Morgunblaðið - 23.02.1963, Side 16

Morgunblaðið - 23.02.1963, Side 16
Lsugardagur 23. febrúar 1963 l» MORCVKBLABIB, Húseigendur á hitaveitusvæðinu Hvers vegna að fara niður í kjallara þegar stilla þarf hitann? Fáið yður heldur stilliloka og sparið sporin. — Nánari upp- lýsingar hjá okkur. Ruth Hoffritz = HÉÐINN = Vélaverzlun — Sími 24260. anQlI ANGLIA SKVRTIJRNAR eru fallegar og vinsæle1 fyrirliggjandi hvítar og mislit?” allar stserðir. Geysir HfF. Fatadeildin. —minning í dag er jarðsungin frá Sel- fosskirkju mærin Ruth Hoffritz, dióttir hjónanna Adams Hoffritz og Sigurbjargar Sigurðardóttur. Hún fæddist að Selfóssi 2. nóv. 1944, og var því aðeins rúmra 18 ára, er hún lézt, 14. þ.m. Foreldr- ar og 7 systlkin fylgja henni með sorg og söknuði til grafar í dag og vinir og leikfélagar æsku- byggðar. Fyrir tæpu ári var vitað að hún var haldin banvænum sjúkdómi, og sjálfri var henni Ijóst, að hún átti ekki bata von, en var hýr í bragði og glöð hverja þá stund, sem friður veittist frá sjúkdómskvölum. Rutih sáluga var mikil efnis- stúlka. 16 ára að aldri fór hún úr föðurhúsum til að stunda at- vinnu í Reykjavík og vann þar við sauma, þar til sjúkdómur hennar batt endi á. Hún var rösk og þróttmikil í starfi, en bezt kom þróttur hennar og skapfesta fram í jafnaðargeði hennar og þolgæði í reynslu margra mán- aða þungri banalegu. Hún var ástssel sínum nánustu og hug- þekk öllum, sem kynntust henni, hvort heldur í störfum eða leik eða annarri daglegri umgengnL Hún varð sem dóttir hjónunum, sem hún hélt til hjá í Reykjavík, og þau henni sem aðrir foreldrar. Sögu hennar lauk um það leytL er hin raunverulega saga lífs okkar hefst. En yfir spor hennar fennir ekki, meðan við nýtur þeirra, sem kynntust henni og nutu samvista við hana hennar fáu hérvistardaga. Vinir. SIGLO SILD - - ER SÆLGÆTI Heildsölubirgðír . J0HNS0N & KAABER HA Fimmtugur í dag: Oskar E. Levy hreppstióri, Ósum f DAG 23. febr., er vinur minn Óskar Levy fimmtugur. Óskar er fæddur og uppalinn að Ós- um á Vatnsnesi og þar hefir hann unað æfi sinnar daga. For- eldrar hans, hjónin Ögn Guð- mannsdóttir Levy og Eggert Levy hreppstjóri, bjuggu lengst af sínum búskap á Ósum. Var jörðin fyrst leigujörð en síðar eignarjörð, sem Eggert hrepp- stjóri gerði að óðalsjöirð eigi miklu síðar en lög um óðalsrétt gengu í gildi. Segja rná að Eggert Levy væri lancbskunnur maður og sveitar- höfðingi var hann á sinni bíð. Hann var skapiheitur baráttu og framtfara maður, sem lengst af stóð styrr um, en átti trúnað og traust sveitunga seinna. Ögn kona hans var rólynd og hag- sýn húsmóðir, sem sá um heim- ili sitt af diugnaði og ósérplægni, enda mæddi mjög á henni er bóndi hennar var oft fjarverandi í ýmis konar erindisrekstri og umsýslu vegna opinberra starfa eða fyrir sveit sína og sýslu. >au hjón vóru bæði sérstakílega gestrisin og höfðingleg, glaðvær og barngóð, enda tíðum margt ungmenna og barna á heimilinu. Á þessu heimili, sem segja mátti að væri miðdepill sveitar- innar á marga lund, ólst Óskar upp, ásamt mörgum systkinum og föðursystkinum. Eins og nærri má geta þurfti heimilið margs með og úbheimti mikinn vinnukraift. Börnin vöndust því snemma á að vinna og tilfellið varð að Óskar vann að búi