Morgunblaðið - 21.11.1962, Page 24
FRÉTTASIMAR M B L.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
/ Kaupmannahöfn
Með liverri Faxa-flugferð til K.-
hafnar kemur MBL. samdægurs i
Aviskiosken, i Hovedbanegárden
Síldveiöideilan leyst
Sjómenn og útvegsmenn samþykktu
samningsuppkastið
ATKVÆÐIN um samningsupp-
hastið um síldveiðikjörin voru
talin hjá sáttasemjara síðdegis í
gær. Bæði sjómenn og útgerðar-
menn samþykktu uppkastið. —
Síldveiðideilan er því leyst og
Fyrsta síldin til
Stykkishólms
Stykk'ishólmi, 20. nóvember.
FYRSTA síldin barst hingað
í dag. Varð það rob. Runólfur
frá Grundarfirði, sem kom með
300 tunnur, sem fóru í fryst-
ing'u.
Sæ-milegur afld er á dragnóta-
bátunum, en héðan róa bæði
trillubátar og dekkaðir. Hafa
þeir fengið allt að fimm tonn-
um í róðri. — Fréttaritari.
verkfalli og verkbanni aflýst.
Við atkvæðatalninguna kom í
Ijós, að sjómenn höfðu sam-
þykikt samningsuppkastið með
223 atkvæðum gegn 91. Einn seð-
i!ll var auður og tveir ógildir.
Stjórn LÍÚ hafði umfooð sinna
félagsmanna til að greiða at-
kvasði og samþykkti hún upp-
kastið með 5 atkvæðum gegn 3.
Eins og Morgunblaðið hefur
skýrt frá náðist samkomulag
milli samninganefnda um að láta
fara fram atkvæðagreiðslu um
samningsuppkast, sem byggðist í
aðalatriðum á Akranessamning-
unum að viðbætri hækkun um
% % á hlutaskiptum. Breytingar
frá Akranessamningnum fjölt-
uðu að mestu um fjölda manna
á síldveiðibátunum.
i»lxww%i
Bátarnir köstuðu
út af Jökli í
gærkveldi
Alkranesi, 20. nóvember.
BNGINN bátur fékk síld sl.
nótt nema Sigurður, sem fékk
250 tunnur. Síldin fæst ekki
nema á nóttunni. Nú er ágætt
veður á síldarmiðunum.
Síðustu fréttir
Bátarnir á síldarmiðunum út
af Jökli hafa verið að kasta
í allt kvöld. Þar er nú ágætt veð-
ur og hafa einhverjir bátamir
vafalaust fengið síld. Ekki er
vitað um aflabrögðin ennþá. Nú
stunda 19 bátar héðan veiðamar
— Oddur
2 seldu í Bretlandi
einn í Þýzkalandi
ÞRÍR íslenzkir togarar seldu
afla sinn erlendis í gærmorgun,
tveir í Bretlandi og einn í Þýzka
landi.
Fyl/kir seldi í Cuxhaven 131
tonn fyrir 119.711 mörk.
Hafliði seldi í Grimsby 81
tonn fyrir 4.846 sterlingspund.
Narfi seldi hluta af farmi sín-
um í Grimsby, 96 tonn fyrir 7.091
Sterlingspund. f dag selur tog-
arinn það sem eftir er af aflan-
um.
Byggingarefninu dælt í land í Vatnagörðum.
!1000 tonn af sandi á
Byggingarefni sótt á haf út
hálftíma
FYRIRTÆKIÐ Björgun hf.,
sem á dæluskipið Sandey, hef-
ur brotið blað í íslenzkum
byggingariðnaði með því að
láta skipið dæla byggingar-
efni af hafsbotni, flytja það
til Reykjavíkur og selja til
byggingarframkvæmda.
Sandey hefur farið þrjáir
ferðir upp í Hvalfjörð, þar
sem sandi er dælt úr tanga,
sem gengur út í sjó frá landi
bæjanna Eyri og Eyrarkoti í
Kjós. Þarna er dælt af fimm
faðma dýpi og virðist sandur-
inn vera langt niður og er
ekki enn komið á fastan botn.
Bændurnir, sem eiga land-
ið, hafa gefið leyfi sitt til
sandtökunnar Og fá þeir
ákveðnar prósentur af verð-
mætinu.
Sandey dælir 1000 tonnum
af sandi á hálfri klukkustund
og ber hún ekki meira.
Klukkutíma tekur að dæla
sandmagninu í land aftur og
er sjó blandað í sandinn tiil
að auðvelda dælingtina. Ellefu
manna áhöfn er á skipinu.
Björgun hf hefur byggt
undirstöður fyrir rörin, sem
dælt er í gagnum í land og
leggst skipið við undirstöð-
urnar.
Sandinum er landað í Vatna
görðum í Reykjavik og dælt
upp í gömlu tjörnina sem þar
er. Um tvo tíma tekur fyrir
skipið að sigla hvora leið til
og frá sandtökustaðnum.
Kristinn Guðbrandsson, for-
stjóri Björgunar hf, sagði
Morgunblaðinu í gær, að sand
urinn væri mjög hreinn og
fyrirtaks byggingarefni, en
skortur hefði verið á því í
Reykjavík.
Hann sagði, að Sandey gæti
landað 4000 tonnum á sólar-
hring ef í það færi. Með þess-
ari aðferð væri hægt að
lækka mikið verð á bygging-
arefni.
Tók Kristinn sem dæmi, að
pússningasandur hafi verið
seldur undanfarið fyrir kr.
22,50 pr. tunnu, en Björgun hf
Framh. á bls. 23.
