Morgunblaðið - 09.12.1962, Side 20

Morgunblaðið - 09.12.1962, Side 20
20 MORCUNBLAÐIÐ Finnskt Masonit Stærð 4x8 fet og 4x9 fet. SKÚIASON & JÓNSSON SF Síðumúla 23 - Laugav. 62 sími 36 500 Húseigendafélag Reykjavíkur i jólamatinn Kalkúnar, kjúklingar, peking-endur, aligæsir, hænsni, rjúpur. — Vinsamlegast pantið tímanlega í hátíða- matinn, því birgðir eru takmarkaðar. Sunnubúðin Sunnubúðin Mávahlíð 26 Laugateig 24 Sími 18725 og 18055. Sími 34666 og 33805 Aðeins fáanlegt í Tízkuskólanum. Laugavegi 133 Sími 20743. Rnfmugns húrliðunnrjúrn Það nýjasta í hárliðun. Fer sigurför um allan heim. — Engar rúllur eða spennur. Fljótvirkt og auðvelt í meðferð. Heildsölubirgðir: Þórhallur Sigurjónsson, Þingholtsstræti 11 — Sími: 18450, Í5LAND« 15 TÉKKAP 15 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 kastaði gestum sínum út, en tröllamærin brosti við tröllunum til skiptis, til þess að styiggja nú ekk- ert þeirra. Þegar hún hafði stillt til friðar aft- ur, tók hún stóran stein og barði í ölkolluna sína þrjú högg. Það líktist einna helzt því, að hringt væri hundrað kirkj-u- klukkum. Svo tilkynnti hún með sinni blíðustu rödd, að sér félli vel við alla tröllkarlana, en hún ætlaði að giftast þeim, sem sterkastur reyndist. Þann tröllkarlinn ætlaði hún að elska alla ævi og verða hans eiginkona. Hver þeirra átti að kasta þremur steinum út yfir fjörðinn, og sá, sem gat kastað lengst, átti að verða eiginmaður henn- ar. Hún ætlaði sjálf að velja steinana. Þetta fannst tröllunum skynsamlegt og rétt og keppnin skyldi fara fram næstu nótt, sem fullt tungl væri. En nú varð að slíta veizlunni, því að jþað var farið að líða að morgni, en tröll þola ekki að sjá sól, því að þá verða þau að steinum. Svo hélt bver heim til sín. Trölla botnaþursinn hélt heim- leiðis á stórum fleka, sem stjakað var áfram af mörg hundruð smáþurs- um. Þeir höfðu fengið sinn skammt í veizlunni og nú sungu þeir svo mikið að söngurinn berg málaði í nærliggjandi fjöllum. Tröllið frá Borjárni var yngst og laglegast af tröllunum. Það vildi gjarnan fá hina fögru tröllamey, og nú fór það að æfa sig í steinkastinu. Nótt eina tók það stóran stein, sem var margar smálestir að þyngd, hleypti sér í hnút og — púff! Steinninn flaug út yl.r Hofsásinn og lenti á nesinu innan við Kross- ey. Þar liggur hann enn í dag, og við fjöru stend- ur hann upp úr sjónum eins og lítil ey. Þegar miiklir straumar eru í firðinum, heyrist drauga- legur súgur við steininn, og það er ekki talið hættu laust fyrir smábáta að koma þarna nálægt. Svo rann keppnisnótt- in upp. Tröllslegur, full- ur máni glotti á dimm- um himninum, og tröllin, öll þrjú, voru mætt á Króksásnum, og þar lágu nú steinar og björg af ýmsum stáerðum. Trölla- mærin stóð uppi á Ulvík urfjallinu og hélt á stórri, botnlausri kopartunnu, sem hún notaði fyrir kíki. Risinn frá Tröllabotn- um kastaði fyrst, en náði ekki yfir fjörðinn. Svo mikill varð bylgju- gangurinn, að sjór gekk á land. Tröllið frá Bor- járni kastaði álíka langt og sömuleiðis stóra tröll- ið. Þessi stóru björg liggja þarna enn í dag. Þá hló tröllamærin svo hátt, að það brakaði og brast í fjallinu, en þá varð stóri tröllkarlinn svo reiður, að hann greip þrjú björg, hvert á eftir öðru, og kastaði þeim yfir fjörðinn. Þau kornu á sléttuna við fjallsræt- urnar, og þar eru þau enn í dag. Risinn frá Tröllabotn- um hélt þangað aftur eftir keppnina, og gróf sig inn í fjallið. Tröllið frá Borjárni gekk inn í hinn stóra og dimma helli sinn. En á Úlvíkur- fjaLli var haldið brúð- kaup, og