Morgunblaðið - 26.01.1963, Qupperneq 16
16
Laugardagur 26. janúar 1963
MORCrxnranið
Gísli Gunnarsson
kaupmaður
HINN 20. des. sl. andaðist að
Sólvangi Gísli Gunnarsson, fyrr-
verandi kaupmaður, og var hann
jarðsettur frá Fríkirkjunni 29.
des., og er þar genginn einn af
elztu og mætustu borgurum þessa
bæjar. Hann hafði þá dvalizt hér
í Hafnarfirði í rúma hálfa öld.
Mér er bæði ljúft og skylt að
minnast Gísla Gunnarssonar að
leiðarlokum og þakka honum
gömul og góð kynni. Ég var svo
heppinn að kynnast Gísla, þegar
ég var drengur og svo seinna
á lífsleiðinni unnum við saman
í yfir 20 ár í Kaupmannafélagi
Hafnarfjarðar.
Gísli fæddist 14. nóvember
1876 að Rofum í Mýrdal. Hann
var á fjórða ári, er hann missti
föður sinn, og ólzt upp á hrakn-
ingi í Mýrdalnum, eftir föður-
missinn. Þegar hann var 13 ára,
byrjaði hann að stunda sjóróðra,
en fluttist til Reykjavíkur, þegar
hann var 16 ára gamall. Þegar
til Reykjavíkur kom, lagði hann
fyrst stund á skósmíði og réðst
til náms hjá færeyskum skósmið,
Jakobsen að nafni, er rak skó-
smíðavinnustofu í Kirkjustræti
10. Að námi loknu vildi Jakob-
sen ekki gera samning við Gísla,
og réðst hann þá til verzlunar-
starfa hjá Kristjáni Þorgríms-
syni & Bartels, sem ráku verzlun
í Kirkjustræti 10. Tveim til þrem
árum seinna fór Gísli að stunda
sjó á þilskipum, og var til sjós
í næstu 15 ár, fyrst sem mat-
sveinn og síðar háseti og loks
stýrimaður, og oft tók hann að
sér skipstjórn í lengri eða
skemmri tíma, og fór honum það
allt vel úr hendi. Oft kom það
Hafnarfirði
fyrir á þessum árum, að Gísli
bar gæfu til þess að bjarga mönn
um úr sjávarháska. Þegar Gísli
hætti sjómennsku, réðist hann
sem íshússtjóri til Ágústar Flyg-
enrings, og vann hjá honum í
12 ár. Árið 1923 stofnaði hann
verzlun á Hamrinum, sem hann
rak í 37 ár, eða til ársins 1960.
Þegar Gísli fluttist til Hafnar-
fjarðar, byggði hann hús víð
Hellisgerði og þar rak hann bú-
skap með öðrum störfum sínum.
Árið 1920 byggði hann svo hús
sitt við Suðurgötu, og jók þá
mjög búskap sinn, hafði stórt
kúabú og mikla jarðrækt í mörg
ár. Gísli var slökkviliðsstjóri hér
í bæ í 36 ár og stundaði það
starf, sem önnur af mikilli kost-
gæfni. Þá tók hann mikinn þátt
í margs konar félagsstarfsemi.
Hann vann að stofnun Búnaðar-
félags Hafnarfjarðar á sinum
tíma; einnig var hann hvata-
maður að stofnun Mjólkurbús
Hafnarfjarðar, ásamt Jóhannesi
heitnum Reykdal. Þá tók hann
fyrr á árum mikinn og góðan
þátt í sönglífi bæjarins, m. a. var
hann einn af stofnendum Karla-
kórsins Þrasta. Eins og áður er
getið, starfaði hann mikið í Kaup
mannafélagi Hafnarfjarðar, og
var formaður þess í mörg ár.
Einnig vann hann að stofnun
sambands smásöluverzlana, sem
nú heitir Kaupmannasamtök fs-
lands, og var hann fyrsti fulltrúi
Kaupmannafélags Hafnarfjarðar
i þeim samtökum.
