Morgunblaðið - 05.02.1963, Blaðsíða 24
iiir~ W r m r
Ihíbýlaprýði hf Hallarmúla slml 38177
Drengur hrapar
við Siglufjörð
Þetta er Vestmannaeyjabáturinn Sævaldur SU 2 við bryggju
í Vestmannaeyjum eftir aS hann var tekinn í fyrra skiptið í
landhelgi. Eftir að hafa fengið dóm fór hann beint í land-
helgina aftur.
Tveir Eyjabátar
feknirí landhelgi
Annar nýdæmdur fyrir landhelgisbrot
SIGEUFIRÐI, 4. febrúar. — í
gær voru nokkrir unglingar að
leik í nánd við svokallaða
Hús skemmd-
iist, hey fukffi
símnlínui
slitnuðu
BORGAREYRI, EyjafjaRa-
hreppi, 3. febr. — Undir
Eyjafjöllum var ofsaveður af
norðaustri s.l. nótt. Tjón vaxð
á húsum, hey fuku og síma-.
línur slitnuðu.
í Berjanesi undir Austur-
Eyjafjöllum fuku tvær hlöð-
ur, skúr og fjárhús. Tjón á
heyjum mun þar hafa orðið
allverulegt. í Ysta-BæJi í
sömu sveit voru 5 hey aust-
ur undir bænum, Af þeim
sést ekkert eftir. Þ-etta munu
hafa verið eitthvað á annað
hundrað hestar.
í Skógaskóla er rafmagns-
laust og á nokkrum bæjum
þar í kring og símabilanir
urðu þar einhverjar.
í Ormskoti undir Vestur-
Eyjafjöllum fuku þök af tveim
ur hlöðum, hluti af þeirri
þriðju og skúr. Brotnuðu marg
ar rúður þar í íbúðarhúsinu
og útihúsum, sem orsakaðist
af grjótfoki. Rafmagnslínur
biluðu þar líka og er rafmagns
laust á Skálabæjum og síma
bilanir, einkum meðfram fjall
inu. Þessar upplýsingar eru
skv. símtölum við Skarðshlíð
og VarmahMð — Markús.
Gimbrakletta, sem eru í fjalls-
hlíðinni ofan við Siglufjarðar-
bæ, sunnan og neðan við Hvann
eyrarskál. Er álitið að þrír
þeirra hafi hrapað og einn slas-
aðist, fékk höfuðhögg og liggur
á Sjúkrahúsi Siglufjarðar.
Hér var svo að segja snjólaust
er þetta gerðist en frost og ísing
og svella lagt. Enginn. er til frá
sagnar um hvað nákvæmlega
gerðist, en drengirnir munu
hafa hrapað.
Fólk heyrði tii þeirra og kom
til hjálpar. Tveir reyndust svo
til ómeiddir, en Sigurjón Gunn-
laugsson, sem fæddur er 8/9
1956, fékk höfuðlhögg. Veitti
sjúkraihúslæknirinn þær upplýs
ingar í dag, að ekki væri búið
að fullfcanna meiðsli hans, hann
hefði fengið heilahristing, og liði
nú miklu betur. Hinir drengirn
ir voru á svipuðu reki og Sigur
jón. — Stefán.
Stjórnmála-
númskeið
Heimdallar
t KVÖED kl. 8.30 hefst á veg-
um Heimdallar F.U.S. í Valhöll
stjómmálanámskeið um íslenzk
stjómmál — sögu þeirra og
framtíð. Námskeiðið mun standa
til loka marzmánaðar og verða
flutt 8 erindi (sjá auglýsingu
annarsstaðar í blaðinu). Fyrsta
erindi námskeiðsins flytur Birgir
Kjaran alþm. um íslenzk stjóm-
mál 1918—1944. Heimdellingar,
látið skrá ykkur til þátttöku í
skrifstofu Heimdallar, sími 17102.
SL. laugardag varð landhelgis-
flugvél vör við tvo togbáta í
landhelgi út af Hjörleifshöfða á
svipuðum stað og Vestmanna-
eyjabátamir vom um daginn.
Reyndist annar, Sævaldur SU 2,
vera einn af þeim bátum, sem
teknir vom fyrir landhelgisbrot
í siðustu viku og dæmdir í sekt.
Hitt var Bjami riddari.
ir Langt innan línu
Það var leiguflugvél, sem land-
helgisgæzlan hafði undir stjórn
Garðars Pálssonar og með áhöfn-
inni af Sif, sem varð bátanna
vör, er hún var á eftirlitsflugi
með suðurströndinni á laugardag.
Var Bjarni riddari rétt vestan
við Ingólfshöfðan, 5,1 sjómílu
innan markanna, en Sævaldur
austan við höfðann, 7,2 mílur
fyrir innan. Gerði flugáhöfnin
varðskipinu Óðni aðvart og fór
það á staðinn. Bátarnir hlýddu
strax fyrirmælum þess og kom
varðskipið með þá til Vestmanna
eyja aðfaranótt sunnudags.
Kópavo^ur
SJÁUf'STÆÐISKVENNA-
FÉLAGIÐ EDDA heldur föndur
kvöld í Sjálfslæðishúsinu í Kópa
vogi í kvöld kl. £.30. Kennari
Guðrún Júlíusdóttir.
Réttarhöld í málum bátanna
hófst í gæ.r, en þeim var ekki
lokið, þar eð beðið er eftir skýrsl
unni frá flugvélinni. Ekki var
flugveður og verður hún að fara
með Herjólfi.
