Morgunblaðið - 08.03.1963, Side 6

Morgunblaðið - 08.03.1963, Side 6
6 MORCVHBLAÐIÐ Föstudagur 8. marz 1963 Markvisst unnið að skipu- lagsmálum Reykjavíkur A FUNDI borg-arstjórnar í gær var rædd tillaga Alfreðs Gisla- sonar um, að kjörin yrði 5 tnanna nefnd til að rannsaka ásig komulag skipulagsnefndar borg- arinnar. Var samþykkt að vísa henni frá með svofelldri frávís- Hnartillögu: „Þar sem markvisst er unnið að skipulagsmálum af skipulags- deild og fleiri aðilum, undir Stjórn og í samstarfi við borgar- yerkfræðing og skipulagsstjóra, telur borgarstjórn ástæðulaust að kjósa rannsóknarnefnd, og visar tillögunni frá“. ií Vaxandi óskapnaður Alfreð Gíslason (K) gerði grein fyrir tillögu sinni, sem var á þá lund, að kjörin skyldi 5 manna nefnd, til að rannsaka ásig komulag skipulagsdeildar borgar- V!, . n innar og gera til- íögur til borgar- stjórnar um ráð- stafanir til þess að koma starf- semi hennar í viðunandi horf. Sagði AG, að annaðhvort byggju íslend- ingar við enga imenningu eða ómenningu í skipu Jagsmálum og frá aldamótum hefðum við „átt við að búa Óskapnað“ í þeim efnum, enda væri „öll þjóðin vanþroska" á þessu sviði. Þó bæri að viður- kenna, að vel hefði tekizt til um skipulag Rauðalækjarhverfi, en þá hefði byggingarnefnd komið og eyðilagt það. Mjög gagnrýndi hann þá ráðstöfun, að Ráðhúsi *kyldi vera ætlaður staður í enda Tjarnarinnar, sem hann kvað brjóta í bága við flestar skipu- lagsreglur, og auk þess væri með því verið að eyðileggja síðustu leifar fegurðar í Reykjavík og yæri „nýr steinn.í götu farsællar endurskipulagningar“ borgarinn- ar. Megum ekki vera of dómhvatir Geir Hallgrímsson, borgar- Ktjóri, kvaðst hljóta að mótmæla því öfgakennda orðalagi, sem AG þefði viðhaft á mörgum stöðum Kvöldsala Kvöldsala Morgunblaðs- ins er á laugardagskvöld- um úr afgreiðslu þess i /‘Aðalstræti og við einn af bílum blaðsins á bíla- stæðinu við Stjörnubíó. f ræðu sinni, m. a. þar sem hann kallaði Reykjavíkur- borg, stað, þar sem óskapnað- urinn fengi að þróast, og að það sem skipu- lagsnefnd borg- arinnar hafi vel gert á liðnum árum, hafi bygg- ingarnefnd tekizt að eyðileggja. Vissulega hlytum við að viður- kenna, að margt gæti betur far- ið í skipulagi borgarinnar, þótt við hins vegar yrðum að gæta þess að vera ekki dómhvatir um of. Þess yrði og að gæta, er rætt væri um skipulag gamla bæjar- ins, að þeir menn, sgm hann skipulögðu, höfðu ekki þær for- sendur að ganga út frá, sem við nú höfum, sem stafar m.a. af breyttum lifnaðarháttum. Geta mannsins til að sjá fram í tím- ann er takmörkum sett og spá- dómar okkar um framtíðina hljóta að byggjast á aðstöðunni á hverjum tíma. Þess vegna er það svo, að jafn- vel hinum færustu mönnum get- ur yfirsézt og á það ekki hvað sízt við um skipulagsmál, að þar eru skoðanir mjög skiptar um, hvað sé gott og illt, Ijótt eða fallegt. Sem betur fer leggja ekki allir sama mælikvarðan þar á, enda er það svo, að þegar um- ræður verða um slík mál, verð- ur það gjarna til þess, að málin skýrast betur fyrir mönnum og kvaðst borgarstjórinn því síður en svo harma það, að umræður um skipulagsmál séu teknar upp í borgarstjórninni, ef þær yrðu til þess, að menn gerðu sér betri grein fyrir vandanum. Nú kveður við annan tón. • fjölyrða um þá þrenningu, Dóm- kirkjuna, Alþingishúsið og Aust urvöll, sem AG kvað síðustu leifar fegurðar í Reykjavíkur- borg, sem mundi þó gereyðileggj ast með því að setja ráðhúsið niður í Tjarnarendanum, en þá ráðstöfun kvað AG brjóta í bága við flestar skipulags- reglur. Minnti borgarstjóri á, að sú ráðsböfun hefði