Morgunblaðið - 02.03.1963, Qupperneq 3
3
Laugardagur 2. marz 1963
MOJtC, VTSfíLAÐlÐ
Bjargaö við erfiðar aðstæður
ÞAÐ þykir vel gert þegar far-
ið er með skip inn í Vest-
mannaeyjahöfn í 10 vindstig-
um, þó allt sé í lagi og vélin
í gangi. En sl. fimmtudag fóru
varðskipið Albert og Lóðsinn
frá Vestmannaeyjum inn í
höfnina með þýzkan togara
við hin verstu skilyrði, S-SA
ð vindstig og stórsjó, og var
togarinn stýrislaus og lekur
eftir að hafa tekið niðri á
grynningunum norðan við
Faxasker.
Albert hafði verið með tog-
arann í togi úti undir Eiðinu
í nærri sólarhring í vitlausu
veðri, áður en lagt var af stað
inn, og Lóðsinn, sem hafði
fyrst komið dráttartaug yfir
í togarann,, aðstoðaði við að
halda togaranum meðan dælt
var úr honum, og fór hvorki
meira né minna en 10 ferðir
fyrir Eiðið á þessum sólar-
hring. Varðskipið Óðinn kom
einnig á vettvang frá Reykja-
vík og var til taks á leiðinni
inn í höfnina, ef á hefði þurft
að halda.
Sigurgeir Jónasson í Vest-
mannaeyjum tók myndina á
forsíðunni og þær sem birtast
hér af þessari erfiðu björgun.
Þær eru allar teknar á Leica-
vél með 400 mm linsu, í rign-
ingu, roki og við slæm skil-
yrði.
Á 4 dálka myndinni virðist
vera skipalest á ferð. Þar eru
á leiðinni inn, Albert með tog-
arann Trave í togi, þá fer
Lóðsinn og loks Óðinn í hum-
átt á eftir.
Um það leyti sem 2 dálka
myndin af skipunum var tek-
in, var allt farið að ganga
erfiðlega. Togarinn fór að
snúast þversum, svo Albert
varð að snúa út í aftur og síð-
an að láta ankerið falla í
miðri innsiglingarrásinni. —
Voru skipin þá hættulega
nærri innri hafnargarðinum.
Myndin sýnir þegar togarinn
rekst á Albert. Síðan rakst
hann á hann stjórnborðsmeg-
in og við það brotnaði stjórn-
borðslífbátur Alberts nokkuð.
Á mannamyndunum eru
vélstjórinn og skipstjórinn á
þýzka togaranum, sá með
alpahúfuna er skipstjórinn.
Hin var tekin í lok björgun-
arinnar á brúarvæng Alberts.
Þeir eru að gefa síðustu fyr-
irskipanirnar um leið og kað-
allinn fer í land, skipstjórinn
á Albert og Jón I. Sigurðsson,
hafnsögumaður í Vestmanna-
eyjum.
Vestmannaeyingar fylgdust
af áhuga með björgun togar-
ans og fjöldi fólks og margir
bílar voru samankomnir niðri
á bryggju, þegar skipin komu
að. —
FUNDUR í Sjálfstæðisfélagir
Huginn verður haldinn sunm
daginn 3. marz kl. Z1 að Ar;
tungu.
Aðalræðumenn fundarins verí
Bjarni Benediktsson dómsmál;
ráðherra og Ingólfur Jónssc
landbúnaðarráðherra. Á fundii
um verða frambjóðendur Sjál
stæðisflokksins í Suðurlandskjö
dæmi. Allir Sjálfstæðismenn <
gestir þeirra eru velkomnir
þennan fund, sem er einn ;
mörgum sem haldnir verða í hi
aðinu, til þess að gefa kjósem
um kost á að kynnast frambjói
endum flokksins og hlýða á m;
þeirra. Allir þessir fundir ha
verið mjög vel sóttir og bor
þess merki að samhugur og sij
urvissa sjálfstæðisfólks
aldrei verið meiri.
