Morgunblaðið - 11.01.1963, Síða 6

Morgunblaðið - 11.01.1963, Síða 6
0 MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 11. janúar 1963 G. Br. skrifar: Áramútabréf Aukin framleiðsla — IVfeiri samgongubætur — Byggingar og bjartsýni ÞAÐ ER með öllu tilgangs- laust að fara að rekja hér í smá- atriðum annál ársins 1962. Árið um kring bera blöð og útvarp daglega fréttir af atburðunum jafnóðum og þeir gerast. í heild má segja, að þetta ný- liðna ár hafi verið frekar erfitt tovað tíðarfarið snertir. Veturinn frá áramótum var frekar rysjótt- ur og gjafafrekur, vorið kalt, gróður kom seint og þurfti að hafa fé á húsi fram á sauðburð. Hey gáfust upp og fyrningar eng- ar. Grasinu gekk illa að spretta, 'því að aldrei kom verulegur blý- indakafli, svo að sláttur hófst með seinna móti. Heyskapartíðin var góð og nýting ágæt. Heyfengur- inn varð þvi i minna lagi, en 'heyin munu reynast vel. Haustið var slæmt og veturnáttabylurinn mun lengi í minnum hafður, sem eitt hið versta veður, sem komið hefur á þeim árstíma. Ekki gerði hann þó teljandi skaða og minni en út leit fyrir í bili. Mjög fáir munu hafa sett á nokkuð að ráði af lömbum, enda er kúnum alltaf að fjölga og það ört. Dilkar reyndust ca 1 kg léttari heldur en í fyrra. Verður það tilfinnan- leg tekjurýrnun fyrir fjáreigend- ur. Og nú bætast við kaup á fóð- urbæti vegna minni heyfengs. Samt virðast menn yfirleitt bjart sýnir á framtíðina og margir standa í stórframkvæmdum við byggingar á hlöðum, fjósum og öðrum útihúsum, enda er á því mikil þörf með vaxandi mjólkur framleiðslu. Annirnar í sveitinni „Ekki hélt ég það væri svona mikið að gera á jólunum í sveit- inni“, sagði ungur drengur úr Reykjavík, sem var hér á næsta bæ yfir hátíðarnar. Hann hafði ekki gert sér grein fyrir því fyrr, að það þarf að gegna skepnunum mjólka o.s.frv. hvaða dag sem er. Þar kemur hvorki frí eða frest ur til greina. En það er engu líkara en þetta hafi einnig vafizt fyrir hinum fullorðnu. A.m.k. er það svo, að ekki er tekið tillit til allrar þess arar óumflýjanlegu helgidags- vinnu bóndans, þegar honum er skammtað kaupið i verðlagning- unni f>á er honum ætlað sama kaup og meðaltekjur vinnandi stétta við sjóinn, og enda þótt margur vinni þar eftirvinnu, eru þau störf aldrei jafn samfelld og bindandi eins og sveitavinnan hlýtur, eðli sínu samkvæmt, að vera árið um kring. Þetta er ein af ástæðunum — ein aðalástæðan fyrir hinni öru fólksfækkun í sveitunum, bæði hér á landi og annars staðar Þessu verður vart breytt nema með stækkun búanna, að þau stækki það mikið, að þau beri 2—3 menn í stað einyrkjaná. Brýnasta viðfangsefni landbún- aðarins, eins og nú horfir, er á- reiðanlega þetta: að finna færar leiðir til að hamla gegn þeim ó- kostum, því erfiði, þeirri áhættu, sem einyrkjabúskapnum hlýtur alltaf að fylgja, hversu góður, sem vélakosturinn er, og hversu vel sem bóndinn er búinn á hinu tæknilega sviði. En hér er við ramman reip að draga, sem er einstaklingshyggja íslenzka bónd ans, sjálfstæðisþrá hans og frels isást, eins og hún hefur þróazt í landinu í þúsund ár. „ jf Framfarir í samgöngumálum Þegar kjördæmabreytingin síð asta var að komast á, fundu and- stæðingarnir henni margt til for áttu. M.a. þetta: litlu kjördæmin verða harðast úti. Afskekktu og fámennu sveitirnar verða van- ræktar og þær verða hafðar út undan í framlögum til samgöngu mála o.s.frv. — Nú er senn liðið fyrsta kjörtímabilið eftir kjör- „H. J.