Morgunblaðið - 16.01.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.1963, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLADIB Miðvikuöagur 16. janúar 1963 Mb. Gjafar, VE 300, aflahæsta skip Vestmannaeyjaflotans, kemur inn í höfnina með 1550 tunnur í síðustu ferð fyrir aðalstöðvunina. Báturinn er svo hlaðinn, að það flæðir yfir nafn hans og númer. Mikil síld til Eyja MIKIL síld hefur veiðzt nú í byrjun vetrarvertíðarinnar, þegar bátarnir eru venjuleg- ast að búast til línuveiða. Það hefði einhvern tíma þótt tíð- indum sæta, því oftast hefur allt snúizt um þorsk og ýsu á þessum tíma árs. En tím- arnir breytast, — bátarnir stækka og veiðarfæri verða stórvirkari. Löndunarstöðvanirnar hafa verið tíðar síðustu dagana. — 4.—8. jan. var alls engin lönd- un í bræðslu og síðan hefur hún stöðvazt af og til. Ann- ars er landað á tveimur krön- um og gengur vel, þegar hægt er að vera að. Á meðan allt er svona fullt af síld, verður að aka mest öllum fiskúrgangi á jörðina úti í hrauni. Þar verður beina úrgangurinn geymdur, unz hætt verður að bræða. Afköst fiskimjölsverksmiðj unnar eru milli 2000 og 2500 mál á sólarhring — dálítið misjöfn eftir hráefninu. — Heyrzt hefur, að með vorinu verði hægt að auka afköstin upp í 5000 mál á sólarhring, enda er full ástæða til, þar Þessi mynd var tekin 4. janúar er síldarháfurin n er hífður upp og löndun hætt. Báturinn beið í fjóra sólarhringa með fuilt dekk af bræðslusíld. sem síldarlöndun með hverju ári. skömmu mátti sjá Brætt er dag og nótt, en verksmiðjan hefur ekki undan. Allar þrær eru fullar. eykzt hér ina af bátaflotanum héðan úr Nú fyrir Eyjum, og var eins og smá- ljósadýrð- borg væri hér úti í hafi rétt fyrir vestan. Bátar frá Faxa- flóahöfnum þurfa að sigla með aflann þangað, vegna þess að allt er fullt hér. Mikil atvinna skapast í landi í sambandi við alla þessa síld og alltaf vantar mannskap. Menn standa við netaviðgerðir dag og nótt, ým ist á verkstæðunum eða niðri á bryggjunum, þegar um minniháttar viðgerðir er að' ræða. Mikið af síldinni fer í fryst ingu og auk þess er nú verið að skipa síld út í togarann Júní, sem mun sigla með hana á erlendan markað. Nokkur ufsaganga hefur verið með síldargöngunni vestan við Eyjar, og kom m.b. Gjafar fyrir nokkrum dögum með 14 tonn af ufsa, sem gerði um 50 þús. kr. auk síldaraflans. — Sigurgeir. tma Fréttabréf úr Skagafirði: eins er búið að steypa grunn und- ir hana. Góðar gjafir hafa skalanum borizt. Kvenfélag Mývatnssveit- ar gaf kr. 10 þús. oig 14 dýnur í rúmstæðin. Þuríður Sigurgeirs- dóttir frá Sveinsströnd gaf 11 þús. kr. til minningar um for- eldra sína o.g bróður, til kaupa á sýningarvél fyrir skuggamyndir. Snorri Sigfússon námsstjóri og kona hans, frú Bjarnveig, gáfu litprentað málverk eftir Ásgrkn Jónsson. Húsið er mjög vandað og glæsi leg bygging, sem vonandi verð- ur mikilvæg lyftistöng fyrir menningu þeirra kynslóða sem vaxa up>p í Mývatnssveit um langa framtíð. Fjölmenni var við víxluna. Tíðarfar er gott. Síðan á að- fangadag hefur verið logn, en oft mikið frost. Mjög snjóiítið er og allir vegir færir eins og á sumar dag, og víðast bílfært um öræfin, og stendur til að fara á jeppa SKAGAFIRÐI, 11. janúar: — Undanfarið hafa verið