STAKSTEIilAR
Bekinn ur flokknum ,
Kommúnistamálgagnið afneit-
ar því nú dag eftir dag, að Ragn-
ar Gunnarsson sé meðlimur i
kommúnistaflokknum. Af því til
efni sneri Morgunblaðið sér til
Ragnars Gunnarssonar, eins og
skýrt var frá í gær, og stað-
festi hann, að hann hefði til þessa
verið fullgildur meðlimur í
flokknum og því til sönnunar
lánaði hann Morgunblaðinu
flokksskírteini sitt, sem undir-
ritað er og fullgilt. Hann hef-
ur ekki sagt sig úr komn-.inista-
flokknum og honum hefur ekki
verið tilkynnt um, að hann hefði
verið þaðan rekinn. Það liggur
því ljóst fyrir, að ákvörðunin
um broottrekstur Ragnars Gunn-
arssonar úr kommúnistaflokkn-
um er tekinn, þegar í ljós kem-
ur, að hann er ófáanlegur til
njósna í Rússa. Samkvæmt
þessu vMist það vera skilyrði
þess að geta verið í Sósíalista-
flokknum, að menn séu reiðu-
búnir til að svíkja hagsmuni þjóð
ar sinnar og þjóna rússneskuoh
hagsmunum. u
Dylgjur og nðdlréttanji;
Strax þegar kunnugt varð uffl
njósnastarfsemi Rússa hófu
kommúnistar hér á landi árásir
á Ragnar Gunnnarsson, þótt hann
væri flokksbundinn kommúnisti
og hefði lengi og dyggilega þjón-
að flokknum og verið kjörinn
þar til trúnaðarstarfa.' Sagt var
að hann hefði verið í flokknum
„af annnarlegum ástæðum", gef-
ið í skyn að hann ætlaði sér að
hafa fé upp úr því að koma upp
um rússnesku njósnarana, dylgj-
að um að hann kynni sjálfur
að hafa snúið sér til Rússanna,
berum orðum sagt að hann hefði
verið í þjónustu SjáJfstæðis-
flokksins meðan hann starfaði
í kommúnistaflokknum og í gær
er bætt við dylgjum um það,
að starf sitt hafi hann fengið
fyrir þjónustu við Sjálfstæðis-
flokkinn, þótt þar sé um tiltölu-
lega lítilvægt starf að ræða. Allt
sýnir þetta svo glögglega að ekki
verður um villzt, að kommún-
istar leggja megináherzlu á að
ná sér niðri á Ragnari Gunnars-
syni fyrir það að „svíkja flokk-
inn“ svo herfilega að neita að
taka að sér njósnir fyrir hús-
bændurnar og koma síðan upp
um þá. Hins vegar er ekkert
styggðaryrði sagt í garð rúss-
nesku njósnaranna, sem hér
vinna gegn öryggi íslenzka rík-
isins.
Táknræn
samlíking
f ritstjórnargrein í Moskvumál
gagninu í gær stendur m. a.
þetta:
„Ætlunin er að svívirða Sósáal
istaflokkinn með njósnabrigzl-
um vegna þess að Ragnar Gunn-
arsson hafi einu sinni verið í
flokknum. Sést þetta glöggt, ef
hugleidd er spurning, sem Þjóð-
viljnni varpaði fram í gær: Á að
kenna Sjálfstæðisflokknum um
og gera hann ábyrgan fyrir sam-
anlagðri sakaskrá manna úr þeim
flokki, sem játað hafa á sig sak-
næmt athæfi eða hlotið dóm?“
Tilgangurinn með þessari sam-
líkingu leynir sér ekki. Þar er
nefnt nafn Ragnars Gunnarsson-
ar og síðan talað um „sakaskrá
„saknæmt athæfi“ o.s.frv. Á máli
„Þjóðviljans" er það þannig,
Ragnar Gunnarsson sem er glæpa
maðurinn en Rússarnir sakleysið
sjálft. Með hliðsjón af þessum
hugsunarhætti er sú ákvörðun
tekin að reka Ragnar Gunnars-
son úr kommúnistaflokkr am.
Kommúnistar voru þó dáiítinn
tíma að átta sig á að þessi ættu
að verða viðbrögð þeirra, því
að daginn eftir að upplýst var
uir. njósnirnar segir blað þeirra
ekkert um það að Ragnar sé
ekki lengur í flokknum.