Morgunblaðið - 03.03.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.03.1963, Blaðsíða 6
6 MORGl’ NBL4ÐIÐ Sunnudagur 3. marz 1963 Vivi Bak leikur í Júgóslavíu um þessar mundir. Hún gisti eina helgi í Wörthersee, ásamt hinum austurríska eiginmanni sínum, Heinz Sebek, en þau hjónin voru þá á leikferðalagi. Berndt segir að Vivi hafi verið heiðursgestur hans á dansleiknum um heigina, en danska leikkonan þvertekur fyrir það og segist hvergi nærri hafa komið. Segir hún, að sér hafi getizt fremur vel að Brendt en fundizt það ljóður á ráði hana hve hann gortaði yfir velgengni sinni hjá konum. Rækjukvótinn nærri búinn BÍI/DUDAL, 1. marz — Febrú- arafli lánutoóta er sem hér segiir Andri með rúmar 155 lestir í 16 sjóferðuim, Pétur Þorsteinsson rúmar 148 lestir 1 14 sjófeiðu.m. Heildarafli bátanna frá ára- mótum: Andri 302 lestir í 32 sjó- ferðum og Pétur f»orsteins®oa 324 lestir í 33 sjóferðum. Af rækjuveiðinni er það að segja, að aðeins er eftir að veiða 27 lestir af því magni sem má veiða og er skammturinn 2 lesit- ir á dag, sem skiptist á 4 báta. Snjólaust er hér á láglendi. í dag er þurrt og gott veður, en undanfarna daga befur verfð rigning. — Hannes Aðalfundur Verkstjóra- félagsins VEBKSTJ ÓRAFÉLA G Reykja- hélt aðalfund sinn 24. febrúar sl. í Skátaheimilinu. Félagsmenn eru nú um 300 og hagur félagsins er með miklum blóma. Störf stjórnar hafa verið margvísleg og árangur má telj- ast góður. Stærsta málið, sem nú er verið að byrja að vinna við er undirbúningur að stofnun lífeyr issjóðs fyrir verkstjóra, en ákveð ið er að hann taki til starfa von bráðar. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa: Formaður: Atli Ágústsson. Ritari: Gísli Jónsson. Gjaldkeri: Gunnar Sigurjóns- son. Varaform.: Björn E. Jónsson. Varaféhirðir: Guðmundur R. Magnússon. Skrifstofa félagsins er í eigin húsnæði í Skipholti 3. í fréttunum anda þetta bréf, sem hann birt- ir athugasemdalaust: „Vegna ýmissa skrifa í dag- blöðum bæjarins frá lögregl- unni get ég ekki orða bundizi. Minnzt var á það um daginn, að fólk ætti tafarlaust að tilkynna lögreglunni um árekstra og smá slys, því að í ljós komi oft og einatt síðar meir, að slysið væri meira en talið var í fyrstu. Væri þá oft erfitt að grennslast fyrip um frumorsök slysa. Þetta ep rétt. En hver er orsökin? Hvers vegna leitar fólk ekki til lög- reglunnar? Eg álít, að það sé vegna þess, að lögreglan sektar menn nefnilega, ef hún kemur á slysstað; það er meinið. Og svo er það með þennan vesaling, sem er að káfa utan i kvenfólkið, og flýr, ef hann verður þess var, að þær vilja ekki þýðast hann, fara að æpa eða snúast til varnar. Á að stinga honum í svartholið eða aftur á geðveikarhæli fyriP þessa klaufalegu kvensemi? Eru konur svo heilagar nú á dögum, að ekki megi einu sinni snerta þær, nema þeim líki? Og að lokum þetta með dreng inn, sem haldinn er bíladellunnj og henni svo magnaðri, að hann lætur bíl föður síns aldri í friðiT Á að eyðileggja hann um alla framtíð? Kvikmyndastjarnan Judy Gar land var flutt einu sinni enn á sjúkrahús vegna taugaveiklunar. Auk þess hefur vinstri handlegg- ur hennar lamazt, en talið er að það sé tímabundin lömun sem or sakist af hinu sjúklega ástandi leikkonunnar. Judy Garland hefur staðið í sviðsljósinu síðan hún var 13 ára gömul (er nú 40 ára). Skin og skúrir hafa skipzt á allt henn- ' ar líf, leiksigrar, hamingja, ó- sigrar og taugaveiklun. Hún hef- ur um margra ára bil verið tauga sjúklingur, en við og við skotið upp kollinum og „slegið í gegn“ eins og það er kallað, sérstak- lega þegar kvikmyndin „A star is born“ kom fram á sjónarsvið- ið. Judy Garland hefur verið marggift, og meðal eiginmanna hennar má nefna Mickey Rooney og Sidney-Luft. Skilnaðarmáli hennar við þann síðarnefnda er ekki enn lokið og gaf Judy fyrir- skipanir um það, rétt áður en hún veiktist, að útkljá þáð hið fyrsta, en þau ásaka hvort ann- að um að draga fleiri milljónir Heimo Haitto, finnskur