Morgunblaðið - 04.01.1963, Side 12
12
MORCVNBLAÐIÐ
Föstudagur 4. janúar 1963 1
JMrogiittirlaMfr
Ctgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Krístinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og algreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
VINNUTÍMINN
A llmikið hefur að undan-'
fömu verið tun það rætt,
að mikið væri unnið hér á
landi og hafa sumir jafnvel
talað um „vinnuþrælkun“ og
annað þvílíkt. Sízt skal úr því
dregið, að mikið er hér unnið,
bæði til lands og sjávar, enda
hafa flestir íslendingar enn
— sem betur fer — ríka til-
finningu fyrir því, að þeim
beri eftír megni að leitast við
að treysta fjárhagslega að-
stöðu fjölskyldna sinna og
leggja sig alla fram í þeim til-
gangi.
Til skarams tíma beindust
árásir stjórnarandstæðinga á
viðreisnina að því, að hún
drægi úr framleiðslu og fram-
kvæmdum og þar með at-
vinnu manna. Skyndilega er
blaðinu snúið við og hinu
gagnstæða haldið fram, að
alltof mikið vinnuálag sé sam
fara því viðreisnarstarfi, sem
íslenzka þjóðin nú vinnur.
Sannleikurinn er sá, að
hvorttveggja þessi sjónarmið
eru öfgakennd, þótt sjálfsagt
sé að hugleiða þau og leitast
við að gera þær úrbætur, sem
tiltækar kunna að vera, því að
frjálst lýðræðisþjóðfélag er
ekki staðnað, heldur er þar
um sífelldar breytingar að
ræða.
Um fyrra sjónarmiðið,
„samdráttinn“, þarf ekki að
ræða. Sá áróður er oltinn um
sjálfan sig, og stjórnarand-
stæðingar þora nú naumast
að nefna hann lengur. Um
„vinnuþrælkunina“ er það
aftur á móti að segja, að sem
betur fer er ekki því til að
dreifa, að menn þurfi hér á
landi að bíða heilsutjón af of
mikilli vinnu. Yfirleitt er það
svo, að þeir sem lengst og
mest vinna, gera það í þeim
tilgangi að treysta verulega
fjárhag sinn, koma sér upp
íbúðarhúsnæði o.s.frv. Hitt er
rétt, að takmörk eru fyrir því,
hve mikið menn eiga að
leggja á sig við störf.
Þróunin á að vera sú, að
eftir því sem þjóðfélögin auðg
ast, þá styttist vinnutínoinn,
alveg á sama hátt og sá, sem
komið hefur sér örugglega
fyrir fjárhagslega, getur leyft
sér það að draga úr vinnu
sinni og njóta meiri frístunda.
íslenzka þjóðin hefur gert
stórátak til að reisa við fjár-
hag sinn og er nú þegar svo
á vegi stödd, að kjör hennar
eiga að geta batnað jafnt og
þétt á næstu árum og ein
kjarabótin er auðvitað sú að
vinnutíminn styttist.
KJARABÆTUR
ÁN VÉRKFALLA
¥¥in kommúníska forysta í
launþegasamtökunum hef
ur eins og kunnugt er miðað
baráttu sína við það að koma
á harðvítugum vinnudeilum,
en sniðgengið ábendingar um
leiðir þær, sem hægt er að
fara til að bæta kjörin með
heilbrigðu samstarfi launþega
og vinnuveitenda.
Fyrir rúmu ári tókst þó
samstaða allra þingflokka um
tillögu þess efnis, að gangskör
yrði gerð að því að rannsaka
með hvaða hætti væri hægt
að bæta kjörin. í þeim til-
gangi var kjörin nefnd, sem
síðan hefur unnið að þessum
rannsóknum.
Enn hefur nefndin ekki
skýrt opinberlega frá störfum
sínum, en vonandi verður
þess ekki langt að bíða að
hafizt verði handa um að
framkvæma þær tillögur, sem
margrætt hefur verið um hér
í blaðinu og athuganir nefnd-
arinnar hljóta að snúast um.
Raunar hefur nokkuð áunn
izt í því efni, þar sem er
ákvæðisvinna í ýmsum fyrir-
tækjum. En auk þess fer skiln
ingur manna mjög vaxandi á
því, hve tilgangslaust er að
heyja harðvítugar vinnudeil-
ur. f>ess vegna er ástæða til
að ætla að meiri skynsemi fái
að ráða í þessum málum fram
vegis og þá er líka von um
verulegar kjarabætur, þar á
meðal styttan vinnutíma.