Gísli var mjög félagslyndur
maður og hrókur alls fagnaðar,
þegar hann tók þátt í gleðskap
í þeim mörgu félögum, sem hann
var í.
Gísli var einn af stofnendum
Fríkirkjusafnaðarins í Hafnar-
firði. Hann var heiðursfélagi í
skipstjóra- og stýrimannafélag-
inu Öldunni, Búnaðarfél. Hafnar
fjarðar og einnig í Kaupmanna-
félagi Hafnarfjarðar.
Hann var sæmdur riddarakrossi
hinnar ísl. fálkaorðu fyrir vel
unnin störf í þágu þjóðfélagsins.
Gísli var maður höfðinglegur
á velli og sópaði að honum, hvar
sem hann fór. Hann var einn
þeirra manna, sem varð að berj-
ast áfram í örbirgð og umkomu-
leysi, en tókst að lokum að kom-
ast til bjargálna og kannske vel
það. Gisli var maður bóngóður
og hjálpaði mörgum, sem til hans
leituðu.
Gísli eignaðist með heitmey
sinni, Máilfríði Jóhannesdóttur,
einn son, Konráð, kompássmið,
kvæntur Guðrúnu Guðmunds-
dóttur.
Árið 1910 kvæntist Gísli Guð-
riði Ólafsdóttur, ættaðri frá
Merkisnesi í Höfnum, mestu
myndarkonu, en hún lézt 5. jan.
1930, eftir langvarandi veikindi.
Þau eignuðust 4 börn:
Málfríði, gift Benedikt Guð-
mundssyni skipstjóra. Sigurð,
varaslökkviliðsstjóra, kvæntur
Jóhönnu Hinriksdóttur. Gunnar,
kompássmið, kvæntur Else M.
Jörgensen af dönskum ættum
og Valgeir Óli verzlunarmaður,
ókvæntur.
Árið 1928 réðist til Gísla ráðs-
kona, Guðlaug Eiríksdóttir, og
gekk hún börnum hans í móður-
stað, þegar Gísli missti konu
sína, og reyndist hún þeim góð
í alla staði, og veit ég að Gísli
var henni ávallt þakklátur fyrir
þá miklu umhyggju er hún sýndi
honum og börnum hans alla tíð.
Einnig var þar á heimilinu dótt-
ursonur Gísla, Gísli Magnússon,
sem ólst þar upp í skjóli Guð-
laugar. Þau Gísli og Guðlaug áttu
saman einn son, Eirik, sem kvænt
ur er Eiríku Markúsdóttur.
Ég kveð þig, Gísli með þessum
fátæklegu orðum og þakka þér
góð kynni. Þínum nánustu flyt
ég samúðarkveðjur.
Farðu heill til æðri heima og
guð fylgi þér á hinu nýia tilveru-
stigi.
Stefán Sigurðsson.
Drukknir bíl-
stjóraí teknir
á Akureyri
AKUREYRI, 19. jan. — Síðan
um áramót hafa tíu bílstjórar
verið teknir fyrir meint ölvun-
arbrot við akstur. Mál þeirra
liggja hjá embættinu eins og er,
en þetta er mjög óvenjulega há
tala hér á Akureyri yfir ekki
lengri tíma Þess má geta, að
ekkert af þessu eru leigubíl-
stjðrar. — St.E.Sig.
Sofnað fulltrúa-1
ráð Sjálfstæðis-
fél. í N-Þing.
SUNNUDAGINN 20. þ.m. var
haldinn á Raufarhöfn stofnfund-
ur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í N-Þingeyjarsýslu.
Björn Þórarinsson, bóndi, Kíla
koti, setti fundinn og ræddi um
þau mál sem fyrir fundinum
lágu. Fundarstjóri var kjörinn
Ólafur Ágústsson, hafns.m.,
Raufarhöfn og fundarritari Frið-
geir Steingrímsson, verkstj.,
Raufarhöfn.
