Morgunblaðið - 16.01.1963, Side 14
14
MORGUNBLAÐilÐ
MiSvikudaguit 16. jaiawar 1963
- TOGO
Framhald af bls. 13
é yfirborðinu svona friðsamlegt
í Togo, á tilræðið við Olympio
sér langa sögu.
Saga Togolands sem slíks byrj-
ar eiginlega með nýlendukapp-
hlaupinu í lok 19. aldar. Þegar
Bismarck hinn þýzki sendi k>ks
sína landvinningamenn á vet
fang um 1880 voru aðrar stór-
þjóðir búnar að helga sér mest
af landsvæðunum á þessum slóð-
um. Samt tókst sendimanni hans
að finna svodítið strandvæði milli
hinnar brezku Gullstrandar (nú
Ghana) og franska Dahomey.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina
skiptu Bretar og Frakkar svo
Togolandi mi'lii sin og höfðu það
sem verndarsvaeði fyrir Þjóða-
bandalagið. Bretar fengu austur-
hlutann, og stjórnuðu honum sem
sérstöku landsvæði, alveg að-
greindu frá nágrannaríkinu Da-
homey, sem þeir höfðu líka. Það
skýrir e.t.v. að miklu leyti úr-
slit atkvæðagreiðslunnar 1956,
þegar Togobúar fengu að gTeiða
atkvæði um réttarstöðu sína. í
brezka Togo kusu 58% að sam-
einast hinu nýja Ghana, en aust-
ari hlutinn hélt áfram að vera
undir Frökkumí, þar til hann fékk
sjálfstæði í aprílmánuði 1960.
Franski hlutinn hafði strax eft-
ir síðari heimsstyrjöldina fengið
að kjósa-heimaþing og eiga fjóra
fulltrúa í Frakklandi.
Þegar ferðast er, eins og við
gerðum, frá íyrrverandi enskum
nýlendum til franskra, finnur
ferðamaðurinn strax geysilegan
mun, enda var grundvallarstefna
þessara tveggja þjóða í stjórn
Innilegt þakklæti til allra, sem glöddu mig með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum á sjötugsafmæli mínu
19. des. s.l.
Anna Magnúsdóttir, Holti, Vopnafirði.
Ég þakka innilega öllum, nær og fjær, sem heiðruðu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á
70 ára afmæli mínu 11. þ. m. og gjörðu mér daginn
ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Sigurbjörnsdóttir.
Innilega þakka ég öllum þeim fjær og nær, er glöddu
mig á 80 ára afmæli mín, með heimsóknum, gjöfum og
skeytum. — Guð blessi ykkur öll.
Jódís Árnadóttir,
Þverholti 18, Reykjavík.
Elskulegi eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
ÞORVALDUR GÍSLASON
Sogablett 11,
andaðist í Landsspítalanum 15. þ. m.
Theódóra Jónsdóttir, börn og tengdaböm.
Móðir mín
ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR
andaðist í Bæjarspítalanum mánudaginn 14. þ. m.
F. h. aðstandenda.
Bjöm Pétursson.
Maðurinn minn
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
múrari,
andaðist að heimili sínu, Njálsgötu 74, 9. þ.m. Jarðarförin
ákveðin miðvikudaginn 16. þ.m. kl. 11 fyrir hádegi frá
kirkju Óháðasafnaðarins.
Þeir sem vildu minnast hins látna er bent á minningar-
sjóð Óháðasafnaðarins.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
SigríSur Halldórsáóttir.
Útför mannsins mins
BJARTMARS EINARSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. jan.
klukkan 1,30.
Laufey Ásbjömsdóttir.
Þökkum hjartanlega öllum nær og fjær sem auðsýndu
okkur vináttu við fráfall og útför
JÓNU INGUNNAR SIGFÚSDÓTTUR MOLANDER
Hlíðardal
Guð gefi ykkur öllum gleðilegt ár.
Aðstandendur.
