Morgunblaðið - 15.03.1963, Side 24
-★ BPDIMGAR
• *“ *■ 62. tbl. — Föstudagur 15. marz 1963
Cloudmaster-flugvél yfir miðbænum í Reykjavík eftir flugtak í norðurátt af Reykjavíkurflugvelli.
• I*
Brautir Reykjavíkurfiugvallar of stuttar
Cloudmaster-flugvélarnar nýtast ekki til fulls þar
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
er of lítill fyrir Cloudmasterflug-
vélar flugfélaganna. Þetta hefur
komið fram í greinum yfirflug-
stjóra beggja íslenzku flugfélag-
anna í Mbl. undanfarna daga.
Einnig hafa verið raddir uPpi um
það meðal almennings, að þessar
þungu flugvélar fari lágt yfir
húsum bæjarins, er þær taka sig
upp og setjast á Reykjavíkurflug
völL
Mbl. leitaði til fjögurra af flug
stjórum félaganna til að fá nánari
skilgreiningu á þessu, og er það
álit þeirra allra að brautirnar séu
of stuttar til að full nýting fáist
á Cloudmasterflugvélamar, þar
eð ekki er leyfilegt að fullhlaða
þær til lendinga og flugtaks á
brautum Reykjavíkurflugvallar.
Verður að hafa á þeim leyfilegan
hámarksþunga og ef félögin halda
sig við hann telja flugstjórarnir
ekki að hætta eigi að vera á ferð
um fyrir flugvélar eða umhverfi.
Fréttamenn blaðsins reyndu að
ná í framkvæmdastjóra flugfé-
Iaganna í þessu sambandi, en það
;ókst ekki í gærkvöldi. En spurn
ingin var lögð fyrir stjórnarfor
mann Loftleiða. Fer álit hans og
flugstjóranna hér á eftir:
Bílstjóri
manni úr
A MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ
féll skipverji á togaranum Geir
milli skips og bryggju. Leigubíl-
stjóri, sem var að bíða eftir hon-
um sá þegar slysið varð óg kom
honum til hjálpar.
Þetta gerðist um kl. 9,30 um
kvöldið. Hafði “loftskeytamaður-
inn ætlað að skreppa um borð og
beið leigubíll eftir honum. Er
hann kom niður landganginn, sem
var venjulegur stigi og ekkert til
að halda sér í til stuðnings, féll
Vöruskiptajöfn-
uður hagstæður
Vöruskiptajöfnuðurinn í janú-
armánuði 1963 var hagstæður um
69.189.000 krónur. Útflutt var i
þeim mánuði fyrir 335.838.000 kr.
(í fyrra fyrir 305.852.000 kr.) og
innflutt fyrir 266.649.000 kr. (í
íyrra fyrir 227.140.000 kr.).
bjargar
höfninni
hann úr honum og í sjóinn milli
skips og bryggju.
Bílstjórinn hljóp til og gat
aðeins greint manninn í myrkr-
inu. Reyndi hann fyrst að losa
stigann til að komast niður eftir
honum, en hann var fastur í
skipinu. Hljóp hann þá eftir kaðli
sem iá á bryggjunni, og kastaði
honum til mannsins, sem náði
taki á honum. Hrópaði bilstjór-
inn nú á hjálp, þar sem hann hélt
í hinn enda kaðalsins og gat ekki
sleppt. Eftir nokkra stund heyrði
maður það um borð og kom hlaup
andi. Tók sá kaðalinn, en bíl-
stjórinn fór um borð og sótti
mannskap, sem dró skipverjann
upp. Var hann þá búinn að vera
góða stund í sjónum og hafði eitt
hvað sopið á sjó, en ekki varð
honum meint af.
Telur bílstjórinn lausa stiga,
sem notaðir eru á þennan hátt
fyrir landgang, alltof hættulega
og ekki er öruggt að einhver
sjái til er mönnum skrikar fót-
ur í þeim.
Jóhannes Markússon, yfirflug-
stjóri Loftleiða sagði:
Eins og fram hefur komið í
blaðagreinum þá eru brautir
Reykjavíkurflugvallar ekki nægi
lega langar til flugtaks fyrir
Cloudmasterflugvélar fullhlaðnar
í logni og er því flugtaksþungi
þessara flugvéla af flugvellinum
verulega takmarkaður, skv. þar
að lútandi reglum. Af þessum sök
um verða flugvélar Loftleiða oft
að lenda á Keflavíkurflugvelli
til að geta tekið nægilegt elds
neyti til flugs yfir hafið. í»að
má því segja að Reykjavíkurflug
völlur sé ekki lengur hlutverki
sínu vaxinn sem millilandaflug-
völlur og að Keflavíkurflugvöll-
ur hljóti að taka við því hlut-
verki í framtíðinni.
