Morgunblaðið - 16.01.1963, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 16. janúar 1963
MORGUNBLAÐ1Ð
!5
DÆT T I R
IVI
OUM SMAI
23,500 kr. bætur
eftir bílaárekstur
Chaplin (í miðjunni) og synir hans tveir ýta hifreiðinni.
Hálka tafði
ferð Chaplins
EINS OG kunnugt er hefur
verið mikil snjókoma og frost
víða í Evrópu að undanförnu
og lítið hefur dregið úr vetrar
hörkunum.
Mikil hálka á vegum hefur
valdið umferðatruflunum víða
í álfunni. Leikarinn frægi,
Charlie Chaplin, sem býr
Sviss, fékk að kenna á þessu,
þegar hann var á leið til skíða1
hótels eins þar í landi ásamt
fjölskyldu sinni.
Vegurinn til hótelsins lá
upp fjallshlíð og þegar komið
var upp í hana miðja byrjaði
Frá vinstri: Chaplin, Oona ko na hans og dætur þeirra, Gér-
aldína, Victoria og Josépliine.
indverjar óttast
nýja innrás Kínverja
þeim rökum, að stjórnandi
R-4540 hefði einn átt sök á
árekstrinum. í fyrsta lagi hefði
ökumaður bifreiðarinnar ekið
óhsefilega hratt, sennilega um
60 — 70 km. pr. klst. Hafi svo
hraður akstur verið háskalegur
og ámælisverður, þar sem hálka
var á götunni. í öðru lagi hefði
R-4540 verið ekið á bifreið stefn-
anda yzt á götubrúninni til
vinstri. Hins vegar hefði R-4540
haft nægilegt svigrúm til að aka
framhjá hægra megin.
Stefndi taldi það fjarri lagi, að
sök árekstursins hvíldi óskipt á
stjórnandi R-4540. Taldi hann bif
reið stefnanda hafa verið ekið
út á Miklubrautina og lokað ak-
brautinni, án þess að gefa merki.
Niðurstöður málsins fyrir rétt-
um urðu þær, að bótakrafa stefn
anda var tekin til greina og segir
svo í forsendum Hæstaréttar:
Nýju Delhi, 14. jan. (AP)
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Nýju Delhi, að Kín-
verjar hafi neitað að fallast á
tillögur þær til lausnar landa-
mæradeilunnar við Indverja,
sem samþykktar voru á ráð-
stefnu sex „óháðra ríkja“ í
Colombo á Ceylon fyrir áramót-
in. Er jafnvel óttazt að Kínverj-
ar kunni að hefja nýja sókn inn
í Indland.
Forsætisráðherra Ceylon, frú
Sirimavo Bandaranaike, er ný-
komin til Indlandis frá Peking,
þar sem hún skýrði tillögur sex-
ríkjanna fyrir Chou-en-lai, for-
sætisráðherra og stjórn hans.
Hafa Kínverjar verið ófúsir að
fallast á það að Indverjum verði
heiimilað að flytjast aftur til ým-
issa landssvæða, sem Kínverjar
hertóku áður en vopnahlé komst
á í síðasta mánuði.
Frú Bandaranaike hefur lagt
tillögur sex-ríkjanna fyrir Nehru
forsætisráðherra, sem ákvað að
leggja þær fyrir indverska þing-
ið.
f frétt frá Tokyo er það haft
eftir kínverska útvarpinu að
Kínverjar haldi áfram að flytja
herlið frá Indlandi. Segir í frétt-
inni að við landamæri Tíbet
hafi kínverskir hermenn hörfað
rúmlega 200 kílómetra sam-
kvaemt ákvæðum vopnabléssamn
inganna.
„Ljóst er af gögnum málsins,
að ökumaður bifreiðar (stefnda)
missti stjórn á henni á hálum
veginum vegna of hraðs og ógæti
legs aksturs með þeim afleiðing-
um, að bifreiðin skall aftan á
bifreið stefnanda. Ósannað er, að
staða bifreiðar stefnanda og akst-
ur hans hafi verið með þeim
hætti, að áhrif eigi að hafa á
skaðabótaskyldu (stefnanda“.
Óskar Sigurðsson var þvl
dæmdur til að greiða Hannesi
Guðleifssyni kr. 23.561.62 í bætur
ásamt vöxtum og kr. 7.100.00 i
málskostnað fynr baóum rétt-
um.
bifreiðin að spóla á hálum veg
inum. Bílstjórinn steig benzín
ið í botn, en allt kom fyrir
ekkL Farþegarnir stigu því út
úr bifreiðinni og Chaplin og
synir hans tveir ýttu henni
yfir örðugasta hjallann.
KVEÐINN hefur verið upp í
Hæstarétti dómur í máli, er
Hannes Guðleifsson, bifreiðar-
stjóri Sogavegi 52 höfðaði gegn
Óskari Sigurðssyni, Hvassaleiti
26 til greiðslu skaðabóta að fjár-
hæð kr. 23.561.62. Mál þetta er
risið út af bifreiðaárekstri, er
átti sér stað á Miklubraut.