miklar frosthörkur, hreinvirði og snjó- laust að mestu. Mikil vandræði eru að verða með vatnsból og vatnsaflsstöðvar, og eru þær sumstaðar stöðvaðar sökum vatns leysis. í Haganesvík eru vand- ræði með frystivélar frystihúss- ins þar. Vatn til þeirra hafa þeir tekið úr Hópsvatninu, en nú er það orðið svo lítið að vélarnar ná ekki til að dæla því til sín. Á öðrum hvorum bæ inn sveitanna má segja, að bændur þurfi að aka vatni á dráttarvélum til heim ilisnota. Einnig gengur illa víða með mjólkurkælingu, þar sem vatn vantar, en mjólkin botn- suður í Herðubreiðarlindir, til að athuga hvort þar finnist nokkrar kindur. Oft kemur fyrir að flæk- ingskindur, sem hafa haldið sig í hraununum langt utan við venju- leg leitarsvæði, draga sig í hag- lendið við lindarnar, þegar kem- ur fram á veturinn, og nú er ó- venju gott tækifæri til að ganga úr skugga um hvort nokkrar kindur hafa komið á svæðið, því örlítið snjóföl er, og slóðir hafa staðið í meira en tvær vifcur. Mjög góðar heimtur eru á þvi fé, sem haft var á Austurfjöllum í haust. — Jóhannes. Nýr heimavistarskóli í Mývatnssveit Úr Mývatnssveit, 7. jan. í gær var nýr heimavistar- barnaskóli vígður í Mývatnssveit Víxlan hófst með guðsþjónustu. Sóknarpresturinn, séra Örn Frið- riiksson, prédikaði. Síðan var sezt að kaffiborði. Margar ræður voru fluttar, og sungið undir stjórn skólastjórans, Þráins Þóris sonar. Oddviti Skútustaðahrepps Jón Gauti Péturson, skýrði frá framkvæmdum við bygginguna. Teikninguna gerði Guðmundur Guðjónsson, arkitekt, og hafði yfirumsjón með byggingunni. Yfirsmiður þar til húsið var fok- helt, var Þórður Friðbjarnarson frá Akureyri. Þá tók við yfir- stjórn Sigurpáli ísfjörð frá Húsa vík. Timburverksmiðjan Fjaiar á Húsavík smiðaði glugga, hurðir og innréttingar. Halldór Bárðar- son, járnsmíðameistari, smíðaði öll handrið. Haraldur Björnsson frá Húsavík, málaði húsið að utan og innan. Arnljótur og Bjarni Sigurjónssynir frá Húsa- vík, gengu frá ölium raflögnum, og Ólafur Magnússon frá Akur- eyri sá um allar pípulagnir. Byrjað var á byggingu skólans 1959 og hefur verið unnið við hann síðan, eftir því sem hægt hefur verið. Skólinn er 2.300 rúmmetrar og hefur kostað rúm- lega 3 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að síðar verði byggð viðbótarálma við skólann, sem verður um 500 rúmmetrar, en að- Víða vatnslítið sök- um mikilla frosta frýs í dunkum, sem þurfa að standa úti. Á Hólum í Hjaltadal er mér sagt að sé að verða eða orðið vatnslítið og getur maður hugsað sér, hvílík vandræði skapazt á slíkum stöðum, af þessum orsök- um. Úr Fram Skagafirði hefi ég ekki frétt, svo ábyggilegt sé, en hefi þó heyrt, að á nokkrum stöð um sé vatn frosið eða uppurið. Á Hofsósi er ekki litið til sjávar en á Sauðarkróki" er róið annað slagið og oftast aflað sæmilega. — Björn í Bæ. Ekkiiasjóður fs- lands fær stórgjöf NÝLEGA hefur Ekknasjóði fs- lands borizt mikil gjöf frá Vestur íslendingi. Nemur hún 1000 —eitt þúsund— kandískum dölum og er gefin til minningar um látna eiginkonu gefandans, en eigi ósk ar hann að láta nafns síns getið. Eg þakka f. h. sjóðsins þessa höfðinglegu gjöf. Reykjavík, 10. jan. 1963. Sigurbjörn Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.