Morgunblaðið - 26.01.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.01.1963, Blaðsíða 3
Laugardagur 26. janúar 1963 MORGVN BL AÐIÐ 3 í GÆRMORGUN var Valberg Sigurmundarson, sem saknað var á trillúbáti á leið frá Korpúlfsstöðum til Reykja- víkur og Slysavarnafélagið leitaði í fyrrinótt, enn ófund- inn. Um kl. 1 var svo tilkynnt frá Björgun h.f., sem er í Vatnagörðum, að hreyfing sæist úti í Viðey og rétt um leið hringdi kona Henrys Hálfdánarsonar, sem hafði vaktað eyjuna með sjónauka frá húsi sínu við Kambsveg og hafði einnig séð mann á ferli þar. — Var þar Valberg Sigurmundarson heill á húfi og bátur hans lá í fjörunni, eitthvað smávegis brotinn. Björgunarsveit Slysavarna- félagsins var að koma í bæ- inn, eftir að hafa lokið við að leita það af fjörunum með Vogunum, sem eftir var um Valberg er kominn um borð i björgunarbátinr. Gisla Johnsen úr Viðey. Hjá honum . standa Baldur jónsson, formaður björgunarsveitarinnar til vinstri og Sigurjón Árnason, skipstjóri á Gaut, sem hafði skipstjórn á björgunarbátnum í þessari ferð. 0 STAKSTEII\EAR Hótanirnar hafnar í gær birtist ritstjórnargrein í kom.múnistamálgagninu, sem endar þannig: „Og ætli gróðakarlarnir sér þá dul að þvælast fyrir eðlileg- um lagfæringum á kjörum verka fólks og sjómanna, sem standa undir hinni gífurlegu verðmætis sköpun og gróðamyndun, sem nú fer fram í þjóðfélaginu, get- ur farið svo að valdi hins vinn- andi manns, valdinu til að vinna þá og þegar honum sýnist, verði fyrr en varir beitt til að sækja þann rétt til lífsgæða og sóma- samlegs vinnutíma, sem íslenzk alþýða veit að hún á skilið. Þá getur launaskriðið orðið að ó- stöðvandi launaskriðu". Þannig er það ljóst, eins og Morgunblaðið benti á, þegar samkomulag hafði orðið um hækkun launa verkamanna, að kommúnistum er meinilla við þessa hækkun og samþykktu hana einungis, vegna þess að kosningar voru framundan í Dagsbrún, og þeir vissu, að þeir myndu bíða algjört afhroð i þeim kosningum, ef þeir höfn- uðu kjarabótunum. Hvað verður eftir Svaf í hesthúsi með kindur til hlýinda nóttina, en þá höfðu þeir hætt kl. 3. Höfðu þeir ætlað að sækja bátinn Gísla Johnsen til að fara í Viðey, þar eð þeir höfðu ekki komizt þar í land kvöldið áður. Ruku þeir nú hið snarasta af stað á björg- unarbátnum, en fréttamenn Mbl. fylgdu á eftir á Magna. Vélin bilaði Viðey var heldur hryssings- leg er að var siglt, hvítir skaflar í hlíðum. Rétt niður undan bænum sást þriggja tonna bátur, vel dreginn upp í fjöru. Valberg sjálfur var hinn hressasti er hann klifr- aði upp í Gísla Johnsen, vel klæddur og í olíufötum, og fékk heita kjötsúpu úr dós hjá björgunarsveitarmönnum. Hann kvaðst hafa hafzt við í hesthúsi um nóttina, eftir að vélarbilun varð í bát hans og hann rak á land. Sagðist honum svo frá: — Við fórum að heiman um 11 leytið á fimmtudagsmorg- un með pramma aftan í bátn- um og var ætlunin að sækja hesta út í Akurey. Ætluðu Korpúlfsstaðamenn að koma á öðrum bát. Þeir m'ðu að snúa frá vegna veðurs og við fórum í land á Korpúlfsstöð- um, þar sem tveir félagar mínir fóru í land og við skild- um prammann eftir, — Hvarflaði ekki að þér að skilja bátinn líka eftir þar og sækja hann seinna? Það hefur verið komið slæmt veð- ur. — Jú, það hafði farið að hvessa upp úr hádeginu og, ég var að hugsa um það, því mér fannst veðrið slæmt. En mér er alltaf illa við að skilja bátinn eftir annars staðar en í heimahöfn og það varð úr að ég fór á honum. Skömmu eftir að ég lagði af stað fór vélin eitthvað að neista út og ég fékk í mig smávegis raf- magn. Einu sinni stöðvaðist hún, «n ég kom henni í gang aftur og allt gekk vel út fyrir Viðey. Þá stanzaði hún aftur. Rak nærri á sker ■—• Hvernig var veðrið þá? — Þá var komið mikið rok með éljum og kolamyrkur. Ég hafði legufæri úti og eftir að vélin fór að ganga, varð ég að fara aftur á til að ná drekanum upp. Rétt þegar hann hafði losnað, virtist sem vélin ætlaði aftur að stoppa og ég varð að hlaupa að henni. Þegar ég svo leit upp, sá ég að mig var að reka á sker. Ég lét þá vélina ganga eins og ég gat og slapp við skerið, en skrúfan nam við botn. Þá var ég kominn svo ná- lægt Viðeynni að ég gat látið reka upp í fjöruna. Ég kast-. aði mér í sjóinn með festing- una í höndunum þegar bátinn tók niðri. Útsogið ætlaði að rífa hana af mér, en ég komst í land. Eftir að ég var búinn að ganga svo frá bátnum að hann brotnaði ekki meira en hann gerði í lendingunni, þá fór ég upp