“ sendir Velvakanda þetta bréf, og þótt um 20 eldri bréf bíði birtingar, þá þykir Velvakanda þetta bréf eiga rétt á skjótri birtingu. Bréfið er svohljóðandi: „Velvakandi! Mig langar til að koma á framfæri því, sem ég sá og heyrði, en á bágt með að trúa. Eg beið eitt kvöld vestur á Nesi eftir strætisvagni í nánd við KR-skálann. Þetta sama kvöld hafði verið handknatt- leiksæfing fyrir stúlkur í skál anum, og þaðan komu þrjár stúlkur saman, allar reykjandi og á aldrinum 12 — 13 ára. Ræddu þær um það sín í milli hvernig þær ættu að fela síga- retturnar á sem beztan hátt fyr ir mömmu, þegar heim kæmi, svo að hún (mamma) fyndi þær ekki. Þetta mál eins og önnur var rætt svo hátt, að nær staddir vagnfarþegar heyrðu hvert orð. Eitt kvöldið brá ég mér á skauta niður á Tjörn, og þar sótti í sama horfið um reyking ar, nema hvað veitingar voru hvað fullkomnari þar. Einn piltanna, sem dansaði um svell- ið á skautum sínum, hafði með sér brennivínsflösku og var sá óspar á veitingar. Sá ég, að þax drukku bæði stúlkur og piltar. Þekkti ég þar eitt par, sem ég sá, að neyttu þess, er boðið var, dæmabreytinguna og sem betur fer hafa þessar hrakspár ekki rætzt frekar en aðrar. Vestur- Skaftafellssýsla var eitt af minnstu kjördæmunum áður fyrr. Sarnt hefur hér fyllilega verið haldið í horfi með framlög til samgöngubóta miðað við það, sem áður var og vel það. Á sl. ári var byggð ein stórbrú í héraðinu. Kom hún í stað gömlu brúarinnar á Klifanda, sem mjög var farin að léta á sjá, enda næstum 30 ára gömul. Sú hrú var mikið átak á sínum tíma og ómetanleg samgöngubót fyrir Mýrdalinn og raunar sýsl- una alla, þar sem með henni opnaðist samgönguæðin til Suð- urlandsundiriendisins. Þá var ánum Hafursá og Klifanda veitt saman og þær brúaðar báðar á einum stað. Nýja brúin á Klif- anda er 104 m löng á 9 steinstöpl um. Bitarnir eru úr strengja- steypu, 5 tonn á þyngd, fluttir á dráttarvagni sunnan úr Reykja- vík. Yfirsmiður við brúarsmíðina var Valmundur Björnsson í Vík í Mýrdal. Þegar Klifandabrúnni var lokið, var byggð ný brú yfir Skógá ,en hún hefur ekki verið tekin í notkun ennþá. Önnur mikil bót í samgöngu- málum Vestur-Skaftfellinga á sl. ári, var vegagerð á Mýrdals- sandi. Er þar með lokið við að gera upphleyptan veg yfir sand- inn. Nýi kaflinn nær frá Múla- kvíslarbrú 8 km austur á sand- inn. Á honum eru tvær brýr sem gerðar eru upp úr gömlu Klif- andabrúnni. Með þessu er mikils- verðum áfanga náð í vegakerfi sýslunnar, því þegar snjór hefur en bæði hafa í minni áheyrn fordæmt í heimahúsum þegar foreldrar hlustuðu á, áfengis- neyzlu jafnaldra. Mér er spúrn: Eru börn og unglingar að fara út á kvöldin til þess að komast undan pabba og mömmu undir yfii«skini handboltaæfinga og skauta- hlaups til að neyta áfengis og „gera ýmislegt fleira?“ Velvakandi getur tekið und- ir þessi orð að nokkru leyti. Hann man sína eigin æsku að vísu, og hann heldur, að reyk- ingar unglinga sé ekkert nýtt fyrirbæri. Það var sitt hvað gert undir bátum við Hringbraut í gamla daga og úti í Eyju (Effersey eða Örfirisey, eins og hún heitir víst á tungu mál- hreinsunarmanna að norðan, sem aldrei hafa eyjuna séð). Reykingar unglinga hafa allt af verið vandamál. En eru þær vandamál? Eftirfarandi bréf hefur Vel- vakanda borizt: „Kæri Velvakandi! Eftir að Menntaskólapiltar sýndu þá framtakssemi sl. vet- ur að láta Skugga-Svein bera raunverulegan atgeir í stað hins hvimleiða ’ bryntrölls, sem Skuggi hafði ranglega verið lát inn burðast með í heila öld, var ég farinn að vona, að nokk ur bið yrði á því, að sjálf sögu lagzt á Mýrdalssand hefur hann verið hinn versti farartálmi, þótt jafnan hafi verið brotizt yfir hann, síðan byrjað var á mjólk- urílutningunum vestur í Flóabú. ★ Endurbygging Hólmsárbrúar Þeir, sem farið hafa í stórum rútubílum austur áSíðu, þekkja vel erfiðleikana á því að koma slíkum farartækjum yfir Hólms- árbrú, og stærstu rúturnar kom- ast það alls ekki. Brúin yfir Arekstur á Andakíls- Akranesi, 9. janúar. ÁREKSTUR varð í gær umí miðjan dag. Fólksbíllinn E- 337 á uppeftirleið var að kom- ast hér um bil yfir Andakíls- árbrú og lenti þá á jeppa á á brúnni. Meðan sýslumaður var sótt- ur til Borgarness til þess að mæla, stöðvaðist öll umferð um veginn. Tveir voru í jeppanum og annar þeirra hentist á fram-j rúðuna. Ekki urðu meiðsli. 