Axel Jónsson, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins, flutti erindi um skipulags-
mál Sjálfstæðisflokksins og lagði
fram frumvarp að lögum fyrir
fulltrúaráðið, sem síðan var sam-
þykkt
Stjóm fulltrúaráðsins skipa:
Björn Þórarinsson, Kilakoti,
formaður. Jósep Þorsteinsson,
Kópaskeri, Ólafur Ágústsson,
Raufarhöfn, Friðgeir Steingríms-
son, Raufarhöfn, Helgi Þorsteins
son, Þórshöfn.
Á fundinum voru rædd lands-
mál og helstu hagsmunamál
héraðsins og urðu miklar um-
ræður Til máls tóku: Björn Þór-
arinsson, Snæbjörn Jónsson, Jón
Sigfússon, Ólafur Ágústsson,
Jósep Þorsteinsson, Friðgeir
Steingrimsson.
Á fundinum voru kjömir full-
trúar í kjördæmaráð Sjálfstæð-
isflokksins í Norðurlar •' ‘ ' "r-
dæmi eystra.
Kansas City, 19. jan. (AP)
HARRY S. Truman, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna,
var í gær skorinn upp við
kviðsliti. Gekk aðgerðin vel
og er Truman á góðum baba-
vegi.
eftir Henrik Ibsen. Leikstjóri Gerda
Ring (29).
FÉLAGSMÁL
Fjölbeytt hátíðahöld stúdenta 1. des.
Geir HaLlgrimsson, borgarstjóri, að-
alræðumaður dagsins (2).
Óli J. Ólason endurkjörinn formað-
ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur (4).
Einar Sæmundsson endurkjörinn
formaður KR (6).
Sveinbjörn Hannesson kosinn for-
maður Málfundafélagsins Óðins (11).
Birgir Kjaran formaður Fulltrúar-
ráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík (12).
Stefán Júlíusson kosinn formaður
Rithöfundasambands íslands (13).
Sigurður Sigurðsson kosinn formað-
ur Félags ísl. myndlistarmanna (13).
VR mótmælir tillögum um af-
greiðslutíma sölubúða (15).
Sveinn S. Einarsson kosinn formað-
ur Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi (16).
Samningar takast miili Félags starfs
fólks í veitingahúsum og Sambands
veitinga- og gistihúseigenda (20).
Fjárbagsáætlun Reykjavíkur fyrir
1963 samþykkt (21,22).
Skólastúlkur ræða réttindamál
kvenna (30).
AFMÆH
Karlakórinn Geysir á Akureyri 40
ára (1).
Stúkan Framsókn 40 ára (6).
Sigriður Þorsteinsdóttir í Keflavík
100 ára (18).
Þingeyrarsmiðjan 50 ára (28).
ÍÞRÓTTIR
Unglingalandslið íslands i hand-
knattleik tekur þátt i norrænu móti
unglinga (1).
Valbjöm Þorláksson setur þrívegis
íslandsmet í stangarstökki innanhúss
4,22 m. (8) 4,25 (14) og 4,30 (22).
Fram varð Reykjavikurmeistari i
haudknattleik innanhúss (11).
Ármann vann haustmót í sundknatt-
leik (1).
ÍR Reykjavíkurmeistari í körfuknatt
leik (14).
KR tekur þátt I Evrópukeppni í
knattspyrnu (22).
Sex landsleikir i knattspyrnu næsta
ár? (23.)
ÝMISLEGT
Atiantshafsbandalagið opnar skrif-
stofu i Reykjavík. Óttar Þorgilsson
veitir henni forstöðu (1.)
Kartöflur og kindakjöt hækka i
verði (1.)
Presthúsið á Hofsósi rifið (2.)
Ný umferðarkönnun í atrætisvögn-
um (4.)
Dougias-flugvél frá Flugíélagi ís-
lands lendir í fyrsta skipti á nýj-
utn flugveUi við Neskaupstað (4.)
Slöbkviliðið gabbað fimm sinnum á
einum sólarhring (4.)
islenzk þjóðlög og rimnastemmur
í BBC (5.)
