Morgunblaðið - 09.12.1962, Blaðsíða 15
Sunnudagur 9. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
15
Anna Laxdal
Kaupakona — Minning
HINN 22. nóvember sL var jarð
sungin frá Auikreyrarkirkju
Anna Laxdal kaupkona, sem and
aðist í fjórðimgssjúkrahúsi Ak-
ureyrar þann 3. sama mánaðar
eftir fremur stutta legu.
Kirkjan var þéttsetin skyld-
mennum, vinum og kunningjum,
sem með þökk og trega minnt-
ust hinnar látnu heiðurskonu á
þessari kveðjustund. Sóknarprest
urinn, séra Pétur Sigurgeirsson,
framkvæmdi athöfniraa og rakti
í sannri og hugþekkæi ræðu ævi-
(atriði þessarar, að mörgu leyti,
sérstæðu konu og velvirta borg-
ara.
Anna Laxdal var fædd að
Tungu á Svalbarðsströnd hinn
14. desember árið 1896, dóttir
hjónanna þar, Guðnýjar Gríms-
dóttur og Helga Jónssonar Lax-
dal. Foreldramir voru bæði af
merkum ættum og bar heimili
þeirra þess glöggan vott, bæði
úti og inni. Þeir sem kynntust
Guðnýju húsfreyju minnast henn
ar ætíð með hlýhug og virðingu
og Helgi Laxdal var landskunn-
ur athafnamaður og var nafn
hans jafnan nefnt samhliða nöfn
um helztu félgsmála-frömuða í
Suðuir-Þingeyjarsýslu á þeim ár-
um.
Heima í Tungu ólist Anna upp,
hjá góðum foreldrum og í hópi
mannvæhlegra syistkina. Þar
heima hlaut hún sína undirstöðu
menntun, sem ásamt erfðum ætt
areiginleikum, urðu henni fax-
sælt veganesti, sem entist til ævi-
loka. Heiman að lá svo leiðin í
Ikvennaskóla og síðan til dvalar
fjarri átthögunum, meðal annars
erlendis, en slíkt veitir jafnan
aukinn þroska og víðsýni.
Til Akureyrar flutti Anna árið
1927 og stofnaði þar ásamt ann
arri sæmdarkonu, Freyju Antons
dóttur, verzlunina „Anna og
Freyja", sem hún rak af mesta
myndarskap, fyrst sem sameign,
en síðar sem einkaeign, alit til
Seviloka.
Anna Laxdal tók, um skeið,
mikinn þátt í félagslífi bæjar-
ins. Var m.a. meðlimur Sjálfstæð
isfélags kvenna, Verzlunarmanna
félagsins, Náttúrulækningafélags
ins og var einn af stofnendum
Zontaklúbbs Akureyrar. f félög
um þessum voru henni falin mörg
trúnaðarstörf og rækti hún þau
öU af stakri trúmennsku og sam
vizkusemi. Hún var sjálfstæð
kona í þess orðs beztu merkingu,
hafði enda fátt að sækja til ann
anra. Smekkvísi var henni í blóð
horin og listhneigð hennar og
hrifnæmi vöktu snemma ást
hennar á fögrum bókmenntum
og mikla ánægju bafði hún af
söng og góðri hljómlist, velheppn
uðum leiksýningum og hljóðlátri
helgistund í kirkju sinni. Á allt,
sem hún sá eða heyrði lagði hún
eitt eigið mat og þótt einhverjir,
úr fjölmennum kunningjahópi
hennar, hefðu aðra skoðun á mál
efnunum, varð það oftast svo, að
hennar dómur reyndist sanngjarn
ostur og bezt grundaður.
Mörgu góðu máli og einstakling
um, sem erfitt áttu, lagði Anna
hð og gerði það þá jafnan af
rausn og höfðingsskap og alveg
fágæt var tryggð hennar við fæð
ingarsveitina og við þá einstakl
inga, hærri sem lægri, sem hún
fiafði kynzt eða umgengizt á upp
vaxtarárunum. Verzlun sína rak
Anna, sem áður segir, af mesta
dugnaði og lagðd mikið kapp á
að hafa góðar vörur á boðstólum.
Viðskiptavinix hennar urðu því
margir og skólar, víðsvegar af
landinu, leituðu til hennar um
hannyrðavöruir og því um líkt.