Hjartans þakkir til allra nær og fjær sem heiðruðu
minningu okkar elskulegu móður, tengdamóður og
ömmu
ÖNNU SOFFÍU ÁRNADÓTTUR
Guð blessi ykkur öll.
Amþrúður og Einar Reynis,
Anna, Soffía Reynis,
Ásta og Jósef Reynis,
Gunnlaug og Ólafur Sverrisson,
Arnhildur Reynis og Hans Andersen.
Bústaðír svertingjanna í Norður-Togo sýna að áður hefur skipt miklu máli að búa saman í þétt-
um hnapp, til að verjast óvinum. Þetta eru leirk ofar með stráþökum
nýlendnanna gerólík. Hvor var
betri legg ég engan dóm á, báðar
höfðu nokkuð sér til ágætis og
nokkuð til ámælis. Englending-
ar stjórnuðu gegnum höfðingja
landsins, en létu íbúana í friði
með sína siði og venjur. Þeir
máttu ekki kaupa landsvæði í
nýlendunum, settust ekki þar að
og héldu sig alveg út af fyrir
sig. Frakkar gerðu nýlenduna að
frönsku landi og íbúana að
frönskum borgurum, fluttu þang
að inn og kenndu íbúunum
frönsku og evrópska siði og
hætti eftir megni. Það er senni-
lega aðalástæðan til þess að t.d.
Sylvanus Olympio, forseti Togo,
sem drepinn var af uppreisnar-
mönnum.
Dafhomeybúar þykja hafa mikla
nútímamenntun miðað við aðrar
Afríkuþjóðir.
Olympia sjálfstæðishetja
Fyrsti forsætisráðherrann, sem
Frakkar studdu til valda var
Frakkavinur af þýzkum ættum
•að nafni Nicolas Grunitzky (sá
sem nú hafa borizt fréttir um
að kominn sé aftur til Togo úr út
legð og líklega til að taka við).
Hann taldi mikilv. að Toko héldi
fyrst um sinn áfram að fá efna-
hagslega hjálp frá Frökkum, sem
var orðin 12 milljónir punda á
árunum 1946 til 1955. Hann og
flokkur hans „Parti Togolais du
Progres“, var algerlega andvig-
ur baráttu Eweættbálksins fyrir
að sameina þjóðarbrotin í lönd-
unum fjórum og einkum sam-
einingu enska og franska Togo
En fyrir því barðist m.a. róttæk
ur og andfranskur flokkur C.U.T.
(Comité de la unité Togolaise).
Foringi þess flokks varð árið
1951 Ewemaðurinn Sylvanus
OJympio, hinn nýlátni forsetd.
Hann breytti stefnu flokksins frá
að vera sameiningarflokkur
Eweanna yfir í að vera aðallega
sameiníngarflokkur beggja fyrr-
verandi Togonýlendnanna.
Olympio, sem var um sextugt
þegar hann lézt, var kominn af
þrælum sem fluttir höfðu verið
til Braziliu og blandaðist þar
Portúgölum. En faðir hans flutt
ist heim tii Togolands og gerðist
auðugur kaupmaður. Því gat
Sylvanus sonur bans gengið í
skóla í Englandi og útskrifast
úr Verzlunarháskólanum í Lond-
on. Hann kom svo heim árið 1926
réðist til United Africa Comp-
agny, hins evrópska stórveldis í
viðskiptum þarna á ströndinni.
Olympia komst vel áfram og
varð framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins í Togo, þangað til hann
var rekinn úr landi af frönsku
Vichistjórninni, grunaður um
að vena hlynntur bandamönnum.
Þegar hann kom heim aftur, tók
hann að hafa afskipti af stjórn
málum innan C.U.T. flokksins.
Frakkar sáu þar hættulegan and
stæðing og lögðu að vinnuveitend
um hans að ílytja hann til Par-
ísar. En Olympio var þá orðinn
nægilega auðugur til að segja
upp starfi sinu og gerast forystu
maður flokks síns. Hann rak
jafnframt kókóplantekru sína.
