Morgunblaðið - 26.01.1963, Page 5

Morgunblaðið - 26.01.1963, Page 5
Laugardagur 26. jarmar 1963 MORCVNBLAÐ1Ð 5 ÞESSI mynd var tekin rett fyrir brotMorina a fknmtudag af þeim hjónunum Hirti Pálssyni og Steinunni Bjarman. Steinunn heldur á dóttur þeirra, Huldu litlu, og á milli þeirra er dóttir Steinunnar, Kristín Pálsdóttir. Rœðst sem bóka- vörður til Viinnepeg . MENN 06 m MAŒFNI= ÞAU hjónin Hjörtur Pálsson og Stéinunn Bjarman fóru utan laust eftir miðnætti á fimmtudagskvöld ásamt börn- um sínum tveim áleiðis til Winnepeg, þar sem Hjörtur gerist bókavörður í íslandis- deild Eliztbeth Dafoe Library, sem er bókasafn háskólans í Manitoba, og þar sem hann hyggst einnig gjarna munu leggja stund á bókasafnsfræði. Er Hjörtur leit til mín að kveðja mig á fimmtudaginn greip ég taekifærið og spurði hann frétta í leiðinni: — Hvað hyggst þú dvelj- ast lengi í Winnepeg, Hjört- ur? — Ég er ráðinn til tveggja ára, — og ef vel gengur verð- ur sjálfsagt hægt að fá þann samning endurnýjaðan. En á þessu stigi málsins ætlum við okkur ekki að ílendast vestra til langframa. Ég vil helzt koma heim með bókavarðar- réttindi, jafnskjótt og unn't er. — Og þá kannske hefja nám við Háskólann hér? — Þeirri spurningu þori ég ekfci áð svara núna. En ég gæti vel trúað, að mig lang- aði til að læra meira, þegar ég kem heim, og þá einna helzt íslenzk fræði. — Hefur Steinunn kona þín einnig i hyggju að starfa við bókasafnið? — Ég veit það ekki enn þá. En hún lauk eins og þú veizt fyrsta hluta í bókasafnsfræð- um við Háskóla íslands í fyrra, svo að það gæti vel komið til mála, ef þess yrði kostur. En fyrst verðum við að koma okkur fyrir. — Hvað getur þú frætt mig um bókasafnið? — Það mun vera í kringum 230 þús. binda safn í heild og fer ört vaxandi. fslandsdeildin telur að mig minnir rösk 10 þús. bindi. Þeim f jölgar óðum, enda nýtur safnið ákvœða ís- lenzku prentskilalaganna frá 1939 og á að fá eitt eintak af öllum þeim bókum, sem prentaðar eru hér á landi. Ég held, að mér sé óhætt að full- yrða, að þessi fslandsdeild sé annað stærsta safn íslenzkra bóka vestan hafs, en fþaka mun vera stærst. Safnið á all gott safn íslenzkra blaða og tímarita frá 1796 til þessa daigs. Og enn fremur eru þar geymd mörg eiginhandarrit Stephans G. Stephanssonar. Annars eru þetta ekki upplýs- ingar frá fyrstu hendi, því að ég hef efcki séð safnið enn þá. — Og hvernig leggst ferða lagið í þig? — Síðustu dagana höfum við hvorki haft tíma til að kvíða fyrir né hlakka til. En við værum varla að leggja af stað vestur í kvöld, ef okk- ur fýsti ekki fararinnar og byggjumst ekki við að hafa neitt upp úr henni. — Og líklega færist þú all- ur í aukana í yrkingum þín- um þar vestra, Hjörtur. Verð- ur kannske vestur-íslenzkt sfcáld? — Ætli það. Mér finnst efcki rétt að auglýsa mig skáld þótt ég hafi haft gaman af að stinga niður penna við og við á menntaskólaárunum. Slétt- an er flöt, eins og þú veizt, og þó ég vilji ekki lasta okkar ágætur vestur-íslenzku skáld, kysi ég þó fremur að halda mínu þjóðerni ómenguðu, ef það kæmi þá til. — H. Bl. P Hafskip: Laxá er 1 Rvík. Rangá fór frá Gautaborg 22. þ.m. til íslands. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: Katla lestar á Faxaflóahöfnum. Askja er á leið til Norðausturlands- hafna. H.f. Eimskipafélag íslands: Brúarfoss fór frá Rvík í gærkvöldi til Dublin og NY. Dettifoss er á leið til NY. Fjallfoss fór frá Kotka í gær til Ventspils og Rvíkur. Goðafoss fór frá ísafirði í gær til Súgandafjarðar, Flateyrar, Bíldudals og Keflavíkur. Gullfoss fór í fyrradag frá Hamborg til Kaupmannahafnar. Lagarfoss kom til Gloucester 23. þ.m., Reykjafoss fór frá Moss 24. þ.m. til Antwerpen og Rotterdam. Selfoss er í NY. Trölla- foss kom tiil Avonmouth í fyrradag. Tungufoss kom til Avonmouth 23. þ.m. H.f. JÖKLAR: Drangajökull er i Keflavík. Langjökull lestar á Norður- Xandshöfnum. Vatnajökull lestar á N orðurlandshöf num. Skipadeild SÍS: Hvassáfell er á Seyðisfirði. Arnarfell er í Rotterdam. Jökulfell er á leið til Gloucester. Dís- arfell kemur til Hamborgar í dag frá Gautaborg, og fer þaðan til Grimsby. Litlafell er á Patreksfirði. Helgafell er á leið til Finnlands. Hamrafell er í Rvík. Stapafell fer frá Vestmannaeyj- um í dag til Manchester. