Morgunblaðið - 15.03.1963, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.03.1963, Qupperneq 2
2 ’ MORGVNTtT. A DFO Fðstudagur 15. marz 1963 99 S“- ■n fjugur og heilsan Toronto, Kanada, 14. marz (AP) Dr. James Key, aðstoðarpró- fessor í skurðlækningum við háskólann í Toronto, sagði í dag á heilbrigðismálaráð- stefnu Kanada, sem haldin er í Toronto, að „sex“, salat og skozkt viskí væri allt mjög 4 ák jósanlegt, ef menn vildu halda heilsu. Kay sagði að ef komast ætti hjá hjartasjúkdómum og æða- kölkun bæri að hafa f jögur „s“ I huga. Fyrsta s-ið væri reyk ingar (smoking), og það mætti ekki. Hinsvegar ráð- lagði Key mönnum að nota mikið af hinum þremur s-un- um, ef þeir gætu. „En ef maður hefur reykt alla ævi og er kominn yfir fimmtugt, ráðlegg ég honum ekki að hætta", sagði Key. — „Það gæti myndað hjá honum sektartilfinningu og fært hann í hendur sálfræðinga, eða hann gæti barið konu sína til bana“. Fjölmenn útíör Hallgríms A. Tuliníusar í GÆR fór fram útför Hall- grims A. Tulinius, stórkaup- manns, frá Dómikirkjunni. Séra Jóin Auðuns, dómprófastur, jarð- sön.g, og Guðmundur Jónsson, óperusöngvari sönig einsöng. Félagar úr Oddifellow-stúikunni „Hallveigu“, stóðu heiðursvörð við kistuna. Fjölmenni var við jarðarförina. i minningargrein um Haljgrím Tulinius í ‘biaðinu á gær, féll niður nafn Hagbarðs Karlssonar, sem var fóstursonur hans og reyndist honum sem góður sonur. Mikil spreng- ing í vinnusal HAFNARFIRÐI. — A miðviku- dagskvöld um kl. 22,30 varð mikil sprenging í vinnusal Rafveitunn- ar, en þar voru þá staddir fjórir menn, og einn þeirra að logskera. Var það Jónas Guðlaugsson tæknifræðingur. Slasaðist hann nokkuð, en hinir þrír sluppu ó- meiddir. — Unnið hefur verið að rannsókn á sprengingu þessari, en ekki upplýst enn hvað henni hafi valdið. Jónas var við vinnuborð að logskera plötu, þegar allt í einu kvað við gífurleg sprenging. — Þeyttist platan í loft upp, og slíkur var krafturinn, að hún setti stórt far í loftið. Flestar rúður í vinnusalnum brotnuðu og ýmislegt gekk úr skorðum, svo s’em fataskápar starfsmanna, sem eru læstir, hrukku allir upp. Má af þessu ráða, að sprengingin hefur verið núkil. Er það talið Viðbót Útvegs- bankans boðin út ÚTVEGSBANKI íslands ætlar að láta stækka húsakynni sín veru- lega, eins og áður hefur verið sagt frá. Verkið hefur þegar ver- ið boðið út og verða tilboð opnuð 2. apríl n.k. Byggðar verða fjórar hæðir of- an á gamla húsið. Efsta hæðin verður inndregin og léttbyggð, en hinar hæðirnar þrjár úr stein- steypu, klæddar utan með granit plötum. Auk þessa verður húsið stækkað út í Kolasund og verður þar stigahús að efri hæðunum. Nýr afgreiðslusalur verður byggður út í portið, að baki bank ans, aðgengur frá báðum eldri sölunum. í kjallara undir honum verður snyrtiherbergi starfsfólks bankans. hið mesta mdidi, að Jónas skyldi ekki slasast meira en raun VóU-ð á. Hlaut hann nokkurn áverka á læri og málmflís gekk inn í brjóstvöðva. Var hann fluttur í Slysavarðstofuna. Hinir þrír mennirnir stóðu lengra frá vinnu borðinu, þar sem sprengingin varð og sluppu alveg við meiðsl. Tjáði rafveitustjórinn, Gísli Jónsson, blaðinu, að strax í fyrra kvöld hefði verið hafin rannsókn á sprengingunni, en enn þá væri ekki hægt að fullyrða hvað henni hafi ollið. Hann vildi þó taka fram, að hún hefði ekki orðið í logsuðutækinu. Allt benti til þess að sprengingin hafi orðið undir vinnuborðinu. — G. E. Skíðin sett undir Gljáfaxa. Skíðavél Flugfélagsins tilbúin til Grænlandsfarar í GÆR var lokið við að setja slciði undir Gljáfaxa, eina af Douglas DC-3 vélum Flugfélags- ins, og verður hún send til Græn Iands um helgina. Þar verður flogið með vistir og ýmsan út- búnað milli staða samkvæmt samningum við Konunglegu Grænlandsverzlunina. Skíðin, með öllum útbúnaði, vega liðlega hálft tonn. Þau voru smiðuð í Kanada en sett undir vélina hér heima, og er það í fyrsta sinn, að Flugfélagsmenn búa flugvél skíðum. Til þess að varna því að skíðin frjósi föst við hjarnið eru þau plasthúðuð að neðan. Þau draga örlítið úr flughraða vélarinnar og raska einnig jafnvægishlutföllum vél- arinnar, þannig að vélina verður að hiaða öðru vísi en áður, sagði Brandur Tómasson, yfirmaðux véladeildar félagsins, er blaða- menn litu sem snöggvast út á flugvöll í gær. / Brandur sagði, að töluvert mas væri við að koma skíðunum und- ix vélina. Þeim er stjórnað með Samúðarverkfall hjá frönskum járnbraulum Sólarhiingsverkfall 350 þúsund manna t gær tók ljósmyndari blaðsins þessa mynd af beði af út- sprungnum