VEÐRIÐ
BEZT HÉR
rins og rakið hefur verið hér
^ í blaðinu hefur geisað hið
versta veður um meginhluta
Evrópu og Norður-Ameríku,
svo að með eindæmum er. En
á meðan hefur verið veður-
blíða hér.
Við íslendingar tölum oft
um það, að við séum á tak-
mörkum hins byggilegaheims
og fárumst mjög yfir veðrátt-
unni, kuldum á vetrum og
rigningum á sumrum. En þeg
ar öllu er á botninn hvolft,
þá valda veður ekki síður
tjónum annars staðar en hér,
og þau lönd eru ekki ýkja
mörg, þar sem sífelld veður-
blíða er og ekki þarf að ótt-
ast áföll vegna breyttra
veðra.
Þegar við Islendingar fögn-
um nýju ári þá megum við
gjarnan hafa það hugfast, að
UTAN UR HEIM!
HinmWt-' l.N
Wr- «-»ÁJ|WlJ!*- J' !'»?«
Kennedy vinsælastur
FARIÐ hefur fram í Banda-
ríkjunum í 17. sinn Galiup-
könnun á því hvaða maður sé
vinsælastur meðai þjóðarinn-
ar, en slík könnun fer fram
fyrir hver áramót. Að þessu
sinni er Bandaríkjaforseti,
John F. Kennedy, vinsælast-
ur og var hann það einnig
árið 1961. í öðru sæti 1962 er
Dwight D. Eisenhower, fyrrv.
Bandaríkjaforseti, en hann
hefur verið einn af 10 vinsæl-
ustu mönnum Bandaríkjanna
öll þau 17 ár, sem Gallupkönn
un hefur farið fram, þar af
10 sinnum í efsta sæti.
Tíu vinsælustu mennirnir
1962 eru þeir sömu og 1961,
að því undanteknu, að Ric-
hard Nixon, fyrrv. varafor-
seti Bandaríkjanna, féll úr
og í staðinn kom Herbert C.
Hoover, fyrrv. Bandaríkja-
forseti. Röðin hefur einnig
breytzt.
Hinir 10 vinsælustu 1962
eru:
1. John F. Kennedy, Banda-
ríkjaforseti.
2. Dwight D. Eisenhower,
fyrrv. Bandaríkjaforseti.
3. Sir Winston Churchill.
4. Albert Schweitzer.
5. Herbert C. Hoover, fyrrv.
Bandaríkj af orseti.
6. Douglas MacArthur, hers
höfðingi.
7. Harry S. Truman, fyrrv.
Bandaríkj af orseti.
8. Jóhannes páfi XXIII.
9. Adlai E. Stevenson.
10. Billy Graham.
Hinir 10 vinsælustu 1961
voru:
1. Kennedy.
2. Eisenhower.
3. Churchill.
4. Stevenson.
5. Schweitzer.
6. Truman.
7. Graham.
8. Nixon.
9. Jóhannes páfi.
10. MacArthur.
De Gaulle segir tilboðið
um Polaris krefjast íhugunar
París, 2. jan. (NTB)
DE GAULXiE, Frakklandsforseti
ræddi í dag við fréttamenn í París
Sagði hann, að tiiboð Bandaríkja
manna um að afhenda Frökkum
eldflaugar af gerðinni Polaris,
krefðist nákvæmrar íhugunar.
Sagði forsetinn, þetta mál væri
líks eðlis og þau ir.ái, sem venju-
lega væru rædd af stjórnarerind
rekum í 10 ár.
Ræddi de Gaulle ekki frekar
tilboð Bandaríkjamanna, en sagð
ist ætla að skýra afstöðu sína til
iþess á fundi með fréttamönnum
14. jan. nk.
Sendiiherra Bandaríkjanna í
París Oharles E. Boihlen, kom í
dag til borgarinnar frá Banda-
ríkjunum, en þar ræddi hann við
Kennedy forseta.
Nokkrum klukkustundum eft-
: komuna til Parísar ræddi
Bohlen við utanríkisráðherra
Frakka, Oouve de Murville.