7 Ökumaðurinn var einn íj fólksbílnum, sem skemmdistt þannig, að bæði frambrettiní eru ónýt, vélarhlífin, högg-/ vörnin, krómhlífin og vatns-J kassinn talið ónýtt. 1 — Oddur. \ þjóðin ruglaði saman þessum geróliku vopnum. En því var nú ekki að heilsa, ef dæma skal eftir þeirri mynd, sem birtist í Mbl. í morgun (8. jan.) af Skugga-Sveini þeirra Keflvíkinga á þrettándabrenn- unnni. Bar hann þar samskonar bryntröll og Þjóðleikshúsið fékk Jóni Sigurbjörnssyni í hendur s.l. vetur, í þeirri trú, að þar væri um atgeirinn hans Gunn- ars frá Hlíðarenda að ræða. Þar sem ég hefi fyrir nokkru skrifað tvær blaðagreinar um þennan rótgróna vopnarugling (í Vísi 18. maí og 30. des. 1961), læt ég mér nægja að visa til þeirrra, ef einhver vildi kynna sér þetfca mál nánar. Til flýtis- auka vil ég þó benda mönnum á að fletta ísl. spilunum hans Tryggva heitins Magnússonar og líta gaumgæfulega á vopn það, sem bígulkóngurinn (Gunn ar Hámundarson) heldur á .Það er nefnilega sjálfur atgeirinn, þótt fjöðrin sé kannski í styttra lagi vegna rúmleysis á spilinu. Vilji menn hins vegar sjá verulega góða mynd af at- geir, er hendi næst að leita í fornmannakortunum gömlu og virða fyrir sér myndina af Gunnari, þar sem hann snýr aftur og mælir hin ódauðlegu orð: „Fögur er hlíðin o.s.frv.", (Væri gaman að fá birt mynda- mót af þeirri mynd með þessu Hólmsá var byggð skömmu eft- ir síðasta Kötlugos, svo enginn furða er, þótt hún svari ekki þörfum okkar stóru nútíma far- artækja. Veldur þetta miklum örðugleikum og óþægindum fyrir farþegaflutninga austur á Síðu. Nýr sérleyfishafi, Steinþór Jó- hannesson, tók við þessum flutn ingum nú um áramótin, eftir að Kaupfélag Skaftfellinga sleppti ■þeim að eigin ósk. Steinþór hef- ur tekið í notkun stóran, nýtízku áætlunarbíl, sem mikil þörf var orðin fyrir, en hann kemur ekki að fullum notum á þessari leið vegna brúarinnar á Hólmsá. í Vík verður að skipta um farar- tæki og notast við gömlu bílana austur yfir Mýrdalssand. Við þetta verður ekki unað til lengdar, því að þó að vel hafi verið unnið í samgöngumálum sýslunnar undanfarið, ekki sízt á sl. ári eins og fyrr er sagt, þá er nú stórt átak ennþá framund- an, þar sem er ný brú á Hólmsá. Er von til þess að hún verði byggð á þessu ári. Macmillan til Italíu 1. febrúar London, 9. jan. (NTB—AP). MACMILXAN forsætisráðherra Breta fer í opinbera heimsókn til Italíu 1. febrúar n.k. Með Macmillan verða í förinni marg- ir helztu ráðgjafar hans. Macmillan mun ræða við Amintore Fanfani, forsætisráð- herra Ítalíu, um Efnahagsbanda lag Evrópu, Atlantshafsbandalag ið og ýmis alþjóðamál. Gunnar á Hlíðarenda með at- geir sinn. pári, ef unnt er.) Með öðrum orðum, þá var atgeirinn höggspjót (rammgjört lensulagað spjót) með svo langri og breiðri fjöður, að hann líktist einna helzt sverði á löngu skapti og var því allt í senn: höggvopn, lagvopn og skotvopn. Bryntröllið var á hinn bóginn nokkurs konar stríðsöxi, þ.e.a.s. öxi á háu skapti með spjóts- oddi og íbjúgum broddi aftur úr skallanum sbr. bryntröllið hans Ingólfs Arnarsonar á Arn- arhóli — eða jafnvel öðru axar- blaði í stað broddsins. Með þökk fyrir birtinguna. Jóhann Bernhard. Það er hárrétt hjá Jólhanni Bernhardi, að þessi ruglingur á atgeiri og bryntrölli (hellebard) er næsta hvimleiður. Gegnir það eiginlega furðu, að þessi hug- takaruglingur skuli hafa kom- izt á, eins og íslendingar eru annars smásmyglislegir og ná- kvsemir í fornfræðigrúski sínu. Nú hefur Jóhann Bernhard þrí- vegis skýrt frá hinni réttu merk ingu orðsins „atgeir“ i dag- blöðum og rökstutt það ljós- um dæmum, svo að í framtíð- inni hafa þeir, sem færa upp leikrit, enga afsökun, ef þeir rugla saman tveimur ólikum vopnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.