Morgunblaðið - 05.02.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.1963, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. febrúar 1963 Allt fullt af síld í Eyjum Bátarnir liggja inni vegna veðurs VESTMANNAEYJUM, 4. febr. — 40 síldarskip liggja í höfn hér í Eyjum. í nótt munu um 20 bátar hafa legið austur í Bugtinni, en ]>eir hafa verið að tínast inn í allan dag. Nokkrir bátar fóru til Austfjarðahafna. Veðurhaeðin komst upp í 12 vind- stig í nótt. Síðan á miðvikudag hafa bor- izt á land 57 þús. tunnur af síld og hefur verið landað á hverj- um degi stanzlaust. Á þessum tíma er búið að fylla 7 togara, en sá áttundi, Askur, sem setl- aði að taka síld hér, fór út á veiðar þar eð engin ný sild hafði borizt. Kemur hann aftur undir eins þegar síldin fer að veiðast. Hér er allt fullt eins og er. Gizkað er á að um 5000 tunnur séu ólandaðar í bátunum og 8000—9000 tunnur á bryggju, en það rúmaðist ekki í síldarþrón- um og úrgangsporti. Drengs var sakn- að, fannst í bíá UM helgina var leitað að 14 ára' un til Borgarness og Akraness, gömlum dreng, sem ekki hafði komið heim eftir vinnu á föstu- dag. Leitaði hjálparsveit skáta í Hafnarfirði allt frá laugardags- nótt og fram á sunnudagskvöid, er þeir fundu piltinn þar sem hann var að koma úr kvikmynda húsi i Hafnarfirði. Drengurinn fékk kaupið sitt í lok vinnutíma á föstudag. Seg- ist hann hafa verið á flækingi um nóttina, en tók sér far með Akraborginni á laugardagsmorg Vörubíll fór á loft AÐFARANÓTT mánudags lá við slysi á Hvalfjarðarvegin/um, er vindhviða kastaði vörubíl á fólks bíl og síðan út af veginmn. Vörubíllinn T 192 var á leið til Reykjavíkur, en bilaði á móts við ' Styflisdal. Kom þar að fólksbíllinn E 12S og ætlaði að lýsa honum meðan viðgerð færi fram. Allt í einu kom mikil vind- kviða og svifti vörubílnum til, kastaði honum á fólksbílinn og síðan út af veginum. Skemmdist fólksbíllinn talsvert, en mesta mildi var að ekki varð slys, því tveir menn voru rétt skriðnir undan vörubílnum, er hann kast- aðist tiL Tvennt var í vörubílnum og 3 f fólksbílnum, en ekkert varð að þeim. svaf í skipinu, og kom með því til Reykjavíkur seinni hluta dags. Þá fór hann í bxó og fékk sér gistingu á hóteli í Reykja- vík, en sem Akureyringur. Á sunnudag var hann að korna úr þriðja bíóinu í Hafnarfirði, þeg ar skátarnir fundu hann. Mun pilturinn hafa verið aleinn á þessum flækingi. Er farið var að óttast um dreng inn, var lögreglunni gert að- vart og fékk hún hjáliparsveit skáta í Hafnarfirði í lið með sér, einkum þar sem sveitin hefur sporhund. Brugðu björgunarsveit armenn skjótt við og hófu leitina M. 2.30 aðfaranótt laugardags. Ekki kom hundurinn að gagni í þetta sinn, þar eð drengurinnn hafði verið í leigubílum milli staða. Á sunnudag hafði frétzt af piltinum, svo vitað var að ekkert var að honum. Datt skát unum þá í haug að gera skipu- Iega leit í bænum. Settu þeir vaikt við öll kvikmyndahús í Reykjavík, Kópavogi og Hafnar firði og ætluðu síðan að fara í allar sjoppur. í, leitinni voru 