Morgunblaðið - 26.01.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1963, Blaðsíða 1
24 síðui 50 árgangur 21. tbl. — Laugardagur 26. janúar 1963 Frentsmiðja JVlorgunblaðsins Vilja Spánverjar fá Polarisflaugar? Washington, 25. jan. — (AP) SPÁNSKA stjórnin hefur far ið þess á leit við stjórn Banda ríkjanna, að hún komi upp nýrri herstöð á Spáni. Kemur beiðni þessi á sama tíma og Kennedy, Bandaríkjaforseti, Enn rikir VETUR i Evrópu i London, 25 .j anúa r— NTB t ENN er vetraríki mikið á " meginlandi Evrópu, í Bret-! lancji og Bandaríkjunum. Er kuldi víða mjög mikill og rik ir enn neyðarástand í mörg- um löndum. Nær kuldinn, langt suður, og hetur m.a. orð ið að gera sérstakar ráðstaían ir í Malaga á S-Spáni, vegna óveðurs. A.m.k. 112 manns hafa lát- ið lífið í Bandaríkjunum á skömmum tíma, vegna kuld- ans og erfiðleika í umferð, sem leitt hafa til slysa. í Búlgaríu hefur öllum skól um verið lokað, og ríkir neyð arástand enn í landinu. í S-Þýzkalandi komst kuld inn í 24 stig á Celcius. í Sviss hefur ekki komið svo slæmur vetur frá því 1929. í dag er þar víða 25 stiga frost. í Malaga á Spáni hefur orð ið að flytja 500 manns í sér- stakt húsnæði, vegna storma. Er þetta mesti stormur, sem knmið hefur þar um slóðir í 100 ár. Fregnir herma einnig, að vetrarriki sé nú meira í Japan en dæmi séu til um langt skeið. Spár gera ekki ráð fyrir hlýnandi veðri, nema þá helzt á Bretlandseyjum. heitir sér fyrir endurskipu- lagningu kjarnorkuvarna í Vestur-Evrópu og við Mið- jarðarhaf. Óstaðfestar fregnir herma, að spánska stjórnin hafi í hyggju að biðja um, að her- stöðin verði á Miðjarðarhafs- strönd Spánar, fyrir kafbáta, er borið geta Polaris-eld- flaugar. Kennedy skýrði frá því á blaða mannafundi sínum í gær, að kaf- bátar, búnir Polaris-eldflaugum, Framh. á bls. 23 V-þýzka stjórnin berst nú fyrir aðild Breta að EBE Ludwig Erhardt fer á morgun til Briissel til aö reyna að fá vilja stjórnarinnar framgengt París, Briissel, Bonn, 25. jan. — (NTB-APJ — VESTUR-ÞÝZKA stjórnin ákvað einróma á skyndifundi í kvöld að veita aðildarheiðni Breta að Efnahagsbandalag- inu fullan stuðning. í yfirlýsingu, sem gefin var út að fundinum loknum, seg- ir, að aðild Breta sé nauð- synleg, bæði með tilliti til þróunar stjórnmála og efna- hagsmála. Þá bárust í kvöld fregnir frá París, þess efnis, að franska stjórnin hefði nú til Skálholt gefið Þjóðkirkjunni * Einnar milljónar árlegt framlag til staðarins Á FUNDI, sem áhuga- menn um endurreisn Skálholtsstaðar, héldu með sér í Skálholti í gær, upplýsti séra Sigurður Pálsson, að Ingólfur Jónsson ráðherra hefði tjáð sér, að ríkisstjórn- in hefði ákveðið að leggja fram frumvarp fyrir Aiþingi, nú er það kemur saman, um að Skálholtsstaður skuli gefinn þjóðkirkjunni til ráðstöfunar og fylgi gjöf inni einnar millj. króna árlegt framlag úr ríkis- sjóði, er þjóðkirkjan ráð stafi til staðarins. Sjá nánari frétt fundinum á bls. 24. af