Morgunblaðið - 11.12.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.12.1962, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 11. desember 1962 MORGVNBLAÐIÐ 13 EINS OG INN I MIEUUM GOSMEKKINUM FRfl HEKIU PÉTUR Ólafsson, forstjóri, kom heim s.l. föstudags- kvöld. I flugvélinni á leið- inni skrifaði hann eftir- farandi hugleiðingar um Lundúnaþokuna: ÉG SAT fastur í svarta þoíku í Lundúnaborg undanfarna fjóra daga og þóttist heppinn að sleppa úr henni í morgun, enda var hún treg til að sleppa tökunum. Það er raunar ekki aliveg rétt að tala um Lundúnaþok- una eingöngu sem þoku. Enskumælandi menn kaila hana reykjaþoku eða snr.og (stytt úr smoke og fog). Þok- an leggst yfir í kyrru, köldu veðri, og síðan blandast í hana reykur úr reykháfum, diesel- gufur og benzíngufur úr ból- um og öðrum farartækjum. í þokunni undanfarna daga eitraðist loftið svo, að það varð meir en tíu sinnum mett- aðra af brennisteinskennndu lofti en undir venjulegum kringumstæðum. Loftið er banvænt fyrir brjóstveikt fólk og hjartveikt. Blöð og útvarp brýna fyrir veikluðu fólki að halda sig heima, opna ebki glugga og helzt að liggja í rúminu. En jafnvel þótt gluggar séu lok- aðir, leitar mökkurinn inn. Sendiherrann okkar í Lond- on fékk í fyrradag heimsókn um miðjan dag frá sendiiherra hjónunum frá Kóreu. Á með- an þau dvöldu á heimili hans lék mökkurinn um loftið í stofu sendiherrans. I gærkvöldi, fimmtudags- kvöld, varð mökkurinn verst- ur. MacMillan forsætisráð- herra sat fastur í þokunni á heimili sínu, — komst hvergi. En gamli Ohurohill lét sig hafa það að fara til veizlu í Savoyhótelinu. Hann sat þar með gömlum klúbbfélögum í tvær og hálfa klukkustund. Hann fór í lyftunni í Savoy í hjólastól, en gekk frá lyftu dyrunum og út í bíl sinn reykj andi stóran vindil. Ekki veit ég hvort það hefur bætt mökk inn. Brezka útvarpið skýrði frá því í gærkvöldi, að umferðar- gæzlustjóri nokkur hefði ætl að að fara að gefa skýrslu til ákrifstofu sinnar, en þegar til kom fann hann ekki götu- símann sinn. Fimm þúsund strætisvagnar voru teknir úr umferð í gær- kvöldi. Svo svartur var mökk- urinn, að maður mátti gæta sín að fara yfir götu. Bílarn- ir óku með öllum ljósum, en samt sem áður heyrði maður í þeim áður en Ijósin sáust — jafnvel þokuljósin. Maður sá í raun og veru varla nefið á sér. Og nefið á öðrum mönn- um og konum var hulið, því að á götum úti gengu menn með trefla og klúta fyrir vit- um sér. Nafnkunnur fslend- ingur var á leiðinni heim til sín í bílnum sínum. Með guðs og góðra manna hjálp fann hann götuna, sem hann bjó í, eftir margra klukkustunda akstur. En það gekk illa að ramba á sjálft húsið. Hann hafði látið kveikja á jólatré við húsdyr sínar nokkxum dögum áður. AÆ einskærri heppni sá hann glytta í eins- konar ljósþoku og það var jólatréð. Hann var kominn heim. Bretai: segja að mökkurinn hafi aldrei í sögunni verið meiri en í gærkvöldi. Þetta er athyglisvert vegna þess, að síðast þegar svartur mökkur- inn lagðist yfir London fyrir 10 árum, þá var byrjað að gera ráðstafanir til lofthreins- unar. Þessar ráðstgfanir hafa verið í fullum gangi síðan. Þær eru fólgnar í því að reynt er að draga úr hvers konar kyndingu, sem valdið getur eiturlofti, þegar þokan leggst yfir. Sérfræðingar telja, að hægt verði á næstu 10 árum að útiloka að mestu leyti myndun eiturloftsins. Þetta getur vel orðið, en sjálfir eru Lundúnabúar tortryggnir í þessu efni. Sjálf þokan held- ur auðvitað áfram að sækja London heim á sama hátt og á