Morgunblaðið - 02.03.1963, Qupperneq 11
Laugardagur 2. marz 1963
MORCVISBLAÐIÐ
11
KTSTJÓRAK: BIRGIR ÍSL. GUNNAHSSON PG ÓLABUR EGILSSON
Stjórnmálanámskeiðið í Olafsfiröi
„O ÉG GERÐI ÞAÐ
AF BÖLVIJIM-
t SUNNUDAG SBLA©I Tím-
ans birtist á dögunum eítir-
farandi smásaga:
„Vinnuhjú hjá Þórði sýslu-
manni Guðmundssyni á Litla
Hrauni voru gefin saman í
Stokkseyrarkirkju og hét brúð
guminn Hans, en brúðurin
Sigríður. Bar nú ekki til tíð-
inda í kirkjunni, fyrr en prest-
urinn lagði hinar þrjár venju-
legu spumingar fyrir brúð-
gumann — Svaraði hann þá
jafnan nei. En svaramaður
játti fyrir hans hönd og var
það látið nægja.
I»egar fólk var komið út úr
kirkjunni, vék svaramaðurinn
sér að brúðgumanum og
spurði, hverju það hefði sætt,
að hann neitaði jafnan við
hjónavígsluna, þegar hann
átti að játa. „O, ég gerði það
af hölvun minni“ svaraöi
Hans“.
ÁBYRGÐARUEYSI
FRAMSÓKNAR
Sögu þessa hirtir Tíminn til
að skemmta lesendum sínum.
Sagan af hinum ábyrgðar-
lausa vinnumanni, sem þó
treysti á, að sér betri menn
tækju að lokum réttar ákvarð-
anir fyrir sig, minnir óneitan-
lega nokkuð á stjórnmálaat-
hafnir Framsóknarflokksins.
Og svar Hans vinnumanns:
„Og ég gerði það bara af
bölvun minni" gæti vel verið
„mottó“ að leiðurum og öðr-
um stjómmálaskrifum Tím-
ans.
Mörg dæml mættl rekja af
hentistefnu og ábyrgðarleysi
Framsóknarflokksins, sem
ekki hikar við að stefna I voða
binum þýðingarmestu málum,
ef það aðeins þjónar stundar-
hagsmunum flokksins. 1
stjórnarandstöðu hefur þessi
flokkur oft barizt af mikilli
hörku gegn ýmsum málum,
sem hann hefur síðan tekið
upp sem sin stefnumál eftir
að hann komst í ríkisstjóra.
UNGIR MENN
í STEFNULEIT
I»egar þessar mlklu sveiflur
frá hægri til vinstri í stefnu
flokksins em virtar, þá er
ekki að ófyrirsynju, að ungir
Framsóknarmenn skuli hafa
setið undanfarna daga á rök-
stólum til að fjalla um grund-
vallarstefnu Framsóknar-
flokksins. Það er vissulega
fyrirbrigði, sem tími er kom-
inn til að komizt á fastan
grundvöll.
Sannleikurinn er sá, að það
er ekkert til sem heitið getur
gmndvallar þjóðmálastefna
Framsóknarflokksins. Ef Fram
sóknarmaður er að því spurð-
ur, hver sé grundvallarstefna
Sambandsráð SUS
STJÓRN Sambands ungra Sjálfstæðismanna boðar
til sambandsráðs og fulltrúaráðsfundar SUS þ. 18.
aprfl n.k. og verður fundurinn haldinn í Valhöll,
Suðurgötu 39, Reykjavík. Rétt til fundarsetu hafa
sambandsráðsmenn (einn úr hverju kjördæmi), einn
fuJItrúi frá hverju félagi ungra Sjálfstæðismanna og
aðal og varastjórn SUS. Fundurinn hefst kl. 10 f.h.
Framsóknarflokksins, þá svar
ar hann: „Það er samvinnu-'
stefnan".
Er það í fyrsta lagi rétt?