Málavextir eru sem hér segir:
Stefnandi hefur skýrt svo frá,
að hinn 28. jan. 1961 um kl. 15.40
hafi hann ekið bifreið sinni, sem
er 6 manna Chevrolet fólksbif-
reið, austur Miklubraut í Reykja
vík. Er hann átti skammt ófarið
að Seljalandsvegi, hafi hann
stöðvað bifreiðina yzt á sínum
vinstri götujaðri. Þar hafi hann
beðið í um það bil 4 mínútur
eftir bróður sínum, sem hann átti
von á. Er hann taldi þýðingar-
laust að bíða lengur hafi hann
ákveðið að aka af stað. Hafi hann
sett bifreiðina í fyrsta ganghraða
stig, en vélin var á gangi meðan
hann beið. Áður en hann tók
bifreiðina af stað hafi hann litið
til hægri og aftur fyrir sig til þess
að athuga umferð. Sá hann þá
bifreið R-4540 koma akandi aust-
ur Miklubrautina á u.þ.b. 60 km.
hraða, að því er hann taldi og
stefna á sína bifreið. Varð hann
ekki var við, að ökumaður hinnar
aðvífandi bifreiðar drægi úr hrað
anum fyrr en hún var komin rétt
að bifreið stefnanda. Kvaðst stefn
andi hafa tekið bifreiðina aðeins
af stað, en stigið á tengslið von
bráðar til þess að draga úr
árekstrinum, sem hafi verið yfir-
vofandi, en ekki hafi verið tími
til að aka undan bifreiðinni og
forða þannig árekstri. Skipti það
engum togum, að bifreiðin ók á
bifreið stefnanda og urðu all
miklar skemmdir á báðum bif-
reiðunum.
Bifreiðin R-4540 var eign stefn
anda, en hann ók henni ekki
sjálfur í umrætt skipti. Ökumað-
ur bifreiðarinnar skýrði svo frá,
að hann hefði séð bifreið stefn-
anda í allmikilli fjarlægð og þá
ekki séð betur en að bifreiðinni
væri ekið hægt áfram. Hann hafi
þó áttað sig á því, þegar hann
var kominn all nálægt bifreið-
inni, að hún hafði staðið kyrr,
en væri að aka af stað. Vegna
hálku kvaðst ökumaðurinn ekki
hafa getað dregið nægilega úr
hraðanum og hafi bifreiðina lát-
ið illa að stjórn vegna hálkunn-
ar.
* KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR A KVIKMYNDIR *
ir KVIKMYNDIR * SKRIFAR UM: ★ KVIKMYNDIR *
GAMLA BÍÓ:
Fórnarlambið
(The Scapegoat)
Aiec Guiness, einn alilra snjall-
asti og skemmtileigasti kvik-
myndaleikari Breta, leikur í
mynd þessari tvö hlútverk, John
Barratt, enskan háskólakennara,
og Jacque de Gue, barón. Barr-
ett er í suimarleyfi í Frakklendi
og í Le Mans hittir hann tvífara
sinn, Gue barón. Býður baróninn
Barratt upp á glas af víni á veit-
ingaikrá. Lýkur því svo að Barr-
att verður ofuröiva og vaknar úr
vímunni í hótedherbergi, klædd-
Bonn, 14. janúar (NTB) —
Adenauer kanzlari Vestur-Þýzka
lands ræddi í dag við George
Ball aðstoðar utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem er sérstak-
ur sendifulltrúi Kennedys for-
seta. Að loknum vlðræðunum,
skýrði kanzlarinn frá þvi að V-
Þjóðverjar væru reiðubúnir að
taka upp samvinnu við önnur ríki
Atlantshafsbandalagsins um að
koma upp sameiginlegum kjarn-
orkuher.
Viðræður þessar eru í beinu
framhaldi af viðræðum þeirra
Kennedys og Macmillans forsætis
ráðherra Bretlands í Nassau fyrir
skömmu. Þar bauðst Kennedy til
að láta Breta fá bandarískar Pol
aris eldflaugar, en hvatti jafn-
framt til þess að NATO löndin
reyndu ekki hvert í sínu lagi að
koma sér upp kjamorkuvopnum,
heldur ynnu að því að búa sam-
eiginiegan herafla sinn sem bezt
út.
ur fötuim barónsins og með per-
sónuskillríki hans, en sjálfur er
baróninn horfinn. Bifreiðarstjóri
barónsins kemur til að sækja hús
bónda sinn, og reynir Barratt að
koma honiuim í skilning um að
hann sé ekki baróninn, en árang-
urslaust. Barratt kemst ekki hjá
því að fara í bifreiðinni heim til
barónsins, en þar eru fyrir frú
hans og dóttir og gömul móðir
barónsins, sem er morfínisti.
Neyðist nú Barratt til þess að
leifca hlutverk barónsins. Þar eð
enginn trúir fullyrðingu hans að
hann sé allt annar maður. En nú
bregður svo við að öllum finnst
„baróninn" vera orðinn að betri
manni, og heimilislífið og „hjóna-
lífið“ breytist að sama skapi.
Jafnvel ástmey barónsins fagn-
ar breytingunni ákaflega. Dag
einn gerist sá sviplegi atburður,
að barónsfrúin fellur út um
glugga og bíður bana. Syistir
hennar ásakar „baróninn" um að
hafa myrt hana, en lögreglan er
ekiki á sama rnáli. Seinna er Barr
att kallaður í síma, og er sá sem
talar, hinn raunverulegi barón.
Biður hann Barratt að hitta sig
á vissum stað. Barratt fer þang-
að, en það sem honum og barón-
inum fer á milli, verður ekki
rakið hér.
Mynd þessi er býsna skemmti-
leg, vel gerð og í henni töluverð
spenna. Hún er einnig mjög vel
leifcin, og þá einkurn hlutverk
þau, sem Guiness fer með og hlut
verk gömlu barónsfrúarinnar,
sem Bette Davis leikur. Myndin
hefur verið ágætlega sótt, enda
hygg ég að flestir mimu mér
sammála um að hún sé með betri
myndum sinnar tegundar.