Morgunblaðið - 09.12.1962, Side 23

Morgunblaðið - 09.12.1962, Side 23
Sunnudagur 9. des. 1962 MORGUNBLAÐIÐ 23 — Nokkur orð Framhald af bls. 8. (þingi lútandi að þessu, þar sem ríkisstjórninni hefir verið falin útvegun fjárins, 15 millj. króna. Þessi frumvörp hafa ekki náð fram að ganga og segir Björn Fálsson í grein sinni í „Tímanum" stjórnarliða á Alþingi hafa taf- ið þau og svæft. Nokkrum hug- leiðingum um núverandi ríkis- stjóm og Keflavíkurveg bætir greinarhöfundur við. Eg veit, að Björn Fálsson er það skynsam- ur maður, að hann renni grun S hvað það er sem veldur þvi, að þau frumvörp, sem hann nefnir, Ihafa ekki náð fram að ganga. Eg þykist meira að segja viss um, að hann viti, að það sé ekki auðvelt verk, hvorki fyrir þá ríkisstjórn, sem nú situr né aðrar, að annast út af fyrir sig svo stóra fjárútvegun, sem hér — Staldrað við Framhald af bls. 10. Síldarverksmiðja hefði kom ið hér að miklum notum í sumar, þvi að síldin veiddist svo mikið hér úti fyrir. En skipin koma ekki hingað inn með síld til söltunar, upp á að þurfá að fara annað með úrganginn og bíða þar eftir löndun. — Hafið þið mannskap hér fyrir síldarverksmiðju, auk þeirra atvinnutækja, sem fyr- ir eru? — í>að hefur aldrei staðið á fólki. Þeir, sem hér vinna eru flestir heimamenn. Nokk- ur ber einnig á, að burtflutt fólk komi hingað í sumarfrii og vinni hér. Fólkið kemur þangað ,sem atvinnan er, og hér liggja fyrir mörg verk- efni. Við megum ekki tefja leng- ur. Hér eru allir önnum kafn- ir og við tefjum aðeins. Guð- mundur neitar með öllu að láta taka af sér mynd og er rokinn á dyr, áður en við fá- um rönd við reist. Við tygjum okkur því af stað, enn er eftir versti hluti leiðarinnar, nýi , vegurinn í Breiðdal. Er við ökum eftir veginum inn í fjarðarbotn, verður okk- ur litið á tvö skipsmöstur, er standa upp úr sjónum. Okk- ur er síðar sagt, að þarna á fjarðarbotni liggi brezkur togari. Það var einhvern tíma í kringum 1940, að brezkur togari tók niðri á Austur- horni, þar sem heita Hvít- ingar. Skipstjórinn ætlaði að sigla togaranum til Seyðis- fjarðar, en komst ekki lengra en á móts við mynni Stöðvar- fjarðar, var þá orðinn siginn mjög að framan og virtist að því kominn að sökkva. Annar brezkur togari var kominn á vettvang og var nú ákveðið að sigla inn Stöðvarfjörð. — Þegar togarinn var kominn á móts við kauptúnið var róið út til hans. Bað skipstjórinn um, að sér yrði vísað á góðan stað til að hleypa skipinu upp og var þá farið með togarann inn í botn og honum siglt í strand. Stefán Karlsson sagði okkur í símtali, eftir að suð- ur kom, að nokkru hefði verið bjargað af kolum o. fl. úr tog- aranum, áður en hann sökk. Síðar var reynt að ná honum upp, en tókst ekki. — Aftur var reynt að kafa í togarann, fyrir um það bil fimm árum, sagði Stefán að lokum, en þá var kominn í hann töluverð- ur sandur og þari. — mbj. er um að ræða (a.m.k. 15 millj- ónir króna) handa einu byggðar lagi til vegargerðar, sem ég mun verða síðasti maður til að halda fram, að sé því ekki lífsnauðsyn leg, án þess að sinna að neinu leyti kröfum eða óskum um- 'boðsmanna þeirra byggðarlaga annarra, sem telja sig með réttu eða röngu búa við engu minni eða jafnvel meiri samgönguerfið leika. Má í þessu sambandi minna á, að flokksbræður Björns Páls sonar, sem fara með umiboð Vest- I firðinga og Austfirðinga á Al- i þingi, hafa þing eftir þing á 1 seinustu árum flutt frumvörp um aukafjárveitingar, sem nema tiáuim upphæðum til vegalagn- inga í þessum landsihlutum. Leiðin til lausnar samgöngu- erfiðleikum Siglfirðinga, svo og annarra, sem eiga við svipuð vandræði að etja. er áreiðanlega sú, sem núvenandi ríkisstjórn hefir valið, þ.e. allsherjarendur- skoðun vegalaga og fjáröflunar- aðferðir til að Ijúka lagningu vega til þeirra staða á landinu, sem