Tillögur um breyttan afgreiðslu-
tíma sölubúða lagðar fram í borgar-
ráði (5.)
Vetrarhjálpin í Reykjavík tekur til
starfa (6.)
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir 1963 lögð fram. Niðurstöðutölur
404,1 millj. kr. (7.)
íslenzk skuldabréf að upphæð 360
miilj. kr. seldusrt upp á einni mínútu
i London (7.)
Rafmagnsverð hækkar um 3,7%—
12,7% (7.)
300 manns vinna við jólapóstinn í
Reykjavik (8.)
Frímerkjasjálfsalar væntanlegir i
Rekjavík (8.)
Dr. Oddur Guðjónsson skipaður við
sloiptaráðunautur rikisstjórnarinnar
(9.)
Þórhallur Ásgeirsson tekur að nýju
við ráðuneytisstjórastarfi í viðskipta-
málaráðuneytinu (9.)
Maður á sundi í Hafnarfj .höfn (9.)
Smyglað áfengi og „kinverjar" gerð
ir upptækir (9.)
Mislingafaraldur i Reykjavík (11.)
Hundrað þúsundasti farþegi Flug-
félags íslands á þessu ári var 7 ára
stúlka úr Vestmannaeyjum (11.)
Ástríður Jóhannesdóttir, prófasts-
ekkja, arfleiðir Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra að húseign (11.)
Stóru IATA-flugfélögin líta Loft-
leiði óhýru auga (12.)
Garnaveiki i 5 ám í Borgarfirði (12.)
Brezki togarinn Dinas frá Fleet-
wood tekinn að ólöglegum veiðum í
landhelgi (12.)
42 millj. kr. lán veitt til byggingar
verkamannabústaða (13.)
Eigendaskipti verða á tveimur fisk-
vinnslufyrirtækjum á Patreksfirði (14.)
Bílum i Reykjavik hefir fjölgað um
1200 á þessu ári (14.)
3 menn dæmdir fyrir fals, svik og
vanskil (14.)
Fyrirhugað að slæða upp tundurdufl,
sem lögð voru hér við land á stríðs-
árunum (15.) .
Mikil slagsmál urðu eftir dansleik í
Þórscafé (15.)
Hinrik Guðmundsson, verkfræðingur
villtist á Haukadalsheiði á rjúpna-
veiðum og var úti heila nótt (15.)
Vinnustofa og verzlun öryrkja starf
rækt á ísafirði (16.)
Nýr sölusamningur gerður við Breta
um útflutning sements (19.)
Lífeyristryggingar greiða 30 millj. i
desember (19.)
Bókun gerð um viðskipti íslands
og Sovétríkjanna (20.)
Útsvör í Hafnarfirði áætluð 21,7
millj. kr. (20.)
Gjaldeyriseign bankanna erlendis
yfir þúsund miUj. kr. (21.)
Lýst eftir skozkri viskí-gæs á ís-
landi (21.)
Örugg samstaða með öllum ríkjum
NATO, segir utanrikisráðherra eftir
Parísarfund (22.)
Bandarikjamenn lána 11,8 millj kr.
til Keflavíkurvegar (22.)
Sex jólabréf til hvers Reykvíkinga
til jafnaðar (22.)
Hringurinn gefur eina millj. kr. til
Landsspítalans (22.)
íslendingar hljóta marga erlenda
námsstyrki (23.)
íslenzkir feðgar sækja um alþjóða-
einkaleyfi á lesgrindum (23.)
Kirkjusókn mikil um jólin (28.)
Ný gjaldskrá pósts og sima gengur
í gildi um áramótin (28.)
Byggingaþörfin i Reykjavík 1960
til 1970, 660 íbúðir að meðaltali á ári
(28.)
Aldrei meiri verzlun á Suðurlandi
en í ár (29.)
70—80 brennur verða í Reykjavík
á gamlárskvöld (30).
Eimskipafélag íslands gefur út jöfn
unarhlutabréí með tíföldu verðgildi.
(30.)
