Morgunblaðið - 23.02.1963, Page 12

Morgunblaðið - 23.02.1963, Page 12
12 MORCVNBLAÐ1Ð Laugardagur 23. febrúar 1961 JMwgintilrib&ifr Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur Mafthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsso’- TJtbreiðslustjón: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Að^lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakiö. BLAÐAMENNSKA OG SVIK II ta ws uta N ÚR HEIM - * ' Ss '; . * % .- . tí-* • A- Vf\ V ‘J& /.ý: ■■ " ‘ x : <. • ‘ Stúdentar frá Gliana við komuna til Vinar eftir námsdvöl í Búlgaríu, Stutíentar frá Afríku flýja áróður og ofsóknir kommúnista ¥>laðamenn gera sér yfirleitfr " grein fyrir ábyrgð þéirri, sem á þeim hvílir. Þeir eiga að flytja réttar fréttir, skýra frá staðreyndum eins og þær liggja fyrir og ekki skjóta undan mikilvægum fregnum. Það er mál manna, að þessa réttmæta sjónarmiðs hafi gætt í vaxandi mæli hjá ís- lenzkum blöðum, þótt auð- vitað sé aðstaða til fréttaöfl- unar misjöfn og minni blöðin missi þar af leiðandi af mikil- vægum fregnum. En eitt íslenzkt blað hefur sótt í öfuga átt. Það hefur stöðugt haldið lengra út í fen ósanninda og blekkinga. Þess vegna er það réttnefnt frétta- fölsunarblaðið. Óþarfi er að taka fram, að hér er átt við Tímann. Það vita orðið allir, enda einkennir öfuguggahátt- urinn það blað og flokkinn, sem rekur það. Auðvitað hljóta blöð, sem styðja ákveðna stjórnmála- stefnu, að túlka pólitísk sjón- armið, skýra afstöðu til mála og áhrif og eðli ákveðinna at- vika. í slíkum umræðum sýn- ist að sjálfsögðu sitt hverj- um. En málafylgja Tímans er annars eðlis, það blað býr sér til „staðreyndir" og túlkar síðan þessi tilbúnu sannindi. Á hinn bóginn skýtur það svo undan öllum fregnum, sem það telur ekki þjóna málstað Framsóknarflokksins. Þannig hendir það naumast, að birt- ar séu opinberar tilkynningar um batnandi gjaldeyrisstöðu þjóðarinnar, aukið sparifé, hagkvæman viðskiptajöfnuð o. s. frv. Það er þetta fréttafölsunar- eðli, sem er til mikillar van- sæmdar fyrir starfsmenn þessa blaðs, og raunar næsta óskiljanlegt, hvernig á því stendur, að þeir láta bjóða sér siíka meðferð. UMMÆLI ÖLAFS Igær er því haldið fram í sjálfri ritstjórnargrein Tímans, að Morgunblaðið hafi ekki birt yfirlýsingu Viðreisn arstjórnarinnar, sem Ólafur Thors flutti á fundi Norður- landaráðs. Tíminn veit þó of- lur vel, að Morgunblaðið birti í heild útvarpsávarp Ólafs Thors, forsætisráðherra, þar sem hann las þessa yfirlýs- ingu upp. Þetta ávarp er birt með 5 dálka fyrirsögn í Morg unblaðinu sl. miðvikudag og gat því ekki fram hjá neinum farið. Þetta er aðeins eitt af fjöl- mörgum dæmum um vísvit- andi ósannindi þess blaðs, sem annar stærsti stjórnmála- flokkur landsins ber ábyrgð á. En beinu ósannindin eru ekki látin nægja. í sömu rit- stjórnargrein er haldið áfram dylgjum um það, að Ólafur Thors hafi ekki þorað að segja skoðun sína eða Við- reisnarstjórnarinnar á Efna- hagsbandalagsmálinu vegna væntanlegra kosninga. Sannleikur þess máls er sá, sem Morgunblaðið birti á forsíðu, einnig sl. miðviku- dag, að Ólafur Thors sagði í upphafi ræðu sinnar í Norð- urlandaráði í-léttum tón, að það væri „hollast að tala var- lega, því að á íslandi eru kosningar fyrir dyrum, og gæti ég ekki skjalfest það, sem ég segði, mundi stjóm- arandstaðan — og hún er ekkert verri en ég, á það vil ég leggja áherzlu — segja að ég hafi sótt um fulla aðild