Ræddu þeir tilboð Bandaríkja-
manna um að afhenda Frökkum
Polaris eldflaugar.
Eftir viðræðurnar við de Mur
ville ,sagði Bohlen, að hann
myndi ræða við de Gaulle, Frakk
landsforseta á morgun, ef forset
inn veitti honum áiheyrn.
Bíll hvolfir
Á nýjársdag var sendiferða-
bfll úr Kópavogi á austurleið I
ölfusi. Fernt var í bílnum á leið
til að heimsækja kunningjafól’k
austanfjal'ls. Vildi svo illa tid,
að bíllinn rann á háikumni, fór
út af veginuim og lenti þar á
hvolf. Bíllinn skemmdist tals-
vert, en fóikið slapp ómeitt.
Æðsta manni landbúai-
aðar ■ Sovét vikið frá
Talið, að enn ríki mikill ágreiningur
um framkvœmd þeirra mála
FRÁ því hefur verið skýrt í
Moskvu, að Nikolai G. Inga-
tov, æðsta manni landbúnað-.
armála í Sovétríkjunum, hafi
verið vikið úr starfi. Þykir
sennilegt, að stjórnmálaferill
hans sé nú senn á enda, en
Castro líkir Kennedy
við ræningjaforingja
hann hefur einnig orðið að
segja af sér embætti varafor-
sætisráðherra. Ingatov átti
sæti í æðsta ráðinu þar til í
fyrra.
Þá mun Ingatov einnig
hætta störfum í innkaupastofn
un landbúnaðarins, en þar
hefur hann gegnt æðsta em-
bætti frá því í febrúar 1961.
Sömuleiðis lætur hann nú af
formennskustarfi í 7 manna
landbúnaðarnefnd, sem sett
var á stofn í apríl sl., til að
hafa yfirumsjón með þróun
landbúnaðarmála í Sovétríkj-
Havana, 2. jan (NTB)
FIDEL Castro, forsætisráðherra
Kúbu, sagði í dag í sjónvarps-
ræðu í tilefni afrr.ælis byltingar-
innar, að her eyjarinnar gæti rek
ið af höndum sér 50 innrásar-
sveitir eins og þá, sem gert hefði
innrás á Kúbu 1961. Sagði Castro
í ræðunni, að Kennedy Banda-
ríkjaforseti hefði hagað sér eins
og ruddalegur sjóræningjafor-
það hefur nú sýnt sig, að land
okkar og miðin eru ekki ein-
ungis gjöful, heldur getur hér
líka viðrað betur en annars
staðar. Einnig þessi staðreynd
á að auka á bjartsýni þá, sem
einkennir nú allt íslenzkt
þjóðlíf.
ingi, þegar hann bauð innrásar-
mennina velkomna til Bandaríkj
anna eftir jólin.
Ennfremur minntist Castro
á lausnargjaldið, sem Bandaríkin
greiddu fyrir fangana og sagði
að þetta væri í fyrsta skipti, sem
iheimsvaldasinnar greiddu stríðs
skaðaibætur.
Mikið var um dýrðir í Havana
í dag vegna byltingarafmælisins
og meðal erlendra gesta, sem við
staddir voru hátíðaríiöldin var
sovézki geimfarinn Pavel Popo
'vitsj og var honum ákaft fagnað.
Hersýning var í tilefni afmæl
isins og þau hergögn, sem
mesta athygli vöktu voru tvær
eldflaugar. Auk þeirra voru sýnd
ir skriðdrekar, fallfoyssur og pall
ar undir gagnflaugar allt fram-
leitt í Sovétríkjunum.
Ingatov hefur í staðinn ver-
ið skipaður í embætti, er svar-
ar til embættis þingforseta. Er
hér ekki um að ræða stöðu,
sem mikil völd fylgja, og er
það venjulega talið nokk-
urs konar titilstaða.
Skipun Ingatovs í landbún-
aðarnefndina í fyrra vakti
nokkra furðu erlendra sendi-
manna, og var talið að um
væri að ræða skref í átt til
einingar milli þeirra hópa, er
misjafnar skoðanir hafa haft
á framkvæmd landbúnaðar-
mála.
Tilkynningin um brottvik-
ingu hans nú, fylgdi í kjölfar
tveggja daga umræðna æðstu
manna um fjárlög fyrir árið
1963, og áætlup um efnahags-
mál.