Morgunblaðið - 08.03.1963, Side 23

Morgunblaðið - 08.03.1963, Side 23
Föstudagur 8. marz 1963 MORGVNBLAÐ1Ð 23 Brezkir blaöamerm fangelsaðir London 7. maTz (NTB). TVF.IK brezkir blaðamenn voru fangelsaðir í dag fyrir að neita að gefa rannsóknarnefndinni í Vassal-njósnarmálinu upplýsing- ar um heimildir fyrir fregnum, sem þeir rituðu um málið. Blaðmennirnir eru Brendan Muilholland frá Daily Mail, sem dæmdur var í sex mánaða fang- elsi og Reginald Foster frá Daily Sketcíh, en hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi. MISl þetta hefur vakið mikla athygli bæði í Bretlandi og annars stað- ar og þá sérstaklega meðal þeirra, sem starfa við blöð oig tímarit. Blaðaimannafélg Bretlands fór þess á leit við innanrílkisráð- herra landsins í dag, að dómur- inn yfir blaðamönnunum tveim- ur yrði mildaður. Börnin í Reykjavík kunna vel að meta hinn 69 ára gamla Sunnudagaskóla K.F.U.M. og fjöl- menna í hann á hverjum sunnudagsmorgni yfir vetrarmánuðina. — Þessi fríði hópur sunnu- dagaskólabarna var nýlega myndaður við skólann í tilefni afmælisins. Sunnudagaskóli KFUM 60 ára SUNNUDAGASKÓLI KFUM i Reykjavík er 60 ára í dag 8. marz. Hann var stofnaður árið 1903 af Knud Zimsen verkfræð- ingi og síðar borgarstjóra í Reykjavík. 1' Áður hafði Jón Helgason, síð- ar biskup, haldið uppi barnaguðs þjónustum með aðstoð presta- skólanema. Annars má telja Knud Zimsen brautryðjanda hér á þessu sviði, en hann kyhntist og starfaði við sunnudagaskóla í Kaupmannahöfn frá 1897 og með — Hugmynd Framhald af bls. 1. eiginlegur kjarnorkuherafli Atlantshafsbandalagsins fengi til umráða skip búin eld- flaugum í stað kafbáta. ' Von Hassel sagðist hafa bor- ið þessar tillögur fram fyrr á jþessu ári, er hann ræddi við aðstoðarvarnarmálaráðherra [Bandaríikjanna, George Ball og aðstoðarvarnarmiálaráðherra iBreta, Roswell Gilpatric. Sagði von Hassel, að Vestur-Þjóðverjar Ihefðu borið fram tillöguna um að skip yrðu notuð í etað kaf- báta vegna þess hve skipin væru miklu ódýrari í framleiðslu. Hann sagði, að Vestur-þýzka stjórnin hefði ekki enn tekið end anlega afstöðu til sameiginlegs Iherafla Atlantshafsbandalagsins. Von Hassel ræddi nýlega við bandaríska ráðamenn í Was- hington. Sagði hann, að þeir hefðu látið skýrt í ljós, að Banda ríkin myndu ekki krefjast öflugra neitunarvalds en önnur ríki Atl- entshafsbandalagsins, þegar skera eetti úr um hvort kjarnorku- vopnum bandalagsins yrði beitt. Von Hassel sagðist hafa lagt fyrir Bandarikjastjóm tillögu um að hvert einstakt aðildarríki Atlants hafsbandalagsins hefði neitunar- vald í sambandi við notkun kjarnorkuvopnanna meðan væri verið að byggja upp kjarnorku- her bandalagsins, en þegar her- inn væri fulknótaður réði meiri hluti hvort kjarnorkuvopn yrðu íiotuð. Von Hassel sagði, að það væru þrjú atriði, sem yrði varð- andi sameiginlegan kjarnorku- her, sem mest Xægi á að semja *nn. Þau væru: 1) Hvort að eld- flaugunum verði kornið fyrir í kafbátum eða skipum. 2) Hvernig Btjórn heraflans verði háttað og hvernig neitunarvaldi verði hag «3. 3) Hvernig skipta eigi kostn- aðinum. Varnanmálaráðherrann sagði, ®ð reksturskostnaður kjarnorku- hersins, ef hann byggðist á skip- *nm, yrðu 500 milljónir dollara á ári fyrstu 10 árin. an hann dvaldist við verkfræði- nám þar í borg. Hér heima veitti hann sunudagaskólanum forstöðu af miklum áhuga og fórnfýsi alla tíð meðan heilsa hans leyfðL Það var árið 1780 að ritstjóri að nafni Robert Raikes byrjaði hinn fyrsta sunnudagaskóla, er sögur fara af, í bænum Gloucest- er á Englandi. Nú eru sunnu- dagaskólar starfandi um allan hinn kristna heim og í þá safn- ast milljónir barna á hverjum sunnudegL Sunnudagaskóli KFUM hefur fundi sína yfir vetrarmánuðina á hverjum sunnudagsmorgni kl. 10,30 í húsi KFUM og K við Amt- mansstíg. Þar eru börnunum kenndir ritningartextar, kristi- legir söngvar og bænir. Litlar Biblíu-litmyndir með áprentuð- um textum þeim, sem kenndir hafa verið í skólanum, fá börn- in með sér heim. Við skólann starfa allmargir sunnudagaskólakennarar og er börnunum jafnan skipt í smá flokka eftir aldri nokkurn hluta fundartímans. 