athugunar sérstakar áætlan- ir, er miðuðu að því að koma í veg fyrir, að frekari samn- ingaviðræður við Breta færu út um þúfur, er ráðherra- nefnd EBE kemur saman á mánudag. • Tillaga sú, sem Gérhard Schröder, utanríkisráðherra V- þýzkaland, kom á framfæri við franska utanríkisráðherrann, Couve de Murville, í fyrri viku, Framh. á bls. 23 STÓR ísspöng, sem losuaði á| Pollinum á Akureyri aðfara- nótt fimmtudags, rak út fjörS inn og rakst á bryggju Skeij- ungs h.f., sem er syðst og vestast á Oddeyrartanga.i Braut ísinn allar undirstöður fremri hluta hryggjunnar. Geysimikið tjón hlaust þessu og er viðgerð talrn kosta um milljón krónur. Myndin var tekin um það bil, sem fremri endi bryggj- unnar var að snarast til norð- urs undan ísþunganum. Skúr- amir eru um það bil að falla sjóinn. — Ljósm.: St. E. Sig. " Verkfalli lýkur HAFNARVERKFALLINU, sem ríkt hefir í Bandaríkjun- um, er lokið. Verkfa.llsverðir á svæðinu frá Maine til Texas munu hverfa á brott í kvöld, og hefst vinna í fyrramálið. Björn Tryggvi Torfi Magnús Þorgrímur Gunnar Kosið í Dagsbrún um helgina í DAG og á morgun fer fram kosning til stjórnar og ann- arra trúnaðarstarfa í Verka- mannafélaginu Dagsbrún í Reykjavík. Kosið er um tvo lista, A- listann, sem borinn er fram af kommúnistunum, sem stjórnað hafa félaginu um árabil og B.-listann, sem bor inn er fram af lýðræðissinn- uðum verkamönnum í félag- inu. Kosning hefst kl. 10. f.h. í dag og stendur til kl. 9. e.h. Á morg- un hefst kjörfundur kl. 10 f.h. og stendiur til kl. 1.1 e.h. og er kosningu þá lokið. Kosið er í skrifstofu Dagsbrúnar í Alþýðu- húsinu við Hverfisgötu. Kosningaskrifstofa B-listans nú umv heigina verður í félaigs- heimili múrara og rafvirkja að Freyjugötu 27, símar: 1 15 57, 115 58, 115 59. B-listann skipa þessir menn: AÐALSTJÓRN: Björn Jónsson, fonmaður, Skipasundi 54. Jóhann Sigurðsson, varafonm. Ásgarði 19. Tryggvi Gunnlaugsson, ritari Digranesvegi 35. Torfi Ingólfsson, gjaldkeri, Melgerði 3. Magnús Hákonarson, fjánmála- ritari, Laugateigi 14. Þorgrímur Guðmundsson, Sól'heimum 27. Gunnar Sigurðsson, Bústaða- vegi 105. VARASTJÓRN: Karl Þórðarson, Flókagötu 14. Karl Sigþórsson, Miðtúni 36. Andrés Sveinsson, Hringbraut 101. STJÓRN VINNUDEILUSJÓÐS: Sigurður Guðmundsson, Freyju götu 10 A. Guðmundur Sigurjónsson, Gnoðarvogi 32. Helgi Eyleifsson, Snorrabraut 35. VARASTJÓRN: Þórður Gíslason, Meðalholti 10. Jón Arason, Ökrum við Nes- veg. * ENDURSKOÐENDUR: Haukur Guðnason, Vegthúsa- stíg 1. Eysteinn Guðmundsson, Þver- vegi 30. VARAENDURSKOÐANDI: Agnar Guðmundsson, Þver- vegi 30. STJÓRN STYRKTARSJÓDS DAGSBRÚNAR: Daniel Daníelsson, Þingíhóls- braut 31. Þorbjörn Sigurhansson, Sikóla braut 7. SeltjarnarnesL Halldór Runólfsson, Hverfis- götu 40. VARASTJÓRN: Steinberg Þórarinsson, Teiiga- gerði 8. Guðmundur Jónsson, Ðaldurs- götu 36. ENDURSKOÐANDI: Sigurður Þórðarson, Tungu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.