Þegar hin svonefnda Akureyr
ar lömuharveiki var í algleymingi
tók Anna veikina, sem margan
þjáði og skildi eftir varanleg mein
hjá ýmsum, er hana fengu. Fár'
sjúk var hún flutt til hælisvistar
í Danmörku og hlaut hún þar
góðan bata, en mikið mun sú
sjúkdómslega hafa reynt á Hk-
amsþrek hennar, þótt ekki léti
hún mikið á því bera. Hún hélt
áfram atvinnu sinni og var ætíð,
í vinahópi hrókur alls fagnaðar,
en glaðlyndi hennar, hreinskilni
og aðrir mannkostir öfluðu henni
f jölmargra vina á lífsleiðinni. Síð
ustu tvö árin var hún oft sárþjáð,
en gekk þó ailtaf til starfa og var
hin hressasta í tali, svo þessi
snöggi viðskilnaður kom nokkuð
á óvart, jafnvél þeim, er þekktu
hana bezt.
Með önnu Laxdal er merkur
borgari horfinn af sjónarsviðinu.
Sæti er autt, sem skipað hafði
verdð sæmdarkonu með sjaldgæf-
um mannkostum og miklum per-
sónuleika. Blessuð sé minning
hennar.
Vinur.
t t t
Bjart er yfir minningu önnu
Laxdal í hugum okkar. Við erum
þakklátar fyrir að hafa fengið að
eiga hana að vin og starfsfélaga,
og við hörmum, að hún skuli nú,
svo allt of fljótt, vera horfin úr
hópnum.
Enn höfum við varla áttað okk
ur á því, að sætið hennar sé nú
autt og það verður áréiðanlega
vandfyllt.
Okkur gleymist ekki hvernig
Anna Laxdal var: Vinur Vina
sinna, trygg og traust og góð. Hún
sem átti fallega hlíða brosið,
glettnu augun og hlýja handtakið.
Við urðum betri af að kynnast
Önnu. öllum leið svo vel í ná-
vist hennar og það var skemmti
legt og létt að starfa með henni,
því frá henni stafaði birtu og
gleði, sem ekki fyrnist. Hún var
hreinlynd drengskaparkona, sem
ekki vildi vamrn sitt vita.
Þökk sé Önnu fyrix það sem
hún var okkur. Þökk fyrir öll
góðu og glöðu árin, starf og styrk
og hvatningu. Og það er huggun^
í harmi, að vita að þar sem hún
nú dvelur er „skærri sol og fold
ir fegri".
Blessuð sé minning önnu Lax
daL
Zontasystur.
NORDURlEm
Reykjavík Uurland
TIL AKUREYRAB:
þriðjud., föstud. og
sunnudaga.
FRÁ AKUREYRI:
miðvikud., laugard. og
mánudaga.
NORÐURLEIÐ HF.
Það er fyrir öllu
að eignast
VOLKSWAGEN
m
Árgerð 1963 af
VOLKSWAGEN
1500
er fyrirliggjandi
Hva8 gerír VOLKSWAGEN aS VOLKSWAGEN?
Er það lögunin? — Nei vissulega ekki.
Það, sem gerir Volkswagen að Volkswagen
hefir dýpri merkingu en útlit og lögun.
Eru það framleiðsluhættir Volkswagen?
Já, að miklu leyti vegna þess að þeir af-
ráða gæðin.
Volksw^gen 1500 er byggður af sömu
nákvæmni og sá Volkswagen sem þér
þekkið.
Er það staðreynd að varahlutaþjónusta
sé allsstaðar fyrir hehdi?
Já, það er einmitt það sem Volkswagen
leggur ríka áherzlu á. Og eftir á að
hyggja, þá er bíllinn jafngóður þjónust-
unni sem fyrir hendi er.
Eru það undirstöðuatriði smíðinnar?
Já, er nokkuð vit í öðru en að fylgja
þeirri reynslu, sem fengizt hefir með fram
leiðslu meira en 5 milljón Volkswagen?
Alltaf fjölgar
VOLKS WAGEIM
Það er þess yegna sem vélin í 1500 er
loftkæld, en ekki vatnskæld. (Enginn
vatnskassi, sem getur soðið í, lekið úr
eða frosið á).
Það er þessvegna sem vélin er stað-
sett afturi þar sem hún nýtir aflið betur.
Það er þess vegna sem er sjálfstæð fjöðr-
un á hverju hjóli og bíllinn er allur svo
undur þýður.
Og hver er svo mismunurinn?
Hann er margskonar. Afimeiri vél með
53 ha (SAE). Stærri farangursgeymsla,
rúmbetri og meiri íburður í innréttingu.
En hvort svo sem þér veljið Volkswagen
sem allir þekkja eða 1500 — þá eigið þér
þó alltaf Volkswagen og það er fyrir öllu.
H e / / d v e r z I u n i n HEKLA Hf
103
sími 11275.