60 ára afmælis skólans verður sérstaklega minnzt sunnudaginn 10. marz n.k. með barnaguðs- þjónustu í Dómkirkjunni kl. 11 f. h. Formaður KFUM, séra annast guðsjónustuna. Aðrar barnadeildir KFUM og K munu einnig taka þátt í guðs- þjónustunni. Er ætlazt til að börnin safnist saman í húsi fé laganna við Amtmannsstíg kl. 10.30 og gangi þaðan í fylkingu eftir deildum til kirkju. Foreldrum barnanna er einnig boðið, en gert er ráð fyrir að þeir komi beint til kirkjunnar. Á sunnudagskvöld kl. 8,30 verður almenn samkoma í húsi félaganna við Amtmannsstíg. Munu kennarar sunnudagaskól- ans annast samkomuna og verð ur afmælisins minnzt. Allir eru velkomnir á þá sam- komu. • Þingfundur í Berlín Bonn, 7. marz (NTB). FORSETI sambandsþings Vest ur-Þýzkalands Eugen Gersten maier, hefur ákveðið að kalla þingið sama til fundar í Vest- ur-Berlín innan skamms. Þing fundur hefur ekki verið hald- inn í borginni frá 1958 og leið- togar í kommúnistaríkjunum segja að þingið hafi ekki rétt til þess að koma saman til íundar þar vegna þess að Vestur-Berlín sé ekki hluti Bjarni Jónsson vígslubiskup mun Vestur-Þýzkalands. I /*[ A44 IS hnuiar I yr* Sil 50 hnútor - * li \7 Skúrir K Þrumur W/.Z, KiMaskil v' Hihské HÁHm* VORBLIÐAN í gær var um aUt Suðuir- og Vesturland, en á annnesjum fyrir norðan var þykkt lo£t og kalsarign- ing. Hæðin yfir Grænlandi er heddur vaxandi en hlýind- in berast yfir Evrópu, 10 st. hiti í Hamborg í gær, en ísa- þoka yifir dönsku sundunum. — Varla eru þó líkur fyrir verulegri N-átt strax, en spurn ingin er hvað gerist um leið og nýja lœgðin við Nýfundna- land siglir hjá. Veðurspáin kl. 10 í gær- kvöldi: SV-mið: Austan stinnings- kaldi og síðar hvass, skúrir. SV-land til Norðurlands og Faxaflóamið til norðurmiða: Austan gola í nótt, kaldi á morgun, þurrt veður og sums staðar léttskýjað. NA-land, Austfirðir og mið- in: Austan gola og síðar kaldi, víða skúrir eða slydduél á morgun. SA-land og miðin: Austan gola og þurrt í nótt, stinnings- kaldi og skúrir á morg«n. — Borgarsfjórn Framh. af bls. 6 að iðnaðarsvæðinu við Klepps- veg, í örfirisey og við Suður- landsbraut, um 14,3 ha svæðL og unnið er að svæðum fyrir iðnað austan Grensásvegar, við Síðu- múla og Ármúla, ásamt svæðinu við Eiðsgranda, um 46 ha landi eða alls um 60 ha. Þá hefur verið gengið frá ákveðnum tillögum um skipulag miðbæjarins og undirbúnings- vinna hefur verið unnin til endan legs frágangs á skipulagi alls gamla bæjarins innan Hringbraut ar og Snorrabrautar. Þá hefur loks geysileg vinna verið innt af hendi í sambandi við heildar- skipulagningu borgarhverfisins. Loks vék borgarstjóri að þeim orðum AG, að nauðsyn væri á að stórauka starfslið skipulags deildar. Sagði borgarstjórL að ekki þyrfti að upplýsa neinn um það, að æskilegt væri að þar væri aukið við starfsliðið. Hins vegar væri ljóst, að launakjörin eiga þar nokkurn þátt í, hve erf iðlega gengur að fá fleiri sér- fræðinga á því sviði, en hins veg ar kvaðst hann vona, að væntan legir samningar ríkis og sveitar- félaga við opinbera starfsmenn mundu greiða fyrir því. En jafn vefl. þótt launakjör væru ekki til hindrunar, þá væri almennt mik ill skortur á arkitektum til starfa vegna stórkostlegra framkvæmda í borginni. Hins vegar kvaðst hann ekki geta stillt sig um að benda á það ósamræmi, sem væri i orð um og gerðum AG í þessu máli. Allt frá því að hann tók fyrst sæti í borgarstjórn 1954 fyrir Alþýðuflokkinn og síðar, er hann gerðist borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, hefði hann verið aðili að breytingartillögum við fjárhagsáætlun borgarinnar, sem