gulum krókusum og hefðu það einhvern tíma þótt tíðindi um miðjan marzmánuð. Þessi fallegu blóm eru sunnan undir Dómkirkjunni, en þar í skjólinu má einmitt oft sjá fyrstu utsprunguu blómin á vorin. (Ljósm. Sv. Þorm.j, París, 14- marz — AP-NTB S A M T Ö K starfsmanna við frönsku jámbrautirnar hafa boðað sólarhrings verkfall, sem hefst kL 2 á föstudags- morgun (ísl. tími). Er verk- fall þetta gert í samúðarskyni með námamönnum, sem ver- ið hafa í verkfalli í 14 daga, en stéttafélög námumanna og járnbrautarstarfsmanna eru í sömu heildarsamtökum. — í stéttarfélagi jámbrautarstarf- manna em um 350 þúsund fé- lagar, en alls eru námumenn um 240 þúsund. Þegar verkfall jámbrautar- — Churchill Framhald af bls. 1. undan. Nú hefur hann hins vegar gefið í skyn að sér væri miikil ánægja að taka við þessari miklu virðingarnafn- l>ót. Talamaður OhurcíhililiS benti þó á að ekki væru mikl- ar líkur fyrir því að Churc- hill, sem er 88 ára, geti komið til Bandaríkjanna í þessu saim bandi. Við atkvæðagreiðslu í Full- trúadeildinni risu þingmenn upp hver af öðrum til að bera lof á ChurchiH. Einn þeirra, Bmanuel Celler frá New York, sagði m.a.: „Hann er einn af mestu Englendingiuan, sem uppi hafa verið, og þar að auki háilf-bandarískur", og vísaði til þess að móðir sir Winstons, Jennie Jerouae, var bandari.sk. starfsmanna hefst, hefur lestar- stjórum verið fyrirskipað að halda ferðinni áfram til næstu járnbrautarstöðvar, en ekki lengra. Ekki er enn ákveðið hvort verkfallið verður til þess að stöðva neðanjarðarbrautirnar í París, én allár ferðir járnbrauta frá úthverfunum leggjast niður. De Gaulle forseti og ríkisstjórn hans vinna nú mjög að því að reyna að finna einhverja lausn á kjaradeilunum. Hélt forsetinn í morgun fund með Pompidou for- sætisráðherra, d’Estaing fjár- málaráðherra og ýmsum efna- hagsráðunautum stjórnarinnar, og mun tilefni fundarins hafa verið að finna möguleika á út- vegun fjár til að standa undir hækkuðum launum námumanna. Eitt Parísarblaðanna spáði því í dag að hækkað kolaverð og nýir skattar væru á næstu grösum. Franska stjórnin hefur ákveð- ið að skipa nýja nefnd til að kanna möguleika á samrýmingu launa starfsmanna ríkisfyrir- tækja. Segja talsmenn námu- manna að þetta sé að vísu sigur fyrir þá, en ekki nægilegur, og verði því verkföllum haldið á- fram. Segja verkfallsmenn að ríkisstjórnin hafi enn enga á- kvörðun tekið varðandi kröfur þeirra um 11% launhækkun. Eða, eins og einn af talsmönnum námumanna sagði í dag: „Við viljum hærri laun, ekki fleiri nefndir“. vökvakerfi, sem leiða verður fram í stjórnklefa. Fluigstjóri á Gljáfaxa verður Jóhannes Snorrason. Verður flog ið frá Meistaravík og Kulusuk til ýmissa staða á austurströndl Grænlandis, einkum veðurathug- unarstöðva, og lent þar á hjarni, Mun það taka nokkrar vikur að sjá þessum stöðvum fyrir vistuna og útbúnaði, en annars er ráð- gert, að slíkir flutningar farl fram bæði vor og haust. Varningnum, sem dreift er milli stöðvanna á ströndinni, er komið til Grænlands ýmist með skipum eða flugvélum. — Námu félagið, sem undanfarin ár hefur starfað í Meistaravík, hefur haft skíðavél til umráða til eigin starfsemi. Þetta er tveggja hreyfla Dornier, sem í vetur hef- ur verið geymd á Reykjavíkur- flugvelli. Fyrir nokkrum dögum tóku bæði Jóhannes Snorrason og Henning Bjarnason, flugstjóni. próf á þessa vél, því gott getur verið að grípa til hennar, ef þörf krefur. V Ö T ' ÁRjSHÁTÍÐ Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna, sem vera átti 18. þm., er frestað til 25. marz- Gullbringusýsla ! FUNDUR verður haldinn í Full- trúaráði Sjálfstæðisfélags Gull- bringusýslu í kvöld kl. 21 í nýj* samkomuhúsinu Njarðvíkum. — Dagskrá: Kosning fulltrúa á 18. landsfund Sjálfstæðisflokksins. Önnur mál. — Sverrir Júliusson og Axel Jónsson mæta á f und- inum. Norðurlandskjör- dæmi, vestra AÐALFUNDUR kjördæmisráð* Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra, verður haldinn á Sauðárkróki föstudag- inn 22. marz nk. og hefst kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Gengið frá framboðslista flokksins við alþingiskosningarn- ar i sumar. Sala bv. Víkings BV. VÍKINGUR seldi í Cuxhav- en á miðvikudag 179,9 tonn fyrir 111.096 mörk. Akureyrí MUNIÐ kjörbingó-kvöld Sjálf- stæðisfélaganna að Hótel KF.A n.k. sunnudagskvöld kL 20,30. — Glæsileg verðlaun. — Forsala a#» göngumiða er á skrifstofu flokks- ins kL 2—4 á sunnudag. — Síml 1-578. Síðast seldist upp! ;. FUS Vorður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.