Morgunblaðið - 03.03.1963, Blaðsíða 20
20
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 3. marz 196S
PATRICIA WENTWORTH: —
MAUD SILVER
kfmuo í HEIMSÓKN
Þessi framkoma ýtti enn und-
ir þá hugsun lögreglustjórans,
að hann væri alls ekki jafnviss
í sinni sök og hann hafði áður
haldið, en jafnframt stappaði það
í hann stálinu að láta hvergi
undan. Hann svaraði því, og næst
um hiklaust:
— Eg er hræddur um, að við
verðum að minnsta kosti að
gera hér húsleit.
Hr. Holderness hló með fyrir
litningarsvip.
— I>að gæti nú tafið fyrir ykk-
ur að fara gegn um alla skjala-
kassana hjá mér. Kannski vild-
uð þið gefa mér einhverja hug-
mynd um, að hverju þið ætlið að
leita þar?
— Eg held, hr. Holderness, að
við ættum að byrja á peninga-
skápnum yðar.
Máifærslumaðurinn hallaði sér
aftur í stólnum með sama ögr-
unarsvipnum.
— Og ef ég neita því?
— Drake fulltrúi hefur með
eér húsleitarúrskurð.
Roðinn steig nú alla leið upp
f gráar hársræturnar, og gráu
augun störðu, en hnefinn, sem lá
á vinstra hnénu, krepptist svo
að hnúarnir hvítnuðu. Mönnun-
um tveim sýndis líkast því, sem
reiði hans myndi þá og þegar
blossa upp í skömmum eða jafn
vel handalögmáli, en smámsam
an róaðist hann og gaf ekki
hijóð frá sér. En svo dró úr roð
snum á andJitinu, smátt og smátt
og augnalokið sigu niður fyrir
hvössu augun. Þegar þau lyftust
aftur, var eins og hann hefði jafn
að sig. Aðeins var hann ofurlít
ið fölari, harðari á svip og virðu
legri. Hann sagði:
— Gott og vel. Eg herf ekkert
á móti því. Eg veit bara ekki.
hvað þér búizt við að finna. Eg
hefði haldið, að orðstír fyrirtæk
is míns um langan aldur nægði
til að forða mér því, sem ég get
ekki kallað annað en móðgun. Eg
hef ekkert, sem ég þarf að leyna
og ég vona, að það verði ekki
meira, sem þér þurfið að iðrast.
Hann ýtti stólnum aftur og
stóð á fætur og gekk til vinstri
handar við arininn, og stóð þar
kyrr, rólegur á svip meðan hann
dró stálkeðju upp úr vasanum og
valdi einn lykilinn, sem við hana
hékk. *
Hr. Holderness greip í út-
skorna rós í veggþiljunni og
sneri henni. >á heyrðist ofurlít-
ill smellur og hleri í þilinu opn
aðist eins Og hurð Og í ljós kom
hurð á járnskáp. Ekkert hefði
getað verið hversdagslegra en
hreyfingar hans, er hann opn-
aði hurðina upp á gátt og tók
svo úr henni lykilinn.
— Gerið svo vel, herrar mín
ir, sagði hann og gekk aftur að
stólnum sínum og horfði síðan
á þá. með höndina í öðrum vas-
anum, en í hinni hendinni hélt
hann en a lyklinum.
Skápurinn var svo að segja
fullur. >arna voru skjalabögglar,
sem Drake tók út Og komu þá
fleiri bögglar í ljós, sem einnig
voru teknir út. Næst komu þrjú
gÖmul leðurveski. I þeim voru
hálsfesti úr ametýst í gullum-
gerð frá nítjándu öld, og tvö til
svarandi armbönd. >egar Drake
opnaði töskurnar, sagði hr. Hold-
erness háðslega:
— Eg veit nú ekki, hvort þið
hafið neitt gagn af þessu — eða
hvort Alan Crover efur nokk-
urt gagn af því. >etta eru erfð-
agripir frá móður minni. Og af
því að systir mín vill ekki nota
þá geymi ég þá hérna og skoða
þá stundum, mér til ánægju. En
þeir eru ekki mjög verðmætir.