Báturinn Unnur frá Eyrar-
bakka, sem tekinn var um dag-
inn, fékk 4000 kr. sekt fyrir ólög-
legan útbúnað veiðarfæra, en
skipstjórinn neitaði að hafa verið
í landhelgi.
IIÖFN, 4. febrúar. — Á sunnu-
dagskvöld fórst ungur bandarísk
ur flugmaður í fjallinu Vestra
Horn skammt frá radarstöðinni
á Stokksnesi, en hann var starfs
maður þar.
Tveir Bandaríkjamenn frá stöð
inni voru á göngu þarna í Horn-
inu, sem er geysihátt fjall og
•mikið af klettum í því. Ekki er
vitað hvar þeir hafa farið, en
talið er að þeir hafi báðir hrap-
að í fjallinu, og báðir meiðst,
annar þó mikiu minna.
Háseta
saknað
uf bv. Jóni forseta
UNGS Færeyings að nafni
Leif Mohr er saknað af tog-
/ aranum Jóni Þorlákssyni, sem
I ler á leiðinni til Englands í
l söluferð. Er talið að maðurinn
l hafi verið um borð er skipið
fór frá Reykjavík kl. 4 á laug-
ardag.
Átti hann að mæta á vakt
morguninn eftir, en'er hann
kom ekki, var farið að svipast
um eftir honum og fannst;
hann þá ekki um borð. Blíð-1
skaparveður var þegar skipiðí
fór frá Reykjavík, en mcnní
töldu sig hafa séð piltinn umj
það leyti sem skipið var aðl
fara.
i Leif Mohr er um 25 ára
gamall, dökkhærður og mynd-
arlegur piltur. Ekki hefur
hann komið heim í herbergi
það sem hann leigir í Reykja-
vík og heldur ekki í Hjálp-J
ræðislierinn, þar sem hanni
borðaði er hann var í landi. |
Mýrasýsla
ADALFUNDUR Félags ungra
Sjálfstæðismanna í Mýrasýslu
verður haldinn að Hótel Borgar-
nes, miðvikudaginn 6. febrúar
kl. 9. Dagskrá: inntaka nýrra
félaga, venjuleg aðalfundarstörf,
fulltrúakosning.
Félagar fjölmennið og mætið
stundvíslega.
Norðan hvassveður var og
frost en þurrt veður. Mun sá
sem minna var meiddur hafa
reynt að bera hinn slasaða fé-
laga sinn. þar til hann gafst upp
við það. Skildi hann manninn þá
eftir meðan hann sótti hjálp, en
er hún barst um 1% klist. síðar
var maðurinn látinn eða um það
Hér sést landsvæðið austan við
Hornafjörðinn, með Stokksnes-
inu þar sem radarstöðin er og
fjallinu Vesturhom, þar sem
Bandaríkjamaðurinn fórst, •
bil að deyja. Læknirinn í Höfn
var sóttur um miðnættið, en þá
var ekkert hægt að gera langur,
— Gunnar
Fiskurínn fer undir ísinn
— segja fiskimenn fyrir vestan
ÍSAFIRÐI, 4. febrúar —
Slæmt veður var í gær-
kvöldi og í nótt á miðum bát
anna við Djúp og sárafáir á
sjó. Karl Sigurðsson, á Mími
frá Hnífsdal segir að verið
hafi 6—7 vindstig NA.
„Við rerum stutt, um 12
mílur NV frá Steind og feng
um aðeins 314 tonn. Við urð
uim varir við nokkra jaka á
reki og þeir voru þarna líka
í gærmorgun. Þetta eru ekki
stórir jakar, aðeins íshrafl.
Við sáum ekki mikinn ís, því
við sjáum varla meira en tvær
til þrjár mílur frá okkur. Ann
ars hefur verið mikill ís -hér
út af Djúpinu og við höfum
ekki getað róið nema á grunn
slóð. ísinn hefur verið 20—30
mílur N-NV frá Deild og
spillt mjög fyrir okkur. Við
hefðuih þurft að geta róið 35
og upp í 40 mílur til þess að
komast á beztu miðin.
Aflabröigðin frá áramótum
haía líka verið léleg, þó að
einstaka bátur hafi fengið
sæmilegan afla af og til. Fisk
urinn virðist hafa verið bezt
ur nálægt ísnum og margir
halda því fram að fiskurinn
leiti undir ísinn. Þetta segja
togaraskipstjórar líka. Við á
línubátunum verðum að hopa
frá ísnum, þó að togararnir
geti fiskað nálægt ísröndinni".
— Heldurðu að ísinn gangi
hér inn í Djúpið? " ,
— Það er vaxandi straum
ur núna oig ef nú gerði vestan
átt, er hætta á því að ísinn
yrði fljótur að komast inn í
Djúpið. ísinn hefur legið lengi
í Vesturálnum um 35—40 míi
ur NV frá Kóp og það getur
verið hætta á því að sá ís leiti
hér norður eftir. Annars
finnst okkur skipstjórum hér
vestra nauðsynlegt að flogið
sé yfir ísinn og gefnar út til-
kynningar um stöðu hans á
hverjum tíma. Það yrði mik-
ið öryggi af því fyrir okkur,
sagði Karl Sigurðsson, skip-
stjóri að lokum. — H.T.
B andaríkjamaður
ferst í Vestra Horni