Morgunblaðið - 08.03.1963, Blaðsíða 12
12
MORCVTSBLAÐ1Ð
r Föstudagur 8. marz 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson,
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
•jgjt Matthias Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðsdstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakiö.
VIÐREISN OG
VINNUHA GRÆÐING
Irum saman hefur Morgun-
** blaðið barizt fyrir því, að
teknar yrðu upp nýjar að-
ferðir til þess að bæta kjör
manna. Hefur þar verið bent
á nauðsyn þess að bæta sam-
starf launþega og vinnuveit-
enda, útiloka pólitíska mis-
notkun verkalýðsfélaga, koma
á ákvæðisvinnufyrirkomu-
lagi eða aukagreiðslum fyrir
meiri áfköst og síðast en ekki
sízt að leggja áherzlu á
vinnuhagræðingu, sem svo
hefur verið nefnd.
Nú er svo komið, sem bet-
ur fer, að engir þora lengur
að standa gegn þessum að-
gerðum. Lengi vel gerðu
kommúnistar — og raunar
Framsóknarmenn líka — gys
að þessum tillögum og töldu
fráleitt að hægt væri að ná
kjarabótum án verkfalla. En
svo algjört er undanhaldið
nú, að kommúnistar eru
meira að segja farnir að tala
um það, að verkalýðsfélögin
eigi ekki að vejra undir póli-
tískri yfirstjórn, en allt fram
á þennan dag hafa þeir sem
kunnugt er boðað það, að
stjórnmál og verkalýðsbar-
átta hlyti að vera eitt og hið
sama.
En sá skilningur, sem nú
er vakinn á nauðsyn vinnu-
hagræðingar, byggist ekki
einungis á því, að þessi mál
hafa verið túlkuð í ræðu og
riti. Meginástæðan til þess að
nú verður lagt kapp á að
bæta vinnubrögð í stórum
sem smáum fyrirtækjum er
sú, að viðreisnarstefnan hef-
ur þau tvíþættu áhrif að gera
fyrirtækjunum unnt að end-
urbæta reksturinn og jafn-
framt útheimtir hún slíkar
aðgerðir. Þetta byggist m.a. á
því, að með skattalagabreyt-
ingunum, sem gerðar hafa
verið, hefur sú grundvallar-
breyting orðið, að nú er fyr-
irtækjunum leyft að halda
eftir nægilega miklu af hagn-
aði sínum til að geta endur-
bætt reksturinn og þar með
bætt sinn hag og launþeg-
anna.
Á hinn bóginn leiðir af-
nám uppbótakerfisins til þess
að fyrirtæki í útflutnings-
greinum geta aðeins bætt
hag sinn með auknum afköst-
um og hagsýni, og aukið inn-
flutningsfrelsi krefst hins
sama af fjölmörgum fyrir-
tækjum öðrum.
Áður var það svo, að lítil
hvöt var hjá fyrirtækjunum
til að bæta reksturinn, því að
uppbætumar voru miðaðar
við það að fleyta útgerðinni
og fiskiðnaðinum og voru
þeim mun hærri sem ver
gekk, og innflutningshöftin
veittu mörgum fyrirtækjum
einokunaraðstöðu, svo þau
höfðu litla þörf fyrir endur-
bætt vinnubrögð.
ÁKVÆÐISVINNA
í FRYSTIHÚSUM
Fhns og frá hefur verið skýrt
^ hér í blaðinu hefur nú
verið tekin upp ákvæðis-
vinna í nokkrum frystihús-
um og hefur hún gefizt mjög
vel, bæði bætt hag fyrirtækj-
anna og þó sérstaklega starfs-
mannanna. -
Þótt þessi háttur sé hafður
á greiðslu vinnulauna er séð
til þess að enginn beri minna
úr býtum en svarar til al-
menns tímavinnukaups, en
hinsvegar er þeim, sem ná á-
kveðnum lágmarksafköstum,
greitt meira — og oft mun
meira en þéir fengju, ef þessi
háttur væri ekki á hafður.