for- eldra sinna að mestu þax til hann hóf sjálfur búskap og tók við þessari ungu og vaxandi óð- alsjörð. Hefir hann stundað bú- skapinn síðan og ekki kastað til hans höndunum, svo ekki er laust við að okkur vinum hans 'hafi stundum þótt hann full fast ur heima og tregur til að sinna jafnhiliða öðrum störfum. En hann hefir þá líka rekið gott og gagnsamt bú af snyrtimennsku pg kostgæfni. Óskar á Ósum er prýðilega gefinn maður o@ glöggur vel. Hefir hann valizt til opinberra starfa sem faðir hans, tók við hreppstjórastarfi er hans missti við og var kjörinn í sýslunefnd, er faðir hans lét af því starfi og befir setið þar síðan. Af hálfu sýslunefndar hefir hann m.a. verið valiim til að endurskoða ýmsa reikninga, svo sem reikn- inga sveitarsjóða, fjallskilasjóða sýslunnar o.fl. Altþingi kaus hann í sauðfjársjúkdómanefnd þegar síðast voru valdir fulltrú- ar til þess starfa. Fleiri trúnað- arstörf hafa honum verið falin, en ekki verður fleira nefnt að þessu sinni. En glöggt má af þessu marka að Óskar Levy hef- ir notið trausts heima fyrir og út á við, enda mjög að verðleik- um. Hann er reglusamur í störf- um sínum og rækir þau með prýði. Sjálfstæðisflokkurinn á ör- uggan og ákveðinn liðsmann þar sem Óskar á Ósum er. Alla tíð hefir hann fylgt þeim flo.kki að málum og er í fremstu víg.lu'nu sjálfstæðismanna í sýslunni. Val inn var hann á framboðslista flolkksins í ' Norðurlandskjör- dæmi vestra við kosningarnar haustið 1959 og verið hefir hann í kjöri til Búnaðarþings. Rýrir það í engu traust sjálfstæðis- manna til hans þótt þær kosn- ingar hafi ekki unnizt, því ÖU- um kunnugum er vitanlegt að Frams.fl. hefir náð hér sterkari aðstöðu en aðrir flokkar. En vegna vitsmuna Óskars Oig mann kosta má örug.gt telja að hann eigi vísan frama á braut stjórn- málanna leggi hann í þá bar- áttu af fullum krafti, en til þess befir hann jafnan verið tregur. Giftur er Óskar ágætri konu Sesselju Huldu Eggertsdóttur frá Súluvöllum og eiga þau tvö góð og mannvænlega börn. Heim i’lið og búskapurinn á hug þess- ara góðu hjóna. Jörðina hefur Óskar bætt stórlega að rækt- un og öðrum gagnlegum fram- kvæmdum. Er það allt vel unn- ið og til fyrirmyndar. Það er á- nægjulegt að koma að Ósum. Útsýni er þar fagurt, austur yf- ir blómlegar byggðir Húnaþings og fram til Eiríksjökuls. Og gest- ir þiggja þar alúðlegar og rausn arlegar móttökur. Lái ég ekki vini mínum þótt hann uni sér vel beima. Þegar við stöndum á 50 ára túnamótum er vissulega um merkilegan áfanga að ræða. Hálf öld er að baiki. Enginn veit þó fremur en endranær um þann veg, er framundan liggur. En það er ekki tilgangur minn hér, að bolilaleggja um slíkt. Aðeins eiga þessi fáu orð mín að vera vinarkveðja til Óskara á Ósum og ég lýk þeim með ein- lægum árnaðaróskum til hans og fjölsikyldu hans, nú á afmælis daginn. Guðjón Jósefsson NAGRENNI Menn spyrja — HVAÐ ER SÁL? HVAÐ UM RÍKA MANNINN OG LAZARUS? * Þessum spurningum verður svarað í erindi, sem SVEIN B. JOHANSEN flytur í Iðnaðarmannahúsinu sunnudaginn 24. febrúar kl. 20:30. Söngur — tónlist. RITVEL Sem ný IMPERIAL skrifstofuritvél til sölu. — Tækifærisverð. Bókaverzlun StefánsStefánssonar h.f. Sími 19850.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.