Morgunblaðið - 04.01.1963, Blaðsíða 23
Föstudagur 4. Janóar 1963
MORGVNBLAÐIÐ
23
IMorðmenn skila EBE áliti
varðandi fiskveiðar
Fiskveiðiráðstefnan sennilega 1 byrjun feb.
Briissel, 3. jan. (NTB) —
Norðmenn munu innan skamms
afhenda fulltrúum Evrópu svör
við spurningum, sem ráðherra-
nefnd bandalagsins í Brussel
lagði fyrir þá í haust í sambandi
við fiskveiðar og hinar sérstöku
óskir Norðmanna á því sviði.
Munu svör Norðmanna hafa
borizt EBE áður en fyrirhuguð
fiskveiðiráðstefna bandalagsins
hefst og verða þau lögð fram á
ráðstefnunni. Ekki hefur enn ver
ið ákveðið hvar eða hvenær fisk
veiðiráðstefnan verður haldin, en
talið er að það verði í byrjun
febrúar n.k. Einnig er óákveðið
hvort Norðmenn, Danir og Bretar
fái að hafa áheyrnarfulltrúa á
ráðstefnunni.
Eins og kunnugt er fór Har-
vard Lange utanríkisráðherra
Noregs til Brússel í nóvember sl.
til viðræðna við ráðherranefnd
EBE. Er hann hélt heimleiðis
hafði hann meðferðis spurninga-
lista og varða spurningarnar sér
staikar óskir Norðmanna á ýmsum
sviðum, ef þeir gerast aðilar að
bandalaginu. Síðan hafa norskir
embættismenn unnið að því að
svara þessum spurningum og er
nú nær lokið að svara spurning
um um fiskveiðimál og verða svör
in send EBE innan skamms.
Svör við öðrum spurningum t.d.
um landbúnaðarmál verða ekki
tilbúin fyrr en síðar og verða þau
send EBE jafnóðum.
Harður árekstur strætis-
þarf nú þegar að ráða unglinga eða eldra fólk, til þess að bera Morgun-
blaðið til kaupenda í þessi hverfi íborginni:
í austurbænum
Freyjugötu — Óðinsgötu — Skeggjagötu og Flókagötu —
Laugaveg innanverðann milli 105 og 177 — Laufásveg —
Fjólugötu — Skólavörðustíg.
í úthverfum
Laugarásvegur — Hjallavegur — Ilerskálakampur.
I
í miðbænum
og vesturbænum
Aðalstræti — Hagamelur — Hávallagata.
vagns og olíubifrelðar JHtfttUtnMafrÍfr
TVTvTTD K T3T7»xrc?rnTTr> 1-1 fAllr? PQIYI I I
Sími 22480.
HARÐUR ÁREKSTUR varð kl.
14,12 í gærdag á gatnamótum
Ægisgötu og Öldugötu. í>ar rák
ust saman strætisvagn og olíu-
flutningabifreið.
Strætisvagninum, Sólvellir, var
ekið austur Öldugötu, en olíu
bifreiðin kom norður Ægisgötu.
Á gatnamótunum lenti olíubif
reiðin harkalega á hægra fram-
hjóli strætisvagnsins, sem kast
aðist til við áreksturinn og dró
olíubifreiðina með sér.
Strætisvagninn var fullur af
fólki. Fjórar eldri konur, sem |
sátu framanlega í vagninum,
slösuðust er þær köstuðust til.
Þær voru fluttar í Slysavarðstof I
una, en meiðsli þeirra voru ekki |
alvarleg.
Olíubifreiðin, sem er frá Shell,
skemmdist mjög mikið að fram-
an. Bifreiðin var nýkomin af I
verkstæði og virðist sem hemlar
hennar hafi verið í ólagi, för l
voru aðeins eftir framhjól.
Strætisvagninn skemmdist |
einnig mikið á hliðinni.
Frokkor teijn ekki tímubært
að svara tilboðinu um Polaris
París, 3. janúar (NTB) —
De Gaulle, Frakklandsforseti, hef
ur sent Kennedy, Bandaríkjafor-
seta, orðsendingu vegna tilboðs
hans um að afhenda Frökkum
eldflaugar af gerðinni Polaris. —
Efni orðsendingarinnar hefur
ekki verið kunngjört, en haft er
eftir áreiðanlegum heimiidum,
að de Gaulle hafi hvorki tekið
tilboðinu né neitað því.
Tilboð Bandaríkjamanna um
Polaris-eldflaugar var til um-
ræðu í franska þinginu í dag og
þar sagði Alain Peyrefitte, upp-
íýsingamálaráðherra Frakka, að
franska stjórnin hefði skýrt
stjórn Bandaríkjanna frá því, að
Frakkar myndu halda áfram, að
vinna að kjarnorkurannsóknum
upp á eigin spýtur, og byggja
varnir sínar á eigin kjarnorku-
vopnum.
Teldi franska stjórnin ekki áríð
andi að svara tilboði Bandaríkj-
anna í náinni framtíð.
