivín, hef
alltaf gert og geri enn. Ég
var einna erfiðast á kreppu-
árunum. Það gekk vel þegar
ég átti Skúla fógeta. En svo
tapaði ég öllu sem ég eignað-
ist ó næsta báti. Það er raun-
ar einkennilegast, að ö'll af-
koman er líklega bezt núna,
eftir að maður er kominn á
efri ár.
— Og þú hefur haft ýmsa
húsbændur, þar sem þú varst
lengst af formaður hjá öðr-
um?
Góður húsbómdi.
— Jú, nokkrir hafa þeir ver
ið. Lengst var ég formaður
hjá Sigfúsi Sveinssyni, kaup-
manni, eða alls í 15 ár. Hann
var forsjáll útgerðarmaður og
mikill reglumaður, sem bjó
vel í hendurnar á mönnum
sínum. Hann lagði vel til allr
ar útgerðar. Svo var ég þrjú
ár nótabassi hjá Færeyingum
á síld og fékkst svo við haust
síldveiðar hér á Fjörðunum,
meðan þær voru og hétu.
— En hefurðu aldrei unnið
neitt í landi, Sigurður?
— Nei, það hef ég eiginlega
aldrei gert, nema kannski lít-
ilsháttar á vetrum, hér fyrr á
árum.
— Eitthvað hefurðu gert þér
til gamans annað en vinna
um ævina?
— Já, já, ég hef skemmt
mér. Eg hef alltaf farið á
böll og fer enn.
Sægarpurinn um borð Farsæl.
tuggði skro, en hef nú ekki
gert það í 37 ár og ekkert tó-
bak snert síðan. Hausinn þoldi
ekki tóbakið.
— En verður þú þá ekki
timbraður, ef þú skvettir í
Þig?
— Nei, alla jafna ekki. Mér
er alveg óhætt að fá mér í
staupinu og verða dálítið hýr.
Það hefur engin á'hrif á mig.
Ég ræ daginn eftir.
— Og fjölskyldulífið, Sig-
urður?
— Ég gifti mig 21 árs. Eg
hef verið tvígiftur, og á sex
börn.
— Og hefur afkoman verið
góð?
— Það hefur nú gengið á
ýmsu með afkomuna. Það
— Én hefurðu stundað ferða
lög?
— Nei, ekki get ég sagt það,
annað en það sem maður hef-
ur þvælzt yfir höfin. í gamla
daga brá maður sér stundum
á hestbak og fór fram í sveit
með bambusstöng í silung.
— Þú ert sagður fjörmað-
ur, Sigurður og heldur létt-
lyndur?
— Eg held að þunglyndi
hafi aldrei þjáð mig. Þó hefur
ekki alltaf verið mulið
undir mann. Dálítið bjátað á á
stundum, ó já.
— Hvað mundirðu telja að
hafi orðiði þér til einnar
mestar armæðu um dagana?
— O, ég veit ekki. Ætli það
hafi ekki verið mesta armæð
an, þegar erfiðlega gekk að
framfleyta fjölskyldunni þeg-
ar kreppan var og illt í ári.
Þegar ég
missti
5 menn út.
— Varst þú ekki happasæll
skipstjóri?
_— Jú, ætli ég verði ekki að
téljast það. Eg hef t.d. aldrei
misst mann af báti. En árið
1918 lá við að illa færi. Þá
missti ég út fimm menn í norð
an garra. Eg var þá með Drífu
og við rerum frá Vestmanna-
eyjum. Hún lagðist á hliðina
undan veðrinu og ég var svo
heppinn að fjórir mannanna
soguðust inn aftur. Fimmta
manninn misstum við, en
hann var svo lánssamur að
fljóta á ólíukápunni. Og eftir
að ég hafði leitað í kortér,
fundum við hann. En þá var
hann orðinn anzi illa til reika.
Við fórum með hann ofan í
lest og rúlluðum honum þar
til á tunnu. Hann var orðinn
meðvitundarlaus. Og svo var
munnurinn á honum fast
herptur aftur, að við urðum
að nota spýtur til að opna
hann. Síðan helltum við ofan
í hann brennivínslögg og dúð-
uðum hann ofan í rúm með
hitaflöskum. Eftir þessa með-
ferð, batnaði honum svo ræki-
le-ga, að hann þurfti ekki einu
sinni að fara til læknis. Þessi
maður varð fyrir nokkrum
árum bráðkvaddur í tryllunni
sinni. Það var eitt sinn að
tryllan kom siglandi hér inn
fjörðinn. Sýndist hún fara
nokkuð kynlega, þar sem hún
sigldi á fullri fe-rð upp í fjóru.
Þegar að var gáð, reyndist
gamli maðurinn látinn.
— Það er sjálfsagt gott fyr-
ir gamlan sjómann að fara
svona, segir Sigurður og horf-
ir út um gluggann.
— En hvað heldurðu að
séu nú verstu veður sem þú
hefur lent í um dagana?
— Verstu veður! Það var
anzi slæmt veður 1923 þegar
ég fór með dönsku skipi til
Spánar. Þá skall á okkur
vonzkuveður á Biskayaflóa.
Nú svo fengum við oft vitlaust
veður á Grænlandssiglingun-
um á togaranum. Við vorum
• við Grænland, þegar togar-
inn Júní fórst. Svo lentum
við í slæmu veðri 1932. Við
vorum þá á leiðinni til Sand-
gerðis á tveimur bátum, sem
Sigfús Sveinsson átti. Vorum
formenn á þeim við Jói Magg.
Eg var með Fylki, sem var 19
tonn, en Jói með Gylli,
sem var 25 tonn. Við vorum
þá '96 klukkutíma til Vest-
mannaeyja. Gamli Þór var þá
sendur á móti okkur. Sjór
hafði brotið brúna hjá okkur
og slasað menn.
—• Hvað var eðlilegur tími
á þessari leið í þá daga?
— Þetta var svona 30 tíma
sigling í sæmilegu veðri. Það
var einmit vegna þessarar
ferðar okkar Jóhanns, sem
stofnuð var slysavarnadeild
kvenna hér á Norðfirði. Kon-
urnar, sem áttu okkur karlana
á sjónum í þessari ferð, hétu
því að gangast fyrir stofnun
slysavarnadeildar, ef við
kæmust heilir í höfn. Við
þetta var staðið og slysavarna
deildin hefur starfað með
prýði allt fram á þennan dag.
Fyrsta málið sem deildin
beitti sér fyr'ir, var að afla
talstöðva í bátana. Og nú síð-
ast hefur hún séð okkur tryllu
körlunum fyrir radarspeglum
á tryllurnar. Þessa starfsemi
eigum við því raunar að
þakka vondu veðri og góðum
konum.
Það er liðið langt á kvöld,
þegar við Sigurður hættum
þessu rabbi. Enn grúfir þoka
yfir Norðfirði, þegar við kveðj.
umst. Siggi hafði hins vegar
trú á, að það yrði róið. Hann
sigldi út fjörðinn kl. 4 um
nóttina og Farsæll mun hafa
verið eini tryllubáturinn, sem
reri þá nótt. — vig.