fiðlu- leiikari, var handtekinn og fang- elsaður í San Francisco sl. márau dag, fyrir ávisanafölsun, en talið er að hann hafi gefið út falsaðar ávísanir fyrir 4000 dollara. Haitto er mjög þekktur fiðlu- leikari, bæði í Evrópu og Amer- íku. Hann byrjaði að leik á fiðlu kornungur og árið 1939 vann hann fyrstu verðlaun í músik- keppni í London. Tveim árum seinna flutti hann til Bandaríkj- anna og lék með Hljómsveiit Fíladelfíu, og sinfóníuíhljómsveit um í Detroit, Los Angeles og Seattle. Hann var fiðlueinleikari og konsertmeistari sinfóníuhljóm sveitar Mexico City og aðstoðar- hljómsveitarstjóri í Portland, víða á tízkusýningunum, Yves var með pálma- og vatnalilju- blöð, Givenchy kaus skorkvik- indi, Heim vínber og Dior kín- verskar bjöllubumbur. I Oregon. Fyrir ári var hann ráð- inn hljómsveitarstjóri sinfóníu- hljómsveitarinnar í Salem og þar verður mál hans tekið fyrir. Komið hefur í ljós, að Heimo Haitto hefur gefið út innistæðu- lausar ávísanir í Oregonbanka að upphæð kr. 4.467. En hann var svo vel kynntur þar um slóðir, að enginn vildi verða til þess að bera fram ákæru á hendur hon- um. !>að var aftur á móti 45 doll- ara ávísun, útgefin í Los Angel- es, sem leiddi til handtöku hans. Haitto vildi ekki Láta það uppi við féttamenn, hvers vegna hann falsaði ávísanimar. „Ég hef mín- ar ástæður fyrir. því,“ sagði hann, „en ég vil ekki segja hverjar þær eru. Segið aðeins að ég hafi gert það í æsingi, það snerti fjöl- skyldu mína, og þá erfiðleika sem hún á við að etja. -- XXX ---- Alia prinsessa, dóttir Husseins konungs í Jórdaníu og Dinur fyrr verandi drottningar hans, varð sjö ára þann 13. febrúar. Við það tækifæri var móður hennar boðið til Jórdanía, en hún hefur búið í Cairó (enda Egypti) frá því þau skildu árið 1957 og hefur hún ekki fengið að sjá dóttur sína allan þennan tima. Á myndinni sézt Hussein milli fyrrv. drottn- ingar sinnar (t.h.) og núverandi drottningar, Munu prinsessu, sem er ensk að ætterni. Alia er fremst á myndinni, en krónprinsinn, -- XXX --- Hin fræga sýningarstúlka Yves Sainti Laurent, Victoire, sem hljópst úr vistinni hjá Dior til að fylgja Yves, vakti geysiat- hygli á vortízkusýningunni síð- ustu fyrir frumlega hárgreiðslu. Hár hennar var skreytt pálma- blöðum búnum til úr mannshári (sjá mynd). Það er geysimikið verk að búa til slíkar hárskreyt- ingar og tekur verkið tvo daga. Blöðin eru fest saman með lakki. — Hárskraut úr mannshári sást Abdullan, sonur Munu, er lengst til vinstrL - XXX --- Danska kvikmyndastjarnan Vivi Bak er bálreið yfir, að 42 ára gamall milljónamæringur frá Berlín, Gerhardt Berndt, hefur sagt, að hún sé ein þeirra mörgu ungu stúlkna, sem tekið hafi þátt í æðislegum skemmtunum hans í Wörtheresee. Berndt þessi, sem rekur mörg þvottahús í Berlín, var sóttur til saka fyrir að tál- draga ungar stúlkur. Hyggst Vivi saksækja hann fyrir þessi um- mæli. undan sameiginlegu búi þeirra. Er talið að skilnaðarmálið hafi gjöreyðilagt taugar leikkonunn- ar. • Beðið um langlundargeð. Velvakandi verður enn einu sinni að biðja fólk að sýna hon- um þolinmaeði. Honum berast svo mörg bréf, að óhjákvæmi- legt er að birting þeirra tefjist, jafnvel svo mánuðum skipti. — Hann reynir þó að hraða birt- ingu þeirra eftir föngum, en honum er skammtað naumt rúm í víðlesnasta blaði þjóðarinnar. Oft er gripið til þess ráðs að stytta bréfin, en þá gremst bréf riturum og kvarta undan skemmingu sinnar oiðsnilldar. Enn einu sinni verður að taka það fram, að Velvakandi verður að vita fullt nafn og heimilis- fang bréfritara, þótt dulnefni sé notað undir bréfinu á prenti. Þess misskilnings hefur orðið vart, að ekkj sé nauðsynlegt að senda nöfn bréfritara, vegna þess, að dulnefni eru notuð við birtingu. Að sjálfsögðu eru dul- nefni notuð, ef bréfritarar biðja um það, en rétt nöfn verður Vel vakandi að vita. „BORGARI" sendir Velvak- —-----------------------------V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.