þó verið sam- þykkt einróma 1 borgarstjóm- inni, m.a. af AG, þó bæði AG og hann sjálfur hefðu þá báðir fremur kosið annan stað. Hins vegar hefði mikill meirihluti borgarstjórnar og allar skipulags nefndir verið á þeirri skoðun, að Ráðhúsið skyldi sett í enda Tjarn arinnar, og hefðu allir borgar- stjórnarmenn þá getað sætt sig við það. Kvaðst borgarstjóri því harma það, ef AG hefði greitt atkvæði svo gegn sannfæringu sinni, að hann hefði með því talið sig gjöreyðileggja síðustu leyfar fegurðar í Reykjavíkur- borg og brjóta í bága við flest- ar skipulagsreglur. í því sambandi vék borgar- stjórinn að þeim orðum AG, að það væri viðurkennd skipulags- regla að „decentralisera“, en borg arstjóri kvað aftur á móti að það væri regla skipulagsmanna að „centralisera" á sama svæði svipaða starfsemi, sem saman ætti, og þar á meðal laegi til grundvallar staðsetningu Ráð- húss í gamla bænum að þar yrði stjórnsetur lands og borgar. Verðum að hafa hugrekki til að taka ákvarðanir. Þá vék borgarstjóri að því, að hvort sem um væri að ræða skipulag einstakira hverfa eða allrar borgarinnar, yrðum við að hafa hugrekki til að taka ákvarð Ekki kvaðst borgarstjóri mundu anir og leggja dóm á skipulags- uppdrætti, þótt við yrðum að fiorðast alla hvatvisi í þeim efn- um. Þar er margra atriða að gæta, sem þarf að taka tillit til, og erfitt fyrir einstaka borgar- fulltrúa að gera sér grein fyrir öllum þeim forsendum, sem skipulagssérfræðingarnir hafa verið að gflíma við. Þó skulum við vera óhræddir að gagnrýna þá hluti, en megum hins vegar- ekki torvelda starfið með öfga- kenndium' dómum. Komið hefði fram í ræðu AG, að hann var að surmu leyti hrifinn af starfi skipulagsdeildar, hvað viðvék ákrautlegum kortum og öflun gagna. Og kvað borgarstjóri rétt, að unnið hefði verið geysilegt starf í skipulagningu einstakra svæða og heildarskipulagningu borgiarinnar og ýmiissa gagna aflað í því skyni. Þó játaði borgarstjórinn, að hann hefði hikað við, er skipulagssérfræð- ingar borgarinnar lögðu eindreg- ið til sl. vor, að áður en gengið yrði endanlega frá skipulagsupp- drætti Reykjavíkur innan Hring- brautar og Snorrabrautar færi fram fullkomin umferðarkönn- un. Kvaðst hann hafa viljað ganga frá uppdrættinum þá þeg- ar, en ekki frekar en borgar- stjórnin treyst sér til þess a* standa gegri því, að áður yrði fyllstu upplýsinga aflað, svo að endanlega yrði frá skipulagsupp- drættinum gengið í samræmi við nýjustu starfshætti. Nú er verið að vinna úr þeim gögnum, sem aflað var með umferðarkönnun- inni, og mun því verki verða lok- ið á næstu vikum eða mánuð- um. Fullnaðaruppdrættir af 140 ha svæði Þá gat borgarstjóri þess, að starfsmenn skipulagsdeildarinnar væru nú tíu, en ekki 8 eins og AG sagði. Þar af 2 arkitektar, einn starfsmaður, sem innir af hendi fulltrúastörf, 2 iðnfræðingar, 4 teiknarar og einn módelsmiður. Hefur deildin unnið geysilegt starf undanfarin tæp 4 ár. Fulln- aðaruppdrættir hafa verið gerð- ir af Mýrahverfi, Bólstaðarhlíðar- hverfi, Grænuhlíðarhverfi, Stiga- hlíðarhverfi, svæði umhverfis sundlaug Vesturbæjar, Meistara- völlum, Ásenda, íbúðarhverfanna norð-austan Háaleitisbrautar og austan Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, samtals 79,8 ha landi í íbúðarhverfum. í iðnaðarhverfum hefur verið gengið frá fullnaðaruppdráttum Framh. á bls. 23 , togttnflrlftfrifr í 5 hreppum Myrasýsiu] og Hnappadalssýslu ÞAÐ hefur orðið að samkomu ar verði miklu örari en verið lagi, að umboðsmaður Morg- hefur. Er þegar komin nokk- unblaðsins í Borgarnesi, Jón ur reynsla á hið nýja