gegna mikilvægu hlutverki í þjóðfélaginu, en búa við erfið- ar samgöngur á landi, svo sem Siglufjörður, Ólafsfjörður og ýms ir staðir á Vestfjörðum og Aust- fjörðum. Að lokum get ég ekki stillt mig um að geta eins þáttar þessa máls og að varpa fram einni spurningu, sem snertir hann. — Björn Pálsson, alþingismaður, og ýmsir ónafngreindir flokksbræð ur hans utan þings og innan, hafa á síðustu 2-3 árum gengið rösk lega fram í því að krefjast þess af núverandi rikisstjórn, að hún útvegaði nægilegt fé til þess, að gerð jarðganganna gegnum Stráka yrði lokið á árunum 1962 — 1964. Hefir oft fylgt þessari kröfu hnútukast í ríkisstjórnina og einstaka stuðningsmenn henn ar fyrir áhugaleysi á málinu, á heillindi og jafnvel svik. Nú lang ar migtil að spyrja þá menn, sem hafa reynt og hyggjast e.t.v. hér eftir að reyna að gera sér pólitísk an mat úr málinu: Hversvegna beittu þeir sér ekki fyrir því á valdatimum þeirrar ríkisstjórn- ar, sem þeir treystu betur en nú- verandi ríkisstjórn, að hún útveg aði nægilegt fjármagn til að jarð gangagerðinni í Strákafjalli — Það dæmist Framih. af bls. 6. ■dæmdar bætur að upphæð kr. 17.865,24, en í Hæstarétti kr. 3.813,62. í forsendum að dómi Hæstaréttar segir um einstaka liði m. a. Um lið 1. Þar er staðfest niður- staða héraðsdóms. Upphæðin, sem krafizt var er mismunur á 'þeim launum, sem stefnandi fékk greidd og launum skv. samningi, sem gilti á þessum •tima milli Félags sérleyfishafa annarsvegar og Bifreiðastjóra- félagsins Hreyfils Og Bifreiða- stjórafélagsins Fylkis, Keflavík hinsvegar. Var talið, að stefndi 'hefði verið bundinn af nefndum samningi og því verið skylt að láta stefnanda njóta launa sam- kvæmt ákvæðum samningsins. Þessi kröfuliður var því tekinn 'til greina, þó þannig, að mismun- ur reiknaðist aðeins fyrir þann 'tíma, sem stefnandi var í þjón- ustu stefnda. Um 2. Ekki var talið gegn eindregnum mótmæla stefnda, að stefnandi hefði sýnt fram á, að hér væri um réttmæta kröfu að ræða. Um 3. Talið var óupplýst, hvernig á því stóð, að stefnandi Ihætti vinnu fyrirvaralaust og >ekki talið sannað, að honum (hefði verið sagt upp starfi og því var þessi liður ekki tekinn til greina. Um 4. Stefnanda var dæmt or- lofsfé af fjárhæð þeirri, sem tek- in var til greina skv. 1. tl. þ.e. kr. 215.87.. Niðurstaðan varð því sú, eins og fyrr greinir, að Kristjáni Jónssyni . var dæmt að greiða Tómasi Högnasyni kr. 3.813,62 ásamt vöxtunum, en málskostn- aður var niður felldur fyrir báð- um réttum. yrði lokið á 2 árum, en á valda- tima Vinstri stjórnarinnar var ekki, svo að ég viti, minnzt á þetta tveggja ára „plan“, heldur skau't það upp kollinum í vissum her.búðum, fljótlega eftir að sú ágæta stjórn var öll? Voru þó samgönguerfiðleikar Siglfirðinga eitthvað svipaðir á þeim árum og nú er, að því er ég bezt veit. O.g að allra síðustu þetta: Eg er alveg sannfærður írm, að fyrir aðgerðir núverandi ríkis- stjórnar verður því mikla mann virki, sem vegurinn um Stráka verður, lokið á allra næstu ár- um, sem og lagningu vega til ann- arra byggðarlaga, sem við mesta samgönguerfiðleika á landi eiga við að búa. — Þótt ég efist ekki um einlægan áhuga Björns Páls sonar fyrir Strákavegi og viti, að hann vill leggia málinu lið eftir því sem hann frekast má, gruna ég hann samt dálítið um þá græzku, að hann viti það með sjálfum sér, að þess verður ekki langt að bíða, að málinu skili heilu í höfn fyrir aðgerðir nú- verandi ríkisstjórnar og að vegna þess hafi hann ritað grein þá í „Tímann“, sem hér hefir nokk- uð verið minnzt á til þess síðar að skírskota til hennar og ann- ars velvilja síns til málsins, þeg ar það hefir verið farsællega leyst. Og víst er um það, að þótt nefndur greinarhöfundur sé mað ur skrumlaus og laus við ofstæki að allri gerð, er það á margra vitorði