Verkafólkið unir að sjálf-
sögðu vel þessu fyrirkomu-
lagi, og er ástæða til að ætla
að það muni ryðja sér til
rúms í fjölmörgum greinum
atvinnulífsins, þegar á þessu
ári og þeim næstu.
Allar þessar breytingar,
sem hér hefur verið rætt um,
stórbæta hag launþega og
neytenda almennt. Aldrei
verður hægt að segja hve
mikilli upphæð þær kjara-
bætur nema, en enginn efi er
á því, að þær eru miklu meiri
en svarar til þeirra launa-
hækkana, sem knúðar eru
fram með verkföllurr.
RÓGURINN UM
RAGNAR
17" ommúnistar eru óþreyt-
“ andi í því að rægja ís-
lendinginn, sem ljóstraði upp
um njósnastarfsemi Rúss-
anna. Finnst þeim mestu
varða að geta þvegið það af
sér, að hann hafi verið flokks-
bundinn í Sósíalistaflokkn-
um.. Sú afstaða byggist aug-
ljóslega á því, að þeir vilja
gera hvort tveggja í senn, að
sannfæra flokksmennina um
það, að ekki þýði að bregðast
Rússum og svo hitt, að þeir
vilja með þessum árásum
sanná hinum rússnesku yfir-
boðurum sínum hollustuna.
Ljóst er einnig, að kommún-
ista svíður undan því að það
skuli hafa verið opinberað,
að Rússar hafi ekki sízt á
huga á því að kynnast innan-
Æösta manni hershöfðingja-
stiórnarinnar í Perú vikið
Um siðustu helg-i gerðist sá
atburður í Perú, að Ricardo
Perez Godoy, æðsta manni
hershöfðingjastjórnarinnar,
sem fer með völd í landinu,
var vikið úr embætti. Eftir-
maður Godoys hershöfðingja,
Nicolas Lindley Lopez, hers-
höfðingi, hefur sagt, að Godoy
hafi ætlað að láta hjá líða að
efna tíi kosninga í landinu
næsta sumar, en því hafði
hcrshöfðingjastjórnin lofað.
Lopez sagði, að Godoy hefði
orðið að víkja vegna þess að
tilgangur hershöfðingjabylj-
ingarinnar hefði ekki verið
að gera hann að einræðis-
herra. Sem eftirmaður Godoys
sagðist Lopez vilja fullvissa
þjóðina um, að hershöfðingja-
stjórnin myndi standa við lof-
orð sitt um að láta kjósa borg-
aralega stjórn á sumri kom-
anda.
A? Sólarhrings fundur
Ákvörðunin um brottvikn-
irigu Godoys var tekin á fundi
hershöfðingjastjórnarinnar að
honum sjálfum viðstödidum.
Fundurinn, sem fór fram í
þinghúsinu í Lima, höfuð<-
borg Perú, stóð taepan sólar-
hring. Þegar íbúar Liima
fregnuðu hvað væri til um-
ræðu á fundinum, söfnuðust
menn saman fyrir utan þing-
húsið. Lögregla var send á
vettvang til þess að taka í
taumana ef til óeirða kæmi,
en það varð ekki.
Perúbúar, sem eru 6 millj.,
virtust ekkert kippa sér upp
við þessar fyrstu alvarlegu
deilur, sem risið hafa innan
hershöf ðingj astjórnarinnar.
* „Lifi Perú!“
Þegar Godoy, herhöfðingi,
yfirgaf þinghöllina, að aflokn
um fundi stjórnarinnar, var
hann þögull og virtist mjög
þreyttur. Það eina, sem hann
vildi segja við fréttamenn var:
„Lifi Perú“. Því hefur verið
neitað opinberlega að Godoy
hafi verið hnepptur í varð-
hald, en varðmenn voru látn-
ir taka sér stöðu við heimili
hans. Höfðu þeir fyrirskipan-
ir um að hleypa engum út eða
inn.