12 togarar teknir að ólöglegum veið-
um í landhelgi á árinu, sem er að
líða, allir brezkir (30.)
Patreksfjarðarkirkju berst að gjöf
hökull og altarisklæði (30).
Áx-amót, eftir Bjarna Benediktsson,
form. Sjáifstæðisfiokksins (30.)
Annáll ársins í spéspegli(30.)
ÝMSAR GREINAR
Grautur sálfræðingsins, eftir séra
Svein Vilíing (6.)
Úr Austurlandaför, eftir Einar M.
Jónsson, skólastjóra (1., 13., 20., og
29.)
Um velferðarmál þjóðfélaga, eftir
sr. Jóhann Hannesson (4. og 20).
. Rökin studd, eftir sr. Svein Vík-
ing (5.)
Bréf frá New York, eftir Sigurð
Bjarnason (5., 12. og 19.)
Kristindómur og spíritismi, eftir
Felix Ólafsson, kristniboða (6.)
„Þjóðfylkingin" styðst við pólitíska
lögreglu og sovézkan her (9.) |
Fullveldisræða Thor Thors, sendi-
herra (9.)
Nokkur orð um vegamál Siglfirð-
inga, eftir Einar Ingimundarson (9.)
Lokunartími sölubúða, eftir Sverri
Hermannsson (12.)
Lokunartími sölubúða og verzlunar
fólk, eftir Sigurð Magnússon (13.)
Brot úr Rómarför, eftir Matthías
Johannessen (13., 15. og 16.)
Landið okkar (13.)
Enn smá innlegg um veiðimól Ár-
nesinga, eftir Guðm. Guðmundsson,
Núpstúnl (13.)
Framlög til verklegra íramkvæmda
hafa meira en tvöfaldast frá 1958,
eftir Gunnar Thoroddsen, fjámaála-
ráðherra (15.)
Vettvangur, eftir Ólaf Björasson,
prófessor (15.)
Flutningur fjár á tengivögnum, eft
ir Sigurmon Hartmannsson (15.)
Ný gerð mjaltavéla (15.)
Frá Nígeríu, eftir Elinu Pálma-
dóttur (15. og 20.)
Hænsnamatur á hundafati, eítir
Runólf Guðmundsson, Ölvesholti (16.)
Alþjóðahátíð stúdenta í París, eftir
Þorsteinn Einarsson (16).
Haraldur Níelsson og Varsjárþing-
ið, eftir Snæbjörn Jónsson (20.)
Fréttabréf úr Ölpunum, eftir Gunnar
Bjarnason, ráðunaut (20.)
Ólafur Pétursson segir írá sögulegri
reynslu í BerUn (20.)
Fjáriagafrumvarpið og húsaleigu-
nefndirnar, eftir Leif Sveinsson, lög-
fræðing (20.)
Vísitazía í Suður-Þingeyjarsýslu
(21).
Suma rferð á Winnipegvatni, eftir
sr. Valdimar J. Eylands (21.)
Frá Ólafsfirði, eftir Þorstein Matt-
híasson (21.)
Kommúnismi á íslandi, eftir Karl
HaUdórsson (21.)
Grundtvig í Frakklandi, eftir Bjarna
M. Gislason (22.)
Óperan í Hamborg, eftir Ingólf Þor-
steinsson (22.)
Skrítið er það, eftir Gísla Kol-
beinsson (23.)
Þegar Egill rauði strandaði, eftir
Helga HaUvarðsson, stýrimann (23.)
Katrin Guðlaugsdóttir skrifar bréf
frá Konsó (29.)
Góðir andar eða iUir, eftir sr.
Benjamín Kristjánsson (29.)
Um síðara axarskaft Helga á Hrafn-
kelsstöðum (30.)
MANNALÁT
Steingrímur I>orsteinsson frá Lundi,
Byggðavegi 88.
Ásdis Halldórsdóttir, Unnarstíg 2.
Magnús Kristjánsson, Hringbraut 81,
Keflavík.
