Morgunblaðið - 11.01.1963, Síða 15

Morgunblaðið - 11.01.1963, Síða 15
Fostudagur 11. Januar 1963 MORGUNBLZÐIÐ^ TS - SÍLDIN Framhald aí bls. M. 32 faðma. Það hafa áreiðan- lega verið nokkrir skipsfarm- ar í henni. Þessi torfa, sem við lóðum nú á, er á um 30 föðmum, kemst þar sem bezt er upp á 29, en það naegir ekki svo hún fær að lifa, þótt enn hefði verið hægt að bæta nokkur hundruð tunnúm á Halldór Jónsson. Sólarhring eftir að við lögðum að heiman frá Reykja vík erum við búnir að fá 1300 tunnur um borð þótt það síð- asta væri fengið 10 tíma sigl- ingu frá Reykjavík. Ellefu menn eru á og svo við Morg- g unblaðsmennimir. Það eru 100 tunnur á mann. Leifur „meldar" til Fann- eyjar aflamagnið. — 1300 tunnur, takk, svar- ar skipstjórinn á Fanneyju og það var eins og viðurkenn- ingar og ánægjuhreimur í rödd hans. Á heimleiðinni er lítið sof- ið. Það er yndislega fallegt veður. Við erum að skoða vitaljósin og taka tímann á blikkum þeirra. Á milli heyr- um við að skipin eru að melda. Björn Jónsson 1400 tunnur, Guðmundur Þórðar- son 1000, Steinunn 600 og svona heldur þetta áfram. Leifur hefur krotað á kortið þar sem við fengum síðustu síldina. Það er 20,57 v.l. og 63,35 n. br. Þrír bræður skipstjórar hjá föður sínum. Eg rabba við karlana. Fregna ýmislegt um þetta skip og útgerð þess. Þeir eru tveir bræður Leifs, sem stjóma öðrum skipum.föður síns. Elztur þeirra er Jón- steinn 37 ára og er með Jón Jónsson. Næstur er Krist- mundur 35 ára með Stein- unni. Svo kemur Leifur að- eins 28 ára. Hann segist vera nýliði sem skipstjórL Hafði lært vélstjórn áður og verið ýmist vélstjóri eða háseti á skipum föður síns. Tók við Halldóri Jónssyni í ágúst í sumar og kunni þá lítið til síldveiða. En þetta hefir geng ið vel hjá honum síðan. Fjórða bróðurinn eiga þeir skipstjórarnir en hann er enn ekki nema 16 ára. — Kannski verður hann kom- inn með fjórða fjölskyldubát- inn eftir svo sem 5 ár. Það djarfar fyrir nýjum morgni er við siglum inn Fló- ann. Við sjáum morgunbjarm ann milli skýja og Reykja- nessfjallgsirðar og uppi yfir Reykjavík er eins og ofurlítil glóð sem stafar af endurkasti ljósadýrðar höfuðborgarinn- ar. Aldrei hef ég siglt inn sundin í jafnfögru veðri. Þegar búið var að reiða fram ágætan morguhverð, sem samanstóð af afgöngun- um frá í gær og rjómaþeyttu skyri voru menn ræstir upp til að landa, því nú erum við að koma inn í höfnina. Að síðustu þakka ég skip- stjóra og áhöfn Halldórs Jóns sonar fyrir ánægjuleg dægur. Vdð vorum heppnir með veð- ur, urðum ekkert sjóveikir, fengum næga síld og komum heilir heim, nema hvað Sveinn Þormóðsson „sló úr sér kalfakt“, er hann datt í stýrishússstiganum í ákafan- um við myndatökuna. Skipshöfnin á Halldóri Jónssyni er: Leifur Halldórs- son skipstjóri, Tryggvi Val- steinsson stýxdmaður, Rand- ver Alfonsson 1. vélstjóri, Þórður Þórðarson 2. vélstjóri, Guðni Sumarliðason mat- sveinn og hásetarnir Finn Gærdbo, Jóhannes Björnsson, Steinn Randversson, Örn Ing- ólfsson, Kristinn Þorgrímsson og Magnús Guðmundsson. Við sendum ykkur öllum beztu kveðjur, drengir. • Það Ijómaði slkær stjarna á austurfhimninum, þegar við komum inn í höfnina. Borg- in glitraði í ljósadýrð og at- hafnahljómurinn lét eins og sinfónía í eyrum er við stig- um á land. — vig. 88. þing USA sett Washington 9. jan. (NTB-AP). 