Sendiherra Frakka í Washing-
ton, Herve Alphand, afhenti
Kennedy Bandaríkjaforseta, orð-
sendingu de Gaulles. Síðár ræddi
hann við Dean Rusk, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og að
þeim viðræðum loknum sagði
hann að tilboð Bandaríkjamanna
um að afhenda Frökkum Polaris
eldflaugar skapaði mjög flókið
vandamál, sem án efa yrði rætt
mikið og lengi bæði £ Paris og
Washington.
opinn
kvöld
helena
finnur
og atlantic
Morgunblaðið s Hafnarfirði
Duglegir krakkar eða -unglingar óskast til
að bera Morgunblaðið til kaupenda í ýms-
um hverfum bæjarins.
Afgr. Hiorgiunblaðsins
Arnarhrauni 14, sími 50374.
Mynda flokkarnir 4, sem
viíja aðskilnað við Dani,
stjórn í Færeyjum?
Einkaskeyti til Mbl. frá Fær-
eyjum 3. jan.
EINS og kunnugt er fóru þing-
kosningar fram í Færeyjum í
nóvember sl., en stjórnarmynd-
un hefur enn ekki tekizt. Flokk-
arnir fjórir, sem vilja aðskilnað
við Dani: Þjóðveldisflokkurinn,
Fólkaflokkurinn, Sjálfstjómar-
flokkurinn og Framfaraflokkur-
inn hafa átt langar viðræður um
stjómarsamstarf og komið sér
saman um stefnuskrá. Eina þrætu
eplið er hver eigi að gegna em-
bætti lögmanns.
Gert er ráð fyrir að í kvöld
verði ljóst hvort samkomulag
næst.
Ef slitnar upp úr viðræðun-
um er gert ráð fyrir að Jafn-
aðarmenn, Þjóðveldisflokkurinn
og Sjálfstjórnarflokkurinn hefji
viðræður um stjórnarmyndiun.
Flokkarnir fjórir, sem rætt
Washington, 3. jan. —
(NTB — AP) —
Sjónvarpsgervihnötturinn
„Telstar“ hætti að að taka á
móti sendingum 23. des. sl. og
er talið að geimgeislar hafi
valdið bilun á honum.
Nú hefur tekizt að gera við
bilunina og í dag tók hnöttur-
inn á móti sendingum og sendi
frá sér aftur.
hafa stjórnarmyndun hafa sam-
tals 15 þingsæti af 29, en Jafn-
aðarmenn, Þjóðveldisflokkurinn
og Sjálfstjórnarflokkurinn hafa
samtals 16 þingmenn.
Á siðasta kjörtimabiili sat sam-
steypustjórn Jafnaðarmanna,
Sambandisflokksins og Sjálfstjórn
arflokksins við völd. - Arge.
Útlánsvextir í
Englandi lækkaðir
London, 3. janúar (NTB) —
Englandsbanki lækkaði í dag út-
lánsvexti úr 414% í 4%. Er þetta
sjötta vaxtalækkunin frá því i
júlí 1961, en þá voru útlánsvextir
7%.
- XXX --
Talsmaður Englandsbanka
sagði, að vaxtalækkunin hefði
verið framkvæmd vegna ástands-
ins í efnahagsmálum landsins og
sagði, að ráðgert væri að lækka
útlánsvexti enn meir innan
skamms.
Brezka stjórnin vonar, að lækk
un útlánsvaxta og lækkun á
söluskatti á ýmsum neyzluvörum
verði til þess að auka eftirspurn
ina. Er þetta liður í baráttunni
gegn auknu atvinnuleysi.
Áttadagsgleðin
STÚDENTARÁÐ Háskóla ís-
lands gekkst fyrir áttadagsgleði
í Háskólabíói á nýársnótt, og fór
fagnaðurinn hið bezta fram líkt
og í fyrra. Þar flutti prófessor
Guðmundur Thoroddsen áramóta
ávarp, Ævar Kvaran og Kristinn
Hallsson sungu glunta. Þá var
fjöldasöngur og dans stiginn til
kl. 4 um morguninn. Lék hljóm
sveit Björns R. Einarssonar fyrir
dansi.
Eyjólfur Jónsson, lögreglumað
ur, sem var við löggæzlu á staðn
um tjáði Mbl. í gær að allt hefði
farið mjög vel fram í Háskóla-
bíói. Gestir hefðu verið um 600
og hann einn við löggæzlu en
allt hefði farið fram snurðu- og
árekstralaust. „Eg tel þessa átta
dagsgleði hafa verið stúdentum
;il mikils sóma“, sagði Eyjólfur.
Freðsíld skipað
út á Akranesi
Akranesi, 3. janúar.
VATNAJ ÖKULL lestar á ann-
að hundrað tonn af ýmsum fisk-
tegundum, kola o. s. frv., á
Bretlands- og Hollands-markaði.
Langjökull lestaði í gær og í
dag á níunda hundrað tonn af
freðsíld. Þar af voru 524 tonn
frá Haraldi Böðvarssyni & Co.
Búið var að hraðfrysta hjá HB
& Co. til áramóta yíir 1700 tonn,
þ e. yfir 17000 tunnur, frá því að
ihaustsíldveiði hófst. — Oddur.
Þessa mynd tók Kristján Sæmundsson á gamlárs kvöld. Var hann með myndavél sína á Austur-
brún. Myndatakan stóð í um 8 min. Myndin var tekin á 21 din filmu með ljósopi 4.