10—12 piltar úr björgunarsveitinni, sem sýndu með þessu mikla hjálpsemi og veittu lögreglunni ómetanlega aðstoð við að finna drenginn. Skellinöðru stolið SKELLINÖÐRUNNI R-295, sem er dökkblá að lit af gerðinni Victoria, var stolið sl. sunnu- dagsmorgun mil'li M. 10.30 til 12 þaðan sem hún var fyrir framan húsið nr. 14B við Grjótagötu. ■ Þeir, sem hafa orðið varir við Á NÍUNDA tímanum sl. laugardagsmorgun varð elds vart að Gunnarsholti í búi Sandgræðslu ríkisins á Rangárvöllum. Eyði- lagðist efri hæð hússins og brunnu þar inni mikil verð Húsið sem brann er tvíbursta, lengst rayndinni Efri hæð íbúðarhússins í Gunn- arsholti gereyðilagöict í eldi Kona slapp jbaðan með barn sitt á siðustu stundu mæti, en konu með bam tókst að sleppa út á síðustu stundu. Blaðið átti i tal við Pál Sveinsson sandgræðslustjóra að Gunnarsholti og sagðist honum svo frá atburði þess- um: — Ég var ekki heima, er atburðurinn gerðist, var suð- ur í Reykjavík. Vitað er að kviknaði út frá rafmagni á efri hæðinni og gereyðilagðist hún. Þak hangir uppi, en eyðilagt. Á efri hæð íbúðar- hússins bjuggu hjón, sem hér starfa, svo og vinnumaður hér á búinu. Um kl. 8 á laugar- dagsmorgun fóru þeir út, karlmennirnir, en eftir var kona með lítið barn. Konan heitir Sigfríður Jónsdóttir, gift Sigurði Sveinbjarnar- syni. Klukkan rúmlega hálfníu vaknaði Sigfríður við að eld- ur var kominn að dyrum herbergis þess er hún svaf í með barn þeirra hjóna. Brá hún þegar við og komst út með barnið. Fékk hún af þessu slæmt áfall, en er nú á batavegi. Ekki sakaði hana né barnið að öðru leyti. Þegar þeir, maður hennar Sigurður og vinnumaðurinn, fóru út um kl. 8 urðu þeir ekM varir við neitt er benti til íkviknunar. Logn var og blíða er at- burðurinn átti sér stað og varð þáð til mikillar bjargar, því íbúðarhúsið er samfast öðrum byggingum á staðnum, sem voru í hættu. Efri hæð íbúðarhússins var úr eldfimu efni, tré og texi, og varð því fljótt eldinum að bráð. Neðri hæð hússins er hins vegar úr steini svo og loftið yfir henni. Urðu því tiltölulega litlar skemmdir á henni, nema nokkrar af vatni. Slökkviliðið á Hvolsvelli kom á vettvang og réði nið- urlögum eldsins, svo og kom slökkvilið frá Selfossi, en þá var brunanum að mestu lok- ið. — Sem fyrr segir hangir þak hússins enn uppi, en allt á efri hæð eyðilagðist, t.d. innbú þess fólks er þar bjó og var allt óvátryggt. Hér fara fram tíð skipti starfsfólks og annast búið ekki tryggingu muna þess. Skrifstofa mín var á efri hæðinni og ýmis verð- mæt skjöl þar inni, en þeim tókst að bjarga. Ég var suður í Reykjavík og þar með bók- hald búsins, sem verið er að ganga frá. Vátrygging hússins er með því hæsta sem gerist. Ætlunin er nú að loka upp- ganginum upp á efri hæðina og ganga þannig frá að hægt verði að búa á neðri hæðinni. Þar til því er lokið njótum við gestrisni nágranna okkar, sagði Páll Sveinsson að lok- um. skellinöðruna, eftir hádegi á sunnudag, eru vinsamlega beðn ir að gera rannsóknarlögreglunni viðvart. Þorrablótið dró dilk á eftir sér