í hesthúsið og kom mér þar fyrir. — Af hverju hesthúsið. Eru ekki önnur þægilegri hús í Viðey? — Mér er engin launung á því. Ég var þar vegna þess að þar voru nokkrar kindur inni og ég gat haft velgjuna af þeim. Eftir að ég hafði birgt dyrnar var þetta ágætt. — Hafðirðu nokkurn mat? — Nei, hann blotnaði allur, en ég hafði svolítinn kaffi- dreitil á hitaflösku. Það væsti ekkert um mig. — Var ekki vitlaust veður? — Jú, veðrið lamdi hest- húsið, og járnplötur og drasl fauk framhjá. Fram eftir kvöldi sá ég öðru hverju ein- hverja ljósglampa úti, og vissi þá að farið væri að leita. En UM hádegi í gær var útsynn- ingurinn að fjara út hér á landi og jafnvel kominn hláku bloti með 1—3 st. hita á SV- landi. Mjög djúp lægð er við v-strönd Grænlahds og hreyf- ist hratt N eða NNA eftir. Er því gert ráð fyrir allhvassri S eða SV-átt hér á landi og hlákublota. sem eetur bó orð- ég gat ekki gert vart við mig, því eldspýturnar höfðu blotn- að og eins vasaljósið. — Hvað varstu þarna lengi? — Klukkan hefur verið um 7 um kvöldið, þegar ég var búinn að ganga frá bátnum og. koma mér fyrir, og nú er klukkan um hálf þrjú síðdeg- is þegar björgunarmenn koma að sækja mig. — Ertu mikið á ferðinni á þessari trillu hér á Sundun- um? — Já, ég er búinn að eiga hana frá upphafi, eða síðan 1942 og hef oft róið á henni. Ég á kindur úti I eyjunum og fer oft á milli. Annars hef ég notað hana miklu minna síðustu 6 árin. — Hefurðu lent í slíkum ævintýrum áður? — Nei, nei. Maður hefur oft fengið vont í sjóinn, en ekki annað. Allt hefði líka gengið vel í þetta sinn, ef vélin hefði ekki bilað. — Er við skildum við Val- berg var hann að drekka kaffi með björgunarsveitinni í Slysavarnahúsinu, kominn í þurra volga peysu af Baldri Jónssyni, formanni sveitar- innar. Og Henry Hálfdánar- son var búinn að tilkynna heim til hans að hann væri heill á húfi og yrði ekið heim fljótlega. ið skammvinn, því að mjög kalt er í veðri vestan hafs, t. d. 25 st. frost í Gæsaflóa á Labrador. Dökka svæðið út af Vestfjörðum sýnir hafís- beltið meðfram austurströnd Grænlands samkv. síðustu fréttum. Þ3>ð er um 60 sjó- mílur frá Straumnesi. kosningar? Með hliðsjón af orðum þeim, sem vitnað er til hér á undan, er ljóst, að kommúnistaflokkur- inn hyggst gera tilraun til þess að hleypa af stað nýrri kaup- gjaldsskriðu, sem mundi vaida þvi að kjarabætur þær, sem verkamenn nú hafa fengið, rynnu út í sandinn. Sjálfsagt yrði reynt að fá aðrar stéttir til að gera hærri kröfur en samið hef- ur verið um við Dagsbrún, þann- ig að kjör verkamanna lækkuðu, borið saman við laun annarra. Það er einmitt þessi hætta, sem verkamenn þurfa að bægja frá í kosningunum nú um. helgina. Þeir mega ekki láta þá sögu end- urtaika sig, að alfir aðrir fái meiri kauphækkanir en þeir og þannig í raun réttri kjarabætur á þeirra kostnað. Þeir verða þess vegna að sýna það með atkvæði sínu, að þeir aðhyllast ekki stefnu þá, sem kommúnista- málgagnið boðar. Þeir verða að rýra svo fylgi núverandi stjórn- enda í Dagsbrún, að þeim verði Ijóst, að ekki þýði að halda verk- fallastefnunni áfram, heldur beri að vinna að kjarabótum. Ber ekki saman Kommúnistamálgagnið hefur það í gær eftir Eðvarði Sigurðs syni, að hann hafi sagt, að kauphækkun sú, sem verkamenn fengu 1. júní sl. muni til jafnaðar hafa verið um 10% en í október hafi verð- lag hækkað um 8%. En á öðr- um stað í blaðinu segir: „1. júní í fyrra gerðu verka- menn nýja samninga, sem voru yfirleitt taldir jafngilda 9% kauphækkun .Á þeim tima, sem síðan er liðinn, hafa komið til framkvæmda verðhækkanir, sem nema 9,5%.“ Moskvuntálgagninu ber þannig ekki saman við formann Dgsbrún ar, enda fullyrðingar beggja lítt rökstuddar. En setjum svo, að verkamenn hafi haldið eftir 2% af þeim hækkunum, sem þeir fengu i fyrra eins og Eðvarð Sigurðsson segir, þá sjá menn hve miklu heppilegra er að fá nú 5% sem raunhæfar kjarabæt- ur og doka síðan nokkuð við með frekári kröfugerðir, þar til meiri árangur er oðinn af viðeisninni og unnt að hækka launin frekar, án þess að allt fari úr skorðum og kauphækkunin hverfi í nýj- um verðhækkunum .Kauphækk anirnar nú endast líka betur vegna þess að það eru aðeins fá- ar stéttir, sem fá þær og þar af leiðandi hafa þær ekki slík á- hrif á verðlagið sem heildarkaup hækkanir hafa I NA IS hnúitr I v SV 50hnútar X Snjókoma \7 Stírir m*'9» t OÍÍ l£ Þrumur KuUatki! H Hmli LJssL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.