88. ÞING Bandaríkjanna var Bett í dag í Washington. Lyndon Johnson, varaforseti Bandaríkj- anna, setti fund öldungadeildar- innar, en þingritari setti fund fulltrúadeildarinnar, þar sem þingforseti hefur ekki verið kos- inn. Það, sem mestu máli skiptir i þingbyrjun, er val fulltrúa í alsherjarnefnd fulltrúadeildarinn ar, en sú nefnd getur ráðið miklu um það hvernig viðtökur þær tillögur fá, sem Kennedy, Banda- ríkjaforseti, leggur fyrir deild- ina. Gagnfræðaskóla- stúlkur skipa út freðsíld Akranesi, 9. janúar. INÚ ERU þeir farnir að sækja BÍldina langt. í nótt voru þeir að veiðum 8 sjómilur vestur af Vestmannaeyjum, 12 klst. sigl- togu héðan. Sjómenn segja síldina ágæta. Svona er síldin á hraðri ferð, Ikomin til Eyja. Margir bótar halda sjó með slatta um borð og veiða til viðbótar. Óslitið síðan á Þorláksmessu, 23. des., eða í rúman hálfan mán- uð, hefur öndvegisblíða haldist hér dag eftir dag, svo að elztu menn muna vart annað eins góð- viðri á þessum tima árs. 80 stúlkur úr gagnfræðaskólan- ttm hér unnu í gær við útskipun Ú freðsíld í m.s. Burgund til kl, 3ð i nótt — Oddur. Tösku-útsala Allskonar töskur, flestar með gjafverði. — Aðeins nokkra daga. — Komið meðan úrvalið er mest. TÖSK UBUÐIN Laugavegi 21. Vil kaupa SUMARBIJSTAÐ á góðum stað. — Upplýsingar sendist afgr. Mbl. fyrir 15. janúar, merkt: „Sumarbústaður — 3826“. Afgreiðslumaður Ungur, reglusamur afgreiðslumaður óskast strax til afgreiðslu í véla- og verkfæraverzlun. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 16. þ.m., merkt: — „Afgreiðslustarf Nr. 1382 — 3793“. Skrifstofuhúsnæði til leigu í Miðbænum er til leigu gott skrifstofuhúsnæði. — Laust til afnota nú þegar. Upplýsingar í símum 14689 og 12831. G A B O O IV — fyrirliggjandi Stærðir: 4x8 fet. — Þykktir: 16 og 19 mm. Sendum gegn póstkröfu um allt land. KRISTÁN SIGGEIRSSON H.F, Laugavegi 13. — Sími 13879, Útidyrahurðir úr furu, orgeon-pine fyrirliggjandi. —< Ennfremur harðviðarpanilhurðir. Pant£Uiir óskast sóttar. Sögin hf. Höfðatúni 2. — Sími 22184. Útsala Útsala Kvenpeysur, verð frá kr. 75,00. Kvenundirkjólar, verð frá kr. 125,00. Kvenundirpils á kr. 39,00. Dömubuxur á kr. 29,00. Barnakjólar, verð frá kr. 75,00. Barnahúfur á kr. 50,00. Barnapeysur, verð frá kr. 75,00. og margt fleira. ALDREI MEIRA ÚRVAL. — — KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ KAUP. — r > Verzlunin ASA Skólavörðustíg 17. — Sími 15188. Rýmingarsala Amerískir kvensloppar kr. 98,00 'jfc' Barnakjólar kr. 98,00. ^ Gallabuxur kr. 89,00. Auk þess margt annað á hálfvirði. Miklatorgi. Útsala Útsala r > Utsalan hefst i dag Glæsilegt úrval af dömufatnaði á verulega lækkuðu verði. Undirkjólar Dömupeysur Náttkjólar Dömublússur Náttföt Slæður og ýmislegt fleira. Nylonsokkar frá krónum 15,00. Notið tækifærið og gerið góð kaup Laugavegi 19. — Sími 17445.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.