Ævintýraferð Gylfa endaði o strandi ísafirði, 3. febr. — ÞORRABLÓT var haldið á Flateyri á laugardagskvöld og dró dilk á eftir sér. Vélbátur- inn Gylfi úr Eyjafirði, sem leigður hefur verið til Suður- eyrar í vetur og er gerður þaðan út fór til Flateyrar á laugardagskvöldið með eitt- hvað af fólM frá Suður- eyri, sem ætlaði á blótið. Þeirra á meðal var skipstjór- inn á bátnum. Gekk sú ferð að óskum og héldu menn til fagnaðarins, allir nema einn sMpverja. Hann tók bátinn traustataM um kvöldið, og sigldi honum einn til Suður- eyrar. Á meðan báturinn var á leiðinni til Suðureyrar var hringt frá Flateyri og sagt frá bátshvarfinu. Óttuðust menn að skipverjinn hefði farið sér að voða einn á bátnum, en þegar hann kom klakklaust í höfn á Suðureyri önduðu menn léttar. Lögðu aftur í hann Engum kom til hugar að skipverjinn myndi endurtaka þetta ævintýri, en um nóttina fékk hann tvo eða þrjá menn til liðs við sig og héldu þeir af stað frá Suðureyri um nótt- ina til þess að sækja sMpstjór- ann og aðra gesti, sem farið höfðu á þorrablótið. Þá tókst ekki betur til en svo að eftir stutta siglingu strönduðu þeir félagar bátnum í árósum hjá prestssetrinu í Staðardal, en þetta er sunnanmegin Súg- andafjarðar, um miðja leið út fjörðinn frá Suðureyrþ Skip- brotsmenn fóru gangandi um 20 mín. leið til Suðureyrar og sögðu farir sínar ekki sléttar. Á sunnudagsmorguninn var hafizt handa um að bjarga bátnum og var varðskipið Al- bert fengið til að draga bátinn á flot og tókst það giftusam- lega á flóðinu. Gylfi virðist ekM mikið skemmdur. Kafari frá Albert athugaði skemmdir á bátnum á strandstaðnum og segir að skemmdir hafi orðið á strákjöl og botninn eitthvað meira nuddaður. Gylfi er kominn til ísa- fjarðar og á að fara í slipp hjá Marselíusi Bemharðssyni, en í dag var ekki hægt að taka bátinn upp, því annar er fyrir í slippnum. Verður ekki hægt að ganga til fulls frá fyrr en báturinn kemst á flot. Gylfi er 35 tonna bátur. — H. T. Góður afli Bíldudalsbáta BÍLDUDAL, 4. febrúar — Afla fréttir í janúar: Pétur Thorsteins son aflaði 179 lestir og Andri 146 lestir í 16 róðrum. Afli hefur verið góður hjá bátunum að und anförnu og afli komizt upp í 19 lestir í róðri. Rækjuveiðin hefur verið góð og næg og góð vinna er hér á Bíldudal. Hið árlega þorráblót var hald ið 27. janúar sl. Annaðist það slysavarnadeild karla að venju. Var þar mikið fjölmenni, hátt á annað hundrað manns. íslenzkur matur var á borðum og skemmtu menn sér fram eftir nóttu Í2 NA 15 hnútor SV50 hnútar Snjikoma » ÚÍi -<*■ V Skúrir S Þrumur 'W&s, KuUaskit ‘Zs' HitasM H Hm» L Lmti KL. 11 vax NA-átt og kuldi hér á landi. Sums staðar var hvasst, en mestur vindur var á Hólum, 10 vindstig. Þar var 7 stiga frost. Þýzkt skip skammt SA af Gerpi gaf emn ig 10 vindstig. Djúp lægð var fyrir vestan írland. Rokhvasst var vestan og norðan við lægðina, en hægur vindur á Bretlandseyj um. Enn vom kuldar í Suður- Evrópu, t.d. var 2 stiga frost og snjókoma í Madrid.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.