og þar á meðal hans sjálfs að hann kunni vel til verka í þeirri íþrótt, sem nefnd er at- kvæðaveiðar. Einar Ingimundarson — Minningar Framhald af bls. 12. er og góður kafli um framsókn- arvistina (Progressive whist), sem þeir Vigfús og Rxmólfur Sig- urðsson fluttu inn frá Skotlandi og nú er orðin algengt skemmti- atriði um allt land — en sumir kalla ekki réttu nafni, af því að það minnir um of á framsóknar- flokkinn. Kaflarnir er snerta stjórnmálin veit ég að þykja allmerkilegir, en munu að sjálfsögðu orka tví- 'mælis. Höfundur er þar berorður um ýmsa menn, segir hiklaust skoðun sína bæði á mótherjum og samherjum nefnir bæði kosti og lesti á ýmsum. Sýnir höf. það enn sem fyrr að hann fer sinar eigin leiðir og hefur djörfung til •þess að láta álit sitt í ljósi á mönnum og málefnum, þótt marg ir hljóti að vera á annarri skoð- un. En ég hygg að þeim, sem stjórnmálum eru kunnugir þyki ummæli höf. allforvitnileg. Skal það ekki frekar rætt hér. Skemmtilegustu þættir bókar- innar þykja mér frásagnir um Alþingishátíðina, dvölina að Laug arvatni og ýmsir kaflar um fé- lagsmálastörf höfundar. Víst er að bók þessi ber glögg- an vott um lífsreynslu höf., hug- sjónir hans og brennandi áhuga á málefnum þeirra, er hann berst fyrir hverju sinni. Hann hefur jafnan haft ánægju af samstarfi við æskufólk og margt er í þess- ari bók, sem það hefur gott af að kynnast, alveg eins og þeir sem eldri eru. Ég tel að bókin eigi nokkurt erindi til allra og eink- um er hún ómissandi þeim, sem eiga fyrri bækur höfundar, sem nú eru raunar uppseldar. Síðustu þrír kaflarnir eni sér- stæðir að því leyti að þar tala aðrir en höfundur sjálfur. Það eru greinax um höf. á síðustu tugafmælum þ. e. dómar annarrá um hann. Sumir munu ef til vill vill telja það fordild að birta slíkt, en ég tel það auka gildi bókarinnar. Auk þess sem það gefur ennþá skýrari mynd af höf- undi eru þar bráðskemmtilegir greinarstúfar, vísur og Ijóð. Nefni ég þar t. d. ræðu Karls Strand, læknis, og bréfið frá Kjartani Ólafssyni í Hafnarfirði, kvæði Jóhannesar úr Kötlum og Vigfúsar rímu frú Elínar Vigfús- dóttur á Laxamýri. — Þökk sé Vigfiisi fyrir bók- ina. Ingimar Jóhannesson. Þremenningarnir, sem fóru með Mai Zetterling á Vatnajökul. íhefði verið ef ég hefði komið fyrr. Ég reyndi að hafa upp á Inu, en það tókst ekki. Síðan Ihef ég frétt að hún sé dáin. — Svo er næsti þáttur j þessari sögu líklega, þegar þú fórst til Öskju. — 49 árum seinna fór ég til Öskju í fyrsta sinn. Mig hafði eðlilega alltaf langað til að koma þangað. Af einhverri tilviljun hittist svo á, að í sömu ferð voru þrír þýzkir jarðfræðingar sem komu hing að sérstaklega til að halda minningarathöfn um þessa menn, sem drukknuðu þarna, þá hálfri öld áður. Þetta var hátíðleg stund. Það var lagð- ur blómsveigur af eyrarrós- um í vörðu, sem þau Ina og Hans höfðu hlaðið þarna í sinni ferð til minningar um von Knebel. Þetta var stund, sem ég gleymi aldrei. — Hreppaskil Framih. af bls. 4. gólfið, en rétt í því losnar hringurinn. Kvenþjóðin er í meirihluta á gólfinu og við erum umsvifalaust gripnir. Þegar næst verður hlé yfir- vinnum við allar freistingar og komumst á áfangastað. — Við erum frá Morgun- blaðinu, og okkur langar að spjalla við yður augnablik? — Nei, nei, segir hiin og færist undan, hvað ætli það sé gaman að spjalla við mig. Hún lætur sarnt undan og við förum út í horn, þar sem við getum verið í næði. — Hvað ætti það svo að vera sem ég get sagt ykkur? byrjar Guðrún, þegar við er- um sezt. — Okkur var sagt að þú hefðir farið allsérstaka öskju- ferð með Guðmundi 1957, segjum við henni Og vörpum fyrir borð öllum þéringum, sem okkur finnst einhvern veginn ekki eiga við. — Það er þá bezt að segja ykkur aðdragandann. Sumarið 1907 komu hingað til lands tveir þýzkir jarðfræðingar