Morgunblaðið - 11.01.1963, Side 1

Morgunblaðið - 11.01.1963, Side 1
24 sidur 50. árgangur 8. tbl. — Föstudagur 11. janúar 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsíns lATA-fundinum lokið: ælti meö fargjöldum til að keppa við Loftleiðir París, 10 jan. — Einkaskeyti til Mbl. frá E. Pá og AP. FTTNDI Alþjóðasamba-itLs flugfélaga, IAXA, lauk í París í nótt, og var fréttatilkynning um niðurstóður fundarins gefin út í morgun. Far segir m. a. að fulltrúar 16 flugfélaga hafi mælt samhljóða með því að SAS fái að hefja flugferðir yfir Norður Atlanthaf með flug- vélum af gerðinni DC—7C með lækkuðum fargjöldum í sam- keppni við Loftleiðir. Tillaga þess efnis verður nú lögð fyrir öll aðildarfélög IATA, sem eru um 90, og á atkvæðagreiðslu um til- löguna að vera lokið 31. þessa mánaðar. Samþykkt var að birta ekki tillögur fundarins fyr en atkvæða- greiðslu væri lokið, en ef tillagan um lækkuð fargjöld SAS á að ná fram að ganga þarf til samþykki allra aðildarfélaga IATA, og auk þess samþykki viðkomandi ríkisstjórna. Parísarfundurinn stóð í þrjá daga, en til hans var boðað sam- kvæmt sérstakri ósk SAS að sögn AP fréttastofunnar (þótt tals- maður SAS beri á móti því í viðtali við fréttamann Mbl., Elínu Pálmadóttur, sem birtist á öðrum stað hér í blaðinu). í tilefni þess að fundi IATA er þó verið einróma samþykkt að kkuðum lokið, var boðað til blaðamanna- fundar í París í dag, og mætti þar Don Reynolds, einn af aðstoðar framikvæmdastjórum IATA. Reynolds varðist allra frétta um viðræðumar, en sagði að flest aðildarfélaganna mundu greiða atkvæði um fargjalda- lækkunina með bréfum eða sím- skeytum til skrifstofu IATA í New York. Sagði hann að skipt- ar skoðanir hafi verið um ósk SAS um fargjaldalækkun, en eftir þriggja daga umræður hafi Verkfalli fiski- manna 1 Noregi lokið Osló, 9. jan. (NTB). f DAG lauk verkfalli sjómanna á fiskiskipum í Noregi, eftir að samningar höfðu náðst miili sjó- mannafélaganna og ríkisins. Þessir samningar gilda þó aðeins til 1. maí n.k., en þangað til verður unnið að endanlegum samningum og þau kjör, sem þá verður samið um, fá sjómenn frá og með 1. jan. s.L, en þá hófst verkfallið. I’etta er fyrsta allsherjarverk- fall fiskimanna, sem skollið hefur á í Noregi. Tóku þátt í því 28 þús. félagsbundnir fiskimenn og nutu þeir stuðning þúsunda ófé- lagsbundinna fiskimanna. mæla með henni. Reynolds kvaðst ekkert vita um Loftleiðamálið. Aðspurður hvort óskað hafi verið eftir því að Loftleiðir gengju í IATA, svar aði hann að allir meðlimir Al- þjóðaflugmálastofunar Samein- uðu þjóðanna hefðu rétt á inn- töku í IATA, og æskilegt væri að allir gerðust aðilar. Ekki sagðist Reynolds vita til þess að SAS eða önnur félög hefðu hótað að segja sig úr IATA, ef fargjaldalækk- unin fæst ekki staðfest. NTB fréttastofan norska skýr- ir frá því að ólíklegt sé að nokk- urt aðildarfélag IATA greiði at kvæði gegn samþykkt Parísar- fundarins varðandi fargjalda- lækkun með öðrum flugvélum en þotum, þar sem eitt einasta mót atkvæði nægir til að koma af stað fargjaldastríði. Telur frétta- stofan að SAS . 1.1 upp sömu far gjöld og Loftleiðir, sem eru 20—30% lægri en fargjöld IATA. greiða atkvæði um fargjaldahækk Tshombe forseti Katanga sést hann gangandi ú leið til kom til EÍisabethviIle frá forsetabústaðarins, umkringd Kolwesi s.l. þriðjudag. Hér ur lögregluvörðum. Bretar vilja taka upp Loft- leiðagjöld yfir Atlantshaf París, 10. jan. Frá E. Pá. STÓRBLAÐIÐ Le Monde segir frá því í dag, að BOAC hafi mikinn áfhuga á fargjaldaumræð unum hjá IATA og eina flugfé- lagið, sem ekki hafi verið á móti ósk SAS um lækkuð far- gjöld. Hafi félagið verið fylgj- andi kröfu SAS frá upphafi. Á- hugi þeirra sprettur af farþega- Tshombe í fylkingarbrjdsti fyrir herliði SÞ Fyrirskipar mönnum sínum að hætta að skjóta Elisabethville og New York, 10. jan. (NTB). MOISE Tshombe forseti Katanga hefur lýst því yfir að hann sé fallinn frá eyðileggingarstefnu sinni og muni á allan hátt að- stoða Sameinuðu þjóðirnar við að koma á friði í héraðinu. Fór Tshombe í dag ásamt foringjum úr liði SÞ og lögreglumönnum Kongóstjórnar til borgarinnar Sakania við landamæri Rhodesíu, og skoraði á þá Katangamenn, sem á leið þeirra voru, að skjóta Fjöldi húsdýra frýs í hel London, 10, jan. (NTB). ÁFRAMHALDANDI kuldar