— Er hann dó. lét hann eftir sig
konu og 5 börn.
Loks tókst Olympio og flokki
hans að fá almennar kosningar
í Togo undir stjórn Sameinuðu
þjóðanna árið 1958. Þær þóttu
orka nokkuð tvímælis, þar að
ógerlegt reyndist að hafa stjórn
á hverjir hefðu kosningarétt og
hverjir kysu oftar en einu sinni.
En flokkur Olympios vann mik
inn sigur, fékk 29 af 46 þingsæt-
um, og þar sem Frjálslyndi flokk
urinn studdi hann með sín 4 sæti
hafði hann ríflegan meiribluta
og myndaði stjórn. Olympio hóf
strax áhlaup í Paris og New
Yonk, til að fá frelsi fyrir Togo.
Hann talar frönsku, þýzku, ensku
og Ewemál, og aflaði sér strax
virðinga.r sem ákafur en þó skyn
samur sjálfstæðissinni, harður í
samningaviðræðum en fyllilega
treystandi til að hailda gerða
samninga. Hann náði samþykki
um að Togo skyldi frjáls og full
valda ríki 27. apníl 1960.
Aðalstefna Olympios hefur ver
ið að neita því algerlega að Togo
land geti ekki lært að lifa á eig
in gæðum, þó rýr séu. Hann við
urkennir þó að Togo þurfi um
tíma að þiggja tæknilega og
fjárhagslega hjálp frá Frökkum,
sem höfðu árlega greitt 714.000
sterlingspund, til að jafna út-
flutning og innflutning þessa fá
tæka lands fyrir utan fjárfram
lög til skóla, sjúkrahúsa, vega
o.s.frv. Stjórn hans hefur þó ekki
farið um betlandi, heldur var
sett í gang ströng áætlun í land
inu, er takmarkaði innflutning,
jók útflutning, minnkaði skrif
finnsku, dró úr launum opin-
berra starfsmanna og fann upp
nýjar skattahndir, þannig að frá
1959 hefur náðst jafnvægi í efna
hagskerfi landsins. Olympio
sagði: „Þjóð okkar á að reyna að
lifa við eigin efni. En þar sem
við viljum bæta lífskjörin, mun
ekki heyrast mikið frá okkur á
alþjóðavettvangi. Tima og pen-
ingum verður varið til að bæta
fjárhag okkar, en ekki til að
senda fulltrúa að samningaborð
um. Aðstoð á alþjóðlegum vett
vangi verður vel þegin, en hún
verður að hæfa okkar eigin að-
stæðum og vera eingöngu notuð
til ágóða fyrir framkvæmdir, er
áætlaðar eru og framkvæmdar
með eigin átaki og okkar eigin
tekjustofnum. Það er einasta
leiðin til sjálfsvirðingar þjóðar.“
Nágrannakritur
Sambúð Togolands við ná-
grannaríkin hefur ekki venð
sem bezt, einkum við nágrann-
ann í austri, Ghana. Nkrumah
lagði mikið kapp á að fá brezka
Togo innlimað í land sitt 1956,
ekki sízt til að tryggja sér vinstri
bakka Voltafljóts, þar sem Ghana
er nú að koma upp stórvirkjun.
Nicolas Grunitsby, mágur Olym-
pios, hefur verið kallaður heim
úr útlegð og er talinn líklegur
til að taka við völdum.
Og síðan franski hlutinn fékk
frelsi, hefur óvild ríkjanna hvers
í annars garð farið vaxandi. í
Togo eru enn uppi naddir
um sameiningu Ewe-þjóð-
flokksins, og um sameiningu
beggja gömlu Togo-nýlendanna
Og Kwame Nkrumah hefur lýst
yfir opinberlega, að Togo-lýð-
veldið skuli verða sameinað
Ghana sem sjöunda fylkið í land
inu, hvort sem Olympio líki bet-
ur eða ver. Hafa þeir sent hvor-
Frarnh. á bls. 23