að Efnahagsbandalaginu og/eða Fríverzlunarbandalaginu". í framhaldi af þessum orð- um les Ólafur Thors síðan upp yfirlýsingu í þessu efni, sem bæði hefur verið birt í Morgunblaðinu og lesin upp í útvarpinu. Og lengur fer ekki á milli mála, að það var rétt athugað hjá forsætisráðherra, að rétt var að hafa það skjalfest, sem hann sagði ujn þetta mál. Hann hafði ekki fyrr lokið máli sínu, en Tíminn sleit eina setningu úr ræðu hans úr samhengi og birti hana með rosafyrirsögn á forsíðu og hefur síðan tönnlazt á henni, en forðast eins og heit- an eldinn að segja rétt og ó- bjagað frá yfirlýsingu for- sætisráðherra. Auðvitað er skelfilega leið- inlegt að þurfa að vera að svara eilífum útúrsnúningum og fölsunum þessa óheiðar- lega blaðs, enda leggur Morg- unblaðið yfirleitt ekki í vana sinn að svara blekkingavaðli þess. En hjá því verður þó ekki komizt að vekja öðru hverju athygli á eðli þessara skrifa, svo að menn séu á varðbergi. NÝJUNG í ÚTFLUTNINGI TjMns og kunnugt er hafa síð- ustu árin verið gerðar margháttaðar tilraunir til út- flutnings nýrra vörutegunda héðan. Hafa margar þeirra borið mjög góðan árangur og ýmis iðnfyrirtæki hafið út- ÓÁNÆGJA stúdenta frá Afríku- Iöndum, sem stunda nám við há- skóla í Búlgaríu, hefur vakið heimsathygli. Kvarta stúdentarn- ir mjög yfir aðbúnaði öllum, pólitískum áróðri, kynþáttaof- sóknum og frelsisskerðingu. Nokkrir stúdentanna hafa flúið land, en þeir, sem eftir eru, hafa gert verkfall. Neita þeir að sækja kennslustundir í skólunum, og krefjast þess að yfirvöldin standi við samninga um að greiða fyrir för þeirra úr landi. Um 350 afrískir stúdentar eru flutning í smáum og stórum stíl. Ástæðan til þess að slík- ur útflutningur hefúr hafizt síðustu árin er að sjálfsögðu sú, að nú fá útflytjendur greitt rétt verð fyrir vörur sínar og geta hafið útflutning án þess að þurfa að standa í þjarki við einhverja stjórnar- herra um uppbætur eða út- flutningsstyrki. Nýjar aðferðir hafa einnig rutt sér til rúms við verkun sjávarafurða og er útflutn- ingur þeirra nú fjölbreyttari en nokkru sinni áður, þótt enn þurfi að leggja áherzlu á að auka fjölbreytnina. í gær skýrði Morgunblaðið frá merkri tilraun á þessu sviði. Hafinn er útflutningur á saltfiski, sem pakkaður er í smekklegar neytendaumbúð- ir fyrir Bandaríkjamarkað. Fram að þessu hefur slík vinnsla saltfisksins ekki þekkzt og markaðir fyrir hann verið takmarkaðir. Enn er ekki komin reynsla á það, hvort þessi tilraun muni bera góðan árangur, en vonir standa þó til þess. Það er líka vafalaust rétt að farið að gera samning við þekkt erlent matvælafyrirtæki um dreifingu þessarar vöru fyrst í stað a.m.k., því að það segir sig sjálft, að meiri líkur eru til árangurs, þegar þekkt merki er á vörunni en ella væri. við nám í Sofia, flestir þeirra á opinberum styrkjum, sem tryggja þeim frítt uppihald og greiða all- ananámskostnað. En í samningun- um um styrkveitingarnar segir einnig að ef stúdentarnir óski að hverfa úr landi, skuldbindi yfirvöldin í Búlgaríu sig til að sjá þeim fyrir farareyri. Þetta efna yfirvöldin ekki nú, þegar flestir stúdentanna óska að fara úr landi, og halda áfram ^námi annarsstaðar. Kynþáttavandamál eru engin ný. bóla í heiminum, og hafa Vesturlöndin hlotið sinn skerf af þeim. En stutt er síðan komm únistaríkin tóku að bjóða til sín stúdentum frá Asíu- og Afríku- löndunum. Töldu yfirvöldin ber- sýnilega að hér væri