eru um alla Evrópu, og veðurspáin í dag gefur enga von um batn- andi veður. Ekki bætir það úr skák í Suðvestur Englandi, að þar komst vindhraðinn í dag upp í llo kílómetra á klukku- stund. Frá Dartmoor háslétt- unni í Devonshire bárust þær fregnir í dag að þar hefðu um 200 fjár verið grafin helfrosin úr fönn, og er óttazt að fjöldi annarra dýra hafi hlotið sömu örlög. Dokið er við að ryðja flesta vegl í Bretlandi, en nokkrir veg- ir í Hálöndunum og í afskekkt- um sveitum eru enn ófærir. Sjórinn umhverfis Danmörku er ísi lagður og hafa ísibrjótar ekki undan að halda opnum sigl- ingaleiðum. Mikill fjöldi sjó- fugla hefur farizt í ísnum, og í dag voru sendar flugvélar með mat handa fuglum á Limafirði við Danmörku og við Hollands- strendur. í Hollandi er verkfræðinga- deild hersins reiðubúin að sprengja ís, sem safnazt hefur við brúna yfir Haringvliet-fló- ann við ósa Maasfljótsins. Brú þessi er 450 metra löng, og er óttazt að ísinn geti valdið skemmdum á henni. Við strend- ur Hollands er sjór allur ísi- lagður, Og erfitt að koma vist- um til eygjaskeggja, sem þar búa. í frétt frá Austur Þýzkalandi segir að snjór hafi fallið í Thúr- ingen úr alheiðum himni. Þetta er mjög sjaldgæft fyrirbrigði, en orsakast af því að rakinn í loftinu frýs og verður að ísnál- um án þess að ský myndist. ekki á hermenn SÞ. Meðan á þessu gekk í Kat- anga, tilkynnti stjórn Adoula í Leopoldville að hún hafi óskað eftir því að stjórnir Bretlands og Belgíu kölluðu heim ræðismenn sína í Elisabethville. En ræðis- menn þessir beittu sér mjög fyrir því að Tshombe kæmi til höfuð- borgarinnar frá aðalstöðvum sín- um í Kolwesi, og tæki upp samn- inga um sameiningu Katanga og Kongó. Á svæðinu umhverfis Sakania eru um 3.000 Katangahermenn. Er vonazt til að þeir leggi niður vopn samkvæmt áskorun Tshom bes, og að SÞ taki borgina mót- spyrnulaust í kvöld. Gætu þá við- ræður Tshombe við Kongóstjórn um sameingu landsins hafizt um helgina. Hersveitir úr liði SÞ fylgdu Tshombe eftir á ferð hans til Sakania í dag, og náðu borg- inni Mokambo, sem er mikil um- ferðamiðstöð um 175 km. frá Elisabethville, á sitt vald árekstra laust. í frönskum fréttum segir að yfirmaður hers Katanga, Kiemba ofursti hafi gefið sig á vald her- liðs SÞ. Ekki fylgir það fréttinni hvar þetta átti sér stað, en ef rétt reynist, mun hann fljótlega verða fluttur til Elisabethville. BRETAR MÓTMÆLA Justin Bomboko forseti Kongó skýrði frá því á fundi með frétta mönnum í dag að hann hefði óskað eftir því að stjórnir Bret- lands og Belgíu kölluðu heim ræðismenn sina í Elisabethville. Framh. á bls. 23 flutningum félagsins með Brit- annia skrúfuþotum yfir Atlants- haf. D’Esclercs, blaðafulltrúi BOAC, sagði að þeir hefðu und- anfarin sex ár haft Britannia- vélar í ferðum yfir Atlantshafið á 30 dollurum lægra fargjaldi en með þotum. Hann sagði að ekiki væri mikill áhugi á' meginlandinu á þetta lítið ódýrari fargjöldium, en fédag ið hefur á sumrin þrjár ferðir daglega með Boeing þotuim og eina með Britannia skrúfuþot- um. D’Esclers sagði, að ef nú yrðu lækkuð fargjöld með DC- 7C vélum „væri það bara gott fyrir okkur,“ því þá lœkkaði BOAC fargjöld með Britannia vélum niður í sama verð ag á- kveðið yrði með DC-7C. Þá yrði munurinn á fangjölduim BOAC með þotum og skrúifuiþotum meiri og mundi þá eftirspurain að Ilkindium aukast. AUGLÝSING FYRIR LOFTLEIÐIR. í gær birtist löng og mjög vinsamileg grein í Le Monde um Loftleiðir og allt málið, eftir fréttamann blaðsins í Kaup- mannaköfn, og þar er rakið al'lt sem fram hefur komið áður í Mongunblaðinu, ummæli Nilerts, framkvæmdastjóra SAS, og Sir Williams, framkvæmdastjóra IATA. Kemur þar fram, að ís- lenzfcu flugfélögin hafa 20—30% lægri fargjöld en stóru flugfélög in. Er greinin ölil afar mikil auglýsing fyrir Loftleiðir, sem er ekki mjög þekkt hér á megin landinu. Svo mikil leynd hefur hvflf yfir fundi IATA hér í París, að talsmenn samtakanna neituðu jafnvel að gefa fréttastofu Reut ens upplýsingar um það í dag, hvort fundinum væri lokið, tveimum tímum eftir að tilkynn- inig hafði verið birt um það. Á blaðamannafundinum í morg- un í sambandi við fundalokin, vissi meira að segja enginn um það, að Nilert, framkvæmda- stjóri SAS, hefði komið til París-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.