Jóhannes Snorrason, yfirflug-
stjóri hjá Flugfélagi íslands
sagði að það sem hann hefði
átt við í grein sinni væri þetta:
Lengsta flugbrautin á Reykja-
víkurflugvelli er 1750 m löng. í
logni getur Cloudmasterflugvél
ekki hafið sig til flugs af henni
nema með þungann 46.700 kg, en
fullhlaðnar mega þessar vélar
vera 48.580 kg. Þama vantar þvi
1880 kg. upp á það að Cloudmast
erflugvél geti hafið sig til flugs
af þessum flugvelli fullhlaðin. Af
þessari ástæðu verða Loftleiðir
t.d. oft að lenda á Keflavíkur-
flugvelli til að bæta á sig á leið
vestur.
Þegar lagt er upp á fullri leyfi-
legri vigt af Reykjavíkurflug-
velli, á það teoretiskt að vera í
lagi og ekki hættulegt. En ýmis
Framh. á bls. 23
Loðnan enn í
Keflavíkurhöfn
Keflavík, 14- marz. — Loðnu-
veiðin í Keflavíkurhöfn hélt á-
fram í allan dag. Sömu fjórir
bátar voru að veiðum, og saman-
lagðuT afli þeirra var 1300 tunn-
ur. Virðist enn vera mikil loðna
í höfninni, og verður veiðum
haldið áfram, ef veður spillir
ekki.
V.b. Vonin, sem stundar loðnu-
veiðar á rúmsjó, fékk lítinn afla,
eða um 60 tunnur, en fékk hins
vegar nokkur tonn af ýsu í nót-
ina. — hsj.
Barn
týnist
■ Borgartirði
Umfangsmikil leit
ÞRIGGJA ára gamall dreng-
ur frá bænum Giljahiíð í
Flókadal í Borgarfirði týnd-
ist klukkan rúmlega 6 í gær-
kvöldi. Leit var hafin rétt fyr-
ir kl. 7 og í gærkvöldi flaug
Björn Pálsson með sporhund-
inn Nonna að Stóra-Kroppi
til að aðstoða við leitina.
Litli drengurinn hafði ver-
ið að leika sér úti og varð
fólkið síðast vart við hann um
kl. 6 síðdegis. Um kl. 7 átti
að taka drenginn inn, en þá
fannst hann hvergi.
Drengurinn heitir Þorsteinn
Berg. Hann er sonur hjónanna
Sigríðar Þorsteinsdóttur og Mein
hart Berg, sem búa að Giljahlíð.
Fólkið á bænum hóf þegar
leit, en hún varð árangurslaus.
Flestir gangfærir menn úr Reyk-
holtsdal og Reykholtsskóla komu
til að aðstoða við leitina, en
þegar hún bar ekki árangur var
leitað eftir að fá sporhundinn
Nonna frá Hafnarfirði til leitar
innar.
Björn Pálsson, flugmaður, fór
í gærkvöldi með sporhundinn og
tvo gæzlumenn hans fljúgandi
að Stóra-Kroppi. Lenti Björn kl.
rúmlega 10. Þá var mjög hvasst
og nokkuð kalt. Björn flaug
þegar aftur til Reykjavíkur.
Einar 8—10 bifreiðir lýstu upp
lendingarbrautina.
Farið var með sporhundinn að
Giljahlíð og hann látinn þefa af
fötum barnsins. Hófst svo leit að
nýju. Tók hundurinn á rás upp
á háls einn í nágrenninu.
Þegar Morgunblaðið fór i
prentun, höfðu ekki borizt frétt-
ir um hvort árangur hefur orðið
af leitinni.
Fresturinn
framlengd-
ur enn
.!
f DAG, 15. marz, er útrunn- .
inn frestur sá, er fulltrúar !
BSRB og ríkisins höfðu fengið
til þess að koma sér saman
um launakjör opinberra starfs .
manna. Samkomulag hafði
ekki náðst í gær, og var þá y
ákveðið að framlengja frest-
inn til 1. apríl n.k.
i
Mánafoss sigldi hrezkan
fiskibáf í kaf við Hull
Báturinn sigldi í veg fyrir skipið
— Áhöfnin bjargaðist
HIÐ nýja skip Eimskipafélags
íslands, Mánafoss, sigkli niður
brezkan fiskibát um kl. 7 s.l.
miðvikudagskvöld, er skipið var
á leið til hafnar í Hull. Bátur-
inn sökk samstundis, en áhöfn-
in, 3 menn, björeuðust um borð
í Mánafoss.
Þegar slysið varð var diirnn-
viðri og þoka. Fiskibáturinn, sem
var 20 tonn að stærð, var á leið
á miðin, en báturinn lét ekki
að stjórn, þar sem stýri hans var
bilað.
Ekki urðu slys á mönnum, en
bátuxinn söikik samstundis við
áreksturinn. Skemmdir urðu eng
ar á Mánafossi.
Hafnsögumaður var um borS
í Mánafossi ,þegar árekstuxina
varð.
Sjópróif hófust í Húll strax
daginn eftir. Kom í ljós, sam-
kvæmt framiburði formanns fiskj
bátsins, að hann lét ekki að stjóra
og sigldi í veg fyrir Mánafoss.
Mánafoss er væntanlegur til
Reykjavikur í dag. ____