Tryggvi Hjartarson, Efstasundi 9.
Pálína Björgúlfsdóttir, Ásbúðartröð
9» Hafnarfirði.
Björn Hallsson, fyrrv. alþm., Rangá.
Jóhanna Eggertsdóttir Briem, Laug-
arbökkum, Ölfusi.
Jón S. Ólafsson, fyrrv. forstöðu-
maður Bifreiðaeftirlits ríkisins.
Guðlaug Sigurðardóttir frá Snæ-
landi, Seífossi.
Bjarni Jónsson, Svalbarða, Vestm.-
eyjum.
Andrea Eygló Gísladóttir, Grettis-
götu 27.
Margrót Ragnarsdóttir, Langagerð
100.
Sverre Smith, loftsk.maður, Hring-
braut 74.
Guðjón Þorbergsson, Sogavegi 124.
Garðar S. Gíslason, kaupmaður.
Marteinn Þorbjörnsson, Suðurgötu 40
Hafnarfirði.
Kristín Jónsdóttir frá Arnarstapa á
Snæfellsnesi.
Ágústa Vilhelmína Eyjólfsdóttir,
Hörpugötu 13 B.
Magnús Stefánsson, kaupm., Rauða
gerði 16.
Hulda Magnúsdóttir, Hnausum, A.*
Hún.
Sigurður Þ. Sveinsson, fyrrv. stýrU
maður, Öldugötu 51.
Björn Helgason, skipstj., HafnarfirðL
Guðmundur Eggertsson, Aðalsteini
Stokkseyri.
Margrét Andrésdóttir, Stykkisrólmi
Guðm. Eyjólfsson, Steig, Mýrdal.
Björn Sveinsson, Tjarnargötu 10 c.
Stefán Þormar, Geitagerði, Fljótsdal.
Gimnar Sigurðsson, fyrrv. alþm. frá
Selalæk.
Jóhanna Gísladóttir, Háaleitisvegi 26
Jón Bergþórsson, Hlíðarbraut 10
Hafnarfirðí.
Kristjón Þorsteinsson, Meiri-Tungu,
Sigríður Bjarnad. Skipasundi 60.
Ingimundur Hallgrímsson, Litla*
Hvammi, Goðheimum 12.
Sigurður E. Hliðar, fyrrv. yfirdýra*
læknir.
Hallvarður Einvarðsson, Vesturg. 87
Akranesi.
Þorgerður Eggertsdóttir frá Vestur-
koti, Leirum.
Kristinn Þorbergsson, bifreiðastjórl.
Gunnar Gunnarsson, bóndi Syðra-
Va-llholti.
Árni Árnaeon, Hólavegi 12, Sauðár-
króki.
Rögnvaldur Þórðarson, bifreiðarstj*
Stigahlíð 10.
Guðjón Sigurðsson frá Hnífsdal.
Þorbjörg Friðjónsdóttir, Nönnugöta
10.
Gísli Gunnarsson, kaupm., Suður-
götu 74, Hafnarfirði.
Eiríkur Ásgrímsson, skipasmiður.
Ingibjörg Eiríksdóttir Valberg, frá
Minni-Mástungu.
Guðríður Sigurðardóttir, Munda-
koti, Eyrarbakka.
Guðrún Egilsson, Kambsvegi 37.
Anton Guðmundsson, húsg.smiður,
Jóna Ingunn Sigfúsdóttir Molander,
Hlíðardal.
Valdemar Árnason, Bergst.stræti 9,
Marinó Guðmundsson, Brimhóla*
braut 1, Vestmannaeyjum.
Helga Magnúsdóttir, fyrv. Ijósmóðir
Litlalandi, Mosfellssveit.
Kristín Kristmundsdóttir, ísafirði.
Bóas A. Pálsson, járnsmiður, Urðar-
stig 12.
Gísli Jónsson, Vesturkoti, Hvaleyrl,
Þorsteinn Ólafsson, stórkaupmaður,
Karólína Líba Einarsdóttir Xrá Mið-
dal.