Við vitum, að Framsóknar-
menn hafa frá upphafi lagt
mikla áherzlu á það, að geta \
ráðið í samvinnuhreyfingunni.
Þetta hefur þeim að miklu
leyti tekist. Og hafa þeir verið
ósparir á að misnota samvinnu
hreyfinguna sér til framdrátt-
ar. En samvinnuhugsjón
þeirra hefur þó ekki náð
lengra en svo, að þeir hafa
reynt með öllum ráðum, að
knésetja þau samvinnufélög,
sem þeir hafa ekki ráð yfir.
Að áliti framsóknarmanna eru
samvinnufélög því góð á með-
an þeir ráða þar sjálfir, en
ill þegar þeir ráða þar ekki.
ENGIN ÞJÓÐMÁLASTEFNA
En segjum nú, að það væri
rétt, að Framsóknarflokkur-
inn byggði grundvallarstefnu.
sina á samvinnuhugsjóninni.
Þá er þess að gæta, að sam-
vinnustefnan sem slík getur
ekki verið gmndvöllur þjóð-
málastefnu heils stjómmála-
flokks. í samvinnufélögunum
hljóta menn að vera, Sftm hafa
ólíkar stjórnmálaskoðanir,
enda er samvinnustefnan fyrst
og fremst ákveðin stefna í
verzlunarmálum, sem upphaf-
lega er til orðin til að tryggja
almenning gegn óhæfilegum
verzlunarháttum. Samvinnu-
stefnan takmarkast því við
ákveðin, tiltölulega þröng svið
þjóðmálastarfseminnar.
BÖLVALDUR
Þessar staðreyndir hafa gert
það að verkum, að Fram-
sóknarflokkurinn er hinn
mesti bölvaldur í íslenzkum
stjómmálaum í dag. Það sézt
m. a. á því, að Framsóknar-
flokkurinn þarf stöðugt að
vera að leita að ágreiningsefn-
um við aðra flokka til að und-
irstrika sjálfstæði sitt. Hann
getur ekki eins og t. d. Sjálf-
stæðisflokkurinn mótað stefnu
sína eftir vissum grundvallar
sjónarmiðum.
Þcssi höfuðgalli floKksins
hefur aldrei komið betur í ljós
en á núverandi stjóraarand-
stöðutimabili flokksins. Hann
reynir að gera ríkisstjórainni
allt til miska, sem hann getur,
og í þeirri viðleitni sinni hik-
ar hann ekki við að segja eitt
í dag og annað á morgun og
framkvæma hin ábyrgðarlaus
ustu verk. Framsóknarbrodd-
arnir standa síðan hver fram-
an i öðrum og segja eins og
Hans vinnumaður á Litla
Hrauni: „O, ég gerði það ef
bölvun minni“. — BÍG.
f JANÚAR mánuði s.l. var
haldið stjórnmálanámskeið í
Ólafsfirði. Námskeið þetta var
haldið á vegum Garðars
F.U.S. Ólafsfirði og Sambands
ungra Sjálfstæðismanna. Þátt
taka í námskeiðinu var góð,
en það stóð yfir í eina helgi
frá föstudagskvöldi þar til
síðla dags á sunnudag. Mynd- i
irnar tvær, sem bér birtast ,
voru teknar á námskeiðinu. ,
Önnur þeirra sýnir stóran
hluta af þátttakendum ném-
skeiðsins, en hin er tekin á
einum fundi námskeiðsins. 1
Mikill áhugi er ríkjandi með-
al ungra Sjálfstæðismanna í
Ólafsfirði, sem vinna ötullega
að því að efla gengi Sjólfstæð
isflokksins í kjördæminu. , \
I
Vaxandi þátttaka stúdenta
í alþjóölegu samstarfi
AÐ ímdanförnu hafa verið birtar
hér á síðunni ályktanir þær, sem
gerðar voru á ráðstefnu VÖKU,
félags lýðræðissinnaðra stúdenta,
um hagsmunamál háskólastúdenta.
f dag birtist ályktun ráðstefn-
unnar um utanríkismál stúdenta,
og hafa þá allar ályktanirnair hlot-
ið birtingu.