54
Innst í skápnum Stóðu tvær
pappaöskjur undan skóm. >egar
Drake seildist eftir þeim, dró
Holderness höndina upp úr vas
anum. Hann gekk hinsvegar við
stólinn og settist niður. Drake
dró fyrst aðra öskjuna fram og
opnaði hana. March sá kruklað
an umbúðarpappír. >egar Drake
hafði tekið hann frá, komu í ljós
grannir berir limir — gyllt stytta
sem átti að tákna Sumarið, tíu
þumlungar á hæð.
— >að er önnur hérna, sagði
Drake. en áður en hann hafði
tekið upp Vorið, andvarpaði hr.
Holderness og leið út af í stóln-
um.
XLII. ,
Ungfrú Silver sat ein í dag-
stofu frú Voycey. Af því að
þetta var á mánudegi, hafði
Cecilia farið í búðir með inn-
ka'upakörfu í hendi, og þaðan
var hún bráðum væntanleg aft-
ur, klyfjuð matvörum og kjafta-
sögum. Ungfrú Silver hafði beð-
ið sig afsakaða frá að fara með
henni í þetta sinn.
— Ég þyrfti helzt að skrifa
eitt eða tvö bréf, svo að ég vildi
heldur vera heima í þetta sinn,
ef þér væri sama, Cecilia mín.
Frú Voycey var sama. Enda
þótt hún hefði gaman af félags-
skap blessunarinnar hennar
Maud, vinkonu sinnar, hefði
hann hindrað trúnaðarsamtal
hennar við frú Grover, og það
samtal vildi hún ekki missa.
Samkvæmt frásögn Bessie
Crooks, hafði Maud Silver sent
eftir Alan Grover í gærkvöldi,
og þegar hún — Bessie — hafði
komið aftur eftir heilan klukku-
tíma, var Alan þar enn, og ekki
nóg með það, heldur var bíllinn
lögreglustjórans þar fyrir utan,
og hann og Drake fulltrúi voru
þarna inni hátt upp í klukku-
tíma. Og þegar frú Voycey sjálf
kom heim úr kirkjunni, gat
Maud ekki sagt annað en þetta:
„Góða Cecilia mín, ég vildi svo
gjarna segja þér frá því, en rétt
í bili verður það að vera leynd-
armál“.
Cecilia Voycey hafði alltaf
heyrt, að þagmælska væri dyggð,
og henni hefði aldrei dottið í
hug að draga það í efa. En það
var nú svona, að þessar dyggðir
voru ágætar á pappirnum, en
gátu verið dálítið þreytandi í
framkvæmdinni. >etta var auð-
vitað ekki nema satt Og rét't hjá
Maud, en nú hafði hún eindreg-
ið þörf á að tala við frú Grover.
3|ÍItvarpiö
Sunnudagur 3. marz
8.30 Létt morgunlög.
9.20 9.20 Mo'rgunhugleiðing og
morguntónleikar: Árni Kristj
ánsson talar um óratóríuna
„Júdas Makkabeus" eftir
Georg Friedrichr Handel, —
en síðan verða fluttir þættir
úr hepjii, undir stjórn Abra-
hams Kaplan: Adele Addi-
son sópran, Murray Dickie
tenór og Raffaele Arié bassi
syngja ásamt Tel Aviv kórn-
um og Fílharmoníusveit ísra-
els.
11.00 Messsa í Kópavogskirkju
(Prestur: Séra Gunnar Árna-
son. Organleikari: Guðjón
Guðjónsson).
12.15 lslenzk tunga; 1. erlndi: Upp-
tök íslenzks máls (Dr. Hreina
Benediktsson prófessor).
14.00 Miðdegistónleikar: Óperan
„Lucia di Lammermoor" eft-
ir Donizetti. Þorsteinn Hann»
esson kynnir).