dögum Diokens. Bandaríkjamenn eiga að sjálfsögðu sína sérfræðinga í eiturþokumyndun, eins og í öðru. Einn sérfræðingurinn, og einihver sá færasti vestra, flaug í gær upp á eigin spýt- ur alla leið frá Los Angeles til London til þess að gera samanburð á eiturloftinu þar og heima. En hann gat bara ekki lent í London — vegna þoku. Á þremur dögum létu 106 menn lífið í London vegna þokunnar. Fyrsta daginn á annan tug manna, annan dag- inn 37 menn og þriðja daginn um 50 menn. Um þrjátíu þúsund manns starfa á flugvellinum í Lond- on. Undir venjulegum kring- umstæðum úir og grúir af ferðamönnum frá öllum heims álfum í hinum stóru salar- kynnum flugvallarins. En á þriðjudagskvöldið taldi ég þar sex menn í hinum miklu sölum. Hávaðinn þarna frá hátölurunum yfirgnæfir allt venjuiega. En þegar ég gekk þarna um kvöldið heyrði ég aðeins fótatak sjálfs mín. En það var ekki aðeins á flugvellinum, sem öll umferð lagðist niður. Mörg skip, smá og stór, hafa stöðvazt á Tham- esánni, samtals 70 skip á leið til London og 100 skip á leið frá London. í einu skipanna á Thamesánni eru 1000 far- þegar á leið til Ástralíu og hafa beðið um borð í þrjá daga. Annað skip kom að Englandsströnd á mánudaginn frá Nýja Sjálandi og farþegar þar hafa orðið að halda kyrru fyrir, þar til í dag, eða í f jóra daga. Og hvað svo um blessaða kaupmennina, sem komnir voru í jólaskap? Forsvars- menn stóru verzlunarhúsanna í London skýrðu frá því, að verzlun hefði þokudagana dregizt saman um þriðjung. En leikhúsin í vesturhverfum borgarinnar voru vel sótt eins og venjulega. Mörg okkar höfum þekkt Lundúnaþokuna úr bókum Dickens, Edgars Wallace og annarra mætra rithöfunda. í raun er hún lygilegri en í beztu skáldsögu. Hún er blátt áfram ótrúleg. Mér fannst helzt eins»og ég væri inni í rniðjum gosmekkinum frá Heklu, eins og við sáum hann 1947 og sést á öllum mynd- um frá þeim tíma. Þegar þokunni fór loks að létta, eftir fjóra daga mátti sjá stóra skara af örþreyttum mönnum og konum á flugsföð- inni í London. Fólk þetta hafði beðið í herbergjum sínum í marga daga, stundum var það hallað út í flugstöð, þegar einhverjar vonir glæddust um þakulétti. En jafnóðum var það sent heim, þegar vonirn- ar brugðust. Og jafnoft varð það að skipta um hótel. Hótel herbergi voru dýrari en gull þessa dagana. Menn þurftu á öllu sínu jafnaðargeði að halda, en stundum vildi taumhaldið bresta. En hvað þurfti þá að gerast til þess að þokunni létti Annað hvort þurfti meiri sólarhita um miðdag- inn en líklegt er að fáist í desember, eða þá örlitla golu, einhversstaðar að. Og loks í gær gerðist undrið, golan kom hægt, en sígandi. Við fórum frá LOndon MMMI. Mukkan tvö, áttum að lenda í Amsterdam kl. 3, en þar stöðvaði „þokan okkur“ lend- ! ingu á síðustu stundu. Þá var flogið til Brússel og komið þangað kl. 4. Þar var beðið : til kl. 12 á miðnætti. Oig svo var flogið til Glasgow, og á þeirri flugferð eru þessar lín ur skrifaðar. Þangað eigum viþ að koma kl. 2 í nótt. Og heim einhvern tíma í fyrra- málið. En við erum ebki ilia sett, hjá ágætri áhöfn Þorfinns karlisefnis. En mér verður hugsað til eins samferða- mannsins okkar. Hann lagði af stað frá meginlandinu á mánudagin og gerði ráð fyrir að vera kominn heim til sín í Bandaríkjunum á miðvilku- dag. En nái hann ebki tiA New York fyrir hádiegi á laugar- dag (sem ekki er útlit fyrir) kemst hann ekki heim til sín fyrr en á mánudag. Hann hef ir þá verið eina viku með konu og sex ára son „á flugi“ yfir Atlantshafið. Löng leið