um tilvalið áróðurstækifæri að ræða, sem þjátfsagt væri að grípa. Áður höfðu þau notað sér samtök stú- denta á Vesturlöndum til áróðurs, en nú var ákveðið að „ala upp“ stúdentana við beztu skilyrði í kommúnistaríkjunum. Vopnið snerist í höndum kommúnistayfirvaldanna, og óá- nægja í Sofia er ekki einstætt fyrirbæri. Samskonar óánægja hefur gert vart við sig víða í kommúnistaríkjunum, m. a. við háskólann í Prag og við Patrice Lumumba háskólann í Moskvu. Sendiherra Ghana í Sofia, Appah Samong, ræddi nýlega við fréttamenn í sambandi við verk- fall afríska stúdenta. Sagði Samong að sendiráðinu hafi bor- izt beiðnir um aðstoð frá fjölda stúdenta, en það hefði ekki fé aflögu til að greiða ferðakostnað allra stúdentanna, enda bæri búlgörsku stjórninni samkvæmt samningum að greiða fargjöldin. NEITAÐ UM FARAREYRI Þrír stúdentar frá Nígeríu, sem voru við nám í Sofia, eru ný- komnir til Vínarborgar. Segja þeir að viðkomandi sendiráð hafi þegar aðstoðað um 190 stúdenta frá Ghana, Eþiópíu, Guineu og Togo við að komast úr landi, og að flestir þeirra sem eftir eru óski að fara. „En kommúnistarn- ir vilja ekki leyfa þeim að fara. Þeir neita að láta stúdentana fá ferðapeninga, og án þéirra geta stúdentarnir ekki keypt far- seðla“, sagði Antoni Odita, 24 ára læknisfræðistúdent frá Ni- geríu. Odita var í stjórn félags afriskra stúdenta í Sofia, en yfir- völdin bönnuðu starfsemi þessa félagsskapar. Banni þessu fylgdu yfirvöldin eftir með því að hand- taka um 40 félagsmenn. Vakti þetta mikla gremju meðal afrísku stúdentanna, sem efndu til mót- mælagöngu í höfuðborginni. En öflug sveit lögreglumanna var send á vettvang til að tvístra göngunni. „SVARTIR APAR“ Nigeríustúdentarnir þrír kvört- uðu mikið undan ofsóknum og móðgunum, sem þeir sögðu að væru daglegir viðburðir í Sofia. íbúarnir í Búlgáríu litu þá horn- auga hvar sem þeir komu, köll- uðu þá „svarta apa“ og hrópuðu að þeim ókvæðisorð. Oft voru þeir spurðir hvers vegna þeir héldu ekki kyrru fyrir heima i bananatrjánum eins og aðrir apar, hvað þeir væru eiginlega að flækjast til Búlgaríu. Þremenningarnir segja að náma skilyrði hafi öll verið mjög léleg. „Þegar við komum í fyrra hafði koma okkar ekkert verið undir- búin. Við urðum að læra búl- görsku upp úr ensk-búlgarskri orðabók. Kennarar okkap kunnu aðeins fá orð í ensku, og mála- kennslan byggðist öll á komm- úniskum slagorðum. Okkur voru fegnar búlgarskar barnabækur. sem dásömuðu „Ivan afa“ — sem er samnefni fyrir Rússa — fyrir að frelsa Búlgaríu undan auð- valdsstefnunni. Jafnvel kennslu stundir í læknisfræði voru upp- fullar af áróðri, og við urðurn að taka skyldupróf i Max- Leninisma áður en við fengura inngöngu í háskólann“. Þremenningarnir segja, að stú- dentaheimilinu, þar sem allir afríkustúdentarnir bjuggu, hafi einnig verið 15 búlgarskir ung- kommúnistar, sem fylgdust með öllu er þar gerðist. Og aðbúð öll var slæm. Oft voru ljósin tekin af klukkan níu á kvöldin til klukkan sjö morguninn eftiir svo útilokað var að lesa fögin. Svo til vikulega bilaði hitakerfið, og mældist tuttugu stiga frost 1 íbúðunum. Margir fengu lungna- bólgu og þurftu að leggjast 1 sjúkrahús. Antoni Odita sagði að flestir stúdentanna hafi þegið styrki til náms í kommúnistaríkjunum „vegna þess að við vildum sjá með eigin augum hvernig lífið væri í þessum hluta heims. Nú vitum við það“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.