Ályktunin um brottflutning vam-
arliðslns féll úr gildi í des. 1956
Á FUNDI neðri deildar AJiþingis
í gær var frumvarp ríkisstjórn-
arinnar um almannavarnir sam-
þykkt við 2. umræðu með breyt-
ingartillögum meirihluta heil-
brigðis- og félagsmálanefndar.
Hannibal Valdimarsson hafði
lagt til, að frumvarpinu yrði vís-
að frá með rökstuddri dagskrá,
þar sem m. a. var lagt til, að her-
inn færi tafarlaust úr landi
„samkvæmt skýlausri samþykkt
Alþingis frá 28. marz 1958, sem
enn er í fullu gildi.“
Guðmundur í Guðmundsson
utanrikismálaráðfoerra lagði þá
fram tillögu um, að þessi orð
Stjórnarfundur SAS í dag
féllu niður, þar sem nefnd þings-
ályktun hefði raunverulega fall-
ið úr gildi í desember 1956 og
því væri nauðsynlegt að leiðrétta
þessa missögn, áður en rökstudda
dagskráin sjálf yrði borin undir
atkvæði.
Þessi tiilaga utanríkismálaráð-
herra var samþykkt í gær með
20 atkv. gegn 4, en framsóknar-
menn greiddu ekki atkvæði, þar
sem þeir eins og Eysteinn Jóns-
son sögðu engu máli skipta,
hvort þessi orð stæðu í dag-
skránni eða stæðu þar ekki. En
auk þess hefði þessi atkvæða-
greiðsla engin áhrif á aðstöðuna
til að segja upp varnarmálasamn-
ingnum samkvæmt ákvæðum
hans, þegar það þætti tímabært.
Rökstudda dagskráin var síðan
felld með 31 atkvæði gegn 4 að
viðhöfðu nafnakalli.
//
79 af stöðinni" sýnd
í Khöfn eftir áramót
Kaupmannahöfn, 20. nóv.
Einkaskeyti frá Rytgaard.
P O V L Westphael ritstjóri,
sem er sérfræðingur í flug-
málum, ritar grein í Ber-
lingske Tidende í dag þar
sem hánn segir að búast megi
við því að stjórnarfundur
SAS, sem haldinn verður á
morgun (miðvikudag) verði
mjög viðburðaríkur. Sagði
ritstjórinn að vegna ummæla
í Bandaríkjunum um að
gjaldþrot vofi yfir SAS, ef
félaginu takist ekki að vinna
bug á samkeppni Loftleiða,
ríki hálfgerð móðursýkis-
spenna meðal stjórnar SAS.
Westphael segir að orðrómur
sé á kreiki um að sænskt einka-
fjármagn að upphæð 80 millj.
krónur verði tekið út úr SAS,
ef ekki tekst að stöðva sam-
keppni Loftleiða. Ákveðnar radd
ir innan stjórnar SAS segja hins
vegar skýrt og ákveðið að fé-
lagið óski ekki eftir að kæfa
Loftleiðir, né heldur að koma í
framkvæmd neinu í líkingu við
hefndarráðstafanir. SAS óskar
eingöngu eftir að taka upp sam-
keppni á jafnréttisgrundvelli, seg
ir ritstjórinn.
SAS er að vinna að tillögum
um ríkisstjórnarúrskurð, nokk-
urs konar „government ordér“
að sögn Westphaels, er segir svo
fyrir að SAS skuli taka upp
flugferðir með lágum fargjöld-
um jafnframt því sem félagið
haldi uppi flugferðum með þot-
um á fargjöldum þeim, sem-
þykkt eru af IATA. Ef stjórnar-
úrskurður fengist þyrfti SAS
ekki sérstaka heimild IATA til
að hefja samkeppni við Loft-
leiðir.
Þessum fréttum um ríkisstjóirn
arúrskurð er þó mótmælt af
dönskum aðilum í SAS, sem
segja að félagið hafi ekki snúið
sér til stjórnarvalda á Norður-
löndum að öðru leyti en því að
yfirvöldunum var send skýrsla
um afstöðu SAS á IATA-ráð-
stefnunni í Arizona, Bandaríkj-
unum í október s.l.
Guðlaugur Rósinkranz skýrði
Morgunblaöinu frá því í gær-
kvöldi, að kvikmyndin 79 af
stöðinni yrði frumsýnd í Kaup-
mannahöfn eftir áramótin.
Kvikmyndin hefur ekki enn
verið sýnd í Kaupmannahöfn
vegna þess, að a.m.k. 10 nýjar
danskar kvikmyndir hafa kom-
ið á markaðinn að undanförnu
og þótti ekki rétt að bæta „79
af stöðinni“ við það flóð.
Verið er nú að setja danskan,
norskan, finnskan og enskan
texta á kvikmyndina. Búið er að
selja hana til Noregs og standa
samningar nú yfir um sýningar
í Finnlandi.
Þá er langt koonið með að
ganga frá kópíu, sem verður
sýnd fyrir kvikmyndahúsaeig-
I endur í Þýzkalandi. Ef af sölu
verður þangað verður þýzkt tal
með myndinni.
Um 46 þúsund manns hafa
séð kviikmyndina hér á landi.
Hefur verið sérlega mikii aðsókn
á Akureyri, þegar verið 18 sýn-
ingar.
Ástarsena á Þingvöllum í kviils
myndinni hefur verið stytt nokk
uð. Hins vegar er það ekki rétt,
sem segir í einu dagbiaðanna I
gær, að hún hafi verið feUd nið-
ur alveg.
Hafnarfjörður
FYRSTA spilakvöld Sjálfstæðis-
félaganna verður í Sjálfstæðis-
húsinu í kvöld og hefst kl. 8.30.
— Verðlaun veitt.