Perez Godoy var aldursfor-
seti hershöfðingjanna 12, sem
skipuðu stjórn Perú. Hann
hefur verið æðsti maður lands
ins frá því að herinn steypti
stjórn Manuels Prados for-
flokksástandinu í kommún-
istaflokknum. Auðvitað vita
kommúnistar hér, að Rússar
leggja hvarvetna megin-
áherzlu á að fylgjast með
hræringum í kommúnista-
flokkunum til þess að vita að
hverri klíkunni þeir eiga að
halla sér og hverja þeir eigi
að styrkja. En kommúnistum
finnst skelfilega óþægilegt að
um þetta skuli hafa verið
rætt opinberlega. Þeim finnst
það nærri því verra en upp-
ljóstrunin um hernaðarnjósn-
irnar.
Að öðru leyti eru kommún-
istar líka á hálum ís í árás-
I um sínum á Ragnar Gunnars-
úr embætti
seta af stóli í júlí sl. Sagt er
að félagar Godoys í stjórn-
inni hafi verið gramir vegna
þess að hann starfaði of sjálf-
stætt og fylgdi ekki í einu og
öllu samþykktum tjórnar-
innar.
Lopez baðst lausnar
Lopez hershöfðinigi, eftir-
maður Godoys, var áður her-
mólaráðherra stjórnarinnar.
Hann baðst lausnar nokkrum
dögum áður en Godoy var
vikið úr embætti, vegna á-
greinings við hann. Stjórnar-
fundurinn, sem ákvað að
svipta Godoy embætti, var
kallaður saman vegna lausn-
arbeiðni Lopez. Eftir fundinn
sagði Lopez, að félagar sínir
í stjórninni hefðu neitað að
taka lausnarbeiðnina til
greina, en ákveðið að láta
Godoy víkja.
son. Þeir kalla hann njósnara
og segja, að hann hafi um
árabil njósnað fyrir Rússa.
Benda þeir þar á myndatöku
hans af Loranstöðinni á Snæ-
fellsnesi, sem hann sjálfur
skýrði frá, þótt fyrir liggi, að
ekki sé um neina sök hans að
ræða í því efni, þar sem hann
gerði sér fulla grein fyrir því,
að þessi myndataka gat enga
þýðingu haft og ekki skaðað
íslenzka hagsmuni.
Þegar Ragnar Gunnarsson
sér að um alvarlegri hluti er
að ræða, tilkynnir hann það
lögreglunni þegar í stað.
Þess vegna hefur hann ekki
brotið gegn íslenzkum lögum
eða hagsmunum og aðdrótt-
Richardo Perez Godoy, hersliöfðingi (í miðið), kona hans
(tji.), og fylgdarlið, yfirgefur forsetahöllina í Lima, eftir að
Godoy var vikið úr embætti.
í tilkynninigu, sem stjórnin
gaf út eftir þennan fund
sagði m.a., að Godoy hefði
misnotað aðstöðu sína. Stjórn
in sagðist vilja leggja áherzlu
á, að hún tryði á lýðræði og
væri staðráðin í- því að halda
loforðið um að efna til kosn-
inga í sumar.
Tilbúnar ásakanir
Ekki kom til blóðsútihell-
inga í Perú sl. sumar, þegar
hershöfðingjarnir steyptu
stjórn Prados af stóli. Sögð-
ust hershöfðingjarnir hafa
látið til skarar skríða vegna
þess að stjórnin hefði haft
svik í frammi við nýafstaðnar
forsetakosningar. Sumir telja,
að þessar ásakanir herforingj-
anna hafi verið tilbúnar og
tilgangur byltingarinnar hafi
verið að koma í veg fyrir að
Frarruh. á bls. 14.
anir um það eru stórlega
refsiverðar.
Þá hafa kommúnistar Iíka
dylgjað um það, að Ragnar
kunni sjálfur að hafa boðið
Rússum aðstoð sína. Sú að-
dróttun er auðvitað fráleit.
þegar hliðsjón er höfð af því,
að Ragnar stuðlaði sjálfur að
því að íslenzk yfirvöld gætu
hlýtt á viðræður hans við
Rússana. Það hefði hann
varla gert, ef það hefði getað
kostað það, að hann hefðl
sjálfur orðið uppvís að land-
ráðastarfsemi. Þess vegna er
áreiðanlega heppilegast fyrir
Moskvumálgagnið að fara sér
hægar í ásökunum á hendur
Ragnari Gunnarssyni.