Ályktun um utanrikismál
stúdenta.
Ráðstefna Vöku um hagsmuna
mál stúdenta leggur óherzlu á
þátttöku SHÍ í samstarfi nor-
rænu stúdentasambandanna. Er
þar tvímælalaust um að ræða
þýðingarmestu samskiptin við
aðrar þjóðir. Telur ráðstefnan
að SHÍ eigi að beita sér fýrir
því, að þessari samvinnu verði
komið á fastari grundvöll og
fagnar því, að SHÍ hefur verið
falið að gera tillögur um það
atriði á næstu formannaráð-
stefnu.
Höfuðatriðið í samskiptum
SHÍ við aðrar þjóðir hlýtur eins
og að undanförnu að vera aðild
að því 'umfangsmikla samstarfí,
sem fram fer á vegum ISC/
COSBC (International Studeot
Conferenoe / CoOrdinating
Conference/Coordinating Secre-
tariat). Lýsir ráðstefnan ánægju
sinni með starfsemi þeirra sam-
taka, telur reynsluna hafa sýnt, að
skipulag þeirra sé í öllum meg-
inatriðum mjög viðunandi og
tvímælalaust hið affarasælasta,
sem saga alþjóðlegs stúdenta-
samstarfs kann frá að greina.
Leggur ráðstefnan áherzlu á, að
íslenzkir stúdentar fylki sér
sem þéttast um þessi samtök,
og verði af hálfu SHÍ ætíð kapp-
kostað að taka sem öflugastan
þátt í öllum þeim greinum starf-
seminnar, sem íslenzikum stúdent
um og margvíslegum hagsmun-
um þeirra mega að gagni koma.
í Sambandi við sérráðstefnur
ISC/COSEC vill ráðstefna Vöku
taka eftirfarandi fxam-
A. Ferðamálastefna: Þar sem
æskilegt verður að telja, að
starfsemi Ferðaþjónustu stúdenta
vaxi fiskur um hrygg, bendir
ráðstefna Vöku á það, að um-
ræddar ráðstefnur mega heita
lykillinn að alþjóðasamstarfi
stúdenta á þessu sviði. Því er
það ekki áhorfsmál, að leggja
ber kapp á að senda jafnan fuU-
trúa þangað.
B. Blaðaútgáfuráðstefna. Ef
áhugi væri fyrir hendi meðal
einhverra háskólastúdenta, sem
jafnframt námi stunda blaða
mennsku, telur ráðstefna Vöku
að greiða beri götu þejrra tál
þátttöku þótt um fjárhagsstuðn-
ing geti naumast verið að ræða,
nema tryggt sé að stúdenta-
blað eða önnur útgáfustarfsemi
Stúdentaráðs njóti góðs af.
C. Velferðarráðstefna- Fúll
ástæða er til, að gert verði allt
sem unnt er, til að senda full-
trúa á þessar ráðstefnur fram-
Framlhald á bls. 22
Ráðstefna SUS um húsbyggingar
EINS og skýrt var frá á síð-
ustu SUS síðu mun Samband
ungra Sjálfstæðismanna efna
til ráðstefnu um íbúðarhúsa-
byggingar tun aðra helgi þ.e.
dagana 9. og 10. marz n.k.
Ráðstefnan fer fram í Sjálf-
stæðishúsinu við Borgarholts-
braut í Kópavogi.
Fjórir fyrirlestrar verða
haldnir á ráðstefnunni. Eru
eftirtaldir menn fyrirlesarar: 1
. Gísli Halldórsson, arkitekt,
Jóhann Hafstein, alþingismað
ur, Manfreð Vilhjálmsson,
arkitekt, og Þorvaldur Garð- 1
ar Kristjámsson, framkvæmda
stjóri.
Þátttaka óskast tilkynnt á
skrifstofn SUS í Valhöll,
Suðurgötu 39, Reykjavik.
Simi 17100.