og einn málari með þeim. Þeir fóru norður til Öskju og voru að rannsaka eldstöðvarnar í þeirri ferð og drukknuðu tveir þeirra á bátskel á Öskju- vatni. Annar var fyrirliði hópsins, Walter vOn Knebel, sem var aðeins 25 ára og kvað hafa verið bráðmyndar- legur maður og efnilegur. Það komust víst á kreik sögur um það úti að það væri eitthvað dularfullt við slysið og árið eftir kom unnusta hans, Vict- orina von Grumbkow, hingað í fylgd með öðrum jarðfræð- ingi, Hans Beck, til að reyna að komast að, hvernig það hefði orðið. — Þau fóru fyrst austur í Skaftafellssýslur og upp að Lakagígum. Þau komu við á Skál á Síðu, þar sem ég átti heima, og ég var fengin til að ferja þau yfir Skaftá. — Hvað varstu gömul þá? — Ég hef verið á tuttugasta ári. Svo hélt ég áfram með þeim og fylgdi þeim austur yfir Skálarheiði og yfir Holtsá. Þar skildi ég við þau. Þau höfðu þrjá fylgdarmenn og marga hesta undir farang- ur. Daginn eftir komu svo boð frá Inu, meðan ég var ekki heima, og bað um að ég fengi að fylgja sér alla leið til öskju. Þetta var seint í júlí, Og móðir mín var ein heima af fullorðnu fólki, og neitaði strax vegna þess að hún mætti ekki missa mig. — Þá bauðst hún til að kosta mig til náms í Þýzka- landi, ef hún fengi mig með sér en mamma neitaði því líka. Svo veit ég ekki þeirra sögu meira, nema 'hvað þau fóru norður yfir Sprengisand og fengu svo fylgd að norðan til Öskju. Þar veit ég að Ina kastaði í vatnið í skríni öllum sameiginlegum minjum von Knebels og síns, og þegar þau komu út til Þýzkalands aftur, giftu þau sig Hans Beck og hún. — — Hefurðu ekki séð-eftir að missa af þessu tækifæri til að komast til Þýzkalands, ekki sízt á þeim aldri? — Jú, víst sá ég eftir því, en það var ekkert við því að gera. Ég kom reyndar til Þýzkalands löngu seinna, en það var allt annað en það í fylgd með kvikmyndastjörnu Við erum búnir að heyra sögur um það fyrr um kvold- ið, að Guðmundur Jónasson hefði ásamt tveimur öðrum, sem þarna eru staddir, Gunn- ari Guðmundssyni og Herði Hafliðasyni, farið með Mai Zetterling upp á Vatnajökul, og okkur finnst ástæða til að leita frétta af viðkynningu þeirra við þessa frægu kvik- myndastjörnu. Það er erfitt að hafa hendur í hári þriggja manna í einu á þessari skemmtun, en eftir að hafa oftsinnis náð tveimur og misst þá í eltingarleik við þann þriðja, tekst okkur loks að safna þeim öllum á sama stað. Guðmundur Jónasson verður fyrir svörum fyrir þá alla, en hinir skjóta inn jái og nei og kinka kolli til sam- þykkis. — Hvernig lílkaði ykkur samstarfið við svona fræga konu. Var hún ekki hryllilega duttiungafull? — Þetta er mikið dugleg kona, en hún var óheppin með veðrið. Hún hefði svo sannarlega viljað gera miklu meira en hún gat gert. Hún var með sex eða sjö manns með sér, en hún var eina driffjöðrin og alvag óþreyt- andi. — Hvernig var ferðinni háttað? — Við fórum með hópinn inn í Landmannalaugar, upp í Jökulheima og svo spölkom inn á Vatnajökul. Veðrið var alveg voðalegt. Við vorum á fjórða dag á ferðinni. Það var alveg sérstakt hvað það var gott fyrir okkur, sem ekk ert kunnum nema ísdenzku, að tala við hana. Það var bókstaflega eins og hún skildi al'l't, sem sagt var við hana. — Hvernig haldið þið að árangurinn hafi orðið hjá henni? — Ég veit það ekki. Ég held að það væri hægt að gera mikið fyrir þessa mann eskju. Það var hreint ekkert, sem fór fram hjá henni. Sér- stakloga gæti. hún eitthvað gert ef hún fengi gott ferða- veður, til daðmis vetrapstillur éða gott sumai'veður. Nú er komin ókyrrð á þre- menningana og við treystum ökfcur ekki til að halda þeim lengur, enda er nú orðið íangt liðið á kvöldið. Við stingum þess vegna skriffærunum í vasann og tökum þá stund sem eftir er til heimferðar með ró.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.