Morgunblaðið - 05.02.1963, Side 10
10
MORGVISBLAÐIO
Þriðjudagur 5. febrúar I965>
P á
m mm
i.
C A R D I N
VORSÝNINGARNAR í París
byrjuðu hjá Cardin. Sýning
hans er, að sögn sumra, eins
og ástarbréf til Jeanne Mor-
eau, sem. kom til sýningar-
Gnlur krepkjóll frá Heim
með sléttu pilsi og síðri blússu
með bjölluermum.
innar klædd í græna rúskins-
dragt og sat fyrir hjá ljós-
myndurunum .að henni lok-
inni með arm tízkukonungs-
ins um mittið.
Cardin hefur verið svo hepp
inn að fá sýningarstúlkur sem
hafa sama fjarræna yndis-
þokka til að bera og Jeanne.
Kvöldgreiðsla þeirra ein-
kenndist af smátagli í hnakk-
anum, sem mjög minnti á
skólastúlkur. Höfuðeinkenni
sýningarinnar eru mýkt og
belti. Fötin eru yfirleitt opin
í hálsin og frjálsleg, pilsin
eru aðskorin eða með felling-
ar að neðanverðu, jakkarnir
eru hnepptir að framan en
lokast ekki alveg. Litimir eru
jafn mjúkir og sniðin. Sum
efnin eru nærri því eins og
þau hafi verið púðruð.
Cardin hefur ennþá trú á
drögtum og teiknar meir af
þeim en nokkur annar í París.
Þær eru af alls konar gerð-
um en margar 'með fellinga-
pilsum, beltum og minna yfir-
leitt meira á sveitasælu en
ysinn í viðskiptalífi borg-
anna. Dragtirnar þykja betri
hjá honum en í fyrra, enda
pilsin styttri.
Sum fötin, sem sýnd voru,
þóttu helzt til flókin, svo
ekki var unnt að sjá hvort
um var að ræða kápu, dragt
eða kvöldkjól, en tveir kvöld
kjólar þóttu bera af, báðir
síðir og þröngir, annar úr
svörtu en hinn úr hvítu crepe
og ætlast hann ekki til að
konur beri skartgripi með
þeim. Talsvert gætti jap-
anskra áhrifa á sýningu
Cardins — mörg breið obi-
belti og danskjólar úr jap-
önsku brókaði — enda er ein
af uppáhaldssýningarstúlkum
Cardins japönsk.
D E S S E S
Ef maður vill sjá eitthvað
óvenjulegt er bezt að fara til
Jean Desses. Þar eru sumir
danskjólarnir með gullna
snáka fyrir hlýra. Snákarnir
eru eftir vin Desses í Grikk-
landi.
Hinn nýi aðalritstjóri Vogue
sagði að, danskjóll frá Desses,
sem gerður er úr tjullræm-
um í litum frá ljósgráu til
kolsvarts, væri glæsilegasti
kjóllinn í París núna. Auk
hlýranna er beltið líka gull-
inn snákur.
Dragtirnar hjá Desses eru í
þetta sinn fóðraðar blóma-
mynstruðu silki með tilsvar-
andi blússum. Annars ber
einna mest hjá honum á breið-
um beltum í andstæ. rm lit-
Roger Vivier sýndi hjá
Christian Dior skó með rós-
rauðu ristarbandi. Fyrir neð-
an það sjást áprentaðir lérefts
skór með rennilás og gúmmí-
sólur.1.
T. v. jakkablússa frá Cardin með ópressuðum fellingum yfir mittisþröngu pilsi. Hatt-
arnir voru stórir og slúttu út í aðra hliðina. í miðju að ofan hárkolla Desses með lökk-
uðum gervilokkum yfir demantabandi, þar fyrir neðan er hetta úr rósrauðu chiffon
yfir túrban t. h. rósrauð slaufa á svörtu chiffon frá Desses.
Greiðsla sýningarstúlkna
Cardins.
um, fellingakjólum og crepe.
Mikla eftirtekt vöktu kjól-
ar, sem eru ólíkir því sem
hann áður hefur gert, kannski
mest vegna þess að stúlkan
sem sýndi þá, er nauðalík
grísku prinsessunum.
F E R A U D
Sýningin hjá Feraud var í
Til hreinsunar á stál-
vöskum, pottum.
pönnum og öðrum
búsáhöldum-
Ólafur R. Bjprnsson & Co.
Sími 11713.
þetta sinn jafn lík fótbolta-
keppni og tízkusýningu, aðal-
lega vegna þess að lúðrasveit
lék vinsæla fótboltamarsa í
hléunum. Feraud reynir ekki
að valda aldahvöríum í tízk-
unni, heldur sýnir unggæð-
ingsleg og falleg föt. Hjá
honum eru líka yngstu og lag
legustu sýninarstúlkurnar í
París. Enginn þeirra lítur út
fyrir að vera eldri en sextán
ára.
Feraud þykir einna beztur
þeirra, sem ekki miða að list-
rænni fatagerð fyrst og
fremst. Sýningin er afskap-
lega mexikönsk, hann notar
mexikanskt léreft og mexi-
kanskan útsaum, og breið
belti í mexikönskum
litum við kjólana.
Feraud sjálfur var hinn
tízkulegasti, í dimmblárri
peysu og var nú með háls-
bindi í fyrsta sinn á ævinni.
L. A R O C H E
Hjá Guy Laroche eru fötin
alltaf unglingslegri og ekki
eins hástemmd og hjá hinum.
Innblástur sinn ■ hefur bann
fengið í þetta sinn frá karl-
mannaskyrtunni. Laroche
notar skyrtujakka úr alls
konar efnum, þar á meðal
köflóttum ullarefnum og
«■ röndóttum eða dropóttum silki
efnum. Með þeim fylgja sam-
stæð dragtarpils úr twee eða
kjóll í öðrum lit. Laroche
breytir skyrtusniðinu ekki til
muna, hvorki flibba, herða-
stykki né ermum. Hún er
alltaf höfð óformleg og öpin
í hálsinn. Einn skemmtileg-
asti skyrtuklæðnaðurinn er
gerður með skyrtu úr grá- og
hvítröndóttu silki, sem hang-
ir laus yfir gráum ullarkjól.
Dragtarhattar hans eru flest
húfur með derið í hnakkan-
um.
Danskjólar eru útsaumaðir
í kórallitum og sýningar stúlk
urnar báru hárgreiðslur í stíl
við tyrkneska turna eða stór
japanska prjóna, sem reknir
voru gegnum gervihár þeirra.
H E I M
Jacques Heim er einnig
með ermar. Eftir því sem líð-
ur á daginn verða þær stærri
Og á kvöldkjólunum l.anga
þær alveg niður á gólf. Dag-
kjólar eru tvískiptir og pilsið
er lítið en blússan þríhyrn-
ingslaga og útsniðin. Þó blúss-
urnar nái alveg niður á
mjaðmir eru á þeim örmjó
belti, sem gefur til kynna hvar
mittið er undir.
Kjólarnir eru yfirleitt háir
í mittið, annað hvort með
blússu eða drégnir að með
þvengjum, tveim þumlung-
um fyrir ofan mittið á kon-
unum. Stundum eru þeir í
tveim litum. Miðdegiskjólar
eru svartir með flegnu V-
Framhald á bls. 23.
Patou sýndi dimmbláan
kvöldkjól með mittið á rétt-
um stað