á jólaföstu. Þetta minnir mig á, er ég hlustaði fyrir nokkrum dög- um á umræður í neðri mál- stofu brezka þingsins. Þar skýrði flugmálaráðherrann, Amery, frá samningum, sem undirskrifaðir höfðu verið þá um daginn um sameiginlega smíði Frakka og Breta á nýrri farþegaflugvél, sem á að geta farið tvisvar sinnum hraðar en hljóðið, eða á fjórum tím- um yfir Atlantshafið. Ein- hverjar helztu mótbárurnar gegn þessu brezk-franska fyrirtaíki, sem heyrðust í þing inu voru á þá leið að þetfa væri þýðingarlaust, vegna þess að Bandaríkjamenn myndu liklega smíða á sama e tíma farþegaflugvél, sem gæti farið þrisvar sinnum hraðar en hljóðið. Ef þessar hraðskreiðu flug- ; vélar hefðu verið til í gær og í fysradag hefðu þær reynzt nákvæmlega jafn gagnslausar í Lundiúnaþokunni og okkar Flugfélagis- og Loftleiðavélar. En hér er þó ekki sögð öll f sagan. Það furðulega gerðist í raun og veru í fyrradag, að flug- vél lenti í allri þokunni á Lundúnaflugvelli. Þessi eina flugvél var tilraunaflugvél og var á vegum brezka flughers ins. I þessari vél var verið að prófa ný blindflugtæki, sem þóttu í þessari tilraun reynast hið bezta. Enn sem komið er, er blindflug flogið aðeins niður í 300 feta hæð, en þá verður flugmaðurinn að taka við stjórn og lenda eftir þeim ljósum og leiðar- merkjum, sem hann sér á flug vellinum. Með nýju tækjunum sem reynd voru í fyrradag, er h hægt að fljúga blindflug allt 9 niður í það, að flugmaðurinn y sjái 12—15 metra frá sér, eða r í raun og veru þar til hjól I vélarinnar nema við jörðu. Þannig gæti það orðið, að I kunningi minn, Bandaríkja- 1 maðurinn, gæti að 10 árum I liðnum farið upp í flugvél í blindsvarta þoku í London að loknum hádegisverði og verið kominn heim til sín í Banda- ríkjunum, áður en farið er að hella upp á kaffikönnuna um miðjan dag. PóL Myndin er tekin um hádegið einn þokudaginn í Lonclon. Akranesbótoi fengu 7.750 tunnur Akranesi, 10. des. GOTT veður var á síldarmiðun- um í nótt. Átba bátar héðan fengu síld, 7.750 tunnur. Aflahæstur var Haraldur með 1800, þá Höfrung- ur I. 1100, Keilir 900, Sveinn Guðmundsson og Náttfari 800 hvor, Sigrún 700 (nótin rifnaði og missti hún meira af síld en það var, sem náðist), Ver 650, Skírnir 600 og Sigurður 400. Skírnir var einn þessara báta vastur í Jökuldjúpi og fékk stóra síld. Hinir sjö voru allir fyrir sunnan Eldey og fengu stóra millisíld. Ms Langjökull lestaði hér í gær kvöldi 400 tonn af freðsíld. Höfr- ungur II. bilaði í gær við ígang- setningu vélarinnar, er hann ætlaði út á veiðar. Þetta er dýr- mætt stykki, sem biiaði, og verð- ur hann að bíða í 2—3 vikur, þar til nýtt kemur frá Kaupmanna- höfn. Komin er bræla úti fy.rir. — Oddur. Róm 6. des. (NTB-AP) • Fulltr. Júgóslavíu á þingi litalska kommúnistaflokksins sem haldið er íRóm, Lazar Kolisevski, mótmælti í dag árásum kínverzka fullfrúans á stjórn Júgóslavíu og Júgóslava í heild. 11 útvarpstæhj- um stolið í 2 innbrotum AÐFARANÓTT sunnudags'var 11 útvarpstækjum stolið í tveim inn brotum í Reykjavík. Verðmæti þýfisins nemur 27 þúsund krón- | um. Fyrra innbrotið var að Laufás- vegi 41, í viðtækjasöluna Radíó- tónar. Þar var stolið 8 transistor- tækjum af gerðinni Philips, Tele- funken og Hitachi. Ennfremur stærra tæki af Philipsgerð. Verð- mætið er yfir 22 þúsund krónur. Hitt innbrotið var í sýningar- glugga að Freyjugötu 1. Rúðan var brotin með steini. Stolið var tveim tækjum af Standardgerð. Verðmætið nemur um 5 þúsund krónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.