15.40 Kaffitíminn: a) Ólafur Gauk«
ur Þórhallsson og félagar
hans leika. b) Norman Luboff
kórinn syngur vinsæl lög.
16.20 Dagskrá æskulýðsnefndar
þjóðkirkjunnar: Söngur, á«
vörp og erindi. — Flytjendurj
Dr. Róbert A. Ottósson söng«
málastjóri og guðfræðinemar
skiptinemar þjóðkirkjunnar,
félagar í æskulýðsfélagi Ak«
ureyrarkirkju, Jón Einarsson
stud. theol., Séra Ingólfur Ást
marsson, séra Bragi Friðrika
son og séra Ólafur Skúlason
sem hefur aðalumsjón med
dagskránni.
17.30 Barnatími (Skeggl Ásbjamar
son): a) Stefán Sigurðsson
les sænska þjóðsögu: „Katrín
hnetubrjótur". b) Ólafur Ól«
afsson kristniboði les „Sögn
úr sveitinni" efir Albert Ól«
afsson c) Guðmundur M. Þoc
láksson les ævintýri.
18.20 Veðurfregnir.
18.30 „Bára blá“: Gömlu lðgin sung
in og leikin.
19.00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Umhverfis Jörðlna: Guðnt
Þórðarson segir frá Siam.
20.20 Frá ljóðakvöldi 1 Háskðlabfðl
20. f.m.: Irmgard Seefried
syngur við undirleik Erika
Werba.
21.00 Sunnudagskvöld með Svavarl
Gests, — spurningar- og
skemmtiþáttur.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 4. marz
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Búnaðarþáttur: Gunnar
Bjarnason fyrrv. skólastjórf
segir frá námskeiði bænda«
skólastjóra í Sviss a.L sum«
ar.
13.35 „Við vinnuna": Tónleikar. f’
14.40 „Við, sem heima sitjum";
„Gestir", skáldsaga eftir Krist
inu Sigfúsdóttur; I. lestur.
15.00 Síðdegisútvarp.
17.05 Tónlist á atómöld (ÞorkeH
Sigurbjörnsson).
18.00 Þjóðlegt efni. fyrir unga hlust
endur (Stefán Jónsson rith.)
13.20 Veðurfregnir. ,<
19.30 Fréttir.
20.00 Um daginn og veginn (Unnar
Stefánsson viðskiptafræðing«
ur).
20.20 „Mandarfnfnn makalausi",
ballettsvíta eftlr Béla Bartók
20.40 Á blaðamannafundi: Jói»
Leifs tónskáld svarar spurn«
ingum. Spyrjendur: Emil
Björnsson, Guðnl Guðmund*
son og Leifur Þórarinsson,
Stjórnandi: Dr. Gunnar G.
Schram.
21.15 „Barnaherbergið" (Children
corner), lagaflokkur fyrir pí«
anó eftir Debussy (José It«
urbi leikur).
21.30 Útvarpssagan: „fslehzkur að«
all" eftir Þórberg Þórðarson
X. (Höfundur les).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (19). *■■
22.20 Hljómplötusafnið (Gunnar
Guðmundsson).
23.10 Skákþáttur (Guðmundur Am
laugsson).
23.45 Dagskrárlok. .*
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN kemur yður ætíð á leiðar-
enda. — Hvert sem þér farið, þá er VOLKS-
WAGEN traustasti, ódýrasti og því eftir-
sóttasti bíllinn. Pantið tímanlega.
FERÐIST I VOLKSWAGEN
HEILDVERZLUNIN HEKLA H F
Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275.
iNú er rétti tíminn að panta
20ára reynsla hérlendis
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF
KALLI KUREKI
- *
Teikncui: Fred Harman
Þessi kjáni, hann skelfur af — Við skulum kæfa eldinn. Get- í hinni kyrru eyðimerkurnótt
draugahræðslu. urðu fundið búðirnar þeirra í myrkr- leggja Litli Bjór og Kalli af stað á
Á meðan, úti í eyðimörkinni. inu. hina löngu göngu.