allar miðuðu að því að minnka fjárveitingar til skipulagsdeildar innar, beint eða óbeint, svo að samtals nemur hundruðum þús unda, þó er skylt að taka fram að eitt ár, árið 1958, kom engin breytingartillaga fram frá Alþýð bandalaginu varðandi skipulags deildina. Máli sínu lauk borgarstjóri á þá leið, að á samanburði á Orð- um AG og gerðum sæju allir, hve þetta væri honum lítið al- vörumál og kvaðst haxm því leggja til fyrir hönd borgartfulil- trúa Sjálfstæðisflokksins að til- lögunni væri vísað frá með svo- felldri frávísunartiUögu: „Þar sem markvisst er unnið að skipu lagsmálum af skipulagsdeild og fleiri aðilum, undir stjórn og í saimstarfi við borgarverkfræði ng og skipulagsstjóra, telur borgar- stjóm ástæðulaust að kjósa rann sóknamefnd og vísar tillögunni frá.“ Alfreð Gíslason (K) kvað það vel geta vecið, að hann hefði meiri áhuga á skipulagismálum nú en áður var. En það væri þá af því, að hann hefði lært tölu- vert með tíð og tíma. Með til- lögum sínum um lægri f járveiting ar kvaðst hann hafa verið að stefna að því fé væri ekki sóað eins og hver vildi. Gísli Halldórsson (S) kvað svo markvisst hafa verið unnið að skipulagsmálum undanfarin 4 ár að ekki væri hægt að skilja til- löguna öðmvísi en svo, að með henni væri verið að reyna að draga athyglina frá því mikla starfi, sem unnið hefði verið. I því sambandi benti hann á, að svo mikið ver sem heildarskipu- lagning Reykjavíkur væri, gæti ekki hjá því farið að það tæki nokkurn tíma. Grundvallarskil- yrði góðs skipulags er söfnun hinna ýmsu gagna og hefur skipulagsdeild í því efni unnið mjög þarft þerk fyrir alla fram- tíð. Loks benti hann á, að skipu- lagsmálin halda stöðugt áfram að þróast og stöðugt er verið að greiða úr þeim. Ekki getur hjá því farið, þótt við í dag sam- þykkjum skipulagsuppdrátt að ákveðnu borgarhverfi, að fyrir borgarstjórninni liggi að taka af- stöðu til uppdrátta af því sama hverfi oft í náinni framtíð. Kvikmynd um seglskipið Pamir HAFIÐ er mörgum íslendingi annað heimkynni. Hefur svo ver- ið frá upphafi íslands byggðar, er enn og mun lengi verða. Sjór- inn hefur ótrúlega mikið aðdrátt arafl á þá, sem honum eru kunn- ugastir, enda býr hafið yfir ýms- um töfrum, þótt stundum gerist það ægilegt. Nú á tímum eru 511 skip, sem um höfin ferðast, vélknúin, en skammt er síðan svo varð. Oid- um saman gat að líta enn tignar- legri sjón á hinum votu vegum, seglskipin, með mörg möstur, rár og reiða þakin hvítum seglum, er gnæfðu við himin. Slík síkip eru heillandi sjón, og sjómenn, sem þeim skipum venjast, þykir það oft vera unaður mestur að vera á þeim. En slík skip eru naumast til lengur. Á stöku stað eru þau þó enn höfð í notkun, en þá aðallega til að æfa unga menn í sjómennsku. Af einu slíku skólaskipi verður sýnd kvikmynd á vegum félags- ins Germanía á morgun, laugar- dag. Er hún af þýzka skólaskip- inu Pamír, fjögurra mastra segl- skipi, og má vænta þess, að marg an íslending fýsi að sjá kvik- mynd af sliku skipi. Kvikmyndasýningin er í Nýja bíói og hefst kl. 2 e.h. öllum er heimill ókeypis aðgangur, börn- um þó einungis í fylgd með full- orðnum. — Aiþingi Framh. af bls. 8. MILLIÞINGANEFND Eysteinn Jónsson (F) tók und- ir með JP að mikil nauðsyn væri á því, að endurskoðun færi fram á strandsiglingunum og vafa- laust væri skipakostur Skipaút- gerðarinnar ekki lengur hentug- ur né fullkominn, svo að breyta þyrfti til. Lagði hann því mikla áherzlu á, að kjörin yrði milli- þinganefnd til að undirbúa og athuga þessi mál. Lúðvík Jósefsson (K) kvað hér hreyft miklu nauðsynjamálL Hins vegar taldi hann spor aftur á bak að hafa stærð skipsins ekki meiri en 700—900 rúmlestir brúttó, þar sem skip af þeirri stærð gætu ekki talizt fyrsta flokks til fólksflutninga, til þesa yrði skipið að vera stærra á þess- ari leið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.