fyrir- Ben. Ásmundson, hefur tekið komulag. Hefur það vakið að ér að Vera umboðsmaður mikla ánægju á þeim heimil- Morgunblaðsins í Hraunhreppi um, í fyrrgreindum hrepp- og Álftaneshreppi í Mýra- sem þegar njóta góðs af hinni sýslu, og Kolbeinsstaðahreppi, bættu þjónustu. Eyjahreppi og Miklaholts- Jón Ben. Ásmundsson for- hreppi í Hnappadalssýslu. Með stjóri mun framvegis annast þessu fyrirkomulagi standa fyrirgreiðslu fyrir blaðið í vonir til að hægt verði að áðurnefndum fimm hreppum bæta verulega þjónustu Morg- og m.a. annast innheimtu blaðs unblaðsins við lesendur í þess ins. Til hans geta nýir áskrif- um hreppum, og blaðasending endur snúið sér. ÞETTA bréf barst okkur fyrir alllöngu og hefir því miður, eins og fleiri orðið að bíða rúms hér í r’',kunum. • Eftirlit með manna- ferðum í skipum. B. G. skrifar: „Kæri Velvakandi. Þú virðist ávalt hafa möguleika á að sinna smákvaki og hér er ég komin með mitt ef þú vildir Ijá því rúm í dálkum þínum. Það ríkir fögnuður í huga þeirra, sem heimt hafa sína, er skip það er þeir sigla á, er kom ið að landi. Ekki er að efa að leitazt er við að hafa valinn mann í hverju rúmi og einmitt það vekur traust vandamann- anna, sem i landi dvelja, að vita sína náfiustu í góðra manna höndum. Því kemur það eins og kalt steypibað er tilkynnt er hvarf manns og lát frá skipi, sem ný- komið er af hafi — og það af óviðkomandi manni. Hvað veld ur slíkri harmafregn? Er ekki starfandi vaktmaður við skipin hvort heldur er að degi eða nóttu? Og er vaktmanninum ekki skylt að vita skil á ferðum manna sem koma um borð og fara frá borði. Ekki er þetta fljótandi hótel þar sem hver sem vill getur gengið um óboð- inn hvenær sem honum þóknast. Mér finnst einkum nauðsyn að ríkt sé eftir þessu gengið að næt urlagi. Annað mál var á döfinni ný verið. Þá hvarf maður frá skipi, sem var á leið úr höfn og lang- úr tími leið áður en menn sökn uðu hans. Hvernig má það vera að hvert og eitt einasta skip skuli ekki láta fara fram nafnakall um leið og það leggur úr höfn eða a.m.k. þegar er komið er úr höfn. Ekki virðist sú hafa verið rauniri í þessu tilviki. „En menn töldu sig hafa séð piltinn um það leyti sem skipið var að fara“. Þetta vekur vissulega ekki traust þeirra, sem eiga sína á sjónum. Ekki þykir það góður húsbóndi sem „lokar bænum" áður en hann hefir gengið úr skugga um að allir heimilis- menn hans séu innan dyra, eða á þeim stað sem vænzt er. Frétt ir sem þessar eru vissulega engri sjómannskonu sársauka y --« • Langur tími í hárlagningu. Kona í Austurbænum skrif ar: „Mig hefir lengi langað til að Skrifa þér fáeinar línur, því ég sé þú kemur mörgu gagnlegu til leiðar. Eg hef ofurlitla kvört un fram að færa. Það er nú þetta með okkur konurnar að við þurfum stund- um að fara í hárlagningu. Það sætir furðu hvað við erum oft látnar bíða lengi þótt við eigum pantaðan tíma. Það virðist ó- þarflega langt er það tekur 2— 2V2 klst. og allt upp í 3 tíma að fá eina hárlagningu. Fyrir allt venjulegt hár ætti þetta ekki að þurfa að taka nema sem nemur einni klst., ef manni væri sinnt strax á tilskildum tíma. Það getur orðið nokkuð dýr lagning ef konan verður að kalla mann sinn heim úr vinn- unni til að gæta bús og barna, eða ef kaupa þarf barnagæzlu, því ekki geta allir kastað börn- unum í sína nánustu endur- gjaldslaust. Eg hef þessa sömu sögu að segja um nokkrar hár- greiðslustofur. Mér virðist, þeg ar fullt endurgjald kemur fyrir veitta þjónustu, eigi að sýna viðskiptamanninum meiri tilUts semi en hér um ræðir. G. K.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.