Morgunblaðið - 04.01.1963, Page 22

Morgunblaðið - 04.01.1963, Page 22
22 M ORGXJ y BL AÐIO Fðstudagur 4. Janúar 1963 Þetta er táknræn mynd fyrir Val. Þrír af eldri félögunum í vinnu við hið glæsilega í- þróttasvæði sem stöðugt verð ur fegurra og fullkomnara. Eldri Valsmenn hafa unnið ómetanlegt uppbyggingar- starf — sem unga fólkið nýt- ur. Þessir þrrr eru í hópi þeirra, sem mest hafa unnið: Andreas Bergmann með vik- urplötuna, Sigurður Ólafsson í miðið og Úlfar Þórðarson iæknir, sem stundum er nefnd ur faðir Valsheimilisins. Valur vann vel að uppbyggingu og æskan færði Val marga sigra Frá aðalfundi félagsins ~ Svo sem vitar er var Val skipt AÐALFUNDUR knattspyrnufé- lagsins Vals var haldinn fimmtu- daginn 6. des. sl. í félagsheimil- inu að Hlíðarenda. Formaður fé- lagsins, Sveinn Zöéga, setti fund- inn með stuttu ávarpi, þar sem hann bauð félaga og fulltrúa vel komna. Fundarstjóri var kjörinn í einu hljóði Ægir Ferdínands- son, formaður knattspyrnudeild- ar, og fundarritari Matthías Hjartarson. Að þvi búnu var gengið til dagskrár. Formaðurinn fylgdi skýrslu stjórnarinnar úr hlaði, með ræðu, og skýrði nánar ein- staka liði hennar, en skýrslan var lögð fram fjölrituð. Þá flutti gjaldkeri, Páll Guðnason, yfirlit um fjárhag félagsins og skírði einstaka liði reikninganna. Bar skýrsla gjaldkera með sér að fjárhagurinn hjá Val, eins og öðr um íþróttafélögum, er eitt erfið- asta viðfangsefnið. Þá vorn lesn- ir upp og skírðir reikningar ým- issa nefnda. ★ fþróttahúsið Margar þessarra nefnda hafa unnið mikið og gott starf fyrir félagið á árinu, svo sem eins og íþróttahússnefnd, húsnefnd, vall- arnefnd o. fl. Unnið er að við- bótarbyggingu íþróttahússins og miun þar fást ný búningsherbergi, áhaldageymsla og rúmgott stjórnarherbergi. Þá var hreins- að allt stórgrýti umhverfis í- þróttahúsið og svæðið sléttað og tyrft, sömuleiðis lóðin framan við húsið. Er íþróttahús Vals eitt allra vandaðasta og fullkomnasta íþróttahús landsins. í sal þess voru á árinu settar upp körfur fyrir körfuknattleik og gólfið merkt með tilliti til þess leiks, sem á æ meira fylgi að fagna meðal ungra manna. Örn Clausen Guðrún Erlendsdótti; héraðsdómslögmenn Málflutnirigsskrifstofa Bankastræti 12. Sími 18499. Guðjón Eyjólfsson löggiltur endurskoðandi Hverfisgötu 82 Simi 19658. í deildir fyrir nokkru, þannig eru starfandi nú þrjár deildir í félaginu: knattspyrnudeild, und- ir forystu Ægis Ferdínandssonar, handknattleiksdeild, undir for- ýstu Þórarins Eyþórssonar, og loks skíðadeild, sem lýtur stjórn Sigmundar Tómassonar. Hefur deildaskiptingin gefizt mjög vel og starfsemi deildanna verið yf- irleitt með ágætum. ★ 8 flokkar unnu mót Aðalþjálfari hjá knattspyrnu deildinni á árinu var Óli B. Jónsson. Vann hann mjög gott starf og skilaði aðalliði félagsins (meistaraflokki) í úrslit um ís- landsmeistaratitilinn. Alls urðu 8 flokkar Vals sigurvegarar á ár- inu. 3. fl. og 5. fl. í íslandsmóti, 1. fl., 3. fl. A og 5. fl. C í Reykja- víkurmóti, 1. fl. í Miðsumars- móti og 2. fl. B og 4. fl. A í Haust móti. Auk Óla B. Jónssonar voru þessir menn þjálfarar á árinu: Geir Guðmundsson var með 2. fl., Haukur Gíslason með 3. fl., Sig- urður Ólafsson 4. fl. (inniæfing- ar) og 5. fl. Þórarinn Eyþórsson. Auk þess vann Murdo hinn skozki að þjálfun yngri flokk- anna með aðalþjálfurum þeirra. Þá fór 2. fl. í knattspyrnuför til Danmerkur í boði Lyngby Boldklub, sem var sl. ár í boði Vals. í landsliði og úrvalsliðum átti Valur allmarga leikmenn. Alls sendi Valur á árinu 10 flokka til keppni í hinum ýmsu knatt- spyrnmótum sumarsins. ★ Handknattleikur f handknattleikskeppnina sendi Valur alls 7 flokka. Á ár- inu féll meistaraflokkur karla niður í II. deild eftir úrslitaleik við KR. Hinsvegar stóð meistara- flokkur kvenna sig með ágætum og urðu íslandsmeistarar á ár- inu. Auk þess sigraði flokkurinn í afmælismóti HKRR. í íslands- móti 3. fl. bar flokkur Vals sigur úr bítum við KR eftir snarpan og tvísýnan leik. Þjálfarar hand knattleiksflokkanna voru: Árni Njálsson, kvennaflokkanna, meist ara og annan flokk. Steián Þor- kelsson og Þórarinn Eyþórsson 4. fl., Pétur Antonsson 3. fl. Á árinu fór Þórarinn Eyþórsson ut- an til Danmerkur til að taka þátt í þjálfaranámskeiði þar. Kvennaflokkur frá deildinni tók þátt í keppni í sambandi við þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum. Lék þar tvo leiki og tapaði hvor- ugum. Margir