Morgunblaðið - 09.12.1962, Qupperneq 24
24
MORCUNRT/AÐ1Ð
Sunnudagur 9. des. 1962
1
HIN HVÍTU SEGL
Þetta eru æviminningar Andrésar P. Matthíassonar sjómanns í Keflavík. Fyrir
fimmtíu árum hóf hann sjómannsstarf sitt á seglskipum og enn í dag glímir
Andrés við ægi, nær sjötugur að aldri, og hann man vel morgun lífs sín með
Fransmönnum vestur í Haukadal í Dýrafirði, hádaginn þegar hann stýrði segl-
skipi suður við miðjarðarhafslínu, styrjaldirnar tvær og loks ævikvöldið þegar
hann horfði á bróður sinn fljóta örendan í sjónun?
Andrés man ennfremur minnisstæða menn eins og Jóhannes föðurbróður sinn á
Þingeyri, Ellefsen á Sólbakka, Hannes Hafstein í aðförinni gegn landhelgisbrjót-
um á Dýrafirði, og Nielsen, fyrsta framkvæmdastjóra Eimskipafélags íslands, sæ-
garpana frægu: Eldeyjar-Hjalta, Ásgeir Sigurðsson, Ingvar á Lagarfossi, Pál og Að-
alstein á Belgaum og þjóðsagnapersónur á borð við Stjána bláa og Jón rauða, sem
svaf í líkhúsinu í Bordeaux.
Allt þetta og miklu fleira rifjar Andrés upp, og Jóhannes Helgi kemur æviminning-
um hans ógleymanlega á framæri við lesendur.
HIN HVÍTU SEGL er saga íslenzks sjómanns
JÓHANNES HELGI
er í fremstu röð yngri rithöfunda okkar, og
endurminningabók hans um Jón Engilberts,
HÚS MÁLARANS, vakti þjóðarathygli, en
því olli í senn efni hennar og mál og stíll
höfundarins.
ANDRÉS P. MATTHÍASSON
hefur í meira en hálfa öld stundað sjóinn á
skútum, vélbátum, togurum og hámöstruðum
seglskipum. Andrés hefur frá mörgu að segja
innan lands og utan. Frásögnin er skýr og
skcmmtileg.
SETBERG • FREYJIiGÖTIJ 14 • REYKJAVÍK • SÍMI 176S7
Ingibjörg F’ísabet Jónsdóttir
Gissurardóttir
Sigurlaug M.
Jónasdóttir
• Helga M. Níelsdóttir Margrét R.
Halldórsdóttir
FIMM KONUR
Þessar endurminningar lýsa mikilli og sterkri lífsreynslu, en skýra um leið þá
stórfenglegu þróun, sem íslenzka þjóðin hefur hfað hina síðustu sjö til átta ára-
tugi. Hér er fjallað um efnið af nærfærnum skilningi og skarpri innsýn. Frá-
sagnirnar verða öllum ógleymanlegar. FíMM KONUR er glæsileg gjafabók til
allra íslenzkra kvenna.
FIMM KONUR er skrásett
af Vilhjálmi S. Vilhjálmssyni