þar gekk svo mikið á að hávaðinn heyrðist um sjö næstu prestaköll. Stóra tröllið og tröllamærin lifðu bæði vel og lengi, en loksins hurfu þau inn í fjallið og dóu þar. L. H. Berger Pósiunnn SÍÐASTA blað Lesbók arinnar átti að vera nr. 23 en ekki 22 og eruð þið, sem safnið blaðinu beðin að leiðrétta þetta. Myndasagan af Grá- manni í Garðshorni, hefur nú komið í tveim- ur blöðum. Myndirnar eru teiknaðar af Þresti Magnússyni, sem er ung úr og upprennandi lista- maður. Lesbókin væntir þess, að yngstu lesend- ur hennar hafi gaman an af að sjá í myndum vinsælar þjóðsögur, sem þeir kannast við. Munið verðlauna- keppnina, sem sagt var frá í 21. blaði. — Nokkr aí ritgerðir og sögur hafa borist og einnig myndir. Eftir jólin birtum við einhverjar þeirra. Þess vegna ættuð þið nú að nota jólaleyfið til að skrifa og teikna. Verð- launin eru allt upp í 400 J krónur. Með beztu kveðju | Lesbók barnanna David Severn; Við hurfum inn í framtíðina Meðan ég stóð og þurrkaði mér með stóru línklæði, varð mér hugs- að til þess, hve einkenni- legt væri, að þetta fólk skyldi vita um okkur Dick og jafnvel búast við okkur. Fregnin um kornu Okkar í þorpið, þar sem við gistum fyrst, hlaut þegar að hafa bor- ist til Onain. Samt var ég allra mest undrandi yfir því, að bæklaði drengur inn skyldi hafa getið sér til, hvaðan ég kom, að hann skyldi tala mina ensku, og að hér skyldu fleiri vera, sem komnir voru frá sama tíma og umhverfi og við Diek. Mér var sem óg sæi svipinn á Diok, þegar ég klæddist grænröndóttum kyrtli, fjólubláum sokik- um og inniskóm úr loðnu úlfaldaskinni. Sú tilhugs un kom mér í léttara skap, og mér fannst ég vera eins og leikari, sem skipti um búning, áður en hann hæfi leik í hlut- verki sínu. Mest saknaði ég vas- anna af fötum mínum, en svo fann ég dálitla skjóðu, sem festa mátti við beltið og notast við til að geyma í ýmsa smá- muni. Ég athugaði görolu fötin mín vandlega og safnaði saman þeim fáu gripum, sem nú voru al- eiga mín. Það voru lind- arpenni —, sem þó. lak blekinu, — blýantur, budda með nokkrum fimm og tíukrónuseðlum og fáeinum krónum í smámynt. Þá átti ég líka vasaklút, greiðu, penna- hníf, vasaalmanak, stækk unarigler, þrjár glerkúl- ur, sem ég hafði gert upp tækar hjá nýsveini, verð- lista yfir leikfangajárn- brautir og snærisspotta. Ég virti þessa hluti fyrir mér, þar sem þeir lágu á borðinu og hugsaði með söknuði til alts þesis, sem ég hefði getað haft með mér, ef ég hefði ver- ið undir þessa einkenni- legu ferð búinn. Dyrnar opnuðust og Harry, bæklaði drengur- inn, stóð á þröskuldinum. Hann ætlaði að fara að segja eitthvað, en þá beindist athygli hans að mununum, sem lágu á borðinu. Hann flýtti sér til mín og starði á þá með glampandi augurn eins og sex ára drengur, sem skoðar afmæliisgjaf- irnar sínar. Hann hand- lék þá fullur ákafa og eftirvæntingar. Það var .auðséð að þessar fá- breyttu eigur mínar voru miklar í hans augum, en jafnframt virtist mega lesa í svip hans, að hann væri ekki að gera rétt með því að snerta þær. Hann virtist vera á nálum og leit skelkaður um öxl, þegar fóstran kom inn. Hann spurði reiðilega, hvað hún væri að gera, svo hún flýtti sér út aft- ur, muldrandi einhverja afsöku. Um leið greip hann verðlistann og opn- aði hann þar sem mynd af ljómandi falleigri hraðlest var yfir báðar síðurnar, Framhald næst. Skrítlur — Hvað hefurðu lært í skólanum í dag, Har- aldur? spurði faðirinn. — Það, að kennarinn hefur auvu í bnakkan- um. tí>±

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.