skemmtifundir voru haldnir á árinu. Strákarnir flykktust til stökkkennslunnar SKÓLASTRÁKARNIR létu ekki i standa á sér til skíðastökkkennsl- unnar við Skíðaskálann í gær. Við vöktum athygli á kennslunni þar og þangað komu í gær milli 20 og 30 strákar að sögn Óla gestgjafa í skálanum. — Þeir voru dálítið smeykir fyrst, sagði Óli. En eftir að þeir komust á lagið voru þeir óhemjuspenntir. Á laugardaginn endurlífgar Óli gamlan sið við skálann. Það er blysför skíðamanna. Hún verður kl. 10 um kvöldið. Skíða- mennirnir koma með blys af brekkubrún fyrir ofan skála og mynda ,,1963“ í miðri brekku. Þetta vakti áður mikla athygli. Á sunnudag lýkur skíðakennsl unni og verður þá efnt til skíða- stökksýningar. Er henni svo fyrir komið við skálann að allir geta á horft úr bílum sínum ef vill. Hægt er að stökkva 15—20 metra í brautinni. Er ekki að efa að margir vilja sjá þessa tignarlegu íþrótt sem því miður er alltof lítið iðkuð hér syðra að minnsta kosti. ★ Skíðadeild Samkvæmt skýrslu skíða- deildar, var skálinn mest notað- ur um páskana, svo sem verið hefur undanfarin ár. Efnt var til skíðamóts og allmargra ferða þangað upp eftir. Rædd var nokk ur breyting á skálanum og stækk un, ennfremur að nota hann meira á sumrin en gert hefur verið, m.a. að fara þangað með yngri flokka félagsins til helgar- dvalar og nota þá tímann til æf- inga og gönguferða um nærliggj- andi fjöll. Umræður urðu miklar um skýrslu stjórnarinnar og félags- málin almennt. Samþykktar voru ýmsar tillögur, sem snerta starf- semi félagsins inn á við og munu verða því til eflingar og styrktar er fram í sækir. Á fundinum afhenti Árnl Njálsson f. h. íslandsmeistara Vals í handknattleik, félaginu glæsilega mynd af flokknum. ★ Stjórnarkjör Aðalstjórn félagsins fyrir næsta ár er þannig skipuð: For- maður: Páll Guðnason, með- stjórnendur: Gunnar Vagnsson, Einar Björnsson, Geir Guðmunda son og Ormar Skeggjason. í vara stjórn voru kjörnir Haukur Gísla son og Sigurbjörn Valdimarsson. Sveinn Zoéga, sem verið hefur formaður Vals nú um árabil, ósk- aði eindregið eftir því að verða leystur frá störfum að sinni. — Voru Sveini þökkuð margþætt störf fyrir félagið um áratugi. Fundurinn var fjölmennur og ríkti mikill áhugi um félagsstarf- ið almennt og framgang málefna Vals. 4 ára íslenzkur snáði vekur athygli á skíðum LITILL íslenzkur drengur hefur vakið athygli fyrir skíðaáhuga og skíðahæfileika vestur í Bandaríkjunum. Enn- þá stafar athyglin sem að hon um beinist meira að því hve ungur hann er, en eigi að síð- ur hefur hann náð valdi á skíðarennsli, sem reynast mörgum helmingi eldri drengj um erfið. Þessi drengur er að- eins 4 ára og heitir Gunnar og er sonur Dóru og Eysteins Þórðarsonar. Eysteinn var um langt skeið bezti skíðamaður ís- lands og fjölreyndur í keppni erlendis. Var hann tvívegis á Ólympíuleikum fyrir ísland og gat sér auk þess góðan orð- stír á öðrum alþjóðamótum, auk þess sem hann var marg- faldur íslandsmeistari. Við rákumst á þessa mynd af Gunnari syni hans í banda- rísku blaði frá 13. des. sl. Þar er haft eftir föður Gunnars að erfiðast sé að hann geti ekki stærðar sinnar vegna farið í lyftu nema með öðr- um. En fái hann að „sitja í“, klifrar hann upp neðstu brekk urnar, setur á sig skíðin og brunar niður af ótrúlegu þori og öryggi. Hann er aldrei Gunnar Eysteinsson hræddur við hraðann og fer gjarna beint af augum. Eysteinn segir blaðamann- inum svo frá, að þetta sé rétti aldurinn til að nema skíða- íþróttina. Börnin eru ekki hrædd og virðast læra hraðar en fullorðnir. Sjálfur segist Eysteinn hafa byrjað álíka snemma, en allur tími farið í skíðastökk. Eysteinn byrjaði ekki að þjálfa undir keppni fyrr en 15 ára og segir það of seint. Blaðið endar grein sína með því að segja að Gunnar geti ekki næstu 1—2 árin keppt á skíðum, en það muni sennilega óhætt að muna nafnið Gunnar Thordarson — því muni aftur skjóta upp 1 heimi skíðamanna. Nokkrir Ólympíusigrar ættu að geta orðið honum mögulegir. Eysteinn er nú skíðakenn- ari í Heavenly Valley um helgar, en hann gefur sér tíma til að þjálfa son sinn. „Ég vildi byrja að kenna hon- um á skíðum samtímis því sem hann lærði að ganga“, sagði Eysteinn blaðamannin- um, sem bætir því við, að það hafi tekizt, og að það séu ekki allir litlir synir sem hafi Ólympíukeppanda sem kenn- ara. Blysför og stökk sýning á skíðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.