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Austfjörðum á norðurleið. Esja var við Shetlandseyjar kl. 1Ö í gærkvöldi á leið til Rvíkur. Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21 í kvöld til Rvíkur. Þyrilil er á leið frá Færeyjum til Rvíkur. Skjaldbreið er á Norður- landshöfnum. Herðubreið er á leið frá Austfjörðom til Rvíkur. I Loftleiðir h.f.: Eiríkur rauði er væntanlegur frá NY kl. 06:00. Fer til Luxemborgar kl. 07:30. Kemur til baka frá Luxemborg kl. 24:00. Fer til NY kl. 01:30. Snorri Sturluson er væntanlegur frá Hamborg, Kaupm.- höfn, Gautaborg og Oslo kl. 23:00. Fer til NY kl. 00.30. Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug: Tveir marzbúar lentu í geim- skipi sínu í Afríku og þegar í stað söfnuðust forvitnir apakettir í kringum þessa óvæntu gesti. f>á sagði annar geimfarinn: — Þeir eru nú hreint ekki eins kjána legir og maður gæti haldið eftir útvarpsdagskánum þeirra. xxx Auðkýfingur og rithöfundur sátu hlið við hlið í veizlu. 9á síðarnefndi þreyttist mjög á millanum, sem masaði í sífellu um bókmenntir af lítilli þekk- ingu. Að lokum spurði sá ríki: — Segið mér eitt, hvaða bók mynduð þér helzt vilja taka yð- ur í hönd og blaða í, ef þér ættuð lausa eina kvöldstund? — Það vill nú þannig til, svar aði rithöfundurinn, að sú bók er eftir yður? — Hvernig má það vera, spurði millinn forviða. Aldrei hef óg gefið út neina bók. — Ég á við baníkalbók yðar, I svaraði þá síkáldið. Millilandaflugvélin Gullfaxi fer til Bergen, Oslo og Kaupmannahafnar kl. 10:10 í dag. Væntanl. aftur til Rvík- ur kl. 16:30 á morgun. Innanlands- flug: í dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar (2 ferðir), Húsavíkur, Egils- staða, Isafjarðar og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar og Vestmannaeyja. Nef, það hefor ekkert svar borizt til ,^læsilegrar og hrúnhærðrar‘% en ef þér bíðið andartak, þá ætla ég sjáXfur að skriia svar. Hríseyingar Ársbátíð Hríseyinga verður í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 2. marz. Tilkynnið þátttöku í síma 24656. Til sölu eru ný dagstofuhúsgögn vegna brottflutnings. — Ennfremur 2ja manna svefnbekkur með góðum rúmfatageymslum. Hagkvæmt verð. Upplýsingar í síma 13658 frá kl. 1—8 e. h. í dag. 1 háseta og beitningamenn vantar á línubát sem rær frá Sandgerði. Upplýs- ingar í síma 51297 og 7482, Sandgerði. Keflavík - Suðurnes Rödd sannleikans meðal margra radda nefnist erindi, sem Júlíus Guðmundsson flytur í samkomu- salnum í Vík, sunnudagskvöldið 27. jan. kl. 8,30. Allir velkomnir. Pianó Grotrian — Steinweg, Hornung & Möller, Herm. N. Petersen o. fl. — Verð frá kr. 8.850,00. HELGI HALLGRÍMSSON, Ránargötu 8. — Sími 11671. Stúlka óskast í vélasal. — Talið við verkstjórann. * Isafoldarprentsmiðja hf. SELFOSS OG NÁGRENNI Sunnudaginn 27. jan. kL 20,30 flytur Svein B. Jo- hansen erindi sem nefnist „Hver fær að búa á fjall- inu þínu helga?“ í Iðnað- armannahúsinu. — Einsöngur: Anna Johansen. Litskuggamyndir. Arni Jónsson syngur. — Allir velkomnir. Hvaða stórviðburðir eru að gerast á sviði trúmál- anna? nefnist erindi, sem Júlíus Guðmundsson flyt- ur í Aðventkirkjunni, Ing- ólfsstræti 19, sunnudag- inn 27. jan. kl. 5 e. h.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.