Morgunblaðið - 02.03.1963, Síða 6

Morgunblaðið - 02.03.1963, Síða 6
0 MORCUISBLAÐIÐ Laugardagur 2. marz 1963 Þjóðleikhúsið: Dimmuborgír eftir Sigurð Róbertsson Leikstjóri: Gunnar Eyjólfsson MARGIR litu svo á, að þegar Þjóðleikhúsið tæki til starfa með allri sinni tækni og möguleikum til vandaðra leiksýninga, mundi hefjast hér nýtt blómaskeið ís- lenzkrar leikritunar. Sú hefur, því miður, ekki orðið raunin á. Ég hef ekki við höndina upp- ' lýsingar um það hversu mörg ný íslenzk leikrit Þjóðleikhúsið hef- ur sýnt frá öndverðu, en þau eru vissulega ekki mörg. Að því liggja. að sjálfsögðu, ýmsar á- stæður, meðal annars þær að framboð á nýjum leikritum hef- ur ekki verið ýkja mikið, og ennfremur það, að þau nýju is- lenzku leikrit, sem hér hafa ver- ið sýnd, hafa yfirleitt átt litlu gengi að fagna. í viðtali við blaðamenn nýlega, vildi þjóð- leikhússtjóri kenna þetta leik- dómendum, sem væru í dómum sínum harðir og ósanngjarnir þegar um íslenzk leikrit væri að ræða. Þessu sjónarmiði þjóðleik- hússtjóra vil ég eindregið mót- mæla. Leikdómendur hafa ekki neina tilhneigingu til hörku eða ósanngirni í dómum sínum um íslenzk leikrit eða önnur, sem þeir fjalla um. Annað mál er svo það, að þeir telja sér hvorki rétt né skylt að fella mildari dóma um íslenzk leikrit en önnur af þeirri ástæðu einni, að þau séu íslenzk og ef til vill eftir unga höfunda með litla reynslu í leik- ritun að baki sér, úr því að þau, á annað borð eru sýnd opinber- lega. Leikrit er annað hvort gott verk eða ekki og eftir því hljóta dómar réttsýnna og samvizku- samra leikdómara að fara. Ann- að væri ósæmileg blekking, bæði gagnvart höfundinum og þeim, sem lesa leikdóma sér til leið- beiningar. Sannleikurinn er sá, að þau ný íslenzk leikrit, sem sýnd hafa verið hér á undan- förnum árum, hafa flest verið ærið rislág verk og með ýmsum annmörkum, meðal annars vegna JPldrgarobi&Hd KVÖLDSALAIM FLIJTT TIL MORGUNBLAÐIÐ hefur flutt laugardags- kvöldsölu sína í Austur- bænum niður á bíla- stæðið að Laugavegi 92, vestan við Stjörnubíó. Blaðið er selt þar við einn af blaðabílum Morgunblaðsins. þess að höfundar þeirra hafa ekki haft næga þekkingu á þeim kröfum, sem leiksviðið gerir til þeirra verka, sem þar á að sýna. Því hafa höfundar oft þurft að breyta vérkum sínum, meira eða Ævar Kvaran og Valur Gíslason í hlutverkum. mínna, í samráði við leikstjóra, til þess að samræma þau kröf- um leiksviðsins. Er reyndar ekki nema allt gott um slíka sam- vinnu að segja, enda hygg ég að það sé einhver bezti skóli, sem leikritahöfundi getur hlotnazt. Það var mikill bókmennta- og leiklistarviðburður á árum fyrr, I þegar frumsýnd voru hér önd- vegisverk þeirra Jóhanns Sigur- jónssonar og Guðmundar Kamb- ans, enda voru þau rismikill og áhrifaríkur skáldskapur og höf- undarnir báðir ágætir leikhús- menn, er þekktu til hlítar kröf- ur leiksviðsins. Slíkir' atburðir hafa ekki gerzt hér síðan, en all- ir þeir sem góðum leikbókmennt um og leiklist unna lifa í von- inni um að þeir megi gerast hér aftur — og það sem fyrst. Því ríkir jafnan mikil eftirvænting meðal leikhúsgesta er þeir bíða þess að tjaldið sé dregið frá fyr- ir nýju íslenzku leikriti. Og svo var það einnig er leikrit Sigurð- ar Róberssonar, „Dimmuborgir", var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu sl. miðvikudagskvöld. II Sigurður Róbertsson er maður á miðjum aldri (f. 10. jan. 1909) og á alllangan rithöfundaferil að baki sér. Hafa komið út eftir hann tvö smásagnasöfn, tvær skáldsögur og sögur í blöðum og tímaritum. Þá hefur hann og samið þrjú leikrit, Maðurinn og húsið (útg. 1952), Uppskera ótt- ans (1956 og Dimmuborgir, og og er það fyrsta leikrit hans sem sett er á svið. Ég er ékki svo kunnugur ritverkum Sigurðar að ég geti gert viðhlítandi grein fyrir honum sem rithöfundi, en það sem ég hef lesið eftir hann virðist mér vandvirknislega unn- ið og bera vott um réttlætis- kennd hans og samúð með þeim, sem farið hafa halloka í lífsbar- áttunni. Dimmuborgir eru að ýmsu leyti athyglisvert verk þó að það sé að vísu ekki frumlegt, hvorki að efni né efnismeðferð, því að harðsvíraðir fjárplógsmenn, sem komið hafa öðrum í tugthúsið fyrir glæpi, sem þeir hafa sjálfir framið, er margþvælt efni í bók- menntunum og ekkd er það held- ur nýstárlegt að atvik, sem mis- endismenn rifja upp frá fortíð sinni, annað hvort í vöku eða svefni, fái líf á leiksviðinu. En Stefán Xhors og Sigríður Hagalín í hlutverkum sínum. höfuðgalli leikritsins er, að mínu viti sá, að höfundurinn dregur upp svo einstrengingslega mynd af fantinum Ögmundi Úlfdal að þar er enga mannlega drætti að finna. Slíkt minnir helzt á lélega reyfara, þar sem persónurnar eru annað hvort hreinþvegnir engl- ar eða biksvartir djöflar. Slík eru ekki vinnubrögð góðra höf- unda. Við þetta skapast engar andstæður í sálarlífi persónunn- ar og hin innri átök verða því í raun og veru engin. Þá er það og greinilegt að höfundinum er ekk-i sýnt um að skapa sannfær- andi ástaratriði eða leggja per- sónunum þar eðlileg orð í munn, — Ég hef nú talið hér það sem ég álít megingalla leikritsins, og skal því snúa mér að kostum þess, því að þeir eru vissulega líka fyrir hendi. Leikpitið, sem er í 10 sýningum ,er býsna leik- rænt og heldur því athygli á« horfandans frá byrjun til leiks- loka. Það er yfirleitt laglega skrifað, setningarnar að visu ekki svo meitlaðar, að þær verði manni minnisstæðar, en tildurs- lausar og eðlilegar og sum atrið- in eru prýðilega samin, svo sem samtal þeirra Ögmundar og Gutt- Framhald á bls. S Gefið er út sóknarblað Krists kirkju hér í Reykjavík og er ritstjórinn séra Jóhannes, Gunn- arsson Hólabiskup. I öðru tölu- blaði 5. árgangs þ. e. febrúar- blaðinu er ritað um kvikmynd- ina „Nunnan". Um þetta segir svo: • „Nunnan“ Kvikmyndin „ N u n n a n “, byggð á samnefndri bók eftir Kathryn Hulme, hefur undan- farið verið sýnd í Reykj avík við mikla aðsókn. Myndin flytur ævisögu belg- iskrar nunnu, frá inngöngu hennar í klaustrið, þangað til hún yfirgefur það eftir erfitt starf í trúboðslöndum og hverf- ur aftur út í heiminn. Þótt kaþólskir gagnrýnendur viðsvegar um heim telji kvik- myndina snilldarvel gerða, eru þeir sammála um eitt atriði: að af henni fái menn yfirleitt ranga hugmynd um klausturlíf. Margir harma þá staðreynd, að kvikmyndin skuli hafa verið gerð, þar eð hér sé um að ræða stúlku, sem hefur enga köllun til klausturlífs og er þar af leiðandi ekiki vel til þess fallin að lýsa því lífi á viðunandi hátt. Ég er samt ekki sammála þeim manni sem sagði, að hún, sögu- setjan, „hefði orðið að finna sér eitthvað til málsbóta, af því að hún fór úr klaustrinu". Eftir myndinni að dæma er samveran í klaustrinu leiðinleg og gróðr- arstía faríseisma. Auðvitað kem ur klaustrlífið ekki öllum mönn um þannig fyrir sjónir, en meg- inþorri manna, sem hugsar yfir- borðslega og er ekki nógu gagn- rýninn, mun hiklaust taka því, sem sýnt er, sem réttri og sann- reyndri lýsingu á klausturfólki og klausturlífi, og mun varla fyllast aðdáun á því lífi eða auk inni virðingu fyrir þessari há- leitu lífsstöðu. Þessi afleiðing þykir okkur miður góð. Við ótt- umst ekki sannleikann, jafnvel þótt hann sé ekki hrósverður, en getur verið um sannleika að ræða, þegar honum er lýst ein- hliða og ónákvæmt? Blaöaviðíölin í Morgunblað- inu um daginn, við nokkrar stúlkur út af þessarr kvikmynd, báru vott um, að stúlkurnar höfðu hugsað nokkuð djúpt um málið og ummæli þeirra voru sprottin af hlutláusri og ein- lægri sannleiksviðleitni, að því er mér virtist. Flestar urðu að viðurkenna, að þær hefðu vitað lítið sem ekkert um klausturlíf, áður en þær sáu þessa kvik- mynd. En eftir að hafa séð hana, varð ein að viðurkenna, að hún gæti ekki ímyndað sér, að „það sé Guði þóknanlegt að lifa slíku lífi, sýna algert viljaleysi og auð mýkt. — Myndin sýnir nunn- urnar nánast sem skorkvikindi. Er ekki laust við að mér finn- ist reglan að sumu leyti byggð á hreinum sadisma". önnur stúlika komst m. a. að þeirri nið- urstöðu eftir að hafa séð kvik- myndina, að sumir færu 1 klaustrið „til þess að kvelja sig. Súru stundirnar eru oft sætastar eftir á, stendur einhvers staðar. Það er vitað mál, að margir hafa mikla ánægju af því að þjást, og stundum gengur það brjálæði næst“. Fróðlegt verður að sjá rnynd- ina „Dialogue of the Carmelit- es“, sem Margrét Hansen minnt ist á í fyrrnefndu blaðaviðtall 1 Morgunblaðinu, því að sú mynd virðist gera hinu raun- verulega eðli klausturlífsins ágæt skil og leggur ekki ol mikla áherzlu á hina neikvæðu hlið og ytri venjur þess, eins og „Nunnan“ gerir rikulega. • Andi fátæktar, skírlífis og hlýðni Á eftir þessari grein er rita® um eðli klausturlífsins og yrði of langt mál að birta það í heild hér í dálkum Velvakanda. Þar segir m. a. að lagabók kirkjunn- ar gefi eftirfarandi skilgrein- ingu á klausturlífinu: „Klausturlífið er lífsstaða, þar sem hinir trúuðu skuldbinda sig. auk hinna venjulegu bæna, til þess að lifa eftir hinum svo- kölluðu evangelisku heilræðum, en þau eru a) fátækt af frjáls- um vilja b) ævilangt hreinlífl c) fullkomin hlýðni við andleg- an yfirmann. Síðan er þetta þrennt nánar skilgreint og bent á að klausturfólkið er mörgum til fyrirmyndar í líferni sínu, einkum æskunni. Bent er á að daglega megi lesa um unga jafnt sem gamla, sem hafa of mikið fé undir höndum og eyða því í allskonar vitleysu. Niður- lagsorð greinarinnar hljóða svoi ,,Hvað þetta snertir, mundi andi fótæktar, skírlífis og hlýðni